Morgunblaðið - 21.01.2005, Page 52

Morgunblaðið - 21.01.2005, Page 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Næring ekki refsing ÚTSÖLUMARKAÐUR Reykjavík, Opið 10 - 18 virka daga og 10 - 16 laugardaga Opið þennan eina sunnudag, 21. janúar, frá 13 - 17Faxafeni 12 *Hámark 12 vörur á mann! Gildir til laugardagsins 29. janúar. Keyptu þrjár vörur en borgaðu fyrir tvær!* Nýtt kortatímabil! „ÓBEINAR reykingar eru án efa einn öfl- ugasti krabbameinsvaldur sem fólk verður fyrir í vinnu sinni,“ sagði Kristinn Tómas- son, yfirlæknir Vinnueftirlitsins, í fyr- irlestri sínum um óbeinar reykingar á vinnustöðum þegar hann ræddi, ásamt þeim Pétri Heim- issyni, formanni tóbaksvarnaráðs, og Göran Boethius, sænskum lungna- lækni, um skað- semi óbeinna reyk- inga á Læknadögum í gær. Kristinn benti á að á bilinu 30–50 kvartanir hefðu borist til Vinnueftirlitsins á árunum 2000–2003 vegna óbeinna reykinga á vinnustöðum. Boethius benti á að það væri fyrir löngu ljóst að óbeinar reykingar væru skaðlegar. Staðreyndirnar lægju fyrir en hinsvegar væri mikilvægt að upplýsa fólk um hætt- urnar. „Við vitum með vissu að þrír af hverjum fjórum reykingamönnum vilja hætta að reykja og við verðum að hjálpa þeim,“ segir Boethius. Hann benti á að í heimalandi sínu Svíþjóð kæmi til fram- kvæmda algert reykingabann þann 1. júní í sumar. Pétur sagðist hlynntur reykinga- banni hérlendis og benti hann á að heil- brigðisráðherra hefði lýst yfir vilja sínum í júní sl. til að banna reykingar á veitinga- og skemmtistöðum. Kvartað yfir óbeinum reykingum ÞÆR vinkonur Ísold og Elín brostu sínu blíð- asta fyrir ljósmyndara Morgunblaðsins þegar þær urðu á vegi hans á Seltjarnarnesinu. Þær voru að flýta sér í balletttíma en nutu þess ber- sýnilega að ganga á sólríkum en köldum jan- úardegi, enda vel dúðaðar eins og vera ber. Morgunblaðið/Eggert Brosandi ballerínur á sólríkum janúardegi SAMNINGAR eru á lokastigi um kaup Orkuveitu Reykjavíkur á Hita- veitu Rangæinga. Hitakostnaður venjulegra heimila á Hellu og Hvols- velli mun lækka um 20–30% á tveimur árum og ljósleiðari verður lagður um þorpin. Hitaveita Rangæinga er í eigu þriggja sveitarfélaga, Rangárþings ytra (Hella, Þykkvibær og sveitir), Rangárþings eystra (Hvolsvöllur og sveitir) og Ásahrepps, sem er sveita- hreppur sem liggur niður með Þjórsá. Viðræður um sölu hitaveitunnar hóf- ust fyrir forgöngu forsvarsmanna sveitarfélaganna, að sögn Guðmund- ar Þóroddssonar, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur. Drög að samningi voru kynnt öllum sveitarstjórnarmönnum á svæðinu síðastliðinn mánudag og vísað til sveitarstjórnanna til ákvörð- unar. Samningurinn var staðfestur samhljóða í gærkvöldi í sveitarstjórn- inni á Hvolsvelli og á mánudag verður samningurinn lagður fyrir sveitar- stjórn á Hellu og í Ásahreppi. Hitaveitan er metin til verðs sam- kvæmt líkani sem Orkuveitan hefur notað við kaup á öðrum hitaveitum. Verðmæti hennar er liðlega 860 millj- ónir króna en þegar búið er að draga frá skuldir og taka tillit til lækkunar á gjaldskrá fá sveitarfélögin um 120 milljóna króna greiðslu við söluna. Guðmundur Þóroddsson segir að veitan sé góð og mikið endurnýjuð. Leitað að heitara vatni Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, tók fram að enn hefði ekki verið gengið frá sölu Hitaveitunnar, þegar hann var spurður um ástæður sölunnar. En ef af yrði taldi hann að lækkun gjald- skrár til hagsbóta fyrir neytendur væri helsti hvatinn. Grunngjaldskrá fyrir heitt vatn mun lækka strax og Orkuveitan tekur við hitaveitunni, úr liðlega 106 krónum á rúmmetrann niður í liðlega 76 krónur á þéttbýlis- stöðunum og síðan 1. janúar 2007 nið- ur í liðlega 66 krónur. Við samanburð á þessum tölum verður þó að hafa í huga að veittur hefur verið afsláttur af gjaldskrá þar sem vatnið hefur ekki verið nógu heitt en Guðmundur Þóroddsson áætlar að hitakostnaður notenda í þéttbýlinu muni lækka um 20–30%. Lækkunin er minni í sveitunum. Hann segir að þessi lækkun skýrist einnig af því að OR hafi bolmagn og þolinmæði til að ná fjárfestingunni inn á lengri tíma en sveitarfélögin. Guðmundur Ingi segir að heima- menn sjái sér einnig hag í því að fá öfl- ugt fyrirtæki inn á svæðið til þess að þróa veituna áfram, meðal annars til að leggja í rannsóknir við að leita að meira og heitara vatni en veitan hefur nú yfir að ráða. Einnig er Orkuveitan með áform um að leggja ljósleiðara um Hellu og Hvolsvöll á næstu þrem- ur árum og segir Guðmundur Ingi að það skapi mörg áhugaverð tækifæri. Orkuveitan hefur óskað eftir því að ráða starfsmenn Hitaveitunnar til starfa hjá sér. Hitaveitusvæði OR nær nú yfir stóran hluta svæðisins frá Borgarfirði og austur fyrir Hvolsvöll, fyrir utan Suðurnesin, Sveitarfélagið Árborg og nokkur minni svæði. Orkuveita Reykjavíkur gengur frá kaupum á Hitaveitu Rangæinga Hitakostnaður í þéttbýli mun lækka um 20–30% TOLLGÆSLAN í Reykjavík stöðvaði rétt fyrir jólin grun- samlega vörusendingu sem innihélt 50 þúsund steratöflur og 300 hylki sem ætluð voru til sölu á markaði hérlendis. Eig- andi sendingarinnar, rúmlega þrítugur íslenskur karlmaður, hafði sent sjálfum sér töflurnar frá Búlgaríu. Tollgæslan hafði samband við lögregluna sem handtók manninn er hann vitj- aði sendingarinnar. Að sögn Harðar Jóhannes- sonar, yfirlögregluþjóns í Reykjavík, stóð maðurinn einn að innflutningnum. Aðspurður segir Hörður þetta vera eitt- hvert mesta magn sem náðst hafi af steratöflum. Hann segir manninn hafa játað að hafa flutt töflurnar inn í hagnaðar- skyni. Málið telst upplýst og bíður maðurinn nú dóms. Fimmtíu þúsund steratöfl- ur teknar í tollinum JARÐGÖNG milli lands og Vestmannaeyja myndu kosta nálægt 16 milljörðum króna, samkvæmt mati sænska verktakafyrirtækisins NCC. Að mati Árna Johnsen, fyrrverandi alþingismanns, er raunhæft að ætla að kostnaður við gerð 18 km langra ganga geti orðið lægri, eða 14-16 milljarðar. Er það einungis helm- ingur þess kostnaðar sem áætlaður var í kostnaðarmati um jarðgöng milli lands og Vestmannaeyja sem unnið var fyrir Vegagerðina. „Jarðgöng á milli lands og Eyja eru ekki framtíðarverkefni, þau eru nútíðarverkefni. Í rauninni er ekki eftir neinu að bíða,“ sagði Árni John- sen á blaðamannafundi sem haldinn var í gær til að kynna málið. Að sögn Bergþórs Ólasonar, aðstoðarmanns sam- gönguráðherra, hafði ráðherrann ekki fengið skýrsl- una um mat NCC og því ekki getað kynnt sér efni henn- ar. Hann sagðist þó reikna með að skýrslan yrði tekin til skoðunar í nefnd sem er að fara yfir framtíðarmögu- leika í samgöngumálum Vestmannaeyinga. Útreikningar, sem Hagfræðistofnun HÍ gerði fyrir Ægisdyr, félag áhugamanna í Vestmannaeyjum um jarðgangagerð milli lands og Eyja, sýndu að veggöng mættu kosta allt að 30 milljörðum miðað við sex ára framkvæmdatíma til að vera þjóðhagslega hagkvæm. Þá kom fram á fundinum í gær að göngin myndu kosta minna en endurnýjun og rekstur Herjólfs í 30 ár./6 Ódýrari jarðgöng en ætlað var

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.