24 stundir - 14.06.2008, Side 4
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@24stundir.is
„Líknardráp er gott dæmi um mál-
efni þar sem stór munur getur ver-
ið á hvernig tilteknu dæmi er svar-
að og því hvað maður vill gera að
almennri reglu,“ segir Salvör Nor-
dal, forstöðumaður Siðfræðistofn-
unar Háskóla Íslands.
Þegar einstök tilfelli eru skoðuð
getur oft verið erfitt að sjá siðferði-
leg rök gegn því að manneskju sé
hjálpað að binda enda á líf sitt, seg-
ir Salvör. Viðkomandi geti t.d. ver-
ið fær um að taka upplýsta ákvörð-
un, viljað ákaflega heitt að
bundinn sé endi á líf sitt enda
dauðvona og þjáður og geti það
mögulega án þess að það hafi áhrif
á aðra. „En það er eitt að svara til-
teknu dæmi og annað að móta al-
mennar reglur fyrir heilbrigðis-
þjónustuna.“
Ekki það sama og líknardráp
Guðjón Sigurðsson, formaður
MND félagsins, sagði í grein í 24
stundum í vikunni að áður fyrr
hafi MND-sjúklingum sem þurftu
á öndunarvél að halda staðið til
boða að annað hvort þiggja þjón-
ustu inni á spítala eða deyja. Flestir
hafi valið seinni kostinn, sem hann
vill þó ekki kalla líknardráp.
Salvör bendir á að þegar um sé
að ræða að slökkt sé á öndurnarvél
sem leiðir samstundis til þess að
sjúklingur deyr, sé orsakasamheng-
ið á milli andláts sjúklings og
gjörðar læknis ekki ósvipað því
þegar sjúklingi er gefin banvæn
sprauta. Einnig sé ætlunin í báðum
tilfellum sú sama, þ.e. að binda
enda á líf sjúklings.
Hún segir þó grundvallarmun
annars vegar á því að biðja heil-
brigðisstarfsfólk um að hætta ein-
hverri athöfn og hins vegar því að
biðja um inngrip sem mun leiða til
dauða sjúklingsins.
Áhrif á heilbrigðissamfélagið
„Það sem mér finnst vera mik-
ilvægast í þessu samhengi eru
spurningar um hvaða áhrif það
hefur fyrir heilbrigðisþjónustuna
að leyfa líknardráp,“ segir Salvör.
Hún segir ekki hægt að ætlast til
þess að heilbrigðisstarfsfólk taki
virkan þátt í að enda líf sjúklings.
Viðhorfskannanir sýni að læknar
hér á landi séu almennt á móti
líknardrápi, enda sé helgi lífs stór
hluti af siðareglum lækna og ef-
laust greypt inn í vitund þeirra.
Þá geti það að leiða í lög heimild
lækna til að binda enda á líf sjúk-
lings grafið verulega undan því
trausti og sambandi sem þarf að
ríkja á milli sjúklings og læknis.
Eftirlit með líknardrápum erfitt
Reynslan frá Hollandi, þar sem
líknardráp var lögfest árið 2002,
sýnir að vandasamt getur verið að
hafa eftirlit með líknardrápi, segir
Salvör. „Það er t.d. erfitt að meta
eftir á hvort sjúklingurinn hafi ver-
ið hæfur og haft forsendur til að
taka ákvörðunina.“
Salvör bendir einnig á að líkn-
andi meðferð hafi verið minna
þróuð í Hollandi en víða annars
staðar, sökum þess að þar hafi verið
einblínt á líknardáp. Þá hafi sýnt
sig, t.d. í ríkinu Oregon í Banda-
ríkjunum þar sem líknardáp eru
leyfileg, að eftir því sem líknandi
meðferð verður betri og almennari,
fækkar þeim sem kjósa líknardráp.
„Þetta bendir til að óskir fólks
stjórnist af þeim meðferðarkostum
sem eru í boði. Mikilvægast er að
sjúklingar átti sig á þeim mögu-
leikum sem eru fyrir hendi, og
hversu mikið líknandi meðferð
hefur fleygt fram.“
Líknardráp
varasöm regla
Eitt að svara einstökum dæmum, annað að búa til almenna reglu
Ekki hægt að ætlast til þess að heilbrigðisstarfsfólk taki líf
➤ Líknardráp er leyfilegt í Hol-landi, Belgíu, Lúxemborg,
Sviss, sumum fylkjum Ástr-
alíu og Oregon-ríki.
LÍKNARDRÁP LEYFT
Vandasamt Salvör segir reynsluna frá Hollandi, þar sem líknardráp er leyfilegt, sýna að eftirlit með líknardrápi getur verið erfitt.
24stundir/Golli
4 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2008 24stundir
„Geðsvið Landspítalans hefur
einungis í undantekningartilfellum
nýtt sér þjónustu Securitas,“ segir
Linda Kristmundsdóttir, starfandi
sviðsstjóri geðsviðs Landspítalans.
Eins og sagt hefur verið frá í 24
stundum hefur verið gerður þjón-
ustusamningur milli Landspítalans
og Securitas um að öryggisverðir
frá fyrirtækinu sitji yfir ákveðnum
sjúklingum.
„Þessi nýi samningur gildir fyrst
og fremst fyrir önnur svið spítal-
ans. Þar er fólk einnig með geð-
raskanir og þá eru öryggisverðir frá
Securitas mögulega fengnir til að
sitja yfir. En við á geðsviði mönn-
um vaktir með okkar starfsfólki og
munum áfram nýta það til yfir-
setu,“ segir Linda. hos
Geðsvið nýtir eigið starsfólk til yfirsetu
Örsjaldan nýtt sér
þjónustu Securitas
STUTT
● Bætt aðstaða Ný og end-
urbætt aðstaða í Jarðböðunum
í Mývatnssveit var tekin í notk-
un í gær. Um er að ræða veit-
ingaaðstöðu fyrir allt að 100
manns og auk þess bætta að-
stöðu í nágrenni baðanna úti
við. Allt að 250 geta nú verið í
böðunum í einu en þegar mest
lætur hafa um 1.200 gestir
heimsótt þau á dag.
● Samruni samþykktur Sam-
keppniseftirlitið féllst í gær á
kaup IP-fjarskipta á öllu
hlutafé í Ódýra símafélaginu
og einnig kaup Teymis, móð-
urfélags Vodafone á Íslandi, á
rúmlega helmingi hlutafjár í
IP-fjarskiptum. Í úrskurði
Samkeppniseftirlitsins, sem
birtur var á vefsíðu eftirlitsins
í gær.
„Ritgerðin mín fjallar um Laffer- kúrf-
una og tengsl tekjuskatthlutfalls og
skatttekna. Ég var að skoða kenningar
um kúrfuna og hvernig þær eigi við Ís-
land,“ segir Arna Varðardóttir, sem er
nýútskrifuð með BS- gráðu af við-
skipta- og hagfræðideild.
Hún telur að það séu margir þættir í
íslensku efnahagslífi sem passi við þá
þætti sem lagðir eru til grundvallar í
kenningunni. Arna hlaut ágæt-
iseinkunn með meðaleinkunn 9.16.
Hollvinafélag deildarinnar veitir pen-
ingaverðlaun fyrir afburðaárangur
einu sinni á ári, eða 250.000 kr., sem
hún hlaut að þessu sinni. Arna, sem er
23 ára, stefnir á framhaldsnám í hag-
fræði í framtíðinni, en stefnir á að taka
sér ársfrí frá námi. áb
Afburðaárangur hjá Örnu
Tæplega tvítugur karlmaður, Ro-
bert Dariusz Sobiecki, hefur verið
dæmdur fyrir að nauðga stúlku á
salerni Hótels Sögu í fyrravetur.
Hann var líka dæmdur til að
greiða konunni 1,5 milljónir
króna í bætur og 2,8 milljónir í
málskostnað. Málið hafði velkst
um, því að maðurinn var fyrst
sýknaður af ákæru í júlí í fyrra,
en Hæstiréttur ómerkti dóminn
og sendi málið aftur heim í hér-
að. Nú komst fjölskipaður hér-
aðsdómur að því að framburður
stúlkunnar væri traustur. Sannað
teljist að maðurinn hafi ýtt henni
inn á salerni í kjallara Hótels
Sögu, girt niður um hana og
þröngvað henni með ofbeldi til
kynferðismaka. Dómurinn
ákveður refsingu með hliðsjón af
því að Hæstiréttur hafi á liðnum
misserum þyngt refsingar vegna
kynferðisbrota. bee
Hótelnauðgari
fær þrjú ár
Verslunarskóli Íslands og
Menntaskólinn í Hamrahlíð
þurfa samtals að vísa frá rúmlega
400 nemendum sem sóttust eftir
námi við skólana. Þessir nemar
eiga þó vísa inngöngu í aðra
framhaldsskóla, að því er fram
kemur í tilkynningu frá mennta-
málaráðuneytinu. Samtals sóttu
4.400 nemendur 10. bekkjar í
landinu af 4.600 um skólavist. mh
Þurfa að vísa
400 nemum frá
Þrír erlendir menn voru í gær
dæmdir til fangelsisvistar fyrir
kortasvindl í Héraðsdómi
Reykjavíkur. Annars vegar voru
Rúmeni og Þjóðverji dæmdir fyr-
ir að hafa tekið 1,8 milljónir út af
um 30 kortum og hlutu fyrir tíu
og sjö mánaða dóm. Í hinu mál-
inu var Rúmeni dæmdur fyrir að
taka út 670 þúsund af 19 kortum
og hlaut sex mánaða dóm. þsj
Dæmdir fyrir
kortasvindl
Í dag útskrifast 495 nemendur frá
Kennaraháskóla Íslands (KHÍ) en
þetta er í síðasta sinn sem braut-
skráð er frá KHÍ. 1. júlí sameinast
KHÍ Háskóla Íslands en við sam-
eininguna verður til nýtt mennta-
vísindasvið við Háskóla Íslands
sem KHÍ myndar grunn að. Sam-
tals útskrifast 409 nemendur úr
grunnnámi, 86 úr framhaldsnámi
og sautján útskrifast með meistaragráðu. Flestir þeirra sem útskrifast
úr grunnnáminu eru grunnskólakennarar, eða 170, en leikskólakenn-
arar eru 65. Í íþróttafræði útrskrifast 31 nemandi, 43 í þroskaþjálfa-
fræði og sex í tómstunda- og félagsmálafræði. mh
496 kandídatar útskrifast frá KHÍ
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Neytendasamtökin gerðu könnun á 1/4 lítra af kókó-
mjólk. Mesti verðmunur reyndist vera 75%, þar sem
lægsta verðið reyndist vera í Bónus en það hæsta í N1.
Vert er að taka það fram að könnunin er ekki tæm-
andi.
Ekki er heimilt að vitna í þessa könnun í auglýsingum.
75% munur á kókómjólk
Halldór
Oddsson
NEYTENDAVAKTIN
Kókómjólk ¼ lítri
Verslun Verð Verðmunur
Bónus 56
Krónan 57 1,9 %
Fjarðarkaup 67 19,6 %
Nóatún 79 41,1 %
10-11 96 71,4 %
N1 98 75,0 %