Morgunblaðið - 21.01.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.01.2005, Blaðsíða 1
Hefðbundið og heimilislegt Góður matur að hætti Dana í mið- borg Kaupmannahafnar | Daglegt líf Gefa út plötu og hafa ekki ólíkan tónlistarsmekk | Menning Íþróttir í dag Ísland skellti Lúxemborg á EM í badminton  Sigfús í aðra aðgerð  Keflvíkingar úr leik STJÓRNVÖLD í Hvíta-Rússlandi hafa sagt út- varpsstöðvum í landinu að framvegis verði minnst 75% af tónlist sem þar er flutt að vera innlend að uppruna. Fari stöðvarnar ekki að þessum reglum geti þær átt á hættu að missa útvarpsleyfið. Hinn einráði forseti landsins, Alexand- er Lúkasénko, hefur sagt að ljós- vakinn sé mengaður af erlendri popptónlist sem hljómi illa í eyr- um Hvít-Rússa. Forsetinn kvartaði í nóvember yfir „vaxandi hlut rússneskrar popptónlistar“ í útvarpsstöðv- unum. Um sama leyti sagði hann að fjarlægja bæri myndir af frönskum fyrirsætum á auglýs- ingaspjöldum í landinu og nota í staðinn myndir af hvít- rússneskum fegurðardísum. „Það gengur ekki að þessar frönsku konur, með leðjuslettur í andlitinu frá veginum, einoki alls stað- ar auglýsingaspjöld, þar á meðal leiðina sem forset- inn notar í vinnuna,“ sagði Lúkasénko og bætti við að nóg væri til af fallegum, innlendum stúlkum. Hann notaði einnig tækifærið og bannaði bílstjórum að kveikja á aðalljósunum fyrr en dimmt væri orðið. Veljið eigin framleiðslu Alexander Lúkasénko Moskvu. AFP. GEORGE W. Bush sór í gær embættiseið sem forseti Bandaríkjanna, annað kjör- tímabilið í röð og hét hann því að hlúa að frelsi og lýðræði um allan heim og berjast gegn harðstjórn. „Vopn eru ekki mikilvæg- asta tækið í þessari baráttu enda þótt við munum verja okkur og vini okkar með vopnavaldi þegar nauðsyn krefur. Frelsi er í eðli sínu nokkuð sem menn verða að velja sér, borgararnir að verja og halda verður því við með réttarríkinu og vernd minni- hlutahópa,“ sagði Bush. William Rehnquist, hinn áttræði forseti hæstaréttar Bandaríkjanna, tók eiðinn af Bush á tröppum þinghússins í Washington á hádegi að staðartíma. Í 17 mínútna ræðu sinni sagði Bush að Bandaríkjamenn vildu ekki þröngva eigin stjórnarfari upp á aðrar þjóðir. „Markmið okkar er þess í stað að aðstoða aðrar þjóðir við að tjá vilja sinn, ná fram eigin frelsi og marka sér eigin stefnu,“ sagði hann. Bush virtist rétta fram sáttahönd til gamalla bandamanna í Evrópu sem lögð- ust gegn Íraksstríðinu þegar hann sagði: „Við virðum vináttu ykkar, við treystum á ráð ykkar og hjálp. Ágreiningur milli frjálsra þjóða er helsta takmark óvina frelsisins.“ Kalt var í veðri í höfuðborg Bandaríkj- anna í gær, hvarvetna voru fánaskreyting- ar og hópar fagnandi stuðningsmanna Bush en einnig hópar með mótmælaspjöld. Geysilegar öryggisráðstafanir voru í Washington og mörg þúsund lögreglu- menn á verði á mikilvægum stöðum. Inn- setningarathöfnin mun hafa kostað um 40 milljónir dollara, nær 2,5 milljarða króna. „Við treystum á ráð ykkar og hjálp“ AP Bush forseti leggur hönd á Biblíuna og sver forsetaeið fyrir seinna kjörtímabilið á tröppum þinghússins í Washington í gær. Með honum er eiginkona hans, Laura Bush. Bush forseti rétti fram sáttahönd til gamalla bandamanna við emb- ættistökuna í gær  Bush vill/16 Washington. AP, AFP. ÞRÍR fulltrúar frá ítölskum verka- lýðsfélögum og yfirmaður Alþjóða- sambands byggingamanna skoðuðu í gær Kárahnjúkavirkjun, bæði vinnusvæði og aðbúnað starfs- manna. Voru þeir í fylgd yfirmanna Impregilo á Íslandi og Ítalíu og yf- irtrúnaðarmanns íslensku verka- lýðsfélaganna á virkjunarstað. Marion Hellmann frá Alþjóða- sambandi byggingamanna sagði við Morgunblaðið að ferðinni lok- inni að sér virtist ástandið á virkj- unarsvæðinu í það heila tekið vera gott. Hins vegar hefðu nokkrar at- hugasemdir verið gerðar, einkum varðandi aðbúnað og öryggi starfs- manna Impregilo, en ekki væri um alvarleg mál að ræða. Fyrirtækið virtist vera búið að bregðast við mörgum athugasemdum trúnaðar- manna á staðnum. Hellmann sagð- ist ekki hafa orðið var við brot á þeim alþjóðlega samningi sem fé- lögin gerðu við Impregilo í nóv- ember sl. Flestum kröfum væri fullnægt en eflaust væru meiri kröfur gerðar á Íslandi og öðrum Norðurlöndum. Veður var vont á Fljótsdalsheiði og Vesturöræfum í gær og má segja að mennirnir hafi séð að- stæður við Kárahnjúka í réttu ljósi þegar vetrarveður þar gerast vá- lynd. Á bakaleiðinni til Egilsstaða í gærkvöldi fór annar jeppinn með hópinn út af en engan sakaði. Niðurstöður ferðarinnar að Kárahnjúkum í gær verða kynntar á fundi sem Impregilo hefur boðað til með fulltrúum íslensku verka- lýðsfélaganna og Samtökum at- vinnulífsins í Reykjavík í dag. Athugasemdir gerðar en ástandið gott í heildina Morgunblaðið/Steinunn Aðbúnaður í göngum skoðaður í gær: Marion Hellmann, Oddur Frið- riksson og Pompeo Naldi frá UIL.  Aðbúnaður á verkstað/10 ÞRÍR hópar umsækjenda um hönn- un á Tónlistarhúsi í Reykjavík skil- uðu inn frumhugmyndum sínum í gær. Upphaflega voru fjórir hópar fengnir til að skila inn hugmyndum, en einn hópur, Multiplex, hefur hætt við að taka þátt í hönnunarferlinu. Fyrirtæki hins heimsþekkta arki- tekts Normans Foster, Foster & Partners, starfar með Multiplex. Stefán Hermannsson, fram- kvæmdastjóri Austurhafnar, segir að ástæður þess að Multiplex dró sig út úr samkeppninni hafi verið látnar í ljós bréflega. Multiplex hafi tvíveg- is beðið um sundurliðaðar áætlanir og nákvæmar upplýsingar um rekst- ur tónlistarhússins. Stjórn Austur- hafnar hafi ákveðið að ekki væri ástæða til þess að gera það opinbert, og því hafi Multiplex ákveðið með hliðsjón af því að hætta þátttöku. „Þeir hafa fengið alls konar hug- myndir um reksturinn, eins og því hvað sé reiknað með að það geti ver- ið margir tónleikar og hvað ráð- stefnumarkaðurinn hér á Íslandi er stór, en þeir hafa ekki fengið sund- urliðaða rekstraráætlun sem við höf- um gert,“ segir Stefán. „Eftir því sem ég best veit voru þeir ekki búnir að koma sér almennilega upp teymi íslenskra samstarfsmanna, og það var ekkert vit í því að halda áfram nema gera það.“ Hinir þrír þátttakendurnir skil- uðu frumhugmyndum í gær. Stefán segir að þær snúi mikið til að skipu- lagi og staðsetningu á helstu húsum, og hvaða starfsemi sé hvar. Gefin verður umsögn um hugmyndirnar og svo eiga tilboð að berast í maí. Einn hópur dregur sig út úr forvalinu FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópusam- bandsins hefur gefið matvælafyrirtækjum árs frest til að hætta að beina auglýsingum á óhollum matvörum að börnum. Markos Kyprianou, sem fer með heilbrigð- is- og neytendamál í framkvæmdastjórninni, sagði þetta í viðtali við Financial Times í gær. Kyprianou sagði að ef matvælafyrirtækin takmörkuðu ekki auglýsingarnar sjálf innan árs yrðu sett lög til að koma í veg fyrir að aug- lýsingar á óhollum matvörum beindust að börnum. Þetta væri nauðsynlegt til að stemma stigu við vaxandi offituvandamáli í Evrópu, einkum meðal ungmenna. Kypranou hvatti einnig matvælafyrirtækin til að bæta merkingar á vörunum þannig að neytendur þyrftu ekki að vera með doktors- próf í efnafræði til að skilja merkimiðana. ESB snýst gegn auglýsingum á ruslfæði Ljóð og lög Norland-feðga STOFNAÐ 1913 19. TBL. 93. ÁRG. FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.