Morgunblaðið - 21.01.2005, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Í guðsbænum farðu í garmana aftur, hvað eru tíu millur á milli milla?
Að mati samkeppnis-ráðs nam ávinn-ingur olíufélag-
anna af ólöglegu verð-
samráði á árunum 1993 til
2001 um 6,5 milljörðum
króna. Í skýrslu ráðsins er
einnig vikið að samfélags-
legum skaða af völdum
samráðsins og var talið að
varlega áætlað væri hann
ekki minni en 40 milljarðar
króna. Því til stuðnings var
m.a. vísað til skýrslu
OECD þar sem komist er
að þeirri niðurstöðu að
ólögmætt samráð valdi því
að verð verður 10% hærra
en í eðlilegu samkeppnis-
umhverfi. Olíufélögin hafa
gert verulegar athugasemdir við
þessa útreikninga samkeppnisráðs
og ESSO og Shell hafa raunar
hafnað því að hafa átt samráð sem
hafi valdið neytendum fjárhags-
legu tjóni.
Sektirnar sem samkeppnisráð
lagði á félögin vegna samráðsins
eru samtals rúmlega 2,6 milljarðar
króna. Þetta er að sjálfsögðu gríð-
arlega há fjárhæð en þó mun lægri
en ætlaður hagnaður félaganna af
samráðinu og aðeins brot af því
samfélagslega tjóni sem sam-
keppnisráð telur að olíufélögin hafi
valdið. Skýring á því er m.a. sú að í
samkeppnislögum eru lagðar tak-
markanir við sektarfjárhæðum og
mega þær ekki vera hærri en 10%
af veltu síðasta almanaksárs hjá
hverju því fyrirtæki sem kom að
samkeppnisbrotunum. Sektirnar
sem lagðar voru á félögin eru raun-
ar talsvert lægri en sem því nemur.
Skaðabótamál undirbúin
Áfrýjunarnefnd samkeppnis-
mála er nú með málið til meðferðar
og því næst verður því væntanlega
skotið til dómstóla. Það er því óvíst
hversu háar sektir félögin þurfa að
greiða, verði þau dæmd. Síst ríkir
minni óvissa um hugsanlegar
skaðabætur sem félögin þurfa að
greiða fyrirtækjum og einstakling-
um en allt virðist benda til þess að
bæði einstaklingar og fyrirtæki
muni höfða mál gegn félögunum
fyrir dómstólum og krefjast skaða-
bóta á grundvelli þess að samráðið
hafi valdið því að þau þurftu að
greiða of hátt verð fyrir eldsneyti.
Skömmu eftir að samkeppnisráð
birti skýrslu sína um ólögmætt
samráð var því lýst yfir af hálfu
Icelandair, Alcan og Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna að
þau ætluðu að kanna hvort olíufé-
lögin væru skaðabótaskyld gagn-
vart þeim og hefur Alcan raunar
þegar lýst því yfir að fyrirtækið
muni leita réttar síns fyrir dóm-
stólum semjist ekki um bætur.
Gera má ráð fyrir að fleiri fyrir-
tæki séu að hugsa sinn gang en
ekki er ólíklegt að þau bíði niður-
stöðu áfrýjunarnefndar sam-
keppnismála. Þá hefur Árni Þór
Sigurðsson, forseti borgarstjórnar
Reykjavíkur, sagt að Reykjavíkur-
borg verði að skoða það mjög al-
varlega hvort höfða eigi skaðabóta-
mál gegn olíufélögunum og síðast
en ekki síst hafa Neytendasamtök-
in ákveðið að annast málaferli fyrir
einstaklinga gegn olíufélögunum
vegna meints verðsamráðs þeirra.
Miðað er við árið 1995 þar sem
bótakrafa vegna eldri brota telst
fyrnd.
Um gríðarlegar fjárhæðir er að
ræða. Nægir hér að nefna að sam-
kvæmt upplýsingum frá Alcan
kaupir fyrirtækið olíuvörur fyrir
200–250 milljónir á ári en sú upp-
hæð bliknar við hliðina á olíukaup-
um útgerðarinnar, sem miðað við
olíuverð um þessar mundir kaupir
olíu fyrir 8–9 milljarða á ári. Það er
því ljóst að neyðist olíufélögin til að
greiða skaðabætur getur það orðið
verulega þungur biti fyrir félögin
að kyngja.
Ef ekki næst samkomulag milli
olíufélaganna og þeirra sem telja
sig eiga rétt á bótum má búast við
löngum og flóknum málaferlum.
Búast má við að hart verði tekist á
um hvort yfirleitt sé hægt að sýna
fram á tjón fyrirtækja og einstak-
linga, og ennfremur hvernig eigi að
meta það tjón til fjár. Eins og vikið
var að hér að ofan telur OECD að
ólögmætt samráð valdi því að verð
sé 10% hærra en þegar samkeppni
er með eðlilegum hætti. Ekkert
slíkt mál hefur á hinn bóginn komið
til kasta íslenskra dómstóla og því
algjörlega óvíst hvernig tjónið
verður metið.
Eggert B. Ólafsson hdl. hefur
unnið með Neytendasamtökunum
að því að meta skaðabótarétt ein-
staklinga gegn félögunum og hefur
fjöldi manna skilað inn gögnum til
samtakanna um viðskipti sín við fé-
lögin. Eggert undirbýr nú kröfu-
gerð á hendur olíufélögunum fyrir
hönd þessara manna og segir hann
að þær verði væntanlega sendar til
þeirra innan nokkurra vikna. Að-
spurður segir hann ótímabært að
gefa upp hversu háar kröfurnar
verða, eða við hvaða hlutfall af
eldsneytisverði verður miðað. „En
ég tel að sönnunarbyrðin hvíli á
þeim, að félögin sanni að verðsam-
ráðið hafi ekki leitt til verðhækk-
ana,“ segir hann.
Upplýsingafulltrúar Icelandair
og Alcan vildu lítið segja um málið.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, sagði að lítið
hefði gerst í málinu á síðustu vik-
um og beðið væri niðurstöðu áfrýj-
unarnefndar.
Fréttaskýring | Fyrirtæki og einstaklingar
vilja bætur vegna samráðs olíufélaganna
Hvernig á að
meta tjónið?
Samkvæmt skýrslu OECD veldur
ólöglegt samráð 10% hærra verði
Ertu með kvittun?
Búast má við löngum og
flóknum réttarhöldum
Neytendasamtökin hafa
ákveðið að styðja félagsmenn
sína í málsókn gegn olíufélögun-
um vegna meints ólöglegs verð-
samráðs og ýmis fyrirtæki hafa
látið kanna grundvöll þess að
höfða einkamál og sækja bætur
til olíufélaganna. Ljóst er að um
gríðarlegar fjárhæðir er að tefla
og má búast við að málaferlin
verði löng og flókin. Stefnendur
verða að sýna fram á viðskiptin
með því að framvísa nótum eða
einhvers konar gildum yfirlitum.
runarp@mbl.is
Símatún ehf., kt. 510501-2920, Rauðarárstíg 27, 105 Reykjavík,
tilboðsgjafi, býður hluthöfum í Hraðfrystistöð Þórshafnar, kt. 630169-2759,
Eyrarvegi 16, 680 Þórshöfn, að kaupa hlutabréf þeirra í félaginu.
Tilboð þetta og tilboðsyfirlit er sett fram í samræmi við VI. og VII. kafla laga nr. 33/2003, um
verðbréfaviðskipti. Þann 30. desember 2004 keypti Símatún ehf. samtals 66,67% eignarhlut í
Hraðfrystistöð Þórshafnar hf. Samkvæmt 1. tl. 1. mgr. 32. gr. laga nr. 33/2003, um verðbréfavið-
skipti, ber aðila sem eignast 40% atkvæðisréttar í félagi sem skráð er á skipulegum verðbréfa-
markaði að gera öðrum hluthöfum yfirtökutilboð innan fjögurra vikna. Tilboð þetta er sett fram
á grundvelli fyrrnefnds ákvæðis.
Tilboðshafar:
Allir hluthafar samkvæmt hlutaskrá Hraðfrystistöðvar Þórshafnar hf. í lok dags 21. janúar fá sent
næstu daga tilboðsyfirlit, eyðublað til samþykkis tilboðinu og svarsendingarumslag. Einnig er
hægt að nálgast gögnin hjá Fjárfestingarfélagi sparisjóðanna hf., Rauðarárstíg 27, 105 Reykjavík
og á heimasíðu Sparisjóðabanka Íslands hf., www.icebank.is.
Tilboðsverð og greiðsla:
Tilboðsverð er 3,68 kr. fyrir hverja krónu nafnverðs í Hraðfrystistöð Þórshafnar hf. Símatún ehf.
mun greiða allt kaupverð með reiðufé. Greiðslan verður lögð inn á bankareikning þann sem til-
greindur er á eyðublaði til samþykkis tilboðinu innan tveggja virkra daga frá því að undirritað
samþykki tilboðs, ásamt frumriti hlutabréfs árituðu um framsal til tilboðsgjafa, berst á starfsstöð
Fjárfestingarfélags sparisjóðanna, Rauðarárstíg 27, 105 Reykjavík.
Gildistími tilboðsins:
Tilboðið gildir frá kl. 9:00 þann 25. janúar 2005 til kl. 17. þann 23. febrúar sama ár. Fyrir
þann tíma verður samþykki tilboðsins, ásamt frumriti hlutabréfs árituðu um framsal til tilboðs-
gjafa, að hafa borist til Fjárfestingarfélags sparisjóðanna, Rauðarárstíg 27, 105 Reykjavík.
Umsjónaraðili:
Fjárfestingarfélag sparisjóðanna hf., kt. 510400-2670, Rauðarárstíg 27, 105 Reykjavík, hefur um-
sjón með tilboði þessu fyrir Símatún ehf. Þá mun Sparisjóðabanki Íslands hf., kt. 681086-1379,
annast milligöngu um viðskipti í Kauphöll Íslands.
TILBOÐ TIL HLUTHAFA
HRAÐFRYSTISTÖÐVAR ÞÓRSHAFNAR HF.
Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn