24 stundir - 05.07.2008, Qupperneq 34
34 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 24stundir
er komið situr snaggaralegur mað-
ur í köflóttri skyrtu og með grá-
sprengt hár. Þar er kominn Friðrik
Pálsson, fyrrverandi forstjóri SÍF,
Sölusamtaka íslenskra fiskfram-
leiðenda, SH, Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna, og einnig fyrr-
verandi stjórnarformaður Land-
Mitt á milli Hellu og Hvolsvallar
er vinalegt, bjálkaklætt, fjögurra
stjörnu sveitahótel. Voldugt timb-
urhlið við innkeyrsluna, merkt
Hótel Rangá, gefur til kynna að hér
sé hugað að hverju smáatriði, frá
fyrstu hughrifum til ferðaloka. Fyr-
ir aftan móttökuborðið þegar inn
símans. Friðrik tók við rekstri Hót-
els Rangár í júlí 2003 og lagði strax
drög að því að stækka það.
„Sigurbjörn Bárðarson hesta-
maður og samstarfsmaður hans,
Axel Ómarsson, byggðu þetta hótel
árið 1999. Eftir að ég tók við því
gerði ég mér strax grein fyrir því að
hótelið væri of lítið,“ upplýsir Frið-
rik eftir að við höfum komið okkur
fyrir á efri hæðinni þar sem við
blasir lítill veitingasalur, bar og
setustofa. Þrír herramenn sitja þar
á skrafi, komnir sérstaklega til að fá
sér kaffibolla í sveitinni, og Friðrik
heilsar þeim kumpánlega. Líklega
er hann einn af þeim sem þekkja
hálfa þjóðina persónulega en hann
segist leggja mikið upp úr því að
hótelgestum líði eins og heima hjá
sér. Sjálfur á hann það til að taka
sér stöðu á bak við barinn, bera
fram matardiska og grípa í hrein-
gerningartuskur, ef svo ber undir.
Þá er hann með bæði flugmanns-
og meirapróf og nýtir sér meira-
prófið stundum til að keyra gesti
milli staða.
Hávaðinn frá iðnaðarmönnum
að störfum á jarðhæðinni yfirgnæf-
ir samræðurnar stöku sinnum en
verið er að setja upp bruna varna-
úðunarkerfi í nýja veitingasalnum.
Allt á að vera tilbúið innan nokk-
urra daga. „Við bættum sex her-
bergjum við árið 2004 og vorum þá
með samtals 27 herbergi, sem var
líka allt of lítið, þannig að í fyrra
byggðum við tíu herbergi og eina
stóra svítu til viðbótar. Í ár höfum
við verið að stækka veitingasalinn
og eldhúsið og við opnuðum veit-
Friðrik Pálsson ræðir um túr-
ismann, sóknarfærin og hvernig
fjölskyldunni gengur að takast á
við breyttar aðstæður
„Í öllum erfiðleik-
um felast tækifæri“
Síðustu ár hafa verið Friðriki Pálssyni bæði gjöful og
þungbær. Hann sagði skilið við sjávarútveginn og
hellti sér út í eigin rekstur. En lífið tekur stundum
undarlegar beygjur. Árið 2006 varð eiginkona Frið-
riks, Ólöf Pétursdóttir, fyrir því áfalli að lamast frá
hálsi. Hún tókst á við fötlun sína af mikilli reisn en lést
fyrir þremur mánuðum.
HELGARVIÐTAL
Eftir Heiðdísi Lilju
Magnúsdóttur
heiddis@24stundir.is