Morgunblaðið - 21.01.2005, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2005 31
UMRÆÐAN
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
komst nýlega að þeirri niðurstöðu að
umhverfisráðherra hafi verið skylt
að láta fyrirhugað álver Alcoa
Fjarðaáls í Fjarðabyggð sæta mati á
umhverfisáhrifum. Í kjölfarið er rétt
að rekja nokkrar staðreyndir og út-
skýra í fáum orðum aðkomu og stöðu
Alcoa Fjarðaáls.
Áformuð
framkvæmd
Í nóvember árið 2002
keypti Alcoa hluta-
félagið Reyðarál hf.
Með í kaupunum fylgdi
mat á umhverfisáhrif-
um vegna 420 þúsund
tonna álvers og raf-
skautaverksmiðju sem
Skipulagsstofnun og
umhverfisráðherra
höfðu áður samþykkt.
Frá upphafi lá fyrir
að Alcoa hygðist
byggja minna álver
með rúmlega 320 þús-
und tonna fram-
leiðslugetu. Auk þessa
var fallið frá áformum
um að byggja raf-
skautaverksmiðju.
Verksmiðjan hefur ver-
ið hönnuð með það að
markmiði að hún verði í
allra fremstu röð hvað
varðar umhverfismál.
Þannig hefur m.a. verið
komið í veg fyrir losun
á iðnaðarvatni til sjávar
og ákveðið var að end-
urvinna öll kerbrot er-
lendis í stað þess að
farga þeim hér á landi.
Mat á umhverfis-
áhrifum staðfest
Í samræmi við lög um
mat á umhverfisáhrif-
um tilkynnti Alcoa stjórnvöldum um
breytinguna og skilaði til Skipulags-
stofnunar ítarlegri samanburð-
arskýrslu til að fá úr því skorið hvort
gera þyrfti nýtt mat á umhverfis-
áhrifum eða hvort gamla matið fyrir
stærra álver og umfangsmeiri fram-
kvæmd yrði látið gilda. Skipulags-
stofnun tók samanburðarskýrsluna
til meðferðar og ráðfærði sig við 15
mismunandi stofnanir.
Niðurstaða Skipulagsstofnunar
var í stuttu máli sú að umræddar
breytingar á áformum um byggingu
álversins væru ekki þess eðlis að
framkvæma þyrfti nýtt mat. Gamla
matið stæði því enn, enda mat sér-
fræðinga að heildaráhrif álvers Al-
coa Fjarðaáls yrðu þau sömu eða
minni en álvers Reyðaráls sam-
kvæmt upphaflegu mati. Umhverf-
isráðherra staðfesti síðar þennan úr-
skurð Skipulagsstofnunar.
Minni umhverfisáhrif álvers
Alcoa Fjarðaáls
Gert var ráð fyrir að útblástur frá
upphaflegu álveri
Reyðaráls yrði hreins-
aður með svokölluðum
vothreinsibúnaði. Í því
felst að loftborin efni
frá álverinu eru fyrst
hreinsuð í þurr-
hreinsibúnaði, þar sem
efni í útblæstri eru end-
urunnin og síðan er út-
blástur leiddur út í sjó.
Hluti útblásturs er
samt alltaf loftborinn
þannig að áhrifa álvers-
ins hefði bæði gætt á
sjó og landi. Samþykkt
mat á umhverfisáhrif-
um fyrir Reyðarál
gerði ráð fyrir áhrifa-
svæði á landi sem næði
um 2,6 km vestur og 2,6
km austur frá ker-
skálum. Vegna vot-
hreinsunar var gert ráð
fyrir áhrifasvæði á sjó
sem var 1,7 km breitt
og um 600 metra út frá
landi.
Ekki er gert ráð fyr-
ir vothreinsibúnaði í
fyrirhugðu álveri Alcoa
Fjarðaáls. Er það í
samræmi við þá stefnu
Alcoa að fyrirbyggja
alla losun mengandi
efna í hafið frá álverum
fyrirtækisins, sem eru
27 talsins í fimm heims-
álfum. Þó vothreinsun
teljist viðunandi meng-
unarvörn getur hún fal-
ið í sér ákveðna staðbundna áhættu
hvað varðar áhrif á lífríki í sjó. Ekki
þarf að útskýra mikilvægi þess fyrir
okkur Íslendingum að standa vörð
um vistkerfi sjávar.
Hins vegar er gert ráð fyrir öfl-
ugum þurrhreinsibúnaði í álveri Al-
coa Fjarðaáls með háum reykháfi,
svo öflugum að áhrif á landi eru áætl-
uð þau sömu og gert var ráð fyrir í
upphaflegum áætlunum um Reyð-
arál, jafnvel þó að þar hafi verið gert
ráð fyrir vothreinsun. Munurinn er
hins vegar sá að álver Alcoa Fjarða-
áls skilar engu í sjóinn.
Í umræðunni hefur réttilega verið
bent á að heildarmagn brennisteins
sem fer út í andrúmsloftið verður
meira frá álveri Alcoa Fjarðaáls en
það hefði orðið frá álveri Reyðaráls
miðað við upphaflegar áætlanir. Með
þeim mengunarvörnum sem fyr-
irhugaðar eru í álveri Alcoa Fjarða-
áls og dreifingu úr háum reykháfi
verður styrkur brennisteins í and-
rúmslofti umhverfis álverið hins veg-
ar ekki meiri en samkvæmt fyrri
áætlunum og umhverfisáhrifin því
ekki meiri. Auk þessa verður engu
skilað í sjó (fyrri áætlanir gerðu m.a.
ráð fyrir að 9.500 tonn af brenni-
steinsdíoxíði færu í hafið árlega),
heildarútblástur flúors (loftkennt og
ryk) verður sá sami, útblástur gróð-
urhúsalofttegunda minni, útblástur
allra annarra efna svipaður eða
minni, engum kerbrotum verður
fargað og áhrifasvæði verksmiðj-
unnar á landi verður það sama og
eldri áætlanir gerðu ráð fyrir. Mark-
mið Alcoa Fjarðaáls er að hanna og
reka álver í fremstu röð hvað varðar
umhverfismál og í engu verður slak-
að á kröfum svo það markmið náist.
Rétta leiðin farin
Við undirbúning að starfsemi álvers
Alcoa Fjarðaáls hafa aðstandendur
þess í einu og öllu farið eftir þeim
leiðum sem lög um mat á umhverfis-
áhrifum segja til um og fylgt ákvörð-
unum stjórnvalda. Úrskurður Skipu-
lagsstofnunar byggðist á vandaðri og
ítarlegri samanburðarskýrslu sér-
fræðinga. Fimmtán opinberir aðilar
sögðu álit sitt á skýrslunni sem
Skipulagsstofnun tók tillit til í úr-
skurði sínum. Þessi úrskurður var
síðan staðfestur af umhverf-
isráðherra og allt þetta ferli var í
samræmi við lög um mat á umhverf-
isáhrifum.
Hagsmunir um-
hverfisins í fyrirrúmi
Tómas Már Sigurðsson fjallar
um álver Alcoa Fjarðaáls og
umhverfismál
’Við undirbún-ing að starfsemi
álvers Alcoa
Fjarðaáls hafa
aðstandendur
þess í einu og
öllu farið eftir
þeim leiðum
sem lög um mat
á umhverfis-
áhrifum segja til
um og fylgt
ákvörðunum
stjórnvalda.‘
Tómas Már
Sigurðsson
Höfundur er forstjóri
Alcoa Fjarðaáls.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
ENN Á ný er komin upp á yf-
irborðið umræða um starfs-
mannahald ítalska verktakafyr-
irtækisins Impregilo við
Kárahnjúka og ekki að ástæðu-
lausu. Ekki kemur það á óvart
miðað við gang mála frá upphafi
þessa verks.
Það er ekki hægt að fjalla um
þetta mál öðruvísi en að skoða
raforkusölusamninga við Alcoa.
Verð það sem við Íslendingar
sömdum um fyrir raforku frá
Kárahnjúkum er það lægsta sem
gerist í heiminum, og er það lágt
að kostnaður Alcoa vegna raf-
orkukaupa og vinnulauna í ál-
verinu við Reyðarfjörð er svip-
aður og bara fyrir raforkukaup
víðast hvar. Þar að auki fær Al-
coa skattaafslátt og er und-
anþegið mengunargjaldi.
Þar af leiddi, að sögn núver-
andi forsætisráðherra, að það var
algjör forsenda fyrir byggingu
Kárahnjúkavirkjunar að taka
hinu lága tilboði Impregilo í verk-
ið. Nú kemur æ betur í ljós að
það tilboð var byggt á innflutn-
ingi á fátæku fólki sem ekki hefur
aðstöðu til eðlilegra launa eða
viðunandi aðbúnaðar í fjarlægu
landi.
Við Íslendingar höfum notið
starfskrafta erlends vinnuafls um
langa hríð og hefur það fólk
unnið sér traust hér bæði fyrir
dugnað, stundvísi og heiðarleika,
enda verið fellt inn í þau launa-
kjör og réttindi sem Íslendingar
væru. En verkafólkið á Kára-
hnjúkum er ráðið í gegnum er-
lendar starfsmannaleigur sem
virða að engu rétt þessa fólks.
Líkist framferði þeirra því frem-
ur starfsháttum þrælasala og
melludólga en heiðarlegra fyr-
irtækja.
Það er hlutverk íslenskrar
verkalýðshreyfingar að verja rétt
þessa fólks og sýna fulla hörku
gagnvart Impregilo. Á það hefur
skort þó eitthvað virðist farið að
heyrast úr þeirra búðum, því ef
þessir hlutir ganga svo áfram
sem að undanförnu með launa-
svindli og skattsvikum hefur
verkalýðsbaráttan fyrir rétt-
indum launafólks færst marga
áratugi aftur á bak og þar á ofan
er ekki ólíklegt að íslensk verk-
takafyrirtæki fari að feta líkar
brautir.
Viðbrögð íslensku ríkisstjórn-
arinnar í þessu máli koma ekki á
óvart. Hún kannast ekki við að
nein lög séu brotin, horfir í gegn-
um fingur sér og dregur allar að-
gerðir á langinn eins og kostur er
gagnvart ítalska verktakanum. Í
ofanálag hafa sumir ráðherrar
lýst því yfir að þeim komi Kára-
hnjúkavirkjun ekkert við. Það er
dapurlegt að erlent verkafólk er
hlunnfarið með vitund og vilja ís-
lenskra yfirvalda. Ég segi með
vilja en með aðgerðarleysi gegn
Impregilo er ríkisstjórnin að
leggja blessun sína yfir þeirra at-
hæfi.
Og ennfremur; ef þessir hlutir
ganga svo áfram óbreyttir verður
þrælastíflan við Fremri-Kára-
hnjúk algjör niðurlæging íslensku
þjóðarinnar og hún mun verða
tákn þeirra hluta sem allir munu
vilja gleyma. Það eitt er víst.
GUÐMUNDUR
ÁRMANNSSON,
bóndi,
Vaði, Skriðdal.
Þrælastíflan við
Fremri-Kárahnjúk
Eftir Guðmund Ármannsson
mbl.is Föstudagur 14. janúar 2005
Forsíða Viðskipti Afþreying Fólkið Atvinna Smáauglýsingar Gagnasafn Myndasafn MorgunblaðiðFasteignir
Fótbolti Golf Handbolti Körfubolti Úrslitaþjónustan Fréttir vikunnar
Íþróttir
Fréttirnar
Úrslitin
Næstu leikir
Riðlarnir
Staðan mbl.is
...allt um HM
í handbolta
Tveir blaðamenn og ljósmyndari eru í Túnis
og flytja þér fréttir af keppninni jafnóðum og
þær gerast ásamt viðtölum við landsliðsmenn
Vilhjálmur Eyþórsson: „For-
ystumennirnir eru undantekning-
arlítið menntamenn og af góðu
fólki komnir eins og allir þeir, sem
gerast fjöldamorðingjar af hug-
sjón. Afleiðingar þessarar auglýs-
ingar gætu því komið á óvart.“
Jakob Björnsson: „Mannkynið
þarf fremur á leiðsögn að halda í
þeirri list að þola góða daga en á
helvítisprédikunum á valdi óttans
eins og á galdrabrennuöldinni.“
Jakob Björnsson: „Það á að fella
niður með öllu aðkomu forsetans
að löggjafarstarfi.“
Ólafur F. Magnússon: „Ljóst er
að án þeirrar hörðu rimmu og víð-
tæku umræðu í þjóðfélaginu sem
varð kringum undirskriftasöfnun
Umhverfisvina hefði Eyjabökkum
verið sökkt.“
Ásthildur Lóa Þórsdóttir: „Vilj-
um við að áherslan sé á „gömlu og
góðu“ kennsluaðferðirnar? Eða
viljum við að námið reyni á og
þjálfi sjálfstæð vinnubrögð og
sjálfstæða hugsun?“
Bergþór Gunnlaugsson: „Ég
hvet alla sjómenn og útgerð-
armenn til að lesa sjómannalögin,
vinnulöggjöfina og kjarasamn-
ingana.“
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
Fréttir í tölvupósti