Morgunblaðið - 20.01.2005, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Eygerður Ingi-mundardóttir
fæddist á Hrísbrú í
Mosfellsdal 13.
mars 1938. Hún lést
á líknardeild Land-
spítalans í Kópa-
vogi 11. janúar síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Elín-
borg Andrésdóttir,
f. 3. júní 1900, d.
22. mars 1995, og
Ingmundur
Ámundason, f. 7.
maí 1896, d. 13. jan-
úar 1979. Systkini
Eygerðar eru Svava Steinunn, f.
12. september 1932, Ólafur, f.
22. nóvember 1933 og Ólöf Jóna,
f. 31. júlí 1941.
Eiginmaður Eygerðar er
Henning Kristjánsson, f. 1.8.
1939. Foreldrar hans voru Maria
Jensen og Kristjan Jensen.
Eygerður giftist Kristni V.
Magnússyni árið 1958. Þau slitu
samvistum 1967. Þau eiga tvær
dætur, þær eru:
1) Inga Elín Kristinsdóttir
myndlistamaður, f. 22. septem-
4) Ólöf Kristjánsdóttir, f. 27.
apríl 1971, d. 30. maí 1989. 5)
Steinunn Kristjánsdóttir líf-
eindafræðingur, f. 17. febrúar
1975, maki Sigfús Tryggvi Blum-
enstein, f. 28. maí 1968. Synir
þeirra eru Hallur Húmi og Krist-
ján Leifur.
Eygerður ólst upp á Hrísbrú
en fluttist 15 ára að aldri að
heiman og bjó víða á höfðuborg-
arsvæðinu. Hún byggði hús að
Víði í landi Hrísbrúar en fluttist
þaðan 1989. Hún bjó á nokkrum
stöðum eftir það, þar til hún
fluttist í Reykjabyggð þar sem
hún og eftirlifandi eiginmaður
hennar bjuggu síðustu níu ár.
Eygerður vann við ýmis versl-
unarstörf, svo sem í Vogue,
Æskunni og Gallerí Ingu Elínar.
Hún rak eigin verslun á Lauga-
veginum árið 1985 til ársins
1988. Hún var menntaður sjó-
kokkur frá Hótel- og veitinga-
skóla Íslands og vann við mat-
reiðslu á ýmsum stöðum, svo
sem Bifreiðastöð Íslands, leik-
skólum Mosfellsbæjar og Ís-
landsbanka í Mosfellsbæ.
Eygerður hafði yndi af stang-
veiði, hestum, garðyrkju og
hannyrðum, var mjög listræn og
mikið náttúrubarn.
Eygerður verður jarðsungin
frá Mosfellskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.
ber1957, maki Þór-
arinn Sigurbergsson,
f. 13. apríl 1958.
Börn hennar eru
Eygerður, maki Ingi
Páll, dóttir þeirra
Inga Lilja, Fjóla
Dögg og Kristinn
Valgeir. Börn Þórar-
ins eru Helga Guð-
rún og Alexander. 2)
Jóna Margrét Krist-
insdóttir bóndi, f. 19.
desember 1958, maki
Gunnar Haraldsson,
f. 29. apríl 1958.
Börn þeirra eru: Ey-
gerður, maki Óðinn Bragi, dótt-
ir þeirra Valdís Mist, Árni, maki
Íris Dögg, dóttir hennar Angela
Ósk, Margrét, Haraldur, Auður
og Ólöf.
Eygerður hóf sambúð með
Kristjáni Ólafssyni 1967. Þau
slitu samvistum 1989. Þau eiga
þrjár dætur, þær eru:
3) Bóel Kristjánsdóttir banka-
starfsmaður, f. 3. maí 1968,
maki Geirarður Þórir Long, f.
16. desember 1966. Börn þeirra
eru Svandís Ösp og Stefán Óli.
Móðir, dóttir, meyjar.
Það er aðeins ein móðir. Minn-
ingarnar hrannast upp, allt lífs-
hlaupið verður eins og hæg löng
kvikmynd. Fyrir löngu, mamma og
við systurnar í Hafnarfjarðar-
strætó að koma úr bæjarferð, önn-
ur steinsofnuð og varla hægt að
vekja hana. Það voru ekki bílar á
hverju strái á þessum tíma. Allir
kjólarnir og fötin sem mamma
saumaði, það væri hægt að opna
heilt safn væri þetta allt til ennþá.
Móðir mín gat saumað nánast hvað
sem var, þurfti ekki nein snið, bjó
þau bara til. Og öll blómin sem
voru alltaf í kringum hana, for-
lagatréð sem allir vildu fá afleggj-
ara af. Amma var svona líka, þetta
var í genunum.
Fallegu garðarnir þínir, fyrst í
Grundartanganum og svo eftir að
Henning kom þér til liðsauka í
Reykjabyggðinni. Þið tvö að spá í
plöntur og fræ sem voru ekki í
hvers manns garði. Þvílíkur lysti-
garður, þá sem þangað komu rak í
rogastans og útlendingar trúðu
ekki sínum eigin augum, að þetta
væri hægt á Íslandi. Svona var
natni hennar. Vil ég þakka móður
minni fyrir að vera alltaf til staðar
á erfiðum stundum lífs míns.
Guð geymi þig mamma mín. Þín
dóttir
Inga Elín.
Elsku Eyja amma mín.
Ég veit ekki hvar ég á að byrja,
ég á svo margar frábærar minn-
ingar um þig. Fyrsta minningin er
frá því á gamlárskvöld þegar þið
bjugguð í Víði, þá fóru allir að
brennunni nema ég, þú og Polli, þú
passaðir okkur og leyfðir mér að
horfa á brennuna út um gluggann.
Þessar stundir eru ógleymanlegar.
Þegar ég var unglingur bauðstu
mér að vinna með þér á BSÍ, mér
fannst þetta mikill heiður og lærði
ég heilan helling af þér þetta sum-
ar. Þetta sumar gisti ég oft hjá þér
svo við gætum farið saman í vinn-
una og man ég hvað mér fannst
notalegt að kúra uppi í hjá þér.
Áður en ég varð 17 ára leyfðir
þú mér oft að keyra uppi í sveit,
ég man hvað mér fannst þú æð-
isleg amma, það ætti örugglega
enginn í heiminum svona töff
ömmu. Einu sinni fórum við tvær á
undan hinum upp í sumarbústað,
þú leyfðir mér að bakka bílnum
ein niður í stæði, en á leiðinni
bakkaði ég á stóran stein og rúst-
aði framhurðinni. Þegar ég kom
inn hágrátandi og sagði þér hvað
hefði gerst fórstu bara að hlæja.
Þér fannst þetta nú lítið mál og
sagðir öllum að þú hefðir beyglað
hurðina.
Elsku amma mín, það verður
erfitt að geta ekki leitað til þín
með stóra sem smáa hluti, alltaf
kunnir þú svör við öllu og varst
alltaf til í að spjalla. Ég ætla að
vera dugleg að segja Ingu Lilju
frá þér, henni fannst alltaf svo
gaman að koma til langaömmu
eins og hún kallaði þig. Takk fyrir
allt sem þú hefur gefið mér og ég
veit þú munt vaka yfir okkur og
hjálpa okkur þegar á þarf að
halda. Fjóla bað mig fyrir kveðju
til þín en hún er stödd í Brasilíu.
Elsku Henning, þú hefur misst
ástina í lífi þínu, þið voruð alltaf
svo sæt saman og dugleg að rækta
garðinn ykkar og fara í veiðiferðir.
Ég hef aldrei séð ömmu jafn ham-
ingjusama og eftir að hún kynntist
þér, þú varst svo góður við hana
og gerðir allt fyrir hana.
Elsku mamma, Jóna Magga,
Bóel og Steinunn, nú er amma
komin til Ólafar systur ykkar og
geta þær nú bætt upp tímann sem
þær fengu ekki saman. Þær munu
vaka yfir okkur öllum.
Þín Eyja litla.
Eygerður Helgadóttir.
Þegar ég hugsa um ömmu sé ég
fyrir mér konu sem orð geta ekki
lýst. Amma bjó á hæðinni fyrir
neðan mig í níu ár, ég var mjög
mikið með henni og það var mjög
gaman. Ömmur eins og hana er
mjög gott að hafa í lífi sínu.
Ég man eftir því að þegar ég
var lítil gat ég ekki sagt amma Ey-
gerður svo ég kallaði hana alltaf
amma bóndi, enginn veit af hverju.
Á sumrin gróðursettum við blóm
en á veturna spiluðum við oft sam-
an á spil. Hún var alltaf góð við
mig og vinkonur mínar. Öllum
þótti hún rosa góð, vinkonum mín-
um þótti líka vænt um hana og það
er ekkert skrítið því hún var svo
æðislega, æðislega æðisleg. Það
var ekki erfitt að láta sér þykja
vænt um hana því hún var alltaf til
staðar ef maður var í vandræðum
og hún hjálpaði manni alltaf út úr
þeim. Það á eftir að vera tómlegt
án hennar. Ég sá hana á næstum
hverjum einasta degi en núna get
ég ekki séð hana aftur nema á
myndum og í huganum.
Þegar rósir deyja, þá er hægt að
sá nýjum, en það er ekki hægt
með ömmur.
En það er hægt að sá þeim í
hjartað sitt og þar getur þú munað
eftir henni allt þitt líf.
Svandís Ösp.
Elsku amma.
Það eru ótal minningar sem rifj-
ast upp þegar ég sit hér og hugsa
um liðnar stundir. Samt er svo
skrítið hvað það er erfitt að koma
þeim á blað. Margar fallegar
minningar um þig hafa streymt
um huga minn síðustu daga. Meðal
þeirra eru allar veiðiferðirnar sem
við fórum í, það var eitt af fáum
sameiginlegum áhugamálum okk-
ar.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Elsku amma, að lokum kveð ég
þig með söknuði. Minning þín er
ljós í lífi okkar allra. Takk fyrir
allt.
Þinn dóttursonur,
Kristinn.
Mig langar til að minnast Eyju
mágkonu minnar með nokkrum
orðum.
Okkar samskipti hafa verið mjög
góð þau 39 ár sem við höfum
þekkst. Fyrstu árin eftir að ég
flutti að Hrísbrú bjó hún í Reykja-
vík en árið 1974 flutti hún aftur í
dalinn sinn þegar hún og Kristján
byggðu upp á Víði. Þá urðum við
nágrannar næstu 15 árin og gerð-
um margt saman, við áttum börn á
svipuðum aldri og dætur okkar
urðu miklar vinkonur. Það var allt-
af jafn notalegt að skreppa og fá
kaffisopa við eldhúsborðið hjá
Eyju og spjalla saman því hún
hafði gott lag á því að láta manni
líða vel.
Eyja var ein af þeim sem allt lék
í höndunum á, hvort sem það var
handavinna, matargerð eða annað
og hún lét ekkert frá sér nema það
væri fyrsta flokks, enda bar heim-
ili hennar alla tíð vott um mikla
smekkvísi og alúð. En lífið var
ekki alltaf dans á rósum, Eyja
varð fyrir mörgum áföllum um æv-
ina. Þó að þyngsta áfallið hafi ver-
ið þegar hún missti Ólöfu dóttur
sína af slysförum vorið 1989 aðeins
18 ára gamla. En það átti eftir að
rofa til á ný í hennar lífi, þegar
hún kynntist eftirlifandi eigin-
manni sínum Henning Kristjáns-
syni en þau áttu saman mjög góð-
an tíma þótt hann yrði alltof
stuttur. Þau höfðu bæði mikinn
áhuga á garðrækt og hönnuðu í
sameiningu frábæran garð í
Reykjabyggðinni svo ekki sé talað
um veiðiferðirnar sem voru þeirra
líf og yndi.
Snemma á síðasta ári fór svo að
draga ský fyrir sólu er hún fór að
kenna þess meins sem að lokum
hafði betur. Eyja barðist eins og
hetja og aldrei heyrði ég hana
segja æðruorð. Eyja dvaldi lengst
af heima þar sem Henning og dæt-
ur hennar gerðu allt sem hægt var
til að henni gæti liðið sem best, en
þar kom að hún þurfti að leggjast
inn á líknardeild Lsp. í Kópavogi
þar sem hún dvaldist síðustu vik-
urnar og naut frábærrar umönn-
unar góðs starfsfólks.
Elsku Henning, Inga, Magga,
Bóel, Steinunn og fjölskyldur, ég
og fjölskylda mín vottum ykkur
okkar dýpstu samúð. Þið hafið
misst mikið en minningin um góða
konu lifir. Þér, Eyja mín, vil ég
þakka samfylgdina.
Ása.
Ég var á unglingsaldri þegar ég
fyrir hartnær fjörutíu árum kynnt-
ist Eygerði Ingimundardóttur.
Hún var þá orðin konan hans
Kristjáns bróður míns og átti tvær
dætur, Ingu Elínu og Jónu Mar-
gréti, sem voru kátir krakkar.
Brátt bættust í hópinn þær Bóel,
Ólöf og Steinunn, dætur Kristjáns
og Eyju. Þetta var fríður hópur
mannvænlegra dætra og vorið
framundan virtist ekki aðeins fullt
fyrirheita heldur jafnvel endalaust.
Svo var það að minnsta kosti í
mínum huga á þessum dögum. En
í vorgróanda ársins 1989 voru þau
Eyja og Kristján minnt á það
hversu hverfulir dagar jarðlífsins
eru þegar Ólöf dóttir þeirra var í
miðjum æskublóma sínum fyrir-
varalaust kölluð á brott héðan úr
heimi.
Þeim sem hefur orðið fyrir svo
sárri reynslu mun veitast auðvelt
að skilja orð Davíðssálmsins nítug-
asta þar sem því er lýst að dagar
okkar mannanna ,,líða í skyndi og
vér fljúgum burt“, en þau eru sögð
í aðdraganda og undanfara hinnar
vel þekktu bænar: ,,Kenn oss að
telja daga vora, að vér megum öðl-
ast viturt hjarta.“ Mér veitist hins
vegar stundum erfitt að átta mig á
því að viska hjartans þurfi endi-
lega að vera tengd því sérstaklega
að gera sér grein fyrir hverfulleik
lífsins. Einkum finnst mér þetta
torskilið þar sem Eygerður mág-
kona mín átti í hlut, því að ég hygg
hana hafa verið fædda með viturt
hjarta. Henni þurfti því ekki að
kenna að telja daga sína til þess að
hún öðlaðist hina dýrmætu visku
hjartans. Að minnsta kosti er
þessu svo varið ef í vitru hjarta er
sá hæfileiki fólginn að kunna að
hlusta á það sem tæpast er sagt og
skilja það djúpum skilningi. Ég á í
minningunni margar slíkar stundir
í nærveru Eyju þegar ég varð þess
áskynja að hún af stakri næmni
sinni skynjaði og skildi hvað mér
leið án þess um það væru höfð
mörg orð. Þeim sem er þess megn-
ugur hefur verið gefið viturt
hjarta.
Eygerður Ingimundardóttir var
grannvaxin kona, gekk óvenju
teinrétt í baki og var nánast tig-
inmannleg í fasi en þó full hóg-
værðar og kurteisi. Hún var gædd
miklum hæfileikum, handlagni og
listrænu auga svo af bar og fékk
hvort tveggja að njóta sín í hönn-
un og gerð fatnaðar svo og við
framreiðslu og matargerð. Dagfar-
sprúða tel ég hana hafa verið og
svo oft sem fundum okkar bar
saman man ég ekki til þess að hún
legði illt orð til nokkurs manns en
átti það til að aumka reiði og van-
stillingu annarra.
Ég var á viðkvæmu skeiði æsk-
EYGERÐUR INGI-
MUNDARDÓTTIR
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Þakka þér samfylgdina
Eyja mín, ég veit við hitt-
umst síðar.
Eiginmanni þínum, dætr-
um og fjölskyldum þeirra
votta ég mína dýpstu samúð.
Bára Björk.
HINSTA KVEÐJA
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir
Einarsson
Sverrir
Olsen
Bryndís
Valbjarnardóttir
Oddur
Bragason
Guðmundur
Þór Gíslason
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, s: 587 1960, www.mosaik.is
MOSAIK
af legsteinum
gegn staðgreiðslu
í janúar og febrúar
Sendum myndalista
15% afsláttur