Morgunblaðið - 21.01.2005, Page 33

Morgunblaðið - 21.01.2005, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2005 33 MINNINGAR ✝ Járngerður Ein-arsdóttir fæddist á Tjörnum í Vestur- Eyjafjallahreppi 5. júlí 1924. Hún and- aðist á líknardeild Landspítala, Landa- koti, mánudaginn 10. janúar síðastlið- inn. Hún var dóttir hjónanna Krist- bjargar Guðmunds- dóttur húsmóður, f. 3. nóv. 1898, d. 22. feb. 1993, og Einars Jónssonar bónda, f. í Seljalandsseli í Vest- ur-Eyjafjallahreppi 11. sept. 1887, d. 17. apríl 1967. Systkini Járn- gerðar eru Þuríður, f. 1923, d. 1999, Sigurður eldri, f. 1925, Leif- ur Sveinn, f. 1927, d. 1948, Jón, f. 1930, Þórarinn Guðmundur, f. 1931, d. 1949, Magnús, f. 1932, Kristján, f. 1934, Sigríður, f. 1936, d. 1999, Sigurður yngri, f. 1938, Lóa, f. 1939, d. 1941, Lóa Þórey, f. b) Aðalsteinn, f. 30. júlí 1977. Fyr- ir átti Sigrún Sigríði Bergmann Hreggviðsdóttur, f. 20. nóv. 1970. 2) Regína, f. 24. des. 1947, d. 7. des. 2001, gift Þórði Guðjóni Kjartanssyni, f. 31. des. 1944. Börn þeirra eru: a) Regína Bára, f. 9. des. 1964, d. 20. ágúst. 1965, b) Ásgeir Þór, f. 13. okt. 1966, unn- usta Michaela Pacolova, f. 11. apr- íl 1976, og Katrín, f. 30. sept. 1973, unnusti Aron Pétur Karlsson, f. 8. júlí 1970, dóttir þeirra er Ester Regína, f. 17. apríl 2003. Fyrir á Katrín soninn Þórð Örn Reynis- son, f. 2. okt. 1996. 3) Leifur, f. 31. jan. 1960, unnusta Guðrún Ey- þórsdóttir, f. 12. ágúst 1963. Börn Leifs eru Arnheiður, f. 26. feb. 1982, unnusti Atli Guðbrandsson, f. 4. júní 1983, og Arnar, f. 16. júní 1989. Móðir þeirra er Sara Jóns- dóttir, f. 10. okt. 1963. Börn Guð- rúnar eru Anna Dís, f. 29. sept. 1988, og Eva, f. 6. júlí 1991. Fyrir átti Járngerður stúlkubarn, Eygló Kristbjörgu Benedict, f. 18. nóv. 1943, d. 21. maí 1944. Útför Járngerðar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Jarðsett verður í Fossvogskirkju- garði. 1941, d. 1947, og hálf- bróðir samfeðra, Guð- mundur Einarsson, f. 1921, d. 1997. Hinn 3. janúar 1959 giftist Járngerður Að- alsteini Metúsalems- syni frá Hauksstöðum á Jökuldal, f. 12. maí 1915, d. 25. ágúst 1985. Foreldrar hans voru hjónin Metúsal- em Sigfússon, f. 11. des. 1884, d. 25. maí 1959, og Sigurbjörg Regína Guðmunds- dóttir, f. 5. sept. 1884, d. 22. ágúst 1935. Járngerður og Aðalsteinn áttu heimili sitt í Reykjavík. Börn þeirra eru: 1) Smári, f. 20. júní 1946, d. 9. nóv. 2001, kvæntur Sigrúnu Þorbjörns- dóttur, f. 18. feb. 1953. Börn þeirra eru a) Ásta Bára, f. 11. sept 1974, maður hennar Magnús Helgason, f. 27. júlí 1969, sonur þeirra er Smári, f. 11. okt. 2000 og Mig langar að minnast með fáum orðum Járngerðar Einarsdóttur sem lést í Reykjavík hinn 10. jan- úar sl. á 81. aldursári. Fyrir tæpum þremur árum átti ég því láni að fagna að kynnast Leifi syni hennar og síðan þá hefur Járngerður einnig verið hluti af lífi mínu. Það leyndi sér ekki, strax við fyrstu kynni, að þar fór góð kona og af nærveru hennar stafaði hlýja og velvild. Hún var fríð, ljós yfirlit- um með falleg, dreymin, ljósblá augu sem ég veit að sáu meira en gengur og gerist. Hún var mjög næm og sá fyrir óorðna hluti auk þess að vera berdreymin. Það var gott að koma á heimili hennar, sem var mjög snyrtilegt og þar ríkti góður andi. Kærleikurinn var í hávegum hafður, ást og um- hyggja fyrir syninum sem var einn eftir svo og barnabörnum og barna- barnabörnum. Þó samvistir okkar væru ekki lengri var það ánægjulegt hvað við náðum vel saman og gátum spjallað um það sem dreif á dagana og hvað hún einlæglega sagði mér frá fjöl- skyldunni og því sem henni þótti gott að ég vissi. Þær voru ófáar og alltaf jafn notalegar stundirnar sem við sátum saman í kaffi á heimili hennar. Hún ætíð vel tilhöfð, fín, ráðagóð og stutt í grínið og góða skapið. Elsku Leifur, Arnheiður og Arn- ar þið eruð lánsöm að í ykkur hefur varðveist kærleikur hennar og viska. Fjölskyldan og aðrir ástvinir hafa mikils misst, við lifum áfram fyrir hennar hönd. Mér er efst í huga nú á þessari stundu þakklæti fyrir að hafa feng- ið að kynnast þessari göfugu og mætu konu. Guð blessi minningu hennar. Guðrún Eyþórsdóttir. Elsku amma mín. Ég á svo margar góðar minn- ingar um þig og afa. Þú varst alltaf svo góð og vildir öllum vel. Ég man að þegar ég var lítil fékk ég að fara í hælaskóna þína þegar ég vildi og setja á mig klemmueyrnalokkana sem afi gaf þér, mér leið eins og lít- illi prinsessu. Alltaf áður en ég fór að sofa sagðir þú mér söguna af Búkollu sem ég vildi heyra aftur og aftur. Við vorum líka saman á hverjum jólum og það var alltaf notalegt að hafa þig hjá okkur. Þú gafst mér líka bestu jólagjöf sem hægt er að fá sem voru gömlu skartgripirnir þínir sem þú varst hætt að nota, sem ég hef dáðst að frá því að ég var lítil. Mér þykir mjög vænt um allar minningarnar sem ég á um þig og mun aldrei gleyma öllum góðu stundunum okkar saman á Hjalta- bakkanum. Það er mjög sorglegt að þú sért farin frá okkur en ég veit að þér líður vel núna hjá afa, Regínu og Smára. Ég mun alltaf hugsa hlýtt til þín, takk fyrir allt, elsku amma mín. Þín Arnheiður. Mig langar í örfáum orðum að minnast þín og kveðja þig Gerður mín. Ég kynntist þér ekki fyrr en ég fór að vinna fyrir son þinn og hitti þig í fyrsta skipti í opnunarboði fasteignasölunnar 101 Reykjavík. Ég laðaðist strax að þér og við töl- uðum og töluðum saman eins og við hefðum alltaf þekkst. Ég man hvað ég dáðist að því hvernig lífsviðhorf þitt var og skoð- anir á lífinu, sérstaklega sú ró sem yfir þér var og ekki síst að sjá að þú varst ekki bitur og reið þrátt fyrir að þú misstir tvö af þremur börnunum þínum með mánaðar- millibili úr krabbameini, árinu þar á undan. Þú varst mjög dulræn og vissir eins og sagt er lengra en nef þitt nær og við eyddum löngum tíma í að tala um hluti sem enginn veit um en sumum er gefið að finna og vita eins og þér. Þar sem ég hef svo mikinn áhuga á andlegum mál- efnum náðum við svona vel saman og svo minnti ég þig líka svo á dótt- ur þína hana Regínu sem ég því miður aldrei hitti. Ég kom í heim- sókn til þín á spítalann rétt fyrir jól og þú reyttir af þér brandarana um lífið og tilveruna þarna á spítalan- um. Þú vissir að hverju stefndi og þar sem ég vissi að þú hefðir áhyggjur af Leifi, sem verður hér eftir búinn að missa þig, pabba sinn og bæði systkini, lagði ég ríka áherslu á hvað hann væri lánsamur að eiga svona yndislega sambýlis- konu sem hann kynntist á sama tíma og hann opnaði söluna því hún er einstök og algjör perla. „Já,“ sagðir þú og settist upp í rúminu og sagðir: „Já, hún er líka heppin.“ Það eru sko orð að sönnu enda er hann líkur þér. Ég er ánægð með að þú skyldir fara með Leifi, Guð- rúnu og börnunum þeirra til Spán- ar síðasta sumar og sagðir þú mér að það hefði verið yndisleg ferð. En nú ert þú farin í aðra ferð og ég þakka þér fyrir kynnin Gerður mín og hlakka til að hitta þig aftur þeg- ar þar að kemur. Ég votta þér Leif- ur minn, Guðrúnu, börnunum og öllum þeim sem þótti vænt um Gerði mína dýpstu samúð. Farin er merk og sterk kona. María Haralds. Elskuleg vinkona okkar, Gerða, eins og við nefndum hana, er látin. Okkur langar til að þakka henni fyrir góða og trygga vináttu til 35 ára. Leiðir okkar lágu fyrst saman er við fluttum á Hjaltabakkann og eignuðumst hjónin Gerðu og Að- alstein sem yndislega nágranna. Þau voru glæsileg hjón, áttu fallegt heimili og voru með eindæmum gestrisin og hlý. Samskipti og sam- vera við þau var nær daglega þann aldarfjórðung sem við bjuggum í sama stigagangi sem aldrei bar skugga á. Frá þessum tíma eigum við skemmtilegar og góðar minn- ingar. Eftir að við fluttum úr Hjalta- bakkanum hélt Gerða tryggð við okkur með heimsóknum og símtöl- um. Hún hafði þá misst mann sinn Aðalstein fyrir aldur fram. Þau eignuðust þrjú mannvænleg börn, sem voru henni mikils virði. En raunir Gerðu urðu miklar er eldri börn hennar greindust bæði með illvígan sjúkdóm. Þau voru bæði hrifin burt á besta aldri eftir erfiða baráttu með stuttu millibili árið 2001 frá mökum sínum og ungum börnum. Þá kom skýrast í ljós trúarstyrkur og æðruleysi Gerðu. Hún þakkaði guði sínum fyrir fjöl- skylduna sem hún átti enn eftir, Leif son sinn, sem ætíð hugsaði vel um hana, tengdabörnin og barna- börnin. Þeim viljum við nú votta samúð okkar og biðjum Guð að blessa minningu Gerðu. Elsa og Guðbrandur. JÁRNGERÐUR EINARSDÓTTIR Hjartans þakkir til ykkar allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, VILHJÁLMS ÓSKARSSONAR frá Reiðholti, Lýtingsstaðarhreppi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilis aldraðra, Sauðárkróki. Guð blessi ykkur öll. Ingimar Vilhjálmsson, Guðrún Kristmundsdóttir, Laufey Þ. Vilhjálmsdóttir, Árni P. Björgvinsson, Sigurlína Vilhjálmsdóttir, Sveinn Árnason, Óskar S. Vilhjálmsson, Elísabet B. Vilhjálmsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka, ELENÓRA JÓNSDÓTTIR, Nóa, Mjóuhlíð 8, Reykjavík, lést þriðjudaginn 11. janúar sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Systkinin frá Hellu og fjölskyldur þeirra. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, SÓLEY MAGNÚSDÓTTIR, Skólastíg 9, Bolungarvík, sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Bolungar- víkur fimmtudaginn 13. janúar, verður jarð- sungin frá Hólskirkju í Bolungarvík laugar- daginn 22. janúar kl. 14.00. Þeir, sem vilja minnast hinnar látnu, láti Hólskirkju njóta þess. Hávarður Olgeirsson, Erna Hávarðardóttir, Finnbogi Jakobsson, Sveinfríður Hávarðardóttir, Hildur Hávarðardóttir, Hreinn Eggertsson, Ingunn Hávarðardóttir, Olgeir Hávarðarson, Stefanía Birgisdóttir, Magnús Hávarðarson, Guðný Sóley Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, ODDRÚN JÖRGENSDÓTTIR, lést miðvikudaginn 5. janúar. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Geir Þórðarson, Þórður Geirsson, Erna Valdimarsdóttir og barnabörn. Faðir okkar, ROY Ó. BREIÐFJÖRÐ, lést miðvikudaginn 19. janúar. Börn hins látna. Ástkær eiginmaðurinn minn, DAVÍÐ GUÐMUNDSSON, Kristnibraut 43, andaðist á Landspítala Fossvogi, deild B4, miðvikudaginn 19. janúar síðastliðinn. Hann verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 27. janúar kl. 13.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Ingibjörg Friðfinnsdóttir. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍSABET KRISTJÁNSDÓTTIR, Hrepphólum, Hrunamannahreppi, andaðist á hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði, fimmtudaginn 20. janúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.