Morgunblaðið - 21.01.2005, Page 22
22 FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Borðeyri | Nýir eigendur hafa tekið við kaup-
félaginu á Borðeyri, Sigrún Waage og Heiðar
Þór Gunnarsson. Verslunin heitir nú Lækjar-
bakki þótt kaupfélagsheitið fylgi henni vafa-
laust líka enda hafa samvinnufélögin rekið þar
verslun í heila öld. Sigrún og Heiðar keyptu
verslunarhús og sláturhús KVH á Borðeyri,
góða þúsund fermetra, og hafa hug á að koma
rekstri í húsnæðið, meðal annars ferðaþjón-
ustu.
Kaupfélag Hrútfirðinga var stofnað 1899 og
rak lengi verslun, sláturhús og aðra starfsemi
á Borðeyri, sem er eitt af fámennustu kaup-
túnum landsins. Verslunarsagan á Borðeyri er
mun lengri því fyrr á öldum sigldu þangað er-
lendir lausakaupmenn. Staðurinn var löggiltur
verslunarstaður fyrir miðja nítjándu öldina og
föst verslun hefur verið þar frá 1861. Fyrir fá-
einum árum tók Kaupfélag Vestur-Húnvetn-
inga við starfseminni á Borðeyri en áður hafði
slátrun verið hætt. Sigrún Waage og Heiðar
Þór Guðmundsson sjá til þess að Borðeyri geti
áfram kallast kauptún með því að taka yfir
verslun kaupfélagsins.
Leigja út hluta af húsinu
Heiðar kom á Borðeyri fyrir þremur árum,
upphaflega til sviðaverkunar hjá kaupfélaginu
en vann síðan í versluninni. Sigrún Waage var
leiðbeinandi við grunnskólann á Borðeyri þar
til í haust.
Heiðar segir að þau hafi haft hug á að kaupa
húsnæði kaupfélagsins og verið með ákveðnar
hugmyndir um nýtingu á því. Málin hafi þróast
þannig að húsnæðið var ekki falt nema þau
keyptu verslunina einnig og náðust um það
samningar. Opnuðu þau verslun sína núna um
áramótin.
„Þetta er auðvitað bjartsýni hjá okkur. Ég
held þó að við getum alveg rekið búðina,“ segir
Sigrún. Þau reka verslunina með svipuðu sniði
og kaupfélagið. Með samningum við heild-
söluverslunina Gripið og greitt geta þau
minnkað lagerinn en þó aukið vöruúrvalið.
„Við erum með eitthvað af næstum því öllu
sem fólk þarf. Og ef við eigum ekki nákvæm-
lega það sem fólk þarf þá eigum við eitthvað til
að bjarga því. Svo er fólk hér þolinmótt, vant
því að þurfa að bíða eftir að við pöntum það
sem vantar,“ segir Heiðar. Í búðinni eru mat-
og nýlenduvörur og ýmsar bíla- og búrekstr-
arvörur.
Sigrún og Heiðar hyggjast breyta versl-
unarhúsinu. Færa verslunina til og leigja út
hluta af húsnæðinu. Meðal annars er í bígerð
að Sparisjóður Húnaþings og Stranda flytji
þangað afgreiðslu sína. Þau ætla að útbúa
samkomusal til að þjóna ferðafólki, meðal ann-
ars þeim sem gista á tjaldsvæðum sem þau
hyggjast koma upp á Borðeyri.
Meira af kjarki en peningum
Þau eru ekki byrjuð á endurbótum á slát-
urhúsinu. Heiðar segir að sumt þurfi að rífa en
lagfæra annað. Þau eiga sér draum um að nýta
húsnæðið í framtíðinni en telja ekki tímabært
að skýra frá því. „Þessi staður á sér merka
sögu og býður upp á endalausa möguleika í
ferðaþjónustu. Það hefur bara vantað kjarkinn
og peningana,“ segir Heiðar Þór og Sigrún
botnar umræðuna með því að segja að þau hafi
kjarkinn en ekki eins mikið af peningum.
Þótt Borðeyri virki sem eyðiþorp á marga
sem aka hringveginn, hinum megin Hrúta-
fjarðar, búa þar nokkrar fjölskyldur, um 25
einstaklingar. Fólkið vinnur við þjónustu við
Hrútfirðinga og sumir sækja vinnu annað. Þar
er meðal annars gistiheimilið Tangahúsið,
vélaverkstæði og grunnskóli. Þá er áhugahóp-
ur að gera upp Riishús og er ætlunin að setja
þar upp safn.
„Ég er viss um að þetta gengur vel hjá okk-
ur,“ segir Sigrún og Heiðar segist gera sér
grein fyrir að þau séu að takast á hendur mikla
vinnu á næstu árum og verði að sætta sig við
lág laun á meðan þau byggi upp. „Það er þess
virði ef við getum búið hér, haft að borða og
greitt reikningana,“ segir hann.
Nýir eigendur taka við húseignum og verslun kaupfélagsins á Borðeyri
„Erum með eitthvað
af næstum því öllu“
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Sveitaverslun Epli og verkfæri eru meðal þess sem Heiðar Þór Gunnarsson og Sigrún Waage
hafa á boðstólum í gömlu kaupfélagsbúðinni á Borðeyri.
LANDIÐ
AUSTURLAND
Neskaupstaður | Norð-
firðingar velta nú fyrir
sér framtíð verslunar-
innar Sparkaupa í Nes-
kaupstað. Búið er að
ganga frá samningum
um sölu á húsnæði versl-
unarinnar og fer hún út
1. mars nk. Kaupfélag
Héraðsbúa, sem rekur
verslunina, hefur fest
sér lóð í bænum, en
byggingarframkvæmdir
eru ekki hafnar. Spar-
kaup á að afhenda hús-
næðið 1. mars nk. en
ekkert bólar á byggingarfram-
kvæmdum að sögn heimafólks og
virðist útlit fyrir að verslun Spar-
kaupa leggist tímabundið niður í
Neskaupstað.
„Fólk veltir mikið fyrir sér hvort
Sparkaupabúðin leggist tímabundið
af hér í bænum,“ segir Elín Sveins-
dóttir, framkvæmdastjóri Sparkaupa
í Neskaupstað. Í bænum er önnur
dagvöruverslun, Nesbakki, og segir
Elín ákveðna hættu á því að Spar-
kaup missi eitthvað af viðskiptum
sínum þangað ef hlé verður á rekstr-
inum.
„Hugsanlega fær verslunin að vera
eitthvað lengur í núverandi húsnæði“
sagði Gunnlaugur Aðalbjarnarson
kaupfélagsstjóri Kaupfélags Héraðs-
búa í samtali við Morgunblaðið. „Það
er þó óráðið ennþá. Við munum kapp-
kosta að hraða þessu máli eins og
kostur er, en í versta falli gæti orðið
um hlé að ræða í verslunarrekstrin-
um og við höfum auðvitað áhyggjur af
því.“
Sparkaup hafa fest sér lóð neðan
við Hafnarbraut og búið er að taka
prufuholur til jarðvegskönnunar og
mun það hafa komið vel út. Segir Elín
Kaupfélag Héraðsbúa vera í viðræð-
um við byggingaraðila að nýju versl-
unarhúsnæði, en hún hafi ekki upp-
lýsingar um frekari framvindu mála.
Fimmtán leiguíbúðir
Sparkaup hefur verið til húsa á
neðstu hæð gamla kaupfélagshússins
í Neskaupstað. Hæðin var seld
Magna Kristjánssyni og undanfarið
hefur verið unnið að miklum endur-
bótum á húsinu, sem nú sér brátt fyr-
ir endann á. Á efri hæðum hússin eru
íbúðir en á neðstu hæðinni þar sem
Sparkaup eru ennþá, mun eiga að
flytja bæjarskrifstofur Fjarðabyggð-
ar í Neskaupstað 1. júní nk., en mjög
er orðið þröngt um þær í núverandi
húsnæði. Að auki verða á hæðinni
geymslur fyrir íbúðirnar á efri hæð-
unum.
„Það verður talsverð vinna að
breyta húsnæðinu fyrir bæjarskrif-
stofurnar, en þær aðgerðir verða
metnar fljótlega,“ segir Magni. Hann
segir að í húsinu verði 15 leiguíbúðir,
undir nafni leigufélagsins Trölla-
borga. „Þetta er ekki tilbúið ennþá,
en leigist sjálfsagt jafnóðum og íbúð-
irnar koma, því það er mikið spurt og
ég er búinn að lofa fimm íbúðum.“
Íbúðirnar eru allt frá 55 til 100 fer-
metra að stærð, tveggja og upp í fjög-
urra herbergja.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Breytir um svip Gamla kaupfélagshúsið í
Neskaupstað mun brátt hýsa bæjarskrifstofur
og leiguliða.
Norðfirðingar spyrja hvort gert verði hlé
á rekstri Sparkaupaverslunar í bænum
Búðin út og bæj-
arskrifstofur innKárahnjúkavirkjun | Á vefnum kara-hnjukar.is er sagt frá því að risabor-
vél nr. 2 sé á mikilli siglingu um þess-
ar mundir og bætir eigið met viku
eftir viku. Í fyrstu viku ársins boraði
hún 250 metra en í síðustu viku yfir
270 metra, sem telst mjög góður ár-
angur. Borvél nr. 1 gekk líka vel og
bætti yfir 200 metrum við aðrennsl-
isgöngin. Aðra sögu var að segja af
vél nr. 3. Hún lenti á vatnsæð í berg-
inu á föstudaginn var og inn í göngin
rann vatn sem talið var á bilinu 400–
500 sekúndulítrar. Rennslið minnk-
aði um þriðjung á næstu tveimur sól-
arhringum og unnið er að því að
þétta bergið áður en borinn verður
ræstur að nýju.
Í Hafrahvammagljúfri er áfram
haldið að steypa svokallaðan távegg
Kárahnjúkastíflu og sömuleiðis er
steypuvinna í fullum gangi víða í söl-
um og göngum í Fljótsdal. Töluverð-
ar tafir hafa orðið á byggingu Kára-
hnjúkastíflu af ýmsum orsökum.
Stefnt er að því að steypa vatnskápu
stíflunnar næstu tvö sumur og ekki
hægt að vinna það verk nema í frost-
leysu. Er talið að töfin við stífluna
muni jafnast út þegar að þeim fram-
kvæmdum kemur. Borun aðrennsl-
isganga undir Fljótsdalsheiði er hins
vegar á áætlun.
Jarðgangagerðin
heldur áætlun
Sigurður Arnalds hjá Landsvirkj-
un segir jarðgangagerðina hafa í
heildina gengið mjög vel en alltaf
verði einhverjar tafir því jarðlögin
hallist og þurfi annað kastið að fara í
gegnum millilög. „Þá gengur yfir-
leitt erfiðlegar og þarf að setja
styrkingar,“ segir Sigurður. „Þetta
hefur annars allt verið upp á bókina,
engar alvarlegar sprungur og styrk-
ingar minni en menn reiknuðu með.
Göng nr. 3 eru aðeins á undan, en
hin aðeins á eftir og meðalhraðinn
gefur ekki tilefni til sérstakra
áhyggna. Það hefur gerst að berg
hefur verið mjög laust í sér og menn
þurft að fara í gegnum millilög í
hraunastaflanum. Þá urðu einhverj-
ar tafir í bor nr. 2 þegar komið var í
óvanalega hart berg, þá gekk hægar.
Síðan er það tækjabúnaðurinn sjálf-
ur. Ekkert hefur komið upp með
borana, þeir hafa gengið fínt, en orð-
ið hafa tafir vegna færibandanna.
Fyrst voru það tiltekin tæknileg
vandamál sem framleiðandinn þótt-
ist komast fyrir. Síðan voru í desem-
ber tafir vegna veðurs og frosta og í
grimmdarfrostinu sem var í kringum
jólin stoppaði færiband vegna kulda
úti og þá leystu menn það með því að
taka mulninginn við gangamunnann
á vörubíl og keyra út á haug. Þannig
að stundum gengur þetta vel og í
annan tíma ver,“ segir Sigurður.
Borun aðrennslisganga
gengur að jafnaði vel
Ljósmynd/ÁÞJ
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Símað í göngunum Starfsmaður í
aðgöngum 1 hringir í lestina til að
athuga um ferð hennar inn að
risabornum tæpum 3 km innar í
göngunum.