24 stundir - 14.06.2008, Blaðsíða 24

24 stundir - 14.06.2008, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2008 24stundir Ég verð að viðurkenna: Ég skil ekki þessa kreppu. Fyrst og fremst sé ég enga ástæðu fyrir henni. Eitthvað um einhvern lánabissn- iss í henni Ameríku, sem skítalykt er af; ég á bara ógurlega erfitt með að taka mark á því. Að þau leiði til einhverrar alls- herjar efnahagskreppu í heimin- um, á ég við. Jú, vissulega fatta ég að kannski hafi bankar á Vesturlöndum gengið fullhratt um gleðinnar dyr í nokk- ur misseri og lánað út peninga hægri vinstri og ekki alltaf gætt nóg að sér svo nú sé hætta á að afskrifa þurfi slatta af útlánunum, en með leyfi að spyrja: Hafa bankarnir ekki grætt svo gegndarlaust síðustu árin að þeir geti leikandi lifað af svolítið tap í skamman tíma meðan jafn- vægi er að nást? Eða hvar er allur gróði bank- anna síðustu ára, allir milljarðarnir á milljarðana ofan sem við lásum hrifin um í blöðunum? Voru það kannski aldrei alvörupeningar? Eru þeir peningar hvergi til? Voru þeir jafnóðum lánaðir út aftur í ein- hverja bölvaða dellu? Og gufaðir upp? Eða eiga bankarnir ennþá þessa peninga en hafa nú afráðið að láta okkur ekki fá þá, því okkur sé ekki treystandi? Engar hamfarir En það er nú það. Vissulega hafa margir vafalaust reist sér hurðarás um öxl á síðustu árum og tekið meira að láni en menn eiga auðvelt með að borga, nú þegar hægist að- eins á geðspani efnahagskerfisins, en bera ekki bankarnir á Vestur- löndum svolitla sök á því sjálfir? Því um allan hinn vestræna heim kepptust bankar beinlínis um að ota að fólki peningunum. Fáðu lánað hjá mér, nei, taktu lán hjá mér, iss nei, ég skal lána þér helm- ingi meira … Aftur finnst manni því að bank- arnir ættu bara að taka part af skellinum á sig, frekar en læsa allan sinn pening niðri, vera stikkfrí og skella gróða undanfarinna ára nið- ur í harðlæst hólf og henda lykl- inum. Eins og nú virðist vera raun- in. Því ekki fær maður betur séð en langstærsti hluti kreppunnar stafi einfaldlega af því að bankarnir vilja ekki lengur lána neinum pening. Ekki af því neitt hafi komið fyrir. Það hafa engar hörmungar skollið á, engar hamfarir orðið, ekki hrun á neinu sviði. Og ríkið meira að segja lýst sig reiðubúið að taka stórt lán til að snúa vélinni aftur í gang – þarf endilega að bíða eftir að allt stoppi fyrst, svo bankarnir taki til starfa? Engar raunverulegar forsendur Bensín hefur hækkað, jú, en ástæðan fyrir því virðist einfaldlega vera sú að einhverjir hafi ákveðið að bensín skyldi hækka. Það virðast engar raunverulegar forsendur fyr- ir þessari hækkun. Sama er að segja um matvöru, svo svívirðilega sem það hljómar. Annað hefur ekki gerst. Það hef- ur enginn loftsteinn rekist á jörð- ina. Engin engisprettuplága gengið yfir. Bara bankarnir hætt að lána. Og er þá ekki bara hægt að bjarga því með tiltölulega einföld- um hætti? Með því að bankarnir opni aftur hirslurnar þar sem það er, allt gullið, sem þeir græddu á okkur í góðærinu? Það er að segja ef þeir peningar eru einhvers staðar til en hafi ekki bara allan tímann verið ímyndun, blikkandi ljós í tölvu. Hér á Íslandi virðist sem hjól at- vinnulífsins séu nú óðum að hægja ferðina og hætta sé á þau stöðvist alveg. Ekki af því ekki sé lengur þörf fyrir þessi hjól eða þau mundu ekki hafa nóg af starfa ef þau fengju sitt bensín, sem er lánsfé frá bönk- um til nýrra verkefna. Heldur bara af því hirslur bankanna eru lokaðar og læstar. Að reka trukka Og hvernig væri að taka þá bara úr lás? Kannski gæta sín betur í lánveit- ingum en gert var meðan góðær- isæðið var sem sagt, en umfram allt taka bara úr lás? Leyfa okkur að kaupa fasteignir og reka trukka ef okkur sýnist og ef við teljum okkur geta staðið undir lánunum sem við þurfum að taka? Mér finnst alla vega grábölvað ef við eigum að þola einhverja kreppu sem virðist ekki eiga aðra dýpri or- sök en einhvern skítalánabissniss í Ameríku. En líklega skil ég þetta bara alls ekki. Faraldu r á vesturl öndum Því ekki að taka bara úr lás? aIllugi Jökulsson skrifar um kreppuna Eða hvar er all- ur gróði bank- anna síðustu ára, allir milljarðarnir á milljarðana ofan sem við lásum hrifin um í blöð- unum? Voru það kannski aldrei alvörupeningar? Voru þeir jafnóðum lán- aðir út aftur í einhverja bölvaða dellu? Eða eiga bankarnir ennþá þessa peninga en hafa nú af- ráðið að láta okkur ekki fá þá? Kreppan Það hafa engar hörmungar skollið á, engar hamfarir orðið, ekki hrun á neinu sviði. RV U n iq u e 06 08 02 Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is Hentugt við grillið - einnota borðbúnaður á tilboðsverði Á tilboði í júní 2008Einnota diskar, glös, bollar og hnífapör20% afsláttur www.signature.is Fiskislóð 45 • 101 Reykjavík • Sími 565 3399Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-15 Sumarið er tíminn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.