Eintak - 10.02.1994, Qupperneq 20
Barbie á þrjátíu og fimm ára afmæli nú í febrúar.
Hjálmar Sveinsson er einn þeirra sem hefur fellt
þessarar mest seldu og kynþokkafyllstu dúkku
sögunnar. Hann skrifar henni hér afmælisgrein.
hug til
brjóstin og færði hana síðan úr
minipilsinu og silkínærbuxunum.
Barbie er ekki aðeins mest selda
dúkka allra tíma, heldur líka sú
kynþokkafyllsta. Ken var að spila
tennis.
Já, hún Barbie! Hún verður
þrjátíu og fimm ára núna í febrúar
og það hafa verið skrifaðar
afmælisgreinar um ófrægara fólk.
Hún er fyrsta og eina brúðan sem
hlýtur þann heiður að vera stillt
upp á vaxmyndasafninu í París.
Og á 200 ára afmæli Bandaríkj-
anna árið 1976, var hún
sett í innsiglað hólf
ásamt nokkrum
öðrum hlutum til
að hjálpa forn-
leifaffæðingum
framtíðarinnar.
Þegar hólfið
verður opnað við
hátíðlega athöfn í
fjarlægri framtíð
verðum við mold en
Barbie mun stíga út með sitt
geislandi bros og stinna líkama og
hún mun veifa til fjöldans. I tilefni
afmælisins var um daginn opnuð
sýning í Berlín með dyggum stuð-
ningi Mattel- fyrirtækisins. Fær-
ustu hárgreiðslumeistarar Þýska-
lands voru fengnir til að greiða
afmælisbarninu og fatahönnuðir
látnir klæða hana upp. Eins og við
var að búast er sýningin pempíu-
leg og hvorki fugl né fiskur. En í
bæklingi sem fylgir, má lesa að til
séu 700 milljónir Barbiedúkkur í
veröldinni og ef mér bregst ekki
reiknilistin, þýðir það að til séu
um 1500 milljónir Barbieskór,
Fyrir fáeinum árum ætlaði þýski
kynlífsfræðingurinn prófessor Dr.
Puppenstein að hafa myndir af
Barbie og Ken í nýrri og end-
urbættri útgáfú að bók sinni „Til-
raun um kynlífið“. Bókin er ætluð
þýskum unglingum og meiningin
var að Barbie og Ken sýndu þeim
kynlíf í praxís; unaðssemdir þess
og vandamál. En þegar fulltrúar
bandaríska fyrirtækisins „Mattel“
- fyrirtækisins á bak við Barbie-
dúkkuiðnaðinn - fréttu um fyr-
irætlan prófessorsins lögðu þeir
blátt bann við að Barbie og Ken
yrðu berháttuð og sett í dónalegar
stellingar. Barbie og Ken eru
brúður fyrir stúlkur á aldrinum
fimm til tíu ára, sögðu fulltrúarn-
ir, þau voru sköpuð án kynfæra og
af þeim sökum ekki nothæf í
kynfræðslu.
Er ekki eitthvað loðið við þenn-
an málflutning? Það er reyndar
satt og rétt að engin kynfæri eru
sjáanleg, við erum öll löngu búin
að ganga úr skugga um það. En
þýðir það að hún Barbie sé kyn-
laus? Já, hún Barbie, með þessa
löngu og spengilegu fótleggi, rauð-
lakkaðar táneglurnar og brjóstin
stór og stinn - svo ekki sé minnst á
silkinærfötin, minipilsið og
háhæluðu skóna. Sjálfúr átti ég
aldrei Barbiedúkku né heldur litla
systur sem lék sér með Barbie. En
ég kom stundum í heimsókn í hús
þar sem Barbie og allt liðið var
saman komið og stalst með hana
afsíðis. Ég klæddi hana úr blúndu-
skyrtunni, renndi fingri yfir
nema einhverjir hafi týnst. Já, hún
Barbie!
Hún leit fyrst dagsins ljós á leik-
fangamessunni í New York í
febrúar árið 1959 og var kynnt fyrir
heiminum með þessum orðum:
„Teenage fashion model- a new
kind of doll from real life“. Sagan
segir að gestum kaupstefnunnar
hafi þótt lítið til þessarar leggja-
löngu dömu koma. En börnin sem
voru svo heppin að fá Barbie í
afmælisgjöf eða jólagjöf þetta árið
voru frá sér numin. Og nú hófst
mikil sigurför því Ruth
Handler, konan sem
hannaði Barbie, vissi að
börnin eru ánægðust
leika full-
fólk. Barbie átti
að gera litlum
stúlkum kleift að leika
fullvaxnar dömur. En
ekki bara einhverjar
dömur, heldur alvöru
dömur sem eiga fullan skáp
af smart fötum og fylgjast
auðvitað grannt með Parísartísk-
unni. Barbie kom fram sem söng-
kona í næturklúbbi strax fyrsta
árið sitt og var þá klædd síðum og
svörtum pallíettukjól og háum
svörtum hönskum með axlirnar
berar. Kjóllinn hét „Solo in the
Spotlight11. Síðan brá hún sér í frí
til Spánar, setti upp sólgleraugu og
fór í dressið „Roman Holidays“.
Já, hún Barbie, hún var frá upp-
hafi með á nótunum og meðlimur
í módelsamtökunum. Og hún var
á þessum fyrstu árum sínum dá-
lítið franskari en bandarískar stöll-
ur hennar. Það var því afskaplega
vel til fundið fyrir fimm árum hjá
Yves Saint Laurent, Karl Lager-
feld, Oscar del la Renta og fleiri
meisturum að heiðra Barbie á þrí-
tugsafmælinu með því að
sérhanna á hana nokkur sett af
drögtum. Þetta var kannski há-
punkturinn í lífi hennar hingað til,
lífi sem virðist ekki þekkja neinar
lægðir heldur aðeins hápunkta.
Mattel-fyrirtækið heldur því
statt og stöðugt fram að Barbie sé
ekki aðeins dæmigerð
nútímakona heldur hafi
hún líka verið
brautryðjandi kven-
frelsishreyfingar-
innar. Það er sjálf-
sagt satt og rétt.
Barbie á að vísu nóg
af heimilisgræj um,
og eldhús sem hún
teiknaði sjálf, en hún
hefur alltaf verið hálf
áhugalaus um heimilisstörfin og
hver láir henni það? Af því meiri
áhuga og krafti hefur hún hellt sér
út í atvinnulífið. Og nú skal stiklað
á stóru og aðeins minnst á það
helsta:
1961 - Árið sem Ken kemur
inn í líf hennar gerist hún ekki
aðeins hjúkrunarkona og baller-
ína, heldur líka flugfreyja (Amer-
ican Airlines). Hún hefur sáralít-
inn tíma til að vera með Ken en
kaupir sér þó fatasettið „Time for
Tennis“ til að hafa hann ánægðan.
1965 - Mikilvægt ár fyrir Barbie
því nú fær hún beygjanleg hné.
Það liggur beinast við að gerast
geimfari, kennari og tísku-
hönnuður. Og hún kymnist Mid-
get sem er með freknur og ekki al-
veg eins falleg og þess vegna besta
vinkonan.
1973 - Barbie skellir sér í
skurðlækninn.
1985 - Það eru uppgangstímar
og Barbie gerist bisnesskona, sjón-
varpsfréttakona og aerobickennari
- já, og dýralæknir, þvi' einhver
verður að lækna Barbiehestana ef
þeir veikjast.
1991 - Golfstríðið er
í algleymingi og Bar-
bie hikar ekki við að
ganga í ameríska
loftherinn á þessari
örlagastundu; en
hún gegnir líka
ábyrgðarstöðu við
Barnahjálp Sam-
einuðu þjóðanna og
kemur fram sem rappsöng-
kona um helgar.
Þannig mætti lengi telja og ekki
hægt annað en að dást að
dugnaðinum í henni Barbie. Það
verður hins vegar að segjast eins
og er að framleiðendur hennar og
umboðsmenn mættu sýna henni
meiri nærgætni. Fæturnir á henni
eru svo skelfing smáir og þannig í
laginu að hún getur hvorki staðið
né gengið nema á háhæluðum
skóm. Kannski voru þeir einhvern
tímann reyrðir líkt og gert var í
Kína í gamla daga. Þetta er full-
urfræðilegu sjónarmiði en dálítið
óhentugt í vissum störfúm Ef ég
þyrfti að fara í uppskurð þætti mér
unaðslegt ef Barbie væri til í að
taka það að sér. En auðvitað fynd-
ist mér betra að hún væri stöðug á
fótunum meðan á uppskurðinum
stæði. Já, hún Barbie! Ilún hefúr
alltaf spjarað sig en hún hefúr
reyndar aldrei þurft að þola
þungbæra sjúkdóma eða líða
skort. Og samt er hún fórnarlamb.
Hún er fórnarlamb fegurðarinnar.
Lífið hefur sem sé ekki bara
verið dans á rósum fyrir Barbie,
þrátt fý'rir alla velgengnina. Og
hún hefur svo sannarlega mætt
andúð í gegnum tíðina. Hún var
til að mynda bönnuð á vinstri
sinnuðum kúltúrhermilum. Já,
hún var gerð að tákngervingi fyrir
neysluæði, kvenfyrirlitningu og
heimsvaldastefnu Bandaríkja-
manna. Strákar á þess háttar
heimilum fengu aldrei byssur og
stelpurnar enga Barbie. Eg hef
reyndar áreiðanlegar heimildir
fyrir því að þegar litlar stúlkur frá
slíkum heimilum komu í heim-
sókn til vinkvenna sinna sem áttu
Barbie og Ken, hafi þær alltaf stol-
ist til að klæða glæsiparið úr ogláta
það ríða. Kannski hefur prófessor
dr. Puppenstein frétt þetta líka.
Barbie, já hún Barbie - og Ken!©
Eftir kynni sín af Barbie flutti
Hjálmar Sveinsson til Berlínar
þarsem hann leggur stund á
heimspeki og bjórdrykkju.
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1994