24 stundir - 14.06.2008, Blaðsíða 44
Eftir Hauk Harðarson
haukurh@24stundir.is
„Ég fór til Austurríkis í eitt ár og
vann á hóteli þar. Ég vann í eldhús-
inu og áhuginn á eldamennsku
kviknaði þar. Þegar ég kom heim
skellti ég mér beint í kokkinn,“ seg-
ir Heiðdís Hauksdóttir, mat-
reiðslumaður á La Primavera, en
þar hefur hún starfað í átta ár.
Getur tekið á líkamlega
Heiðdís kann vel við sig í starf-
inu en viðurkennir þó að það geti
tekið líkamlega á og valdið streitu.
„Ég hef nú alveg fengið að finna
fyrir því, ég er búin að lenda í
tveimur brjósklosaðgerðum en ég
hætti samt ekki. Svo er starfið ansi
stressandi á köflum, ég held að það
sé ekki fyrir hvern sem er að fara út
í þetta.“
Er mest fyrir fisk
Þessi ungi matreiðslumeistari
kann best að meta fjölbreytileikann
sem starfið felur í sér og að fá að
matreiða eitthvað á hverjum degi,
en hvað skyldi vera í uppáhaldi?
„Mér finnst fiskur bestur en ég á
nú engan uppáhaldsrétt. Mömmu-
maturinn er nú bara alltaf lang-
bestur,“ segir Heiðdís og segist
halda að það sé eitthvað til í þeim
orðrómi að kokkar nenni ekki að
elda heima hjá sér eftir að vinnu-
deginum lýkur en það eigi þó ekki
við um hana. „Ég dunda mér oft
við matargerð þegar ég kem heim,“
segir Heiðdís og bætir við að hún
sé dugleg að prófa nýja hluti, en
þrjár girnilegar uppskriftir frá
henni má finna á síðunni.
Heiðdís Hauksdóttur, kokkur á La Primavera, er ein af þeim sem nenna líka að elda heima
Er mest fyrir
fiskrétti
Áhuginn á eldamennsku
kviknaði í Austurríki hjá
matreiðslumanninum
Heiðdísi Hauksdóttur
sem hefur starfað á La
Primavera í átta ár. Hún
gefur lesendum 24
stunda þrjár girnilegar
uppskriftir í dag.
Heiðdís Hauksdóttir
Kokkur á La Primavera.
➤ Áhuginn á eldamennskukviknaði hjá Heiðdísi þegar
hún vann í eldhúsi á hóteli í
Austurríki í eitt ár.
➤ Hún hefur nú starfað á veit-ingastaðnum La Primavera í
átta ár.
➤ Á síðunni má finna þrjárgirnilegar uppskriftir frá
Heiðdísi, til dæmis grillaðan
skötusel og möndluköku með
espressóís.
HEIÐDÍS HAUKSDÓTTIR
44 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2008 24stundir
Alla daga
frá10 til 22
800
5555
Fyrir fjóra:
Hráefni
12 stk. stór grænn aspas
120 g smjör
2 hvítlauksrif
lófafylli steinselja
lófafylli sólþurrkaðir tómatar
100 g parmesanostur
1 tsk. maldon-salt
Aðferð
Byrjið á því að flysja aspasinn
upp að „hausnum“ og skerið hann
svo í tvennt. Setjið vatn í pott
ásamt matskeið af salti og fáið
suðuna upp. Setjið aspasinn út í
vatnið og sjóðið í 4 mínútur. Sigtið
þá aspasinn frá vatninu og leggið á
fat. Á meðan aspasinn sýður bræð-
ið þá smjörið á pönnu (passið að
láta það ekki brenna) og pressið
hvítlaukinn út í ásamt fínt saxaðari
steinseljunni og söxuðum sól-
þurrkuðum tómötum. Hellið
smjörblöndunni yfir aspasinn og
rífið síðan parmesanostinn yfir og
grillið í ofni við 200°C þar til ost-
urinn verður gullinbrúnn. Berið
fram heitt.
FORRÉTTUR
Aspas með sólþurrkuð-
um tómötum, hvítlauks-
mjöri og parmesan
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Mér finnst fiskur bestur en
ég á nú engan uppáhalds-
rétt. Mömmumaturinn er nú bara
alltaf langbestur. matur
Fyrir fjóra:
Hráefni
250 g möndluflögur
175 g eggjahvítur
200 g sykur
Aðferð
Eggjahvítur og sykur þeytt vel
saman þar til það er orðið froðu-
kennt en þá er möndlunum bætt
saman við. Sett í smurt mót og
bakað við 180°C í 25 mínútur.
Espressóís:
Hráefni
500 ml þeyttur rjómi
5 eggjarauður
150 g sykur
2 bollar espressókaffi (eða annað
sterkt kaffi)
Aðferð
Egg og sykur þeytt vel saman.
Kaffið kælt. Svo er öllu blandað
saman í skál ásamt þeytta rjóman-
um og fryst yfir nótt.
Gaman er að setja desertinn í fal-
legt glas. Ég byrja á að setja kökuna
í botninn á glasinu og skvetti smá
vin santo yfir (u.þ.b. 1 msk.) og bý
til fallega ískúlu yfir og fyrir þá sem
vilja er hægt að skella smá þeyttum
rjóma með.
EFTIRRÉTTUR
Möndlukaka „Riccarello“
með vin santo og espressóís