24 stundir - 05.07.2008, Síða 36
36 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 24stundir
Ólöf Pétursdóttir, lærði síðar lög-
fræði. Eftir að fyrir lá að hún yrði
lögfræðingur sagðist ég vilja að
hún yrði sýslumaður. Við gætum
þá flutt út í sveit og ég orðið sýslu-
mannsfrú. Þetta asnaðist ég til að
segja í einhverju viðtali í Helgar-
póstinum og þessu var slegið upp í
fyrirsögn. Ég fékk að heyra þetta í
mörg ár á eftir.“
Friðrik fór í Versló og þaðan í
viðskiptafræði við Háskóla Íslands.
„Ég ætlaði reyndar í meira fram-
haldsnám en beið með það í ár því
Ólöf var þá að ljúka við lögfræðina.
Svo æxlaðist það þannig að ég fór
að vinna hjá SÍF og var þar í tæp
þrettán ár og svo í önnur þrettán ár
hjá SH strax á eftir. Þannig að ég er
ekki ennþá farinn út í þetta fram-
haldsnám.“
Sérðu fyrir þér að gera það í fram-
tíðinni?
„Frændi minn, séra Sigurður
Norland í Hindisvík, var kominn
yfir sjötugt þegar hann fór í Há-
skólann. Það er aldrei að vita nema
ég fari eftir tíu ár!“
Óþolinmóður dellukarl
Þótt Friðrik hafi lítinn tíma fyrir
áhugamál hefur hann lagt ýmislegt
fyrir sig um dagana. „Ég er dellu-
karl og tek eitt fyrir í einu. Mig
hafði dreymt um að læra að fljúga
frá því ég var lítill. Ég fór árlega í
„fyrsta“ flugtímann í nokkur ár, því
hann var svo ódýr. Strax og ég fór
að hafa tekjur lauk ég flugnámi og
flaug mikið í átján ár. Um tíma var
ég forseti Flugmálafélagsins. Á
þessum árum hafði ég engan áhuga
á hestamennsku. Ólöf hafði aftur á
móti mikinn áhuga á hestum, sem
varð til þess að ég gaf henni hest,
mjög snemma í okkar sambandi.
Hún hellti sér út í hestamennsku
og á meðan við vorum barnlaus,
fyrstu sautján ár hjúskapar okkar,
aðnum snerum við okkur að því að
rífa upp gæðin á íslenskum fiski og
fylgja eftir því orðspori sem hann
hafði – sem gott og eftirsótt hrá-
efni. Við notuðum verðið jafnvel til
að selja fiskinn. Vorum ekkert að
afsaka það. Stundum finnst mér
eins og fólk sé að afsaka það að Ís-
land sé svo dýrt land. Ég held að
við séum ekki að verðleggja okkur
út af markaðnum, miðað við þann
fjölda sem ég tel að sé æskilegt að fá
til landsins.“
Hversu marga ferðamenn telurðu
æskilegt að fá til landsins?
„Við eigum langt í land með að
ná þeim fjölda ferðamanna utan
sumarsins að viðunandi nýting fá-
ist á þeim fjármunum sem bundnir
eru í hótelum, veitingastöðum og
afþreyingu um allt land. Við getum
a.m.k. tvöfaldað fjölda ferðamanna
til landsins án þess að leggja í mik-
inn viðbótarkostnað, fyrir utan
markaðskostnað, ef okkur tekst að
fá þá í heimsókn utan sumars.“
Fáir nefna umhverfismál
Friðrik segir meira og minna
uppselt á sumrin á Íslandi. „Það er
að segja á þeim hluta Íslands sem
túristarnir vilja sækja heim á sumr-
in, sem er landsbyggðin. Ég tel það
skyldu okkar að halda vandlega ut-
an um þessa auðlind okkar og ein-
beita okkur að því að sannfæra
umheiminn um að Ísland sé
spennandi ferðamannaland utan
sumars. Ísland er afskaplega fallegt
ævintýri. Margir sem hingað koma
bera skynbragð á ljós og skugga,
fjöll í snjóalögum og snjóleysu og
finnst það mjög spennandi. Við
fáum gesti sem verða himinlifandi
ef þeir lenda í láréttri rigningu og
svo brjáluðu veðri að þeir geta
varla staðið í fæturna. Fyrst og síð-
ast snýst þetta um það að selja aldr-
ei annað en það sem maður hefur
upp á að bjóða. Það þýðir ekki að
selja fólki ferðir til Íslands á vet-
urna með myndum af sumri og
sól.“
Hefur stefna Íslands í umhverf-
ismálum einhver áhrif á túrismann?
„Nei, fáir nefna þetta og ferða-
menn hafa t.d. óskaplega gaman af
því að smakka hval. Ekki nokkur
maður hefur nennt að ræða virkj-
anir eða álver við mig en hins vegar
ætlaði allt vitlaust að verða þegar
ísbjarnarmálið kom upp um dag-
inn. Sama átti við þegar jarðskjálft-
inn á Suðurlandi reið yfir í sumar
og fyrstu fréttir voru af því að hér
hefðu hrunið brýr og vegir. Þá
hringdi hingað grátandi fólk til að
spyrja eftir ættingjum sínum. En ég
held að margir séu dálítið grunnt
hugsandi í umhverfismálum. Þegar
á hólminn er komið skiptir verðið
yfirleitt mestu máli.“
„Ég er bara vinnufíkill“
Friðrik vinnur mikið, eins og Ís-
lendinga er háttur, og finnst bein-
línis óþægilegt að taka sér sumarfrí.
„Ég er í vinnunni allan sólarhring-
inn. Þetta er ákveðin lenska á Ís-
landi sem vekur athygli útlendinga.
Ég er fæddur og uppalinn úti í sveit
og þar þótti sjálfsagt að vinna allan
daginn. Mér gengur ekkert voða-
lega vel að taka sumarfrí. Á meðan
dætur mínar voru ungar fórum við
fjölskyldan nokkrum sinnum á sól-
arströnd. Þá var dagurinn svolítið
lengi að líða. Síðustu ár hef ég
reynt að taka vetrarfrí og fara á
skíði. Það hefur mér fundist mjög
gaman. Ég er bara vinnufíkill og
þannig líður mér best.“
Friðrik er Húnvetningur, næst-
yngstur sjö systkina, sem öll nema
hann tóku sér búsetu fyrir norðan.
Sex systkinanna eru enn á lífi en
elsta systirin lést fyrir mörgum ár-
um. „Ég varð snemma ákveðinn í
að ganga menntaveginn. Reyndar
held ég að systkini mín hafi haft
hug á því líka en á þessum árum
voru lítil tækifæri til náms. Við
bjuggum á venjulegu bændabýli
þar sem fjárráð voru ekki mikil –
og svo var náttúrlega nóg að gera á
stóru heimili.“
Hann var bókaormur í æsku og
drakk í sig allar bækur sem til voru.
„Heima var til ritsafn Jóns Trausta
og Guðmundar Friðjónssonar, all-
ar Íslendingasögurnar, Dalalíf eftir
Guðrúnu frá Lundi, bækur eftir
Ingibjörgu Sigurðardóttur og þess-
ar sögur sem snerust flestar um
læknis- eða bóndasoninn sem gekk
með grasið í skónum á eftir sýslu-
mannsdótturinni. Svo vildi þannig
til að konan sem ég náði mér í,
fór hún mikið í hestaferðir með
vinum okkar. Ég var bara að leika
mér að fljúga á meðan. Við gerðum
bæði það sem okkur fannst
skemmtilegast. Eftir að stelpurnar
fæddust færðist yfir mig einhver yf-
irmáta ábyrgðartilfinning og ég
hætti að fljúga.“
Kom þá yfir þig einhvers konar
lífhræðsla?
„Nei, en það er algengt að flug-
menn hætti að fljúga um tíma á
meðan börnin eru á viðkvæmum
aldri. Mig klæjar stundum í flug-
kirtilinn að byrja aftur! Á meðan
stelpurnar voru litlar fór ég út í
hestamennskuna með Ólöfu. Þegar
þær stálpuðust fengu þær áhuga
líka og þetta varð okkar aðalsport.
Segja má að önnur áhugamál hafi
ekki komist að allan þennan tíma.
Ég hef reynt að veiða en hef litla
þolinmæði í veiðiskap. Ég þori ekki
að prófa golf. Ef ég færi í sport þar
sem ég gæti verið að keppa við
sjálfan mig myndi ég ekki gera neitt
annað. En í augnablikinu er áhuga-
málið mitt að rífa upp þetta hótel
og önnur hótel sem við erum með,
Hótel Skóga, Hótel Highland á
Hrauneyjum á Sprengisandi og
gistiheimilin Hrauneyjar og Rang-
ársel. Ég hef einsett mér að reyna
að sanna að það sé hægt að reka lít-
ið lúxushótel úti á landi.“
Hörmulegt slys
Líf fjölskyldunnar gjörbreyttist á
einum degi þegar Ólöf lenti í alvar-
legu slysi í hestaferð þann 24. sept-
ember 2006.
„Slysið átti sér stað við allra
bestu aðstæður. En það sýnir
hvernig slysin eru – þau gera ekki
boð á undan sér. Við það lamaðist
Ólöf alveg frá hálsi og niður. Hún
tókst hins vegar á við þá fötlun af
ótrúlegri elju og kjarki. Eftir hálft
annað ár hafði hún náð undraverð-
um árangri í því að lifa lífinu. Hún
hafði alltaf málað töluvert sjálf og
hélt því áfram. Eftir slysið málaði
hún bara með munninum af því að
eina hreyfigetan sem hún hafði var
með höfðinu. Þetta var í alla staði
gríðarleg lífreynsla fyrir okkur öll
að ganga í gegnum. Við breyttum
húsinu heima mjög mikið, komum
fyrir lyftu og höfðum undirbúið að
setja þar upp lítið sjúkraheimili.
Allt stefndi í að Ólöf væri að koma
heim þegar hún dó í svefni eina
nóttina. Þar með var því lokið.
Þannig að nú erum við þrjú, ég og
dætur mínar, Marta María og Ingi-
björg Guðný, að takast á við lífið og
það gengur ágætlega.“
Friðrik segir stuðning frá vinum
og fjölskyldu skipta miklu máli
undir svona kringumstæðum.
„Okkur gengur vel að standa sam-
an. Dætur mínar hafa alltaf verið
miklar vinkonur. Þær eru nítján
ára og tuttugu og eins árs og óskap-
lega duglegar. Við erum miklir vin-
ir. Eftir að Ólöf dó hafa þær staðið
þétt saman og komið upp að hlið-
inni á mér líka. Svo eigum við góða
fjölskyldu.“
Hjálpar það þér að vinna svona
mikið?
„Já, það hjálpar. Það fer ekkert á
milli mála. Ég held að ég hafi hellt
mér út í þessa vinnu af meiri krafti
en nokkru sinni áður. Það skapast
vitanlega ákveðið tómarúm. Tím-
inn var fylltur með öðrum hlutum.
Annars konar áherslum og áhuga-
málum. Það er ekki fyrr en maður
hefur misst eiginkonu til svona
margra ára sem maður áttar sig á
því hvað hún var stór hluti af líf-
inu. Vitanlega tekur maður því allt
of mikið sem gefnum hlut á meðan
allt leikur í lyndi. En skarðið er
býsna stórt.“
Gríðarleg tækifæri
Miklir annatímar eru framund-
an og Friðrik er hvergi banginn,
þrátt fyrir gengishrun og krepputal
í þjóðfélaginu. Hann játar þó að
allt það umrót sem á sér stað í
heiminum valdi honum ákveðnum
áhyggjum. „Vissulega verður mað-
ur dálítið skelkaður. Með vísan til
gamallar reynslu þá hræðist maður
verðbólguna svolítið. Hún er ekki
alvond en óskaplega leiðinleg. Það
er svo þreytandi að vita aldrei hvað
hlutirnir kosta á morgun. En þó
held ég að túrismi á Íslandi eigi
skemmtilega framtíð. Í öllum erf-
iðleikum felast tækifæri. Þegar einn
markaður lokast eða verður erfið-
ari færist áherslan yfir á annan.
Tækifærið fyrir Ísland felst í að
bæta gæði og þjónustu. Það gerir
ekkert til þótt verðið hækki ef gæð-
in og þjónustan fylgja með.“
Friðrik segir Íslendinga lengi
hafa tekið góðærinu sem gefnum
hlut. „Við höfum alið upp nokkrar
kynslóðir sem vita ekki hvað at-
vinnuleysi er og alls ekki hvað
kreppa er. Vonandi erum við ekki
að sigla inn í neina kreppu en það
er margt sem bendir til að atvinnu-
leysi verði nokkuð. Atvinnuleysi er
náttúrlega óskaplega sárt. Það er
nokkuð sem fáir, sér í lagi Íslend-
ingar, eiga auðvelt með að sætta sig
við. En aðalatriðið er að út úr þessu
góðæri kemur þjóðin miklu betur
menntuð en áður. Innviðir þjóð-
félagsins eru gríðarlega sterkir.
Innst inni trúi ég því að tækifæri
hér séu gríðarleg. Við erum fá-
menn en samt svo vinnusöm. Og
við erum afar heppin að búa í
þessu landi. Erfiðleikar okkar eru
hjóm eitt í samanburði við það
sem aðrar þjóðir upplifa. Svo lengi
sem við berum gæfu til að nýta það
sem í okkur og landinu býr, þá hef
ég ekki nokkrar áhyggjur af okkur.“
Hvergi banginn „Ég hef einsett mér að reyna að sanna að
það sé hægt að reka lítið lúxushótel úti á landi.“
24stundir/Frikki
a
Ekki nokkur
maður hefur
nennt að ræða
virkjanir eða álver við
mig en hins vegar ætlaði
allt vitlaust að verða þeg-
ar ísbjarnarmálið kom
upp um daginn.
a
Það skapast vit-
anlega ákveðið
tómarúm. Tím-
inn var fylltur með öðrum
hlutum. Annars konar
áherslum og áhuga-
málum. Það er ekki fyrr
en maður hefur misst eig-
inkonu til svona margra
ára sem maður áttar sig á
því hvað hún var stór
hluti af lífinu.