24 stundir - 05.07.2008, Qupperneq 40
40 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 24stundir
Allt að 11 ára framleiðslu-
ábyrgð á bílskúrshurðum
REK ehf · Akralind 6 · 201 Kópavogur · Sími 5334000 · rek@rek.is · www.rek.is
BÍLSKÚRS- OG
IÐNAÐARHURÐIR
Gæði á góðu verði
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
ferli sínum sem matreiðslumaður.
Hann var meðal annars yfirkokk-
ur á Café Óperu og á Argentínu.
Fyrir fáeinum mánuðum söðlaði
hann um og keypti sig inn í Vega-
mót ásamt Guðmundi Finnboga-
syni. „Ég sleppti góðri stöðu á
Argentínu og greip þetta tækifæri.
Það er brjálað að gera hérna og
það hefur bara aukist síðan ég
kom hingað. Í vetur byrjuðum við
með steikarkvöld á fimmtudögum
og verðum alltaf með sérstök
þemakvöld þar sem við látum
matinn og vínin vinna svolítið
saman,“ segir Stefán. „Mitt hlut-
verk er að fínpússa matinn og
koma með nýjungar. Það er nátt-
úrlega nýbúið að poppa aðeins
upp matseðilinn og þá þarf mað-
ur alltaf að vera á tánum,“ segir
Stefán Magnússon að lokum.
Stefán Magnússon býr til rétti sem hæfa árstíðinni
Ferskt og einfalt
í sumarblíðunni
Matreiðslumennirnir
Stefán Magnússon og AJ
Caputo á Vegamótum
sýna lesendum hvernig
má útbúa létta og ein-
falda rétti til að njóta í
sumarblíðunni. Stefán
var lengi yfirkokkur á
Argentínu en hefur und-
anfarna mánuði staðið
fyrir ýmsum nýjungum á
Vegamótum.
➤ Stefán lærði til kokks á veit-ingastaðnum Argentínu á sín-
um tíma.
➤ Hann varð síðar yfirkokkur áArgentínu.
➤ Fyrir fáeinum mánuðum söðl-aði hann um og keypti hlut í
Vegamótum.
STEFÁN MAGNÚSSON
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Það jafnast fátt á við það að setj-
ast út á pall á hlýjum sumardegi
og njóta góðs matar í blíðunni. 24
stundir fengu Stefán Magnússon
og A.J. Caputo á Vegamótum til
að útbúa fjóra rétti sem eiga vel
við á slíkum stundum. „Fólk sæk-
ir mikið í létta rétti á þessum
tíma. Þetta eru hollir og ferskir
réttir. Kjúklingasalöt og núðlu-
réttir eru rosalega vinsælir,“ segir
Stefán.
Erfitt að klúðra þessu
Réttirnir sem þeir bjóða upp á
eru ólíkir en eiga það sameig-
inlegt að vera léttir og tiltölulega
einfaldir þannig að flestir ættu að
geta eldað þá sómasamlega. Meðal
annars er hér að finna uppskrift
að grillaðri kengúru á núðlusalati.
„Þetta er einfalt og gott og rosa-
lega flótlegt að gera. Það er mjög
erfitt að klúðra þessum rétti ef
maður er með rétta hráefnið í
höndunum,“ fullyrðir Stefán.
Einnig er þarna að finna upp-
skrift að kjúklingasatay. „Þetta er
eiginlega búinn að vera einkenn-
isréttur Vegamóta frá upphafi en
við erum búnir að poppa hann
aðeins upp,“ segir Stefán. Club-
samloka með grilluðum kjúklingi
og grænmeti er einnig á seðlinum
sem og girnilegur smáréttabakki.
Matur og vín vinna saman
Stefán hefur komið víða við á
Samlokur eru alltaf vinsælar í
sumarhitanum. Ekki spillir fyrir að
þær má auðveldlega setja í körfu og
taka með í lautarferðina.
Hráefni:
Samlokubrauð
Grilluð Kjúklingabringa
með kirsuberjatómötum, gúrku,
klettasalati, camembert-osti og
BBQ-sósu
Aðferð:
Einfaldleikinn er í fyrirrúmi.
Kjúklingabringa grilluð eða elduð í
ofni. Grænmeti skorið niður eftir
smekk.
Gott að hafa franskar með, þá
eru allir sáttir.
Sumarréttaþema
Grilluð Club kjúklingasamloka
Að þessu sinni mælir Elísabet Alba Valdimarsdóttir vínþjónn með
þremur vínum sem fara vel með salötum, súpum, fiski og léttum kjúk-
lingaréttum í sól og sumarblíðu.
Dievole Fourplay No.1 Bianco 2006
Eitt af sniðugustu aðferðum til að höfða til nýs markaðshóps og sér-
staklega nýjustu kynslóðarinnar liggur í titlum. Vínið eins og nafnið gefur
til kynna stendur fyrir góða skemmtun og léttar stundir. Í
þessu tilfelli er hugtakið einnig óður til þrúgnanna
fjögurra í blöndunni. Þurrt létt vín með þrosk-
uðum suðrænum ávöxtum og snarpa sýru.
Alta Vista Torrontés Premium 2006
Alta Vista Torontés Premium kemur
úr norðurhluta Salta-héraðsins í Arg-
entínu. Þurrt ferskt vín með fínlegum
blómum tónum og léttri sýru. 1.847
kr.
Cloudy Bay Sauvignon Blanc
2006
Nýslegið gras með steinefnum,
kryddjurtum og suðrænum
ávöxtum. Stór flókið vín með
brakandi sýru. 2.899 kr.
Vín vikunnar
Elísabet Alba Valdi-
marsdóttir vínþjónn
Sólar- og sumarvín
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Fólk sækir mikið í létta rétti á þessum tíma.
Þetta eru hollir og ferskir réttir. Kjúklingasalöt
og núðluréttir eru rosalega vinsælir.
matur