24 stundir - 04.04.2008, Síða 26
26 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008 24stundir
teg Charlie - Nýkominn og rosa flottur
í D,DD,E,F,FF,G
skálum á kr. 6.990,-
teg Lola - gott snið nýkomið í nýjum lit
í D,DD,E,F,FF,G,GG
skálum á kr. 6.990,-
teg. Pollyanna - sömuleiðis frábært
snið nýkomið aftur í
D,DD,E,F,FF,G,GG,H,HH, J skálum á
kr. 5.990,-
Misty, Laugavegi 178,
Sími 551 3366
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf
www.misty.is
LÍFSSTÍLLHELGIN
helgin@24stundir.is a
Flestir eru með einhver til-
boð sem freista þannig að
þetta er mikil sölusýning.
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Framundan er betri tíð með blóm í
haga og því margir farnir að huga
að vor- og sumarverkunum. Án efa
verða einhverjir þeirra á ferli í Fíf-
unni um helgina þar sem sýningin
Sumar 2008 fer fram. Þar gefst
fólki tækifæri til að kynna sér vörur
og þjónustu sem tengjast atvinnu-
lífinu, sumarhúsinu, garðinum,
heimilinu, afþreyingu og ferða-
þjónustu.
„Sýningin er mjög fjölbreytt en
það sem er svolítið einkennandi
fyrir hana er hvað það er mikið af
tækjum og tólum þannig að þetta
er eins og sandkassi fyrir strákana,“
segir Auður I. Ottesen, fram-
kvæmdastjóri Sumars 2008. Að
sögn Auðar er ekki aðeins um að
ræða græjur fyrir grillið eða garð-
inn heldur einnig hjólhýsi, tjald-
vagna og dráttarbíla og fleira.
Vörubílstjórar á staðnum
„Þarna verður líka straumsund-
laug sem á eftir að vekja athygli.
Það stendur til að sunddeildin í
Kópavogi þreyti þar áheitasund á
laugardeginum,“ segir Auður og
bendir á að von sé á fleiri gestum.
„Vörubílstjórarnir koma og safna
undirskriftum og kynna málstað
sinn á sýningunni,“ segir Auður.
Skrúðgarðyrkjumenn og aðrir fag-
menn verða á staðnum og veita
fólki upplýsingar og góð ráð auk
þess sem blómaskreytar kynna
strauma og stefnur fyrir brúðkaup
sumarsins.
Mikil sölusýning
Sýningin hefur verið haldin
undanfarin ár og kemur sama fólk-
ið oft ár eftir ár að sögn Auðar.
„Fólk kemur jafnvel báða dagana
og gefur sér góðan tíma,“ segir
Auður og bendir á að margir komi
einnig í kauphugleiðingum. „Flest-
ir eru með einhver tilboð sem
freista þannig að þetta er mikil
sölusýning,“ segir Auður I. Ottesen
að lokum.
Stórsýningin Sumar 2008 í Fífunni
Sumarið nálgast
Fólk getur kynnt sér
vörur og þjónustu sem
tengist sumrinu á stór-
sýningunni Sumar 2008
sem hefst í Fífunni í dag
og stendur alla helgina.
Sumar 2008 Á sýningunni verður
hægt að kynna sér alls kyns vörur
og þjónustu sem tengist sumrinu.
24stundir/hag
Gallerí Fold · Rauðarárstíg og KringlunniRau›arárstígur 14, sími 551 0400 · Kringlan, sími 568 0400 · www.myndlist.is
Íslensk list
gerir hús að heimili
· · ·
Á
sgrím
ur Jónsson
Listmunauppboð
Á Hótel Sögu, Súlnasal, sunnudaginn 27. apríl, kl. 19.
Erum að taka á móti verkum núna
Opið í Galleríi Fold á Rauðarárstíg, virka daga 10–18,
laugardaga kl. 11–16 og sunnudaga kl. 14–16
H
araldur Bilson
Vilhjálms minnst
Tónlist Tónleikar í minningu
Vilhjálms Vilhjálmssonar verða
endurteknir í Salnum í Kópavogi
laugardaginn 5. apríl kl. 16 og
20. Söngvararnir Stefán Hilm-
arsson, Pálmi Gunnarsson, Frið-
rik Ómar og Guðrún Gunn-
arsdóttir flytja lög Vilhjálms
Vilhjálmssonar en um þessar
mundir eru 30 ár liðin frá and-
láti hans. Miðaverð er 4.900 kr.
Low á Nasa
Tónlist Bandaríska rokktríóið
Low heldur tónleika á skemmti-
staðnum NASA við Austurvöll
föstudagskvöldið 4. apríl. kl. 22.
Margir muna eftir tónleikum
sveitarinnar ásamt Sigur Rós
sem fram fóru í Háskólabíói fyr-
ir fáeinum árum. Hljómsveitin
Skakkamanage hitar upp fyrir
tríóið. Miðaverð er 2.200 kr.
Minningartónleikar Bergþóru
Tónlist Tónleikar í minningu
Bergþóru Árnadóttur tónlistar-
manns veða haldnir í Graf-
arvogskirkju laugardaginn 5.
apríl kl. 20:30. Margir af fremstu
söngvurum og hljóðfæraleik-
urum þjóðarinnar færa lög Berg-
þóru í nýjan búning. Þeirra á
meðal eru Páll Óskar, Magga
Stína, Hansa, Ragnheiður Grön-
dal og Hjörleifur Valsson. Miða-
verð er 3.000 kr.
Það besta í bænum
Hljómsveitin Specials heldur upp á
ársafmæli sitt á Kringlukránni um
helgina. Hljómsveitin sérhæfir sig í
dægurtónlist sjötta og sjöunda ára-
tugarins. Jafnframt reynir sveitin
að halda til haga ýmsum gull-
molum gamalla sveita sem fallið
hafa í gleymskunnar dá. Þó að
sveitin sé ung eru liðsmenn hennar
gamlir í hettunni en það eru þeir
Óttar Felix Hauksson, Ásgeir Ósk-
arsson, Ingvar Grétarsson og Jón
Ólafsson. Afmælið hefst á föstu-
dagskvöld kl. 23.
Specials fagnar
ársafmæli sínu