Morgunblaðið - 21.01.2005, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2005 25
MENNING
FRAMTÍ‹ARHÓPUR
Samfylkingarinnar
Málfling framtí›arhóps Samfylkingarinnar
laugardaginn 22. janúar kl. 15-18 á Grand Hótel
Dagskrá fundarins
15:00 Setning - Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
15:10 Valur Ingimundarson - Endurmótun öryggisgilda og
samskiptin vi› Bandaríkin
15:30 Birna fiórarinsdóttir - Öryggi á 21.öld: Öryggi hverra?
15:50 Magnús fi. Bernhar›sson - Öryggi og l‡›ræ›i: Hva› er
framundan í Írak og Íran?
16:10 Fyrirspurnir & umræ›ur
16:40 Kaffihlé
17:00 Thorvald Stoltenberg - Small states in a small world
17:30 Fyrirspurnir og umræ›ur
17:50 Samantekt - Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Fundarstjóri er fiórunn Sveinbjarnardóttir alflingiskona.
Allir velkomnir. Sjá nánar á www.framtid.is.
- ábyrg› smáfljó›ar
Heimsöryggi
Thorvald Stoltenberg er einn flekktasti jafna›arma›ur Nor›urlanda,
flökk sé mikilvægu hlutverki hans á alfljó›avettvangi. Hann gegndi embætti
varnarmálará›herra í ríkisstjórn Odvars Nordlie 1979 til 1981 og embætti
utanríkisrá›herra í ríkisstjórn Gro Harlem Brundtlandts 1987 til 1989 og
aftur 1990 til 1993. Hann hefur gegnt starfi yfirmanns flóttamannahjálpar
Sameinu›u fljó›anna og er nú forseti norska Rau›a krossins. fiekktastur
er hann fyrir framgöngu sína sem sáttasemjari í fyrrum Júgóslavíu árin
1993-1995 og sem sérstakur sendima›ur Sfi í Írak ári› 2000.
Sérstakur framsöguma›ur: Thorvald Stoltenberg
Eyrarrósin, sérstök við-urkenning fyrir fram-úrskarandi menningar-
verkefni á landsbyggðinni, var
afhent við hátíðlega athöfn á Bessa-
stöðum í gær. Þrjú framúrskarandi
verkefni voru tilnefnd; Aldrei fór
ég suður, rokkhátíð alþýðunnar á
Ísafirði, Listahátíðin Á seyði á
Seyðisfirði og Þjóðlagahátíðin á
Siglufirði. Öll voru þessi verkefni,
að mati dómnefndar, afar vel
heppnuð og vel að viðurkenningu
komin, en Eyr-
arrósin kom í
hlut Þjóð-
lagahátíð-
arinnar á Siglu-
firði, sem hefur
á aðeins fimm árum orðið að föstum
punkti í lista- og menningarlífi
þjóðarinnar og stuðlar að bæði
varðveislu og nýsköpun í íslenskri
þjóðlagatónlist. Hlaut hátíðin fjár-
styrk að upphæð 1,5 milljónir og
verðlaunagrip eftir Steinunni Þór-
arinsdóttur til eignar. Það var
Dorrit Moussaieff forsetafrú og
verndari Eyrarrósarinnar, sem af-
henti Gunnsteini Ólafssyni, listræn-
um stjórnanda hátíðarinnar, við-
urkenninguna.
Í umsögn dómnefndar um Þjóð-lagahátíðina sagði m.a.:
„Óvenjulega fagleg vinna við skipu-
lag og undirbúning dagskrár og
tengsl við erlenda viðburði af hlið-
stæðu tagi gefa hátíðinni faglegt og
alþjóðlegt yfirbragð um leið og
byggt er á þjóðlegri hefð.“
Hér er um að ræða eina stærstu
ef ekki stærstu upphæð sem veitt
hefur verið til menningarviðburðar
á Íslandi hingað til. „Það er blað
brotið í stuðningi við menningu hér
á landi með þessum verðlaunum og
það er von mín að fleiri taki þennan
þátt upp og verðlauni fleiri slík
verkefni, því þarna voru önnur
verkefni sem áttu svo sannarlega
skilið að fá svona verðlaun,“ segir
Gunnsteinn Ólafsson, en hann
kveðst afar ánægður með þessa við-
urkenningu. „Þetta hefur einfald-
lega þá þýðingu að við getum haldið
glæsilega hátíð fyrir utan alla
kynninguna sem við munum fá hjá
Listahátíð. Þetta hefur þannig stór-
kostlega þýðingu fyrir hátíðina. Ég
lít á þetta sem viðurkenningu fyrir
fimm ára starf, en fyrir framtíðina
þýðir þetta að hátíðin er viður-
kennd sem mikilsmegandi og það
hefur líka mjög mikið gildi fyrir
Siglfirðinga að fá verðlaun fyrir þá
staðfestu sem þeir hafa sýnt. Þeir
hafa stutt við þessa hátíð dyggilega
og stutt við bakið á okkur við að
byggja upp þjóðlagasetur sr.
Bjarna Þorsteinssonar sem við von-
um að við getum tekið í notkun á
næsta ári, en þá eru 100 ár frá því
hann gaf út þjóðlagasafn sitt.“
Þjóðlagahátíðin var fljót að
skapa sér nafn og undanfarin tvö ár
hefur orðið mikil aukning í fjölda
gesta. „Þetta hefur mjög góð áhrif
á bæinn,“ segir Gunnsteinn. „Það er
ekki bara það að fólk komi til Siglu-
fjarðar, heldur gefur þetta bænum
ákveðna jákvæða ímynd og vekur
athygli á þeim listamönnum sem
eru á Siglufirði og tengjast Siglu-
firði. Eitt af markmiðum hátíð-
arinnar er að gefa siglfirskum lista-
mönnum tækifæri á að starfa með
erlendum eða innlendum lista-
mönnum sem þangað koma.“
Í ár verður stef hátíðarinnarSagnir og ævintýri og verður
sagnalist í stóru hlutverki. Þá verða
haldin námskeið, m.a. í söng og tón-
list, handverki. Nýjasta viðbótin er
námskeið í því að ganga til grasa og
matreiða úr þeim.
Gunnsteinn segir að í fyrirsjáan-
legri framtíð hljóti það að verða
ljóst að hátíðin hafi fest sig í sessi.
„Þjóðlagasetrið á Siglufirði verður
ekki dautt hús, það verður líf í
kringum það. Það er miklu auðveld-
ara fyrir okkur að afla styrkja og
tekna til að byggja og efla þjóðlaga-
setrið með því að hafa þjóðlagahá-
tíðina gangandi. Þjóðlagasetrið og
hátíðin styrkja hvort annað. Það
sem vantar næst eru þjóðlagarann-
sóknir, en við vonum að Þjóðlaga-
setrið geti stutt við þær og haldið
utan um þær að vissu marki.“
Heimasíða hátíðarinnar er
www.siglo.is/festival.
Þjóðlagahátíð fær Eyrarrós
’Það sem vantar næsteru þjóðlagarannsóknir,
en við vonum að Þjóð-
lagasetrið geti stutt við
þær og haldið utan um
þær að vissu marki.‘
AF LISTUM
Svavar Knútur
Kristinsson
svavar@mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
Dorrit Moussaieff, verndari Eyrarrósarinnar, afhendir Gunnsteini Ólafs-
syni, listrænum stjórnanda Þjóðlagahátíðar á Siglufirði, viðurkenninguna.
LISTAMAÐURINN Alessandro
Raho og Dame Judi Dench standa
hér fyrir framan portrett sem hann
hefur gert af leikkonunni og getur
nú að líta í National Portrait Gall-
ery í Lundúnum. Dame Judi Dench,
sem hlaut eldskírn sína á sviði 1957,
er ennþá virk í leikhúsi, sjónvarpi
og kvikmyndum og hlaut m.a. á sín-
um tíma Óskarsverðlaunin fyrir
aukahlutverk í myndinni „Shake-
speare in Love“.
Reuters
Portrett af Dame Judi
Fáðu úrslitin
send í símann þinn