Eintak - 10.02.1994, Page 14
Rannsókn á stóra fíkniefnamálinu svokallaða er lokið og verður það sent ríkissaksóknara til meðferðar á næstu dögum.
eintak hefur undir höndum gögn sem benda til að rannsóknarniðurstaðan sé á veikum grunni byggð. Fíkniefnalögreglan
heldur því fram að Ólafur Gunnarsson hafi stýrt umsvifamiklum fíkniefnahring sem staðið hafi að innflutningi á 30 kg
af hassi og 4,9 kg af amfetamíni á innan við einu ári. Hann neitar þeim ásökunum sem fyrr eftir að hafa setið í 160 daga í
gæsluvarðhaldi. Styrmir Guðlaugsson ræddi við Ólaf og kannaði þetta fíkniefnamál.
„Höfuðpaurínn“ hefur
160 daga gæsluvarðh
og segir að veríð sé að koma á sig sök
EINTAK hefur undir höndum
víðtæk gögn sem tengjast stóra
fíkniefnamálinu svokallaða. I þess-
um gögnum er að finna rannsókn-
arniðurstöður fíkniefnalögreglunn-
ar í grófum dráttum, skýrslu Ólafs
Gunnarssonar, meints höfuð-
paurs í málinu, sem hann lagði
fram sem framburð sinn í desemb-
er, röksemdir sem verjandi hans
hefur lagt fram fyrir því að leysa
eigi hann úr haldi og gæsluvarð-
haldsúrskurð Hæstaréttar. Ýmis-
legt bendir til þess að niðurstaða
fíkniefnalögreglunnar sé reist á
veikum grunni. Þar sem Ólafur var
ekki tekinn með nein fíkniefni
verður málið á hendur honum að
byggjast annars vegar á játningum
hans sjálfs og hins vegar vitnisburð-
um annarra. Verjandi hans, Jón
Magnússon, bendir hins vegar á
að margir þeirra, sem málinu tengj-
ast, hafi beinan hag af því að koma
sök á Ólaf og af sér um leið. Þá
mótmælir verjandinn harðlega að
tekin verði giid hljóðupptaka sem
fór fram með leynd á heimili eins
þeirra sem hnepptir hafa verið í
varðhald vegna málsins. Þar hafi á
villandi hátt verið reynt að koma
sök á Ólaf. Sjálfur kallar hann þess-
ar hlóðupptökur leikrit, í samtali
við EINTAK, sem Björn Halldórs-
son, yfirmaður fíkniefnadeildar
lögreglunnar, hafi sett upp. Þessi
hljóðupptaka er talin eitt af helstu
sönnunargögnunum gegn Ólafi en
hún vekur jafnframt margar spurn-
ingar.
Hnepptur í varðhald í
kjölfar leynilegrar hljóð-
upptöku
Fíkniefnadeild Lögreglunnar í
Reykjavík hóf rannsókn þessa um-
fangsmikla fíkniefiiamáls þann 25.
júlí á síðasta ári þegar Vilhjálmur
Svan Jóhannsson og Jóhann
Jónmundsson voru handteknir í
Leifsstöð við komuna tO Keflavíkur
frá Amsterdam, en Jóhann var þá
með í fórum sínum 3 kg af hassi og
910,6 gr af amfetamíni. Næstu vik-
ur og mánuði voru fjölmargir yfir-
heyrðir og hnepptir í gæsluvarð-
hald og málið virtist verða æ um-
fangsmeira. Ólafur var úrskurðað-
ur í gæsluvarðhald 2. september,
tveimur dögum eftir að Vilhjálmur
Svan tók upp samtal þeirra og Guð-
mundar Gests Sveinssonar á heim-
ili sínu að Njálsgötu 59 að undirlagi
fíkniefnalögreglunnar. Síðan hefúr
rannsóknin einna helst beinst að
honum sem meintum höfuðpaur í
stórum fíkniefnahring. Ólafur hef-
ur hins vegar allt fram á þennan
dag neitað slíkum ásökunum.
Fíkniefnalögreglan telur sig hafa
næg gögn í höndunum til að sýna
fram á það en verjandi Ólafs hafnar
því.
Endurtekin framlenging
á gæsluvarðhaldi þrátt
fyrír að rannsóknar-
hagsmunir séu ekki í
húfi
Ólafur hefur setið í gæsluvarð-
haldi í 160 daga og á eftir að sitja
inni í 34 daga til viðbótar sem er ein
lengsta gæsluvarðhaldvist í fikni-
efnamáli hér á landi frá upphafi.
Héraðsdómur Reykjavíkur fram-
lengdi gæsluvarðhaldsúrskurðinn,
sem renna átti út 27. janúar, til 20.
apríl. En Hæstiréttur komst að
þeirri niðurstöðu að Ólafur skyldi
vera í haldi til 15. mars eftir að verj-
andi hans hafði kært úrskurð Hér-
aðsdóms. Um leið krafðist Hæsti-
réttur þess að rannsókn og meðferð
málsins af hálfu lögreglunnar og
ákæruvaldsins yrði hraðað eins og
framast væri kostur.
{ greinargerð Lögreglustjóra-
embættisins, sem fylgdi gæsluvarð-
haldskröfunni, segir að því miður
hafi ekki tekist að ljúka málinu og
senda það til ríkissaksóknara fýrir
27. janúar en rannsókn málsins sé
nánast lokið og verði það sent ríkis-
saksóknara til umfjöllunar á næstu
dögum.
Vegna þess að rannsóknin er á
lokastigi gat lögreglan ekki vísað til
rannsóknarhagsmuna þegar það
fór fram á framlengingu varðhalds-
ins og var því vísað til 2. mgr. 103
gr. 1. laga nr. 19/1991. I umræddri
grein felst heimildarákvæði þannig
að gæsluvarðhald má kveða upp yf-
ir manni ef afbrotið getur varðað
allt að 10 ára fangelsi og almanna-
hagsmunir krefjist varðhalds.
Hæstiréttur féOst á röksemdir lög-
reglunnar þótt gæsluvarðhaldsúr-
skurður Héraðsdóms hafi verið
styttur umtalsvert. í niðurstöðu
dómsins er vísað til úrskurðar
Hæstaréttar 9. desember, þegar
gæsluvarðhaldið var framlengt í
fyrra sinnið, þar sem segir:
„Ljóst er að rannsókn máls þessa
er langt á veg komin. Enda þótt
telja megi að rannsóknarhagsmunir
einir sér réttlæti vart áframhald-
andi gæsluvarðhaldsvist varnarað-
ila, verður ekki framhjá því horft,
að hann er undir rökstuddum grun
um aðild að stórfelldum innflutn-
ingi og dreifingu fíkniefna..."
Eftir þessa tilvitnun er sagt að
óhjákvæmilegt þyki að Ólafur sitji
áfram í gæsluvarðhaldi.
Varla er hægt að skilja gæslu-
varðhaldskröfuna á annan hátt en
þann að fyrir lögreglunni vaki að
halda Ólafi bak við lás og slá þar til
dómur fellur þar sem hann er ekki
talinn geta spillt rannsóknargögn-
um. Það rennir stoðum undir þá
kenningu að skömmu fyrir áramót
var losað nokkuð um gæsluvarð-
haldið og Ólafúr settur í svokallaða
lausagæslu. Hann má fá heimsókn-
ir nánustu ættingja og fylgjast með
fjölmiðlum sem þýðir að hann er í
tengslum við umheiminn og í lófa
lagið að koma frá sér upplýsingum.
I greinargerð sem lögð var fram
fyrir Hæstarétti bendir lögmaður
Ólafs á að ekki væri nægilegt að
annað skilyrðanna, sem nefnd eru í
heimildarákvæðinu, séu fyrir
hendi. Ekki er um það deOt að
meint brot Ólafs geti varðað 10 ára
fangelsi eða meira en Jón hafnar því
að almannahagsmunir séu í húfi.
Ólafur geti ekki snúið að fýrri iðju
sinni eftir þetta mál þar sem allir,
sem standi í innflutningi og sölu á
Óljfur Gunnarsson, sem fíkniefnalögreglan telur vera höfuðpaurinn, í viðtali við EINTAK
Ég er enginn höfuðpaur
Blaðamaður EINTAKS hitti Ólaf
að máli í Síðumúlafangelsinu á
þriðjudaginn í hliðarherbergi við
innganginn. Hann ber þess greini-
leg merki að hafa setið lengi í
gæsluvarðhaldi og lítur ekki vel út.
„Mér líður náttúrlega mjög illa,
sérstaklega eftir einangrunina sem
stóð í 106 daga,“ sagði Ólafúr. „Ég
veit ekki hvernig það hefði endað
ef konan mín hefði ekki staðið við
bakið á mér. En mér var ekki leyft
að fá bréf frá henni fyrr en eftir 60
daga.“
Á meðan á samtalinu stóð var
Ólafúr greinilega var um sig en
sagðist finnast tími tO kominn að
einhver fjölmiðill gæfi gaum að
framburði hans í þessu máli. Hann
vissi sem var að samtalið stæði
ekki lengi yfir og var því nokkuð
óðamála og mikið niðri fyrir.
Hann sagði engan höfuðpaur
vera í málinu heldur væri það upp-
setning lögreglunnar. Með leið-
andi spurningum í yfirheyrslum
hefðu rannsóknarmennirnir búið
til þá ímynd af honum. Slíkar
rannsóknaraðferðir væru fáránleg-
ar. Lögmaður fíkniefnadeildarinn-
ar vissi að niðurstaða rannsóknar-
innar væri röng og það sama gilti
um suma rannsóknarmennina.
Samt ætlaði Björn Halldórsson,
yfirmaður fíkniefnadeildar lög-
reglunnar, að leggja málið þannig
upp við ríkissaksóknara að hann
væri höfúðpaurinn. Hann sagði
Björn vera að blása málið upp sem
umfangsmesta fíkniefnamál sem
komið hefði upp á íslandi tO að
geta baðað sjálfan sig í sviðsljósi
fjölmiðlanna.
Eftir nokkrar mínútur kom
fangavörður og sleit samtalinu við
Ólaf en seinna sama dag náðist
símasamband við hann.
„Ég er enginn höfúðpaur,“ hélt
Ólafur þá áfram, „heldur er verið
að draga mig inn í þetta. Ég væri
ekki hérna ef ég væri höfuðpaur-
inn því að þeir eru aldrei teknir.
Það er erfitt fyrir mig að afsanna
það sem borið er á mig því ég
skipulagði þetta ekki og þekki mál-
ið því ekki of vel. Ég er innvildaður
í sirka 2 kíló af hassi en ég hef ekki
selt eitt einasta gramm af amfet-
amíni. Þetta eru mín einu tengsl
við þennan svokallaða fíkniefna-
hring. Þessi rannsókn er eitt stórt
klúður frá A - ö og hefúr bara skil-
að kaos.“
Upptökuna á heimili Vilhjálms
Svans, sem er eitt helsta sönnunar-
gagnið gegn Ólafi, kallaði hann
leikrit og sagði að það hefði verið
sett upp af Birni Halldórssyni.
„Allar þessar upptökur voru til
þess eins að bjarga Vilhjálmi úr
skítnum. Það er ekki minnst einu
orði á fíkniefni í þeim. Ég hitti V0-
hjálm þennan dag vegna þess að
hann var í vandræðum og ég var
að segja honum hvernig hann gæti
bjargað sér út úr málunum. Þeir
hleruðu líka símann heima hjá
mér en fengu ekkert út úr því.“
Undir kvöld á þriðjudaginn
barst bréf frá Ólafi þar sem hann
svaraði nokkrum spurningum EIN-
TAKS um þátt hans í málinu.
Ert þú höfuðpaurinn í þessu
fíkniefnamáli þar sem rannsakað-
ur er innflutningur á 30 kílóum af
hassi og 4,9 kflóum af amfetamíni?
„Nei, ef svo væri þá sæti ég ekki
hér í dag.“
Ef ekki, hver þá?
„í raun og veru enginn, en þeim
aðilum sem hefur verið sleppt eru í
raun miklu stærri en ég.“
Hvernig stendur á því að allir
benda á þig?
„Vegna þess að þeir hafa tæki-
færi til þess eftir að hafa sammælst
um það. En málið er allt öðruvísi
og mun ég tjá mig um það síðar.“
Á einhverju byggir lögreglan og
þau vitni, sem bendluð hafa verið
við málið, þessar ásakanir _ á
hverju?
„Jú, þetta er allt byggt á handriti
Björns Halldórssonar og öll rann-
sóknin snýst um það að búa til
þessa höfuðpaursímynd, sam-
kvæmt því. Enda er málið orðið
flókið, svo flókið að maður veit
ekki hvað snýr upp eða niður.“
Hve stór er þinn hlutur í mál-
inu?
„Hann snýst að mestu [um] að
halda utan um íjármagn, sem ég
fékk lánað, en þær fjárhæðir sem
um ræðir eru ekki verulegar, og
engan veginn í takt við umfang
þessa máls.“
Sýnir ekki upptaka sem fram fór
á heimili Vilhjálms Svans þ. 31. ág-
úst fram á sekt þína?
„Hún sýnir ekki neitt nema að
koma svansunganum undan, eins
og Vilhjálmur Svan er almennt
kallaður, samkvæmt fyrirfram
ákveðnu handriti. Það er aldrei
rætt neitt um fíkniefni.“
Vissu rannsóknarmenn að þú
hefðir tekið inn svefnlyf þegar þeir
yfirheyrðu þig um ferð merkta XI?
„Já, þeir vissu það og þessi yfir-
lestur þá nótt stóð í 6 klst.“
Hvaða áhrif hefur gæsluvarð-
hald í 160 daga haft á þig andlega
og líkamlega?
„Mjög slæm, en ég hef fengið
góðan stuðning frá konu minni,
sem er einstök. Ég hefði aldrei
meikað þetta án hennar, enda
segja menn hvað sem er til að
sleppa út úr þessu helvíti. En ég gat
aldrei komist héðan þar sem ég gat
aldrei játað eitthvað sem ég hef
ekki gert og er því hér ennþá.“
14
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1994 -jr