Eintak - 01.11.1993, Page 82

Eintak - 01.11.1993, Page 82
sundrunar, dauði hans er ægilegur í hrollvekju sinni, en um leið lostafenginn og blygðunarlaus. Hellismyndin forna í Lascaux er fyrsta sjálfs- mynd karlmannsins. Þannig upplifði hann tilveru sína löngu áður en siðmenningin lagði hann í læðing. Mynd þessi lýsir útsprungnum losta í nán- um tengslum við ofbeldi náttúrunnar, á meðan Kristsmyndin sýnir útþurrkaðan losta hangandi á tréstólpa. Hinn fyrsti maður og sá æðsti? Einhvern veginn finnst mér hellismyndin vera okkur nákomnari en Kristsmyndin - og samt (eða þess vegna) er þetta klám, mynd af æði, drápi og erótík sem á ekkert sameiginlegt með settlegum hvílubrögðum. Þeir vita það sem vilja að Iostinn tengist ævinlega ofúrgnægð af einhverju tagi, lífið flæðir út fyrir brúnir sínar, form leysast upp, og eitthvert orðlaust æði tekur við; líkami fléttast saman við líkama í hönrluleysi sem minnir á ofsafengna eyðingu - þú sóar sjálfum þér um leið og þú skapar þig. Þversagnakennt, ekki satt? Lostinn er markareynsla þar sem maður tengist sjálfum sér á nánari hátt en nokkru sinni ella. I þessu uppnámi kemur fyrir að þráreipin slitna um stund, lostinn hverfist þá inn í ástand sem kennt er við „ördauða“ (la petite morte), algleymi sem eyðir skynjun tíma og umhverfis eilitla stund. Slíkt alsæluástand er þó fremur undantekning en regla, enda hefur „Iistin að elska“ ekki verið í hávegum höfð á okkar slóðum. Þessi reynsla er þar að auki ískyggileg frá sjónar- hóli þess sannleika sem í okkur hefur verið troðið öldum saman; hún gerir okkur að skynlausunr dýrum, var sagt, þó að í raun sé hún sérkenni mannsins, það sem greinir hann frá skepnum merkurinnar. Við þessar aðstæður brýst maðurinn undan hlutverkum hversdagsins, valdi krossanna, hann er ekki lengur siðmenntuð félagsvera, heldur rennur hann saman við sannleika hellisbúans - hann verður að forsögulegum manni og nemur tákn hans af veggnum, fuglinn, spjótið, dýrið í blóði sínu. Siðmenningin er tæki okkar til að komast af í sambýli við aðra menn. Hún er félagsleg nauðsyn sem tryggir okkur sæmilegt öryggi, en minnir dálít- ið á nýju fötin keisarans eins og saga þessara daga er til sanninda um. Sé djöfúllinn tákn urn brjálsemi okkar, búi hann í hverjum og einum sem mögu- leiki, þá hefur hann sjaldan verið iðjusamari en í samfélagi nútímans. Ofbeldi sem áður fyrr var hluti af hringrás náttúrunnar brýst nú fram í sjálfseyð- andi illsku, lostafúllri eyðileggingu sem á fátt sam- eiginlegt með veruleika hellisbúans. Segja má að þessi illska fylli upp í tóm eða fjarveru sem hefur ásótt vitund margra frá því að Sade markgreifi kvað upp dauðadóm yfir Guði seint á 18. öld. Þessi ímyndaði „dauði“ svipti okkur ytri vídd óendan- leikans, hann vísaði okkur inn í eigin líkama og gerði lostann að drottnandi innri reynslu. Þessi reynsla fól vissulega í sér ákveðna frelsun. Hún bar vott um að tilraun kristninnar hefði mistekist - að náttúran er náminu ríkari, að hún leitar út um síðir. Hún er á hinn bóginn dæmd til að rífa sjálfa sig niður í menningu sem hefur ekki aðeins „drep- ið“ Guð, heldur kveðið upp dauðadóm yfir náttúr- unni. Við slík skilyrði getur lostinn orðið að því sem meiðir, nauðgar og myrðir; kátt og brútalt manneðlið verður að síhungruðum blóðdrekk sem tvístrar sjálfum sér og umhverfi sínu áður en yfir lýkur. Belsebúb Óhóf eftir Ólaf Gunnarsson Ég loka augunum og Róbert Maxwell, útgef- andinn frægi flýgur upp í hugann. Maxwell stofnaði ungur forlag í London. Svo fór að hann eignaðist á annan tug gamalla og gró- inna breskra og bandarískra forlaga. En dugði það? Nei, hann vildi eiga þau öll. Þetta er kallað at- hafnagleði en er í raun ein versta synd mannsins, græðgin, óhófið sem býr til neyðina. Menn vilja verða heimsmeistarar í því að eiga. Hvað stoðar það manninn þótt hann eignist allan heiminn ef hann glatar sálu sinni, sagði Jesús. Vísindaleg staðreynd: Jörðin gubbar úr sér gæðum. Gerði Guð faðir feil í sköpunarverkinu? Varð honum á skyssa? Er jörðin hönnuð skakkt? Getur hún ekki brauðfætt börnin sín? Fór skapar- inn með rangt mál þegar hann sagði: Verið frjó- söm og uppfyllið jörðina? Nei! Jörðin er rétt hönn- uð. Kjötframleiðsla er kíló á mann á dag. Vont er að geta ekki gleypt það allt, steikt, soðið og í sósum hugsar sá gráðugi. Svo kallar hann saman her til að passa potta sína og pönnur. Hugsum okkur að einhverjum lukkaðist að eignast alla jörðina frá skakka turninum í Písa oní ryðbrunninn hlandkopp á eyðibýli á íslandi. Yrði það nóg? Væri hann ánægður? Nei, því hver ætti þá tunglið? Hver Mars? Hver Úranus? Og til eru önnur sólkerfi sem gott og nauðsynlegt væri að fá þinglýst. Ætli óhófið sé ekki náskylt drambi Lúsífers. Maðurinn vill setjast í hásæti Guðs. Sannleikur lífsins er hlýtt rúm að sofa í og nóg að borða, gard- ínurnar ykkar fyrir sunnan. Þær eru vitleysa, sagði Þórður á Dagverðará þegar hann slapp úr sjávar- háska. Róbert Maxwell hefði betur hugsað út í það. Forlagið Charles Scribner Sons í New York átti að geta dugað sextíu manna fjölskyldu til að halda sig í steikum og á snekkjum og einkaþotum. Af verkurn Hemingway eru tekjurnar milljarður íslenskar á ári. Allt þetta átti Maxwell og 20 forlög önnur en hann kaus að fleygja sér í sjóinn þegar allt fór á hausinn því eignalaus gat hann ekki lifað. Guðs ríki er allt í kringum ykkur en þið sjáið það ekki, sagði Kristur. Átti hann við að ekki er nauðsyn hverjum og einum að eiga Ásbyrgi? Að doka þar við í dagstund er digur sjóður. 82 EINTAK NÓVEMBER
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Eintak

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.