Morgunblaðið - 22.01.2005, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 22.01.2005, Blaðsíða 41
hann sig á Magnús Ólafsson hjá landa sínum Finni Gærdbo. Rikki er svo hjá nokkrum formönnum í Ólafs- vík, lengst með Jónasi Guðmunds- syni og ennig réri hann með mér á Stapafellinu. Árið 1974 kaupir Rikki ásamt fleirum 52 lesta bát sem þeir nefna Þorleif Magnússon og á hann þennan bát í fjögur ár. Rikki endar svo sína sjómennsku á Ólafi Bjarna- syni árið 1978. Eftir sjómennskuna fer Rikki í Fiskvinnsluskólann og nær sér í fiskmatsréttindi og starfar við það bæði í fiskvinnsluhúsunum í Ólafsvík og einnig víðar um land. Hann vann í nokkurn tíma hjá Hróa hf og unnum við þar saman. Hann hættir að vinna árið 1996 en hann vann þá í saltfiskverkun Jóns Ás- björnssonar. Rikki hefur því á þess- um árum frá því að hann kom til Ólafsvíkur tekið þátt í þeirri miklu uppbyggingu sem bæjarfélagið hef- ur byggt á síðan en alls var hann í Ólafsvík rúm 50 ár. Rikki var góður vinnufélagi. Hann var alltaf stundvís og velvirkur og ætlaðist til þess sama af öðrum og hann sagði unga fólkinu til sem vann við hlið hans. Hann var oft stríðinn en meinti ekkert með því en gat komið mönnum oft upp ef því var að skipta. Rikki var mikill félagsmála- maður og var harður í horn að taka ef honum fannst á verkafólk hallað. Þá voru honum málefni sjómanna alltaf mikið hugleikin og hann var vakinn og sofinn yfir þeim. Rikki starfaði í Sjómannadagsráði Ólafs- víkur í yfir 30 ár og vann hann mikið og gott starf á þeim vettvangi. Hann var þar alltaf tilbúinn til allra verka og var sífellt að reka á eftir ef honum fannst ekki ganga nógu vel, hvort sem það var við fegrun garðsins eða annað og er sannarlega skarð fyrir skildi þegar hans nýtur ekki lengur við. Sjómannadagurinn ár hvert var æðstur allra daga í lífi Rikka. Hann var framarlega í flokki að skipu- leggja daginn og lét menn heyra það skýrt og greinilega ef honum fannst eitthvað vanta uppá áhuga þeirra manna sem það áttu að gera. Hann var mjög samviskusamur og allt sem hann var beðinn um að gera var hægt að treysta að yrði framkvæmt. Árið 1999 var Rikki heiðraður með orðu á Sjómannadaginn í Ólafsvík fyrir störf að sjómennsku og fyrir gott og langt starf fyrir Sjómanna- daginn í Ólafsvík. Bar hann þessa heiðursorðu með sóma á sjómanna- dögum enda vel að henni kominn. Á sínum starfsferli fór Rikki á hin ýmsu námskeið til að ná sér í rétt- indi, ma. hafði hann pungaprófið, meiraprófsréttindi á bíla og fl. Rikki studdi alltaf Framsóknar- flokkinn í landspólitíkinni og þó sér- staklega Alexander Stefánsson, þeg- ar hann var fremstur í flokki og fór ekkert leynt með stuðning sinn við hann, enda var Alexander sterkur foringi. Rikki var maður framkvæmda. Eftir að hann hætti störfum byggði hann litla fiskverkun í Ólafsvík sem hann ætlaði að hafa í ellinni fyrir sig og Ingveldi konu sína eins og hann orðaði það við mig einu sinni. Hann var ákveðinn og það sem búið var að segja varð að standa. Hann var mað- ur hugsjóna, las mikið og spáði í al- þjóðamál og ekki síður mál sem efst voru á baugi innanlands. Hann kom oft til mín og ræddi þessi mál og fylgdi máli sínu þá vel eftir. Oft varð okkur Rikka sundurorða en fljótt greri um heilt aftur. Á síðustu miss- erum fór hann að semja tónlist. Samdi hann nokkur ágætis lög og var eitt þeirra ma. frumflutt á Fær- eyskum dögum í Ólafsvík 2001. Það lag hét Við förum saman til Færeyja og var heiti þess lags táknrænt. Í huga Rikka var hans heimaland Færeyjar ávallt efst og sagði hann mér margar sögur þaðan úr fæðing- arbæ sínum sem var Saxun á Straumey og einnig frá sinni sjó- mennsku í Færeyjum. Rikki var mjög barngóður. Oft fylgdu börn honum í bílnum hvort sem það var við vinnu í Sjómanna- garðinum eða annað og kölluðu þau hann afa sinn sem hann hafði mjög gaman af. Rikki gat vel komið fyrir sig orði og var ófeiminn við að standa upp á mannamótum og segja skoðanir sínar. Ríkharður bjó lengst af á Ólafsbraut 38 og byggði hann það hús ásamt mági sínum Eyjólfi Kristjánssyni árið 1962. Margt fleira má segja um Rikka en eitt er víst að einn af eftirminnilegustu mönnum Ólafsvíkur er látinn og verður hans minnst um ókomin ár. Ég kveð vin minn Ríkharð Jónsson með söknuði og þakka honum fyrir allt okkar samstarf. Ég og fjölskylda mín vott- um eiginkonu Rikka og fjölskyldu innilega samúð við lát hans. Pétur S. Jóhannsson. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2005 41 MINNINGAR Kæru vinir. Við færum ykkur öllum innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vin- áttu við sviplegt andlát eiginmanns míns og besta vinar, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÞÓRÐAR GUÐMUNDSSONAR vélfræðings frá Reykjum, Reykjaborg, Mosfellsbæ, f. 13. apríl 1926, d. 12. desember 2004. Sérstaklega þökkum við Karlakórnum Stefni í Mosfellsbæ, kór eldri félaga í Karlakór Reykjavíkur og starfsfélögum hjá Orkuveitu Reykjavíkur fyrir þá aðstoð og virðingu er þeir sýndu í minningu Þórðar. Megi nýja árið færa ykkur öllum frið og farsæld. Freyja Norðdahl, Guðbjörg Þórðardóttir, Guðni Már Henningsson, Kjartan Þórðarson, Sigrún Ragna Sveinsdóttir, Þórður Freyr Hilmarsson, Sonja Berg, Guðmundur Jón Þórðarson, Haukur Ingi Þórðarson, Katrín Ísafold Guðnadóttir, Tinna Kjartansdóttir, Freyja Kjartansdóttir, Sigurjón Örn Ólafsson, Sæunn Kjartansdóttir, Ásta Kristín Andrésdóttir, Björgvin Marinó Pétursson, Guðmundur Páll Andrésson, Berglind Andrésdóttir, Ævar Valgeirsson, Sigurjón Hákon Andrésson, Guðmundur Atli Pálsson, Emilía Björg Björgvinsdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar og mmu, DRÍFU GUNNARSDÓTTUR. Hulda Tómasína Skjaldardóttir, Harpa Skjaldardóttir, Drífa Sól Sveinsdóttir. Innilegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar ástkærs föður, afa okkar og frænda, HREINS BENEDIKTSSONAR prófessors. Egill Benedikt Hreinsson, Arndís Hrönn Egilsdóttir, Hrafnkell Orri Egilsson, Andri Egilsson, Högni Egilsson, Fríða Sigurðardóttir og Axel Gunnlaugsson. ✝ Halldór KristinnBjarnason fædd- ist á Siglufirði 14. júlí 1919. Hann andaðist á Dvalarheimilinu Hornbrekku á Ólafs- firði 10. janúar síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Bjarni Guðmundsson f. 1877, d. 1931 og Sig- urveig Margrét Gott- skálksdóttir, f. 1881, d. 1938. Systkini Halldórs voru í ald- ursröð; Sigríður Kjarta, Ólafur Sölvi, Hallgrímssína Guðmunda, Gísli og Málfríður Anna. Þau eru öll látin. Halldór var næstyngstur systkinanna. Halldór flutti til Ólafsfjarðar í kringum 1941. Halldór var kvæntur Halldóru Hólmfríði Björnsdóttur frá Ólafs- firði, f. 1917, d. 1978, og bjuggu þau allan sinn búskap á Ólafsfirði, lengst af í Strand- götu 9. Þau áttu þrjú börn, en þau eru: Björn var kvæntur Kristínu Ragnars- dóttur Trampe en þau slitu samvistum. Þau eiga tvo syni og fjögur barnabörn. Björn býr á Ólafs- firði. Guðmunda Ólöf, maki Jón Jó- hannsson og eiga þau fjögur börn og níu barnabörn. Þau búa öll á Ólafsfirði. Þorbjörg Halldórs- dóttir, gift Önundi Grétari Har- aldssyni og eiga þau þrjú börn og tvö barnabörn. Þau eru öll búsett í Grindavík. Barnabörn Halldórs eru níu og barnabarnabörnin fimmtán. Útför Halldórs verður gerð frá Ólafsfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Þegar komið er að kveðjustund stöldrum við yfirleitt við, lítum yfir farinn veg og flettum í bók minning- anna. Það fyrsta sem kemur í hugann þegar við minnumst Halldórs Bjarnasonar er bjarta brosið hans, glettnisblikið í augunum og þægileg nærvera. Halldór, eða Dóri eins og hann var jafnan kallaður, var fæddur á Siglu- firði og var alla tíð tengdur þeim stað sterkum böndum. Hann kvæntist ungur Dóru föðursystur okkar og stóð heimili þeirra alltaf í Ólafsfirði. Til þeirra var gott að koma enda voru þau hjón mjög gestrisin og heimili þeirra myndarlegt. Missir Dóra og barnanna var mikill þegar Dóra frænka lést árið 1978. Þegar við eldri systkinin vorum lít- il var oft mikið líf og fjör í Miðhúsum hjá afa og ömmu þegar fjölskyldurn- ar voru þar saman komnar. Mikið var um boð og heimsóknir milli fjöl- skyldna, ekki síst í kringum jól og af- mæli. Í minningunni var alltaf gaman og við krakkarnir lékum heilu leik- ritin, sem oft voru frumsamin. Það var líka spilað á spil og einnig sungið. Þá naut Dóri sín vel því hann hafði góða söngrödd og yndi af söng og tónlist. Hefði hann fæðst nokkrum áratugum seinna er ekki ósennilegt að hann hefði gengið í þjónustu tón- listargyðjunnar. Þeir mágarnir pabbi og Dóri ráku smábátaútgerð, ásamt fleirum, í mörg ár. Dóri hafði yfirumsjón með allri vinnu í landi, þar á meðal starfs- fólki sem vann við að beita og stokka upp. Hann hafði góða stjórn á öllu, hugsaði vel um sitt fólk, átti auðvelt með mannleg samskipti og umgekkst alla af virðingu, bæði stóra og smáa. Einu sinni á ári var beitningaskúr- inn þrifinn hátt og lágt og fólkinu boðið til veislu sem endaði með söng og dansi. Var þá stundum leikið undir á harmonikku eða bara á munn- hörpu. Pabbi og Dóri voru ekki aðeins mágar, á milli þeirra var hlý og traust vinátta sem aldrei bar skugga á. Þeg- ar Dóra frænka lést reyndist pabbi vini sínum vel og eftir að heilsu pabba tók að hraka reyndist Dóri honum sannur vinur. Í mörg ár fóru þeir saman í gönguferðir á hverjum degi, eða þar til heilsa föður okkar leyfði það ekki lengur. Fyrir þessa tryggð og vináttu vilj- um við þakka, sömuleiðis tryggð hans við okkur systkinin og móður okkar. Góður maður er genginn. Við systkinin kveðjum Dóra með virð- ingu og þakklæti og biðjum honum blessunar. Ástvinum hans öllum sendum við innilegar samúðarkveðj- ur. Kristín Björg, Óskar Þór, Ásta, Gunnar, Sigurlína og fjölskyldur. HALLDÓR KRISTINN BJARNASON Það er erfitt að kveðja þig kæri faðir minn en það er þó gott að hafa allar minning- arnar sem ég á um þig og geymi í hjarta mínu. Ég var ekki gamall þegar ég kom í Hallskot með mömmu og systrum mínum og eignaðist föður sem ég hafði aldrei átt. Þú varst mér alltaf eins og pabbi og lést mig aldrei finna til þess að ég væri stjúpsonur þinn. Ég lærði margt af þér sem ég ber með mér allt mitt líf og með aldrinum met meira og meira. Þolinmæðin og einlægnin sem þú varst gæddur og það að láta stjúpbörnin aldrei finna fyrir því að þau væru ekki þín eigin. Nú þegar ég er sjálfur stjúpfaðir get ég skilið hvað það er flókið mál og set- ur mikil spor í mitt líf, þó svo að ég nái aldrei að feta í þín fótspor. Þú varst stoltur af því að vera Fljótshlíðingur og kenndir mér að vera stoltur yfir því líka. Ég var kannski ekki blóðborinn sonur þinn en ég get samt með sanni sagt að betri faðir hefði ég ekki getað fengið og betri afa hefðu börnin mín ekki getað fengið enda sakna þau þín mik- ið og ég veit að þú átt eftir að vaka yfir þeim og vera í minningum þeirra um aldur og ævi. Sárt var að sjá þig á spítalanum og vita það að þú varst alltaf með hugann í sveitinni sem þú fórst aldrei frá nema stutta stund í einu. En fram á síðustu stundu varst þú með húmor- inn í lagi og aldrei kvartaðir þú þó svo að þú værir fárveikur og aldrei brást þú nokkrum manni. Ég þakka guði fyrir þann tíma sem við áttum saman þó svo að ég hefði viljað að sá tími yrði enn lengri, en minningarnar eru það sem eftir er og EIRÍKUR EINARSSON ✝ Eiríkur Einars-son fæddist í Hallskoti í Fljótshlíð 17. júlí 1933. Hann lést á LSH við Hring- braut 3. janúar síð- astliðinn og var útför hans gerð frá Hlíðar- endakirkju í Fljóts- hlíð 15. janúar. þær eru bara góðar og ég veit að ég get fyrir hönd okkar allra þakk- að fyrir það sem við fengum að njóta af þér. Þau eru mörg tárin sem hafa fallið frá okk- ur fjölskyldunni þinni, því þín er sárt saknað, en eins og mamma sagði; það þýðir ekki að þræta við dómarann. Ég veit að ef það er eins og Guð lofar þá hefur þú það gott og færð að njóta þess sem þú verð- skuldar og eftir því sem þú lifðir þá hefur þú það mjög gott. Far þú í friði og megi Guð vera þér náðugur. Brynjólfur Tómasson. Ég kveð þig með söknuði kæri tengdafaðir. Það eru sex ár síðan við komum heim frá Svíþjóð og ég og börnin mín komu inn í fjölskylduna. Okkur var tekið mjög vel og þau kveðja með söknuði eins og Bettý og Silja frá Sví- þjóð. Fyrir þremur og hálfu ári fæddist svo Stefán Jóhann, mikill sveitastrák- ur sem saknar afa síns mikið og fannst eitthvað tómlegt að koma í Hallskot um síðustu helgi. Í fyrsta skipti sem ég kom austur í Hallskot fór ég á hestbak niður á aura og sá sveitina þaðan og sú mynd er sú fallegasta sem ég á af landslagi, í minninu. Það er ekki skrítið hvað Ei- ríkur unni sveitinni sinni. Eftir þetta fór ég oft á hestbak og ég veit að hann ýtti undir að það væru til þjálfaðir og járnaðir hestar að einhverju leyti fyr- ir mig. Þegar ég svo datt af baki og braut höndina var þrýst á að ég færi á bak aftur en svo datt ég aftur af baki og hef ekki þorað síðan. Oft hefur hann reynt að fá mig á hestbak og það skal verða. Stríðnin var aldrei langt undan og ég hef fengið minn skerf af henni eins og allir sem hafa umgeng- ist hann. Þá hældi hann mér, borgarbarninu, í haustverkum og öðrum verkum á sinn hátt og ég geymi í hjarta mínu sem góða minningu. Ég er þakklát fyrir kynni mín af Eiríki og alla hjálp, vináttu og um- burðarlyndi. Kæri tengdafaðir, Drottinn blessi þig og alla fjölskylduna. Hólmfríður Ásmundsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.