24 stundir - 14.06.2008, Side 58

24 stundir - 14.06.2008, Side 58
58 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2008 24stundir most Famous, hefur álíka hæfni til þess að sýna tilfinningar án orða eins og liðið lík. Mest ógnvekjandi hluti mynd- arinnar gerist þegar söguhetjurnar ramba á hús á víðavangi þar sem sérvitur einbúi tekur á móti þeim. Þá sýnir leikstjórinn styrk sinn, með hægri atburðarás og spennu- mögnun í löngum þrepum. Hann ætti að halda sig við það sem hann gerir best, að láta óhugnaðinn skríða hægt upp hryggjarsúluna. Kvikmyndir biggi@24stundir.is Unnusta mín lýsti leikstjóranum M. Night Shyamalan nokkuð vel eftir að við sáum nýjustu mynd hans The Happening. Hún segir hann vera eins og vinsælustu stelpurnar í grunnskóla sem svo einhvern veginn fölnuðu og féllu í skuggann strax í menntaskóla. Þær hafi náð blóma of snemma. Ég held að það sé nokkuð til í þessu. Fyrsta alvöru mynd Shyamal- ans, Sixth Sense, er tímalaust meistaraverk sem hreyfir jafn mik- ið við manni í dag og hún gerði þegar hún kom út. Eftir það hefur hann aðeins gert þrjár miðlungs- góðar myndir (Unbreakable, Signs og The Village) og eina hræðilega (Lady in the Water). Hugmyndin á bak við The Hap- pening er mjög góð og sterk. Ókunn náttúruöfl rugla fólk skyndilega í ríminu sem leiðir það til sjálfsmorða. En myndin er klaufalega útfærð á köflum og, ótrúlegt en satt, henni er illa leik- stýrt. Lengst af nær atburðarásin þó að halda manni í spennu og kannski sérstaklega ef maður hef- ur einhvern tímann búið í stór- borg og þekkir þá ofsahræðslu er getur myndast þar. En Shyamalan mistekst að láta manni þykja vænt um persónurnar. Mark Wahlberg, sem átti fantaleik í The Departed, er kjánalegur í ofleik sínum og Zo- oey Deschanel, sem var góð í Al- The Happening Frábær hugmynd sem nær aldrei fullum blóma. Sá sem sagði að endirinn væri óvæntur hefur ekki séð myndina eða var að ljúga. Vantar sjötta skilningarvitið fyrir spennumyndum FÓLK lifsstill@24stundir.is a Mark Wahlberg er kjánalegur í ofleik sínum og Zooey Deschanel hefur álíka hæfni til þess að sýna tilfinningar án orða eins og liðið lík. fréttir Leikstjóri: M. Night Shyamalan Aðalhlutverk: Mark Wahlberg, Zooey Deschanel, John Leguizamo. The Happening 21. júní í 2 vikur frá kr. 39.990 Bjóðum nú allra síðustu sætin til Rhodos 21. júní í 2 vikur. Í boði er stökktu tilboð en þá bókar þú flugsæti og gistingu og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Einnig er í boði frábært tilboð á einum af okkar vinsælasta gististað á Rhodos, Hotel Forum, með hálfu fæði og stendur aðeins 100 m frá ströndinni. Á hótelinu er góð sundlaug, barir og veitingastaður. Góð aðstaða er fyrir börn s.s. barnalaug, leikaðstaða, billiard, pílukast, borðtennis o.fl. Á daginn og kvöldin er skemmtidagskrá fyrir bæði börn og fullorðna. Gríptu tækifærið og njóttu lífsins á þessum vinsæla áfangastað. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Verð kr. 39.990 - Stökktu tilboð Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð. Stökktu tilboð 21. júní í 2 vikur. Aukalega kr. 10.000 m.v 2 í herbergi / stúdíó / íbúð. Verð kr. 54.990 - Hotel Forum með hálfu fæði Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð m/1 svefnherbergi í viku. Hotel Forum 21. júní í 2 vikur. Aukalega kr. 10.000 m.v. 2 fullorðna í íbúð m/ 1 svefnherbergi. Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. *** Allra síðustu sætin *** Ótrúlegt tilboð Kr. 54.990 í 2 vikur - með hálfu fæði Rhodos Rachel Bilson, er sló í gegn í þátt- unum The OC, segir í viðtali við breska götublaðið Metro að hún sé ekki í neinu sambandi við leik- konuna Mischu Barton er sló ein- mitt líka í gegn í þáttunum. Hún segir vinskapinn hafa slitn- að um leið og framleiðslu þátt- anna lauk og að hún viti ekki einu sinni hvar hún búi í dag. Henni virtist líka vera sama. bös OC-vinaböndin slitnuðu strax Sruli Recht er meðal fremstu hönnuða hér á landi, en hann hef- ur nú sent frá sér forvitnilega vöru; vinnuborð úr harðpappa, sem heitir Cutting Table No. 1. Hefur mikið notagildi „Ég framkvæmi ekki hugmyndir mínar nema ég sjái verulegt nota- gildi í þeim,“ segir Sruli sem hann- aði borðið í samvinnu við Form- Fast og Liborius, sem selur borðið. „Ég fékk hugmyndina fyrir nokkru þegar ég var að vinna með nemum að búningahönnun. Vinnuaðstaðan var frekar bágbor- in, það var unnið á gólfinu, á bekkjum og stólum, en engin vinnuborð voru til staðar. Þá datt mér í hug að búa til meðfærilegt vinnuborð úr hörðu en léttu efni, einsog harðpappa, sem auðvelt er að setja saman og taka í sundur og auðvelt að taka það með sér.“ Borðið kostar 29.900, en frekari upplýsingar má sjá á heimasíðunni www.srulirecht.com. tsk Bjó til vinnuborð úr pappa Sterkt í́essu! Borðið er óvenju sterkt þrátt fyrir að vera úr pappír. Sruli segist hafa sof- ið á því, borðað af því, staðið á því og skipt um bleyjur á því. Hönnuðurinn Sruli Recht kom hingað til lands árið 2005.

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.