24 stundir - 14.06.2008, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2008 24stundir
Eftir Auði Alfífu Ketilsdóttur
fifa@24stundir.is
„Það er algjörlega út í hött að
banna fólki að fá sér vegglistaverk á
vegginn hjá sér ef það vill gera það.
Ég get ekki séð að þetta sé nokkuð
öðruvísi en ef fólk á málverk í stof-
unni heima og borgin kemur og
málar yfir það,“ segir Margeir Dire
Sigurðsson veggjalistamaður um
hreinsunarátak borgarinnar. Hann
er einn þeirra sem unnu að verkinu
við Alþjóðahúsið í Reykjavík og
málað var yfir í vikunni, eins og 24
stundir greindu frá. Hann segir
mikla vinnu á bak við verk eins og
þetta, hann flaug frá Akureyri og
var í Reykjavík í fjóra daga vegna
þess, auk hugmyndavinnu.
Hann segir þó ekki nóg að
stjórnvöld breyti viðhorfunum,
listamennirnir verði líka að breyta
sínu viðhorfi. „Þetta stríð gengur
ekki. Ef menn fá svæði til þess að
vinna á þýðir ekki að spreyja allt í
kring líka,“ segir hann.
Á vegg Kramhússins við Berg-
staðastræti hefur verið listaverk í
rúm 20 ár en nú þarf að sækja um
leyfi fyrir því.
„Við erum öll svo hamingjusöm
með að það sé verið að mála yfir
krassið en þetta er eins og engi-
sprettufaraldur, þeir mála bara allt
grátt og þetta endar eins og lítil
borg í Sovét þar sem allt er eins,“
segir Hafdís Árnadóttir, eigandi
Kramhússins. „Þetta er ekkert
merkileg mynd en fyrir okkur er
hún tákn fyrir húsið,“ segir hún.
Magnús Sædal, byggingarfulltrúi
Reykjavíkurborgar, segir athuga-
semdir gerðar við hús sem illa eru
farin og fólki gert að laga þau. „Það
er skylda fólks að halda eignum
sínum við,“ segir hann.
Hreinsunarátak borgarinnar felur í sér hreinsun á fleiru en krassi
Þurfa að sækja um leyfi fyrir 20 ára vegglistaverki
➤ Hafi fólk ekki sótt um leyfi tilborgarinnar til að mála lista-
verk á hús sín verður málað
yfir þau.
➤ Byggingarfulltrúi sér um aðgefa leyfi fyrir veggjalist.
REGLUR BORGARINNAR
Í óleyfi Veggurinn sem málað var
yfir við Alþjóðahús í vikunni.
VEGGJAKROT
frettir@24stundir.is a
Þetta stríð gengur ekki. Ef menn
fá svæði til þess að vinna á þýðir
ekki að spreyja allt í kring líka.
Leyfisveggur Þessi veggur er einn mjög fárra sem sótt hefur verið um leyfi til þess að mála á. Umsóknum um að fá að gera lista-
verk á veggi hefur verið hafnað.
Listamaður að störfum „Þetta er gullfallegt listform og svo býður maður fólki listina
sína frítt,“ segir Margeir. Myndin er frá því veggur Alþjóðahúss var skreyttur í fyrra.
Í niðurníðslu „Ef fólk hefur ekki efni á að halda húsinu við hefur það ekki heldur efni á að eiga það. Það er hluti
af því að eiga hús að halda því við,“ segir Magnús Sædal
Rúmlega tvítug Listaverkið sem tveir listnemar máluðu á vegginn hefur alveg fengið að vera í friði, nú
þarf að sækja um leyfi svo hún fái að vera áfram.