Morgunblaðið - 22.01.2005, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.01.2005, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Canada's fastest growing franchise is now expanding into Iceland. See us at www.fibrenew.com Í myndatexta undir mynd sem fylgdi frétt í Morgunblaðinu í gær af af- hendingu viðurkenningar Félags kvenna í atvinnurekstri var farið rangt með nafn Katrínar Pétursdótt- ur, framkvæmdastjóra Lýsis hf., sem hlaut viðurkenningu félagsins í fyrradag. Beðist er velvirðingar á þessum leiðu mistökum. Leiðrétt FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ hefur samþykkt umsókn Straums Fjárfest- ingarbanka um kaup á virkum eign- arhlut í Íslandsbanka með ákveðnum skilyrðum. Í tilkynningu frá FME kemur fram að skilyrðin eru sett með tilliti til hættu sem eftirlitið telur vera á hagsmunaárekstrum á lána- og vátryggingamarkaði. Kemur fram í tilkynningu FME að með tilliti til hættu á hagsmuna- árekstrum á vátryggingamarkaði telji Fjármálaeftirlitið að Straumur geti ekki verið til lengri tíma virkur eigandi, beint og óbeint, í bæði Tryggingamiðstöðinni hf. og Íslands- banka hf. og dótturfélögum bankans. Hætta á hagsmunaárekstrum Nánar segir í tilkynningu FME varðandi skilyrðin fyrir kaupunum. „Með tilliti til hættu á hagsmuna- árekstrum á lána- og vátrygginga- markaði gerir Fjármálaeftirlitið það að skilyrði að Straumur tilnefni til setu í stjórnum Íslandsbanka hf. og Tryggingamiðstöðvarinnar hf. í skjóli síns atkvæðisréttar einstak- linga sem séu óháðir Straumi, eða að- ilum tengdum Straumi. Fjármálaeft- irlitið gerir það að skilyrði að eftirlitinu verði gerð fyrirfram grein fyrir því hvernig Straumur hyggist beita atkvæðisrétti sínum í Íslands- banka hf. og Tryggingamiðstöðinni hf. í stjórnarkjöri.“ Annað skilyrði FME er sett með tilliti til hagsmunaárekstra á lána- markaði en í tilkynningu FME segir: „Með tilliti til hagsmunaárekstra á lánamarkaði gerir Fjármálaeftirlitið það að skilyrði að komi til þess að Straumur geri samkomulag, form- legt eða óformlegt, um samstarf við annan aðila um meðferð eignarhluta í Íslandsbanka hf., muni bankinn upp- lýsa Fjármálaeftirlitið um slíkt sam- komulag og gera hugsanlegt sam- komulag um samvinnu eða samstarf með fyrirvara um samþykki Fjár- málaeftirlitsins. Fjármálaeftirlitið gerir það jafnframt að skilyrði að Straumur skuldbindi sig til þess að gera eftirlitinu grein fyrir því fyrir fram hyggist bankinn hafa frum- kvæði að því, einn og sér eða í sam- starfi við aðra aðila, að boða til hlut- hafafundar í Íslandsbanka hf.,“ segir í tilkynningu FME. Ákvörðun FME tekur ennfremur mið af heimildum þess til viðvarandi eftirlits, skv. VI kafla laga nr. 161/ 2002, m.a. heimildum til að setja auk- in skilyrði fyrir meðferð eignarhlut- arins í ljósi frekari reynslu. Kaupin í september Samkvæmt lögum um fjármálafyr- irtæki þarf samþykki FME að liggja fyrir áður en aðili eignast með bein- um eða óbeinum hætti virkan eign- arhlut í fjármálafyrirtæki. Virkur eignarhluti í fjármálafyrirtæki telst vera 10% hlutafjár og þar yfir. Straumur keypti 14,4% hlut í Ís- landsbanka í lok september 2004 og átti þá eftir kaupin 14,5% eignarhlut. Seljendur voru Burðarás, Lands- bankinn og Landsbanki Luxem- bourg. Greitt er fyrir hlutabréfin í Ís- landsbanka með eigin hlutum í Straumi og reiðufé. Um var að ræða eignarhluti í Íslandsbanka sem þeir Helgi Magnússon og Orri Vigfússon, bankaráðsmenn í Íslandsbanka, keyptu í byrjun síðasta árs, en þau kaup höfðu gengið til baka. Lands- bankinn og tengdir aðilar urðu í kjöl- far þessa stórir hluthafar í Straumi með um fjórðung hlutafjárins. Atkvæðisréttur Straums í stjórn Íslandsbanka miðaðist við 10% áður en FME samþykkti kaup Straums í Íslandsbanka. Straumur sendi umsókn um sam- þykki FME fyrir kaupunum í Ís- landsbanka í byrjun október sl. Sam- kvæmt lögum hefur FME fjórar vikur til að afgreiða slíkt erindi, eftir að eftirlitið telur sig hafa fengið öll nauðsynleg gögn. FME samþykkir kaup Straums Telur Straum ekki geta verið virkan eiganda bæði í Íslandsbanka og TM til lengri tíma og skilyrðir kaupin STRAUMUR tók út gríðarmikinn vöxt á árinu 2004. Eignastaða bank- ans fjórfaldaðist á árinu og hreinar rekstrartekjur nær tvöfölduðust. Gengishagnaður er enn sem fyrr uppistaðan í hagnaði bankans þrátt fyrir að fara hlutfallslega lækkandi. Nemur hann nú tæpum 90% af hreinum rekstrartekjum bankans. Hreinar vaxtatekjur vaxa hins vegar úr því að vera neikvæðar á síðasta ári í að nema um 5% af hreinum rekstrartekjum. Þóknunartekjur aukast sömuleiðis og var hlutfall þeirra 7,6% á árinu. Þau markmið Straums að breikka tekjumyndun bankans virðast því hafa náð fram að ganga á árinu. Hagnaður Straums á árinu er 6,4 milljarðar og er það lítillega undir spám greiningardeilda Íslandsbanka og KB banka, Landsbankinn vænti hins vegar nærri einum milljarði meiri hagnaðar af félaginu. Hagnað- araukningin er 68% frá árinu 2003 en ljóst er að síðan árið 2002 hefur hagnaður félagsins nær áttfaldast. Eignir bankans námu um áramót tæpum 90 milljörðum króna. Þar af er 25 milljarða aukning í útlánum og 34 milljarða aukning í hluta- bréfaeign og annarri verðbréfaeign með breytilegar tekjur. Þá hefur eignasamsetningin breyst þannig að umrædd bréf með breytilegum tekjum voru 92% en eru nú 60% af heildareignum Straums. Á heildina litið virðist bankinn vera að ná markmiðum sínum um eflingu fjárfestingarbankastarfsemi og breiðari tekjumyndun þrátt fyrir að afkoman sé enn að stórum hluta háð verðþróun á verðbréfamarkaði. Straumur stækkar Uppgjör Straumur          + , ! + , !     -   !      .    ! / 0    1         '    2345 26%7  8&&&  373 85   )2957 %&    # :       48283 9%384     : (     :0  0  # !( '  ;<- = -  !( 22684 2%99 24>4? 93>4? 2%3 458  3896   928 6  )244 6   5395 25673  %895 383 97>6?     !"!      #$ %     soffia@mbl.is                           !  "# $  %#%!   & %"' (" ) (" )#" *"' (" & %"' +!% +!' ! %# ,#    -./! -.  !  "#($ 0       . & %"' 1 "' 1. " 1 2  $ 34 / " 5 6("  *7 8" 4 "" 9:/! -& -% ;%# -%"' -%.   / 2  /$ <2## "#.   " = "" %  " 3.4 .. 5-8(!#     !"  (  !%' >2  *"' 7. & %"' <8 8 !#$  % ?@>A -7    $!          5   5   5 5 5 5  5 5 5  5 5 5 5 5 5 !2 "#  2   $! 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 B CD B  CD B  CD B 5CD B CD B  CD B  CD B  CD B CD 5 5 B 5CD B 5 CD B CD 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 1! %'    '# " < %( 7 % '# E ) -% $ $ $ $ $   $  $  $  $   5 $ $ $ $ 5 5 5 5 5  5 5 5 $ 5 5 5 5 5 5                      5                                          =    7 FG $ $ <1$ H /#"%  %'      5   5  5 5 5 5  5 5 5   5 5 5 5 5 5 <1$5 I  .  ./%'"' % /% $ <1$5 -2%'  %  %!## . 2  %( /!   " $ 9 'J -KL        C C <-> M N       C C @ @ ,+N        C C )N 9 !      C C ?@>N MO 6"!       C C
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.