Morgunblaðið - 27.01.2005, Síða 2

Morgunblaðið - 27.01.2005, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR KAUPA TÍU FLUGVÉLAR Flugleiðir skrifuðu í gær undir samning við Boeing-verksmiðjurnar um kaup á tíu nýjum flugvélum af gerðinni Boeing 737-800. Heildar- verðmæti vélanna er um 40 millj- arðar króna og verða þær leigðar áfram til flugfélaga í Kína og víðar um heim. Mikið mannfall í Írak Að minnsta kosti fimmtán biðu bana og þrjátíu særðust í sprengju- árás fyrir utan skrifstofur lýðræð- isflokks Kúrda í Sinjar í Kúrdahér- uðunum í Írak í gær. Þá fórst þrjátíu og einn bandarískur hermaður í gær þegar þyrla hrapaði til jarðar í sand- stormi í Anbar-héraði í Írak. Sex bandarískir hermenn til viðbótar féllu í árásum íraskra skæruliða og hefur mannfall Bandaríkjahers í Írak ekki verið meira á einum degi. Leyfa skólagjöld Stjórnlagadómstóll í Þýskalandi hefur úrskurðað að einstök sam- bandslönd geti veitt háskólum sem þau reka heimild til að innheimta skólagjöld. Þessi úrskurður markar tímamót og gengur gegn þeirri hefð í Þýskalandi, að háskólanám skuli vera ókeypis. Þykir líklegt að úr- skurðurinn muni valda miklum titr- ingi á vettvangi stjórnmálanna. ASÍ með athugasemdir Miðstjórn ASÍ gerir að sögn Grét- ars Þorsteinssonar forseta alvar- legar athugasemdir við reglugerð fé- lagsmálaráðherra um atvinnu- réttindi útlendinga. Verður athuga- semdunum skilað á morgun. Hærri laun af sérsamningi Að mati Eiríks Jónssonar, for- manns Kennarasambands Íslands, koma sérsamningar sveitarfélaga við kennara í einstökum skólum ekki til greina nema að um sé að ræða verulega hærri laun en verið er að greiða í dag. Y f i r l i t Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarp- héðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " #       $         %&' ( )***                         Í dag Sigmund 8 Viðhorf 28 Erlent 14/15 Umræðan 28/29 Akureyri 17 Bréf 29 Austurland 17 Minningar 30/37 Höfuðborgin 18 Dagbók 40/42 Landið 19 Menning 43/45 Listir 22 Fólk 46/49 Dagleg líf 24 Bíó 46/49 Neytendur 25 Ljósvakamiðlar 50 Forystugrein 26 Veður 51 * * * KRAKKARNIR í krakkaklúbbi Dómkirkjunnar í Reykjavík taka sér ýmislegt óvenjulegt fyrir hendur. Í gær settu þau Íslands- met þegar þau bjuggu til keðju úr bréfaklemmum sem náði tvo hringi í kringum kirkjuna. Alls þurfti um 6.000 bréfaklemmur í uppátækið en það tók um 45 mín- útur. Að sögn Jónasar Margeirs Ing- ólfssonar, æskulýðsleiðtoga í Dómkirkjunni, er þetta hluti af samkeppni sem stendur milli Dómkirkjunnar og Landakirkju í Vestmannaeyjum, og hófst í gríni fyrir fjórum árum. Nú sé komið að Landakirkju að gera betur. „Þetta er meira til gamans gert,“ segir Jónas þegar hann er spurð- ur hvaða tilgangi samkeppnin þjóni og bætir því við að nauðsyn- legt sé að krydda aðeins tilveruna á dimmum vetrardögum. Morgunblaðið/Þorkell Drógu bréfaklemmukeðju í kringum Dómkirkjuna ÓSKAÐ var eftir því á fundi mið- stjórnar ASÍ í gær að Gylfi Arn- björnsson, framkvæmdastjóri sam- bandsins, gerði betur grein fyrir máli sínu varðandi ummæli hans um stuðning verkalýðshreyfingarinnar við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur til formanns Samfylkingarinnar. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, segir að miðstjórnin hafi verið ágæt- lega sátt við skýringar Gylfa og und- ir það tekur Pétur Sigurðsson frá Al- þýðusambandi Vestfjarða, sem sat miðstjórnarfundinn. Pétur var einn sex forystumanna verkalýðshreyfingarinnar sem starfa innan Samfylkingarinnar sem sendi yfirlýsingu um að ummæli Gylfa í fjölmiðlum um síðustu helgi hefðu ekki verið í þeirra nafni. Pétur segir að ummæli Gylfa hafi verið rangtúlkuð af fréttamanni Rík- isútvarpsins, Gylfi hafi aldrei sagt að hann talaði fyrir hönd ASÍ eða verkalýðsforystunnar. Hann hafi að- eins sagt að margir kunningjar sínir í Samfylkingunni, sem væru í verka- lýðshreyfingunni, styddu Ingibjörgu Sólrúnu. „Menn voru allir sáttir við útskýr- ingar hans og sammála um að eft- irmál yrðu engin. Menn brýndu bara hver fyrir öðrum að þeir ættu ekki að tala í nafni hreyfingarinnar eða fé- laganna,“ segir Pétur. Miðstjórn ASÍ sættir sig við útskýr- ingar Gylfa ÁRNI Johnsen fyrrverandi alþingis- maður segist hafa átt ítarleg sam- skipti við verktakafyrirtækið NCC vegna skýrslu um gerð jarðganga til Vestmannaeyja. Hann sagði á borg- arafundi um málið í Eyjum í gær- kvöldi, þar sem mættu tæplega 500 manns, að hann stæði við skýrsluna, sem hefði verið yfirfarin af NCC. Árni hóf umræðuna á að fara yfir ferlið frá því hann byrjaði að kanna möguleika á jarðgöngum og svaraði fyrir frétt á Stöð 2 í gærkvöldi þar sem haft var eftir talsmanni verk- fræðifyrirtækisins NCC í Svíþjóð að tölurnar sem Árni lagði fram væru ekki frá fyrirtækinu komnar. Árni sagði frétt Stöðvar 2 til þess gerða að gera málið tortryggilegt og margt af því sem kom fram í fréttinni ekki rétt. Til að mynda væri ekki um að ræða tilboð og sagði hann líklegt að tals- maður NCC hefði ekki fengið réttar upplýsingar enda lægju ekki fyrir formlegar áætlanir. Hann sagðist fyrst hafa hringt í höfuðstöðvar NCC í Svíþjóð en verið vísað til höfuðstöðv- anna í Osló, sem honum skildist að væru aðalstöðvar fyrirtækisins er varða jarðgangagerð. Hann sagði sérfræðinga á Íslandi hafa skoðað þau gögn sem lögð voru fram og öll samskipti hans og sérfræðinga er- lendis væru til á tölvutæku formi fyrir þá sem neita að trúa honum. Sagði hann því næst að skýrslan hefði verið yfirfarin af yfirmönnum NCC í Nor- egi áður en hún var lögð fram og hann hefði látið þá vita að hann ætlaði sér að halda blaðamannafund til að kynna málið. Þeir svöruðu því til að þeir væru ánægðir með það og ef einhverj- ar spurningar vöknuðu sem Árni og félagar gætu ekki svarað væri mönn- um velkomið að leita til þeirra. Miklar rannsóknir Árni fór því næst yfir skýrsluna sem þeir Svein E. Kristiansen bygg- ingaverkfræðingur hjá NCC í Noregi og Sverre Barlindhaug jarðverkfræð- ingur hjá Multiconsult skrifa undir. Þar segir í upphafi að til þessa hafi engin jarðfræðileg athugun farið fram á slíkum jarðgöngum. Þær jarð- fræðilegu upplýsingar sem notaðar voru í skýrslunni byggjast á almenn- um jarðfræðilegum upplýsingum auk endurkasts- og bylgjubrotsmælinga á Landeyjarsandi og á sjávarbotninum milli Vestmannaeyja og meginlands Íslands. Þær athuganir fóru fram síð- astliðið sumar. Árni benti á að þær rannsóknir sem nú þegar hafa farið fram á milli lands og Eyja séu meiri en þær sem gerðar voru áður en Hvalfjarðar- göngin voru gerð. Sú kostnaðaráætl- un sem lögð var fram er byggð á reynslu NCC af tvennum neðansjáv- argöngum frá Færeyjum, Vagagöng- unum sem eru 4,9 kílómetrar og Norðureyjagöngunum sem eru 6,2 km. Ennfremur á reynslu við gerð lengstu vegganga í heimi, Lærdals- göngunum sem eru 24,5 km. Hugs- anleg göng milli lands og Eyja yrðu um 20 kílómetrar. Kostnaður er upp á 16 milljarða króna án virðisauka- skatts og er allur kostnaður innifalinn utan kostnaðar við kaup á landi og flutninga á jarðvegi frá jarðganga- gerð. Árni sagði að miðað við kostnaðar- áætlun mætti segja að kílómetrinn í göngunum væri á 720 milljónir króna. Kílómetrinn í Hvalfjarðargöngunum kostaði yfir 900 milljónir og sagði Árni það vera dýrt. Í Færeyjum hefur kílómetrinn kostað um 550 milljónir. Hann sagði eðlilegt að kílómetrinn væri dýrari hér enda þyrfti að styrkja göngin meira. Tæplega 500 manns mættu á borgarafund í Eyjum Morgunblaðið/Sigurgeir Fjölmennt var á borgarafundinum í Vestmannaeyjum í gærkvöldi um jarðgangamálin. NCC kannast ekki við útreikningana TALSMAÐUR sænska verktakafyrirtækisins NCC, Nordic Construction Company, Øvind Kvaal, sagði í fréttatíma Stöðvar 2 í gær að hann kannaðist ekki við að Árni Johnsen hefði kostnaðaráætlun frá fyrirtækinu und- ir höndum, vegna jarðganga milli lands og Eyja, líkt og Árni hefði fullyrt. Þar kom fram að kostnaður vegna framkvæmdanna væri áætlaður helmingi minni en Vega- gerðin hefði gert ráð fyrir. Fyrirtækið hefði ekki verið á Íslandi í tengslum við hugmyndir um gangagerð milli lands og Eyja. „Við höfum ekki séð verkefnið. Við vitum ekki um hvað það snýst né um hvers konar fjöll er að ræða, og það er ómögulegt að komast að einhverri nið- urstöðu út frá samtali verkefnisstjóra okkar í Færeyjum og einstaklings á Íslandi,“ segir Kvaal og heldur áfram: „Við tökum ekki ábyrgð á því sem þessi maður segir opinberlega. Þetta eru ekki okkar útreikningar, og ekki tölur frá okkur. Það er ekki neitt sem skuldbindur okk- ur,“ segir Kvaal.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.