24 stundir - 14.06.2008, Blaðsíða 32

24 stundir - 14.06.2008, Blaðsíða 32
LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2008ATVINNA32 stundir ...ef svo er skalt þú kynna þér þau störf sem hér eru í boði – Starf verslunarstjóra: Verslunarstóri ber ábyrgð á sölu, innkaupum, starfsmannahaldi og almennum rekstri verslunar. – Almenn afgreiðsla: Um er að ræða sölu- og afgreiðslustarf í verslunum okkar. Þægilegur vinnutími og góð laun í boði fyrir rétta aðila. Umsóknir sendist á gudlaugur.magnusson@fiskisaga.is eða í almennum pósti merkt: Fiskisaga Suðurgötu 10, 101 Reykjavík merkt „Atvinnuauglýsing“ Hefurþú áhuga á mat, ert sælkeri, hefur gaman af að gera vel við fólk og vantar góða atvinnu? Á HÖFUÐB.SVÆÐINU: GRENSÁSVEGI • BÚÐARKÓR • DALVEGI •HAMRABORG • HÖFÐABAKKA SUNDLAUGARVEGI • NESVEGI • HÁALEITISBRAUT • TJARNARVÖLLUM • BITRUHÁLSI ÆGISBRAUT 29 Á AKRANESI: VERSLUNARMIÐSTÖÐINNI FITJUM Í REYKJANESBÆ: Óskað er eftir fólki til starfa í Sælkera verslanir okkar, Fiskisögu, Gallerý kjöt og Ostabúðina. Tískuverslunin Belladonna óskar eftir starfsmanni í 100% starf við afgreiðslu. Einnig vantar starfsmann í hlutastarf við bókhald. Athugið að um framtíðarstörf er að ræða. Hér eru nokkrar pottþéttar aðferðir til að ávinna sér óþol og fyrirlitningu vinnufélaga sinna. 1. Talaðu hátt í símann Auðvitað vilja allir viðstaddir heyra hvað þú ert hress og skemmtileg/ur og átt auðvelt með að vefja viðmælendum þínum um fingur þér. Talaðu bara nógu hátt svo allir geti lært eitthvað af þér og fyllst lotningarfullri aðdáun á samskiptahæfni þinni. Þeir geta bara haldið áfram að vinna þegar þú ert búin/n í símanum. 2. Eignaðu þér heiðurinn af verkum annarra Ekki minnast einu orði á að þú hafir fengið hjálp næst þegar yf- irmaður þinn klappar þér á bak- ið. Hópvinna-sópvinna. Miklu betra að láta líta út fyrir að þú hafir gert þetta allt á eigin spýtur. 3. Komdu veik/ur í vinnuna Ef þú ert með kvef eða gubbu- pest skaltu samt mæta í vinnuna og úða vírusum í allar áttir. Vinnufélagar þínir munu þakka þér þegar þeir geta tekið sér lang- þráðan hvíldardag heima og hangið hálfir ofan í klósettskál- inni með næringu í æð. 4. Deildu öllu með vinnu- félögunum Þú ert óvenju áhugaverður ein- staklingur svo vinnufélagar þínir vilja örugglega vita allt um þig. Jafnvel þótt þeim líði kannski ör- lítið óþægilega þar sem þú dælir yfir þá sögum af kynlífsvanda- málum þínum í gegnum tíðina. Einkalíf er ofmetið fyrirbæri. 5. Talaðu mikið um trúmál og pólitík Reyndu að koma af stað eins mörgum rifrildum og þú mögu- lega getur. Reyndu t.d. að komast að því hverjir eru viðkvæmari fyrir guðlasti en aðrir og ögraðu þeim með því að tala vel um Jón Gnarr. 6. Segðu klúra og grófa brandara og heimfærðu þá upp á vinnufélaga þína. Hvað með það þótt viðkvæmar sálir hrökkvi í kút og þú fáir á þig perrastimpil? Þetta er bara þinn húmor. Sjálfsögð mannrétt- indi að þú fáir þína útrás eins og aðrir. 7. Sendu ruslpóstinn þinn á alla starfsmenn Helltu öllu ruslinu yfir þá í tonnavís – keðjubréfum, brönd- urum, Nígeríubréfum og undir- skriftalistum. Þeir munu hugsa hlýlega til þín í hvert sinn sem þeir ýta á delete-takkann. 8. Tyggðu tyggjó með stæl Tyggðu með opinn munninn og sprengdu tyggjókúlur með lát- um. Slíkt er sem fagur fugla- söngur í eyrum vinnufélaga þinna. Keyptu þér birgðir af Hubba Bubba og geymdu í skrif- borðsskúffunni. 9. Komdu verkefnum þínum yfir á aðra Góðir stjórnendur þekkja mikilvægi þess að dreifa verk- efnum á aðra. Ókei, þú ert kannski ekki í stjórnunarstöðu núna en það er aldrei of snemmt að byrja að hugsa stórt. Hugsaðu eins og yfirmaður. Gerðu helst ekki neitt. 10. Talaðu niður til samstarfs- félaga þinna Hroki og yfirlæti gerir þig sterkari og gefur öðrum til kynna að þú ert yfir þá hafin/n. Láttu þér í léttu rúmi liggja þótt þeir fyrirlíti þig, hlæi að þér og bjóði þér aldrei í partí. Þú ert betri en þeir. Viltu verða hataðasta manneskjan á vinnustaðnum? 10 leiðir til að fara í taugarnar á vinnufélögunum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.