24 stundir - 04.04.2008, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@24stundir.is
Veitingastaðurinn Gullfoss Res-
taurant and Lounge var nýverið
opnaður í gamla Eimskipshúsinu
en búið er að breyta staðnum tölu-
vert. Guðvarður Gíslason veit-
ingamaður segir bæði vera nýjar
áherslur í innréttingum sem og
veitingum og víni. „Veitingastað-
urinn Salt var hér áður og við
breyttum staðnum þannig að veit-
ingastaðurinn er þar sem barinn
var og barinn þar sem veitinga-
staðurinn var. Svo skreyttum við
allt upp á nýtt og breyttum heil-
miklu. Þetta er miðjarðarhafs-
staður með áherslu á spænskt og
franskt og við erum með tíu rétta
matseðil í New Style Tapas-
línunni. Auk þess erum við með a
la carte matseðil,“ segir Guðvarður
og bætir við að nafn veitingastað-
arins hafi að hluta til verið valið
vegna staðsetningarinnar. „Stað-
urinn er í gamla Eimskipshúsinu
en flaggskip Eimskipafélagsins var
Gullfoss sem flutti fólk til nýrra
menningarheima. Svo má ekki
gleyma því að Gullfoss er einn fal-
legasti foss landsins og margir
ferðamenn sem skoða hann.“
Vínótek frá Ítalíu
Guðvarður talar um að það sé
mikið úrval léttvína á barnum en
auk þess sé svokallað Vínótek á
Gullfossi. „Vínótek eru vínvélar
sem henta fullkomlega fyrir vín-
smakk. Þar getur fólk smakkað
mismunandi tegundir af víni, ann-
aðhvort fengið sér einn sopa, hálft
glas eða heilt glas. Fyrst þarf að
kaupa smartkort á barnum fyrir
ákveðna upphæð. Í Vínóteki eru
átta tegundir af rauðvíni og átta
tegundir af hvítvíni en þetta eru
fyrstu vélarnar þessarar tegundar á
Íslandi. Þessar vélar koma frá Ítal-
íu en eru að slá í gegn víða um
heim.“
Gullfoss Nýjar áherslur í
innréttingum og veitingum.
Miðjarðarhafsstaður með mikið úrvali af víni
Vínsmakk með
smartkorti
Á veitingastaðnum Gull-
foss Restaurant and Lo-
unge má kaupa smart-
kort með ákveðinni
upphæð sem er nýtt í
Vínótek en Vínótek hent-
ar fullkomlega fyrir þá
sem hafa áhuga á að
smakka mismunandi vín.
24stundir/Ómar
Spínat er notað í matargerð víða
um heim og er má segja eitt vin-
sælasta græna grænmetið á mark-
aðnum. Ljósgræn spínatblöð eru
bragðmildari en þau dökkgrænu
og því tilvalin hrá í salat. Dökk-
grænu blöðin eru frekar soðin eða
elduð í mat en spínat hefur einn
sneggsta eldunartíma grænmetis
og skreppur saman þegar það er
eldað. Spínat má kaupa allt árið
um kring en er best frá apríl til
september. Ýmislegt girnilegt má
elda úr spínati en hér kemur upp-
skrift að pasta með spínatpestói og
ólífum og hornum (croissants)
með spínati.
Pasta, furuhnetur og múskat
Í þennan rétt þarf hæfilegt magn
af pasta og á meðan það er soðið
skal vatn soðið í katli og hellt ró-
lega yfir poka af spínati sem sett er
í sigti. Hristið allt vatn af spínatinu
eftir það og setjið í matvinnsluvél.
Bætið síðan út í tveimur hvítlauks-
geirum, tveimur matskeiðum af
góðri ólífuolíu, 200 g af fetaosti og
nærri 50 g af furuhnetum. Maukið
hráefnið því næst saman þannig að
það verði að pestókenndri sósu.
Kryddið loks með múskati, salti og
pipar. Hrærið sósuna saman við
pastað og skreytið með gróft söx-
uðum ólífum og því sem eftir er af
furuhnetunum og ostinum. Til að
pestóið fái enn meira bragð er gott
að rista furuhneturnar á pönnu
áður.
Spínatsmjörhorn
Steikið saman spínat og hvítlauk
í smá smjöri á lágum hita. Hitið
grillið og léttristið hornin, setjið
síðan ofan á þau spínatblönduna
og brieost. Setjið síðan aftur í ofn-
inn og grillið þar til osturinn er
bráðnaður. Girnilegt í helgarmorg-
unmatinn eða bröns.
maria@24stundir.is
Hollt og grænt í matargerðina
Spínatpestó með pasta
Hjá flestum breytist mat-
aræðið óhjákvæmilega nokkuð
með hækkandi sól og segir Jó-
hanna Vigdís Hjaltadóttir, sjón-
varpskona og áhugakokkur, að
slíkt gildi einnig um sig. „Heima
hjá mér reynum við að borða
það sem er best á hverri árstíð og
þegar daginn fer að lengja og sól-
in að hækka á lofti verður meira
úrval af fersku grænmeti og
ávöxtum. Svo og íslensku græn-
meti og þá sérstaklega þegar
sumarið kemur. Þá reyni ég fylla
heimilið af sólskinstómötum og
agúrkum,“ segir Jóhanna Vigdís.
Kartöflur með hýðinu
Henni finnst frábært að grilla
og gerir svo allan ársins hring en
þó meira á sumrin en um vetur.
Ýmis konar kjöt og kjúklingur er
í uppáhaldi á grillið hjá Jóhönnu
Vigdísi og segir hún einfaldasta
meðlætið með slíku vera kart-
öflur sem hún penslar með olíu
og setur á bakka. „Ég pakka þeim
ekki inn í álpappír því þannig
verða þær helmingi betri. Mér
finnst gott að setja smjör í kart-
öflurnar og láta það bráðna og ég
borða alltaf hýðið, mér er sagt að
það sé hollast og ég bara trúi
því,“ segir Jóhanna Vigdís. Hún
grillar einnig grænmeti á bakka
og býr til ferskt salat þar sem
hún velur saman grænmeti í fal-
legum litum.
maria@24stundir.is
Mataræðið breytist með hækkandi sól
Sólskinstómatar og gúrkur
Jóhanna Vigdís Borðar
kartöflur með hýðinu.
Verslunin Rúmgott · Smiðjuvegi 2 · Kópavogi · Sími 544 2121. Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16 www.rumgott.is
Gel/ethanOl
aRineldStæði í
SumaRbúStaðinn
eða heimilið.
ReyKlauS OG
lyKtaRlauS
byltinG í SVefnlauSnum
tilbOðSdaGaR - VaxtalauS lán í 6 mánuði
55
ára
Húsgagnavinnustofa rH
Frí legugreining og
fagleg ráðgjöf um val
á heilsudýnum.
20-50%
afSláttuR