Morgunblaðið - 20.01.2005, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2005 45
HEIMILDAMYNDIN Þrjár konur
er mjög forvitnileg enda tekur hún
á fátækt á Íslandi, máli sem varla er
rætt nema í hálfum hljóðum í alls-
nægtaþjóðfélaginu. Hún er jafn-
framt hreinskilin og greinir einfald-
lega frá staðreyndum á yfirvegaðan
hátt. Það er líka deginum ljósara að
það sem þessi þjóðfélagshópur þarf
á að halda er ekki prédikanir heldur
úrbætur og það sem fyrst. Viðmæl-
endurnir eru þrjár konur og fjöl-
skyldur þeirra, einstæðar mæður,
öryrkjar sem hafa lent í fjárhags-
legum erfiðleikum af heilsufars-
legum og öðrum óvæntum og illvið-
ráðanlegum ástæðum sem hafa
breytt lífinu í kvalræði. Ekki sakir
óreglu, spilasýki né óviðráðanlegra
skuldabagga.
Það kemur fram í Þremur konum
að þannig er komið fyrir hundr-
uðum fjölskyldna, þúsundum ein-
staklinga í okkar góða landi. Þessar
konur og fjölskyldur þeirra eru
ósköp venjulegt fólk eins og ég og
þú teljum okkur vera. Stolt fólk með
sína drauma, framtíðaráætlanir og
langtímamarkmið. Það á heiður
skilinn fyrir kjarkinn að þora að
koma fram í litlu þjóðfélagi og
greina frá erfiðleikum sínum og
vonandi skilar þátturinn ein-
hverjum lagfæringum. Enginn væll
heldur staðreyndirnar raktar um-
búðalaust og samvinnan við flinka
kvikmyndagerðarmenn er óaðfinn-
anleg.
„Það er svo skemmtilegt,“ segir
ein konan, þar sem hún er að tína
matvöru upp úr plastpoka frá
mæðrastyrksnefnd, „mig vantar
þetta allt.“
Við getum öll, einstaklingar og
stjórnvöld, dregið mikinn lærdóm af
þessari umhugsunarverðu mynd og
eitt það fyrsta sem slær mann er
harðneskjulegt kerfið sem fátækt
og þurfandi fólk þarf að búa við eins
og staðan er í málunum í dag. Að
standa í biðröðum í stofnunum eftir
nauðþurftum er niðurlægjandi og
engum bjóðandi. Mæðrastyrks-
nefnd og aðrar slíkar á að leggja
niður í núverandi mynd, fólk á rétt á
að komið sé til móts við það á mann-
legri nótum.
Fátækt, sjúkdómar, slys og önn-
ur áföll munu ríða yfir mannkynið
alla tíð með sínum slæmu afleið-
ingum. Því geta engin stjórnvöld
breytt né annar mannlegur máttur.
Það sem hægt er að gera er að
framfylgja þeirri réttlætiskröfu að
yfirvöld sjái svo um að þeir sem búa
við skert lífskjör sakir veikinda,
vegna slysa eða af öðrum fullgildum
ástæðum sem valda kröppum kjör-
um þurfi ekki að lifa langt neðan við
fátæktarmörk.
Draga má mikinn lærdóm af þessari „umhugsunarverðu mynd“ og eitt það
fyrsta sem slær gagnrýnanda er „harðneskjulegt kerfið sem fátækt og
þurfandi fólk þarf að búa við“.
Líf undir lág-
markslaunum
Sæbjörn Valdimarsson
KVIKMYNDIR
Sjónvarpið
Heimildamynd. Stjórn upptöku: Helgi
Sverrisson. Þulur: Þórarinn Eyfjörð. Kvik-
myndataka: Halldór Árni Sveinsson og
Jónas Knútsson. Klipping: Ólafur Jóhann-
esson. Tónlist eftir Shostakovítsj, Rúnar
Júlíusson o.fl. Einstefna kvikmyndagerð.
Sjónvarpið. Sýnd í des. 2004.
Þrjár konur – mörg börn, færri menn, enn
færri krónur
Hvað er málið með Alfie?
Pottþétt rómantísk gamanmynd
með JudeLaw sem nýlega var kosinn
kynþokkafyllsti karlmaðurinn.
Frábær tónlist.
ÁLFABAKKI
4, 6.15, 8.30 og 10.40.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.
KRINGLAN
kl. 4.30, 6.45, 9 og 10.10.
Ein vinsælasta myndin í
USA í 4 vikur samfleytt
l
l
Furðulega frábær og spennandi fjörug
ævintýramynd með hinum einu sönnu,
Jim Carrey, Jim Carrey og Jim Carrey.
ÁLFABAKKI
kl. 3.30 og 6. Ísl.tal.
kl. 5.30, 8 og 10.30. Enskt tal.
YFIR 32.000 ÁHORFENDUR
Ó.H.T. Rás 2. .T. ás 2
H.L. Mbl.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8.30 og 10.40.
KRINGLAN
kl. 5. Ísl.tal.
kl. 5 og 7.30. Enskt tal.
Ein vinsælasta myndin í
USA í 4 vikur samfleytt
l
l
Furðulega frábær og spennandi fjörug
ævintýramynd með hinum einu sönnu,
Jim Carrey, Jim Carrey og Jim Carrey.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
HINIR ELLEFU
ERU ORÐIN TÓLF.
OCEAN´S TWELVE
S.V. Mbl.
„Algert augnayndi“ Mbl.
Kvikmyndir.com
„Hressir ræningjar“
Fréttablaðið
GEORGE
CLOONEY
BRAD
PITT
ANDY
GARCIA
andJULIA
ROBERTS
BERNIE
MAC
DON
CHEADLE
MATT
DAMON
CATHERINE
ZETA-JONES
H.L. Mbl..L. bl.
DV
S.V. Mbl.
S.V. Mbl.
Rás 2ás 2
Kvikmyndir.comvik yndir.co
Kvikmyndir.is
fyrir besta
frumsamda lagið.
fyrir besta
fru sa da lagið.