Morgunblaðið - 21.01.2005, Side 40

Morgunblaðið - 21.01.2005, Side 40
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes ÞAÐ ER KOMINN TÍMI TIL ÞESS AÐ ÉG KANNI HEIMINN ERTU KOMINN MEÐ GIGT? NEI... EKKI LENGUR ÉG HELD AÐ ÞÚ ÆTTIR AÐ FARA TIL LÆKNIS ÞARF EKKI! ÉG ÞARF EKKI AÐ FARA TIL LÆKNIS... ÉG FÉKK MÉR SVONA KOPARARMBAND ÞAÐ ER ÚR KOPAR... SJÁÐU BARA... ÉG ER LÆKNAÐUR! SÁRSAUKINN ER FARINN... HVERT ERUM VIÐ AÐ FARA? Svínið mitt VIÐ MUNUM SAKNA ÞÍN VIKTÓRÍA © DARGAUD ÉG MUN SAKNA YKKAR LÍKA. EN ÞAÐ ER GOTT AÐ KOMAST Í FRÍ EN... SNIFF SNIFF ÞÚ MÁTT EKKI GRÁTA ADDA ÉG KEM AFTUR SNIFF SNIFF ÚAAAAAA!! ADDA? ÞARNA KEMURLEIGUBÍLLINN DRÍFIÐ YKKUR. ÞAÐ ER UMFERÐARTEPPA Á LEIÐINNI TÖSKURNAR ERU Í STOFUNNI FLJÓTUR!! ÚFF SEGÐU BLESS VIÐ VIKTÓRÍU ADDA! DRÍFA SIG UPP ÍBÍLINN ADDA FLJÓTT, FLJÓTT VIÐKYSSUM HANA FYRIR ÞIG ADDA!! HEYRÐU ELSKAN ERU ÞETTA EKKI FÖTIN HENNAR VIKTÓRÍU GROÍN SSSU! VIÐ ERUM ALVEG AÐ KOMAST! Dagbók Í dag er föstudagur 21. janúar, 21. dagur ársins 2005 Víkverji er og hefuralltaf verið sér ákaflega meðvitandi um öryggi barna í bíl. Hann hefur frá upp- hafi keypt öryggis- stóla og -sessur, sem mælt hefur verið með, passað að láta börnin ekki sitja við loftpúða, fyrirskipað öllum, sem hafa aldur til, að spenna sig í belti um leið og þeir setjast inn í bílinn o.s.frv. Þetta þykir raunar orðið fullkomlega sjálfsagt. x x x Víkverji hefur til þessa talið sigvera á rúmgóðum fimm manna fjölskyldubíl. En svo kom babb í bát- inn þegar fimmti fjölskyldumeðlim- urinn leit dagsins ljós ekki alls fyrir löngu. Í ljós kom að þegar þrjú börn, ásamt viðurkenndum öryggisbúnaði, eru komin í þriggja manna aftur- sæti, taka þau einfaldlega meira pláss en þrír fullorðnir. Það er meiri- háttar mál að troða krakkaskar- anum í sætið, og sá sem er spenntur síðastur þarf helzt að hallast um 45 gráður á meðan – sem lítið fólk er al- mennt ekkert ánægt með. Svo liggja Víkverji og maki hans á hurðunum sitt hvorum megin svo hægt sé að loka bíln- um. x x x Víkverji hefur furðaðsig á því að örygg- isstólarnir og -púð- arnir þurfi að taka svona mikið pláss. Svo mikið er víst að annað hvort þarf Víkverji nettari öryggisbúnað fyrir krakkana eða stærri bíl – sem hann hefur hingað til ekki talið sig hafa nokkra þörf fyrir. Sú hugsun hefur hvarflað að honum að fram- leiðendur öryggisbúnaðarins hafi gert samsæri með bílaframleið- endum um að hafa græjurnar svo fyrirferðarmiklar að þær stuðli að sölu stærri bíla. En sennilega eru þeir bara að vinna vinnuna sína. x x x Víkverja finnst þetta frekar fúlt; aðþurfa að kaupa sér fjallajeppa eða litla rútu til að flytja fjölskyldu, sem í hans ungdæmi hefði bara þótt svona miðlungsstór. En þá hefði krakkaskríllinn reyndar líka bara hringlað laus í aftursætinu án þess að nokkur gerði við það athugasemd. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is           Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn | Slasaður haförn dvelur nú tímabundið í Laugardalnum í Reykjavík. Komið var með fuglinn þangað 11. janúar en hann fannst austur í Grafningi, hafði flogið á raflínu og farið úr liði á vinstri væng. Þetta er kvenfugl sem hefur hlotið nafnið Erna. Hún kom við á Dýraspít- alanum í Víðidal áður en hún kom í Húsdýragarðinn og þar var hún röntgen- mynduð og gert að meiðslum hennar. Þar kom í ljós að um var að ræða fimm ára össu sem er 6,7 kg að þyngd og nokkuð vel á sig komin. Erna hefur braggast vel í fóstrinu og stendur til að sleppa henni á næstu dögum. Morgunblaðið/Árni Torfason Slasaður haförn í fóstri MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn og fyrirgjöra sálu sinni? Eða hvað gæti maður látið til endurgjalds fyrir sálu sína? (Matt. 16, 26.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.