Morgunblaðið - 21.01.2005, Side 23

Morgunblaðið - 21.01.2005, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2005 23 MINNSTAÐUR                                           !""   #    $        %  & '&  &(   )              $         *      +  ,  %#   ( % #    (   - ,   )   .% %       ,  #     +         /  %    (               %     & *        & &  +  (  0   #    )       *   1 # +  '      % & '   + +  * 2 # "*  *  3   %    '     * '    %# +  4  55,*   '    '           #      '   +  1 #       $ &  6   +             7          +     #     (  355 %# + 4 & 55,      +      8  % + +  * 2 # "*   9  $        +        #  '  %      '   ( 55, 0     % (   Kelp Fyrir húð, hár og neglur PÓSTSENDUM www.islandia.is/~heilsuhorn Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889 fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum, Árnesaptóteki Selfossi, Yggdrasil Kárastíg 1. Fjarðarkaupum Borgartúni 24 BISKUP Íslands hefur auglýst laust til umsóknar embætti prests í Glerárprestakalli á Akureyri. Stað- an verður veitt frá 1. mars en um- sóknarfrestur rennur út 14. febrúar. Sóknarprestur Glerárprestakalls er séra Gunnlaugur Garðarsson en embættið sem er auglýst nú er önn- ur staða prests í sókninni. Séra Arn- aldur Bárðarson hefur starfað sem prestur í Glerársókn í tæplega 18 mánuði en hann var í upphafi settur í embættið til bráðabirgða. Nú þeg- ar önnur prestsstaða hefur verið fest formlega í sessi, þarf að auglýsa hana lögum samkvæmt. Séra Gunnlaugur Garðarsson sagði að upphaflega hefði staðið til að færa prestsembættið í Háls- prestakalli í Þingeyjarsveit yfir til Glerárkirkju og skipta þjónustu þess prestakalls á milli þriggja prestakalla. Þeirri ákvörðun hefði verið frestað og því verið stofnað til nýs starfs við Glerárkirkju, sem hafi verið orðið löngu tímabært. Þá var Pétur Björgvin Þorsteinsson settur inn í embætti djákna við Glerár- kirkju um síðustu áramót. Gunn- laugur sagði það hafa verið lang- tímamarkmið að ráða djákna til starfa og vegna ráðdeildarsemi í rekstri hefði verið hægt að stíga þetta skref nú. Umsóknir um starf prests skulu sendar biskupi en valnefnd velur prest samkvæmt starfsreglum um presta. Biskup ákveður með hvaða umsækjanda hann mælir náist ekki samstaða í valnefnd. Embætti prests í Glerársókn auglýst SÝNING á verkum, bréfum og munum úr fórum Davíðs Stef- ánssonar verður opnuð á Amts- bókasafninu á Akureyri í dag, 21. janúar, en þá eru liðin 110 ár frá fæðingu skáldsins frá Fagraskógi. Meðal þess sem Aðalbjörg Sig- marsdóttir, skjalavörður á Héraðs- skjalasafninu, var að koma fyrir í gærdag voru þrír lokaðir pakkar; á tvo þeirra er ritað að þá megi opna árið 2100 en einn má opna ef atómsprengja fellur, annars árið 2250. Einar B. Guðmundsson frá Hraunum í Fljótum gekk frá pökk- unum, en þeir Davíð voru systk- inasynir. „Nei, mig hefur aldrei langað neitt sérstaklega til að opna þá,“ segir Aðalbjörg. Bréf sem aldrei hafa áður komið fyrir sjónir almennings verða einn- ig á sýningunni, en þau skrifaði Davíð Önnu Z. Osterman, sendi- kennara í Svíþjóð, sem þýddi nokk- ur verka hans á sænsku. Sá bréfa- pakki var að hennar fyrirmælum innsiglaður í 25 ár frá andláti hennar. Hún lést 1969, „þannig að opna mátti pakkann 1994, en það gleymdist einhvern veginn allt fram til ársins 2000“, segir Aðal- björg. „Þetta eru ekki ástarbréf,“ bætir hún við, „en nokkur bréf- anna, tíu til tólf talsins, tók hún með sér í gröfina og voru þau brennd með henni. Og auðvitað vit- um við ekkert hvað í þeim stóð.“ Aðalbjörg segir bréfin skemmti- leg en í þeim segir skáldið frá eig- in hugsunum og hvernig því líður þegar það yrkir. Að auki má á sýningunni sjá handrit að verkum Davíðs, bækur eftir hann og úr einkasafni hans, heiðursskjöl, umsagnir og fleira. Afmælisdagskránni verður svo fram haldið um kvöldið þegar Karlakór Akureyrar-Geysir efnir til hátíðartónleika í Glerárkirkju kl. 20.30. Fluttar verða helstu söngperlur Davíðs, en að auki verður frumflutt lag við ljóð hans, Fögur er hlíðin, eftir kórfélaga, Jónas Jóhannsson. Kórinn mun síð- ar á árinu gefa út geisladisk af þessu tilefni. Á morgun, laugardag, verður svo málþing um Davíð í Ketilhús- inu þar sem fjallað verður um hann frá mörgum sjónarhornum, um verk hans, einstök ljóð, tónlist við ljóðin og persónuna sjálfa. Skáldsins frá Fagraskógi minnst á 110 ára afmæli Svo kemur leiftrið, náðarstundin Morgunblaðið/Kristján Davíðsdagur Aðalbjörg Sigmarsdóttir á Héraðsskjalasafninu með bréf sem Anna Z. Osterman í Svíþjóð skrifaði Davíð Stefánssyni en bréfin og fleiri munir úr eigu skáldsins verða til sýnis á sýningu sem opnuð verður í Amtsbókasafninu í dag. AKUREYRI TVEIR af þingmönnum norðaust- urkjördæmis, Steingrímur J. Sigfús- son, formaður Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs, og Þuríður Backman, voru á ferð norð- an heiða en þau hófu gærdaginn á því að heilsa upp á Ragnar Sverr- isson, kaupmann í JMJ. Ragnar hef- ur farið fyrir hópi manna sem vilja auka vægi Akureyringa á Alþingi, Hugmyndir hans og félaga ganga út á að Akureyringar verði í efstu sæt- unum á listum flokkanna fyrir næstu alþingiskosningar ella sé ekki annað í stöðunni en bjóða fram sérstakan Akureyrarlista. Það hugnaðist Steingrími ekki, sagði það ekki væn- legan kost, hvorki fyrir Akureyri, kjördæmið né landið í heild. Þingmenn heimsóttu kaupmanninn Morgunblaðið/Kristján Heimsókn Sigþór Bjarnason, t.v., Ragnar Sverrisson, Steingrímur J. Sig- fússon og Þuríður Backman ræða málin yfir kaffibolla. „Ekki hef ég afkastað miklu, eftir að ég kom heim, því miður. En varla verður þess vænst, að ljóðskáld yrki daglega, opt verða þau að sýna þol- inmæði og bíða, bíða eftir stundinni. Opt verða þau að ganga með yrk- isefnið svo dögum skiptir, vikum, mánuðum, árum – en svo kemur leiftrið, náðarstundin. Örvæntingin sækir okkur heim, meðan við bíðum. Líkamlegar og andlegar þjáningar. En allt slíkt er undanfari hins góða og mikla. Fyrst ískaldur og langur vetur, svo gróandi vor. –“ Úr bréfi Davíðs til Önnu 20. sept- ember 1954. „Ég hef kveðið eins og mér var eðlilegast, aldrei reynt að gera ljóð mín að krossgátum eða sveipa um mig þoku til að sýnast stór. Blekkingin bjargar engum, ekki heldur ofbeldi, jafnvel þó að það sé löghelgað – en sannleikurinn mun gera yður frjálsa. Þér hafið eflaust veitt því eftirtekt hve ljóð- hneigðir Íslendingar hafa verið frá upphafi. Þegar fornsögurnar eru fráskildar, eru það ljóðin, sem ver- ið hafa þeim mestur andlegur afl- gjafi. Þau voru þeim í senn hugg- un í hörmum og hvatning til nýrra dáða. Við glæður þeirra ornaði al- þýðan sér í skammdegi og hríð- um... “ „....allt hafði þetta sína mik- ilvægu þýðingu fyrir líf og tilurð þjóðarinnar. Mér er nær að halda að engin þjóð í heimi eigi ljóðum meira að þakka en Íslendingar. Þau eiga sinn mikla þátt í því að þeir eru í dag frjálsir menn, frjáls þjóð.“ – 18. desember 1949.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.