24 stundir - 14.06.2008, Síða 47
Eftir Heiðdísi Lilju Magnúsdóttur
heiddis@24stundir.is
Og hvort hún gat. Hún flaug yfir 4,50 hinn
25. september árið 2000 og fékk heila þjóð
til að tárast af stolti fyrir framan skjáinn.
Vala Flosadóttir hefur verið búsett í Sví-
þjóð sextán ár og er að læra sjúkraþjálfun
við Háskólann í Lundi.
Hvar býrðu í Svíþjóð og hvernig
kanntu við þig þar?
Við búum í gömlu húsi frá 18. öld, rétt
fyrir utan Lund. Ég kann mjög vel við mig í
Svíþjóð en sakna náttúrlega alltaf Íslands.
Hef alltaf verið með annan fótinn á Íslandi
og hver veit nema það verði báðir einn dag-
inn.
Hjúskaparstaða/börn?
Ég er gift Magnúsi Aroni Hallgrímssyni,
fyrrverandi kringlukastara og ólympíufara.
Ertu ennþá í íþróttum?
Við hjónin erum dugleg að æfa saman,
leikum okkur í frjálsum, hlaupum og lyft-
um lóðum. Þar að auki vinn ég að hluta til
við þjálfun og ráðgjöf hjá nokkrum íþrótta-
félögum.
Hver er helsti munurinn á Svíum og Ís-
lendingum?
Svíar hugsa sig alltaf tvisvar um, Íslend-
ingar eru fljótari til. Spurningin er hvort sé
kostur eða galli. Fer eflaust eftir aðstæðum.
Hvað langaði þig til að verða þegar þú
varst lítil?
Mig langaði lengi vel að vinna í pylsu-
vagninum við Laugardalslaugina, giftast
sundverðinum og hafa börnin okkar í
sundi allan daginn. Síðan pylsur í öll
mál … Þegar ég varð eldri breyttist draum-
urinn í það að verða læknir.
Mesta skammarstrikið fyrr og síðar?
Ég var ótrúlega þæg og góð sem krakki
og hef því miður ekki margar sögur að
segja. Man eftir því, þegar við bjuggum fyr-
ir vestan á Bíldudal, að hafa laumast út um
gluggann á herberginu mínu um miðja
nótt til að hitta vinkonur mínar sem gerðu
hið sama. Okkur fannst við vera rosalegir
prakkarar.
Hvaða lifandi manneskju líturðu upp
til og hvers vegna?
Foreldra minna. Mér finnst þau hafa
staðið sig svo vel. Þau hafa alltaf stutt
okkur systurnar í öllu því sem við höf-
um viljað gera og haft óbifandi trú á
okkur.
Stærsti sigurinn – utan eða innan
keppnisvallar?
Ég á mér marga sigra, í íþróttum,
námi og á sjálfri mér. En þeir væru
einskis virði án eiginmanns míns, fjöl-
skyldu og vina.
Mestu vonbrigðin?
Þau eru nú ekki mikil. Gleymdi að
nýta ferðapunkta í fyrrasumar áður en
þeir runnu út. Hefði getað farið til New
York …
Hvernig tilfinning er ástin?
Sú besta sem til er.
Erfiðasta lífsreynslan hingað til?
Þegar ég lít til baka finnst mér ég hafa
verið mjög lánsöm. Ég er einfaldlega þakk-
lát fyrir alla þá reynslu sem ég hef fengið,
erfiða eða ekki. Reynslan á mikinn þátt í að
móta okkur sem manneskjur. Ef það færi
aldrei að rigna í sólskininu þá fengjum við
aldrei að sjá regnbogann.
Hefurðu einhvern tíma lent í lífshættu?
Rólaði mér víst hættulega hátt í rólun-
um þegar ég var lítil. Mamma talar enn
um þetta með hroll í huga. En mesti has-
arinn sem ég hef lent í á seinni árum var á
Íslandi sumarið 2004 þegar bíll keyrði yfir
á minn vegarhelming og fór rétt fram hjá
bílnum mínum og síðan út í skurð. Sem
betur fer slasaðist enginn alvarlega en mér
hefur sjaldan verið jafn brugðið.
Hvaða hluti í eigu þinni meturðu mest?
Heilsu og hugarfar.
Hverjir eru styrkleikar þínir?
Jákvæðni, heiðarleiki og samviskusemi
eru eiginleikar sem ég vil rækta.
Ef þú byggir yfir ofurmannlegum
hæfileikum, hverjir væru þeir?
Vildi að ég gæti flogið.
Hvað gerirðu til að láta þér líða
vel?
Bið manninn minn að nudda á mér
fæturna.
Skrýtnasta starfið?
Auglýsing fyrir Sloggi-nærbuxur.
Hver myndi leika þig í kvikmynd
byggðri á ævi þinni?
Nú er ævi mín ekki öll ennþá. Bíð með
ævisögu og leikkonuval til áttræðs …
Vala Flosadóttir nýtur lífsins í Svíþjóð
Vildi að ég
gæti flogið
Ein áhrifaríkasta stund íslenskr-
ar sjónvarpssögu er án efa þeg-
ar ljóshærð, stúlka sagði ein-
beitt við sjálfa sig „ég get það“,
rétt áður en hún hljóp af stað
með stöngina á lofti.
24stundir LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2008 47
Lára Flosadóttir
er yngri systir
Völu en sjö ár eru
á milli þeirra
systra. „Vala er
mjög góð mann-
eskja og fyr-
irmynd, ef ég
hugsa um hana
almennt. Prívat og persónulega
er hún rosalega skemmtileg og
gaman að vera með henni. Við
náum mjög vel saman – sér-
staklega eftir að ég komst yfir
gelgjuskeiðið! Við erum góðar
vinkonur. Hún er alltaf hún sjálf.
Bara Vala.“
Vala er alltaf
hún sjálf
„Það sem ein-
kenndi Völu strax
í upphafi var
sterkur vilji til að
ná árangri,“ segir
Valdimar Gunn-
arsson, fyrsti
þjálfari Völu.
„Það hefði ekki
skipt máli hvaða íþróttagrein hún
hefði valið. Hún var t.d. góð í
körfubolta og öðrum boltaíþrótt-
um. Oft var hún ein að æfa á vell-
inum. Það sem kom henni áfram
var þessi vilji til að ná árangri,
eins og sást í atrennunni á Ól-
ympíuleikunum. Hann kom fljótt
í ljós.“
Viljasterk og
þrautseig
„Vala er yndisleg
manneskja, góð
fyrirmynd og það
er hægt að treysta
vel á hana,“ segir
Margrét M.
Norðdahl, frænka
Völu og vinkona.
„Hún er sterkur
karakter og veit hvað hún vill.
Hún er það sem maður kallar
100% manneskja á öllum sviðum.
Hún er hjálpsöm, góðhjörtuð og
heilsteypt. Það er hægt að segja
ofsalega margt fallegt um hana.
Svo er hún skemmtileg og fyndin
líka, góð vinkona og frábær gest-
gjafi.“
Hjálpsöm og
heilsteypt
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Þegar ég lít til baka finnst mér ég
hafa verið mjög lánsöm. Ég er ein-
faldlega þakklát fyrir alla þá reynslu sem
ég hef fengið, erfiða eða ekki. yfirheyrslan