Morgunblaðið - 27.01.2005, Síða 10

Morgunblaðið - 27.01.2005, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR DOKTOR Gunnar Hoppe, virtur jarðvís- indamaður, lést í Sví- þjóð sl. mánudag, 90 ára að aldri. Gunnar var rektor Stokkhólmsháskóla ár- in 1974–1978 og lengi prófessor við sama skóla, sat í byggingar- nefnd Norræna húss- ins í Reykjavík og síðar í stjórn hússins um árabil, eða frá 1968 til 1991. Hinn 17. júní á síðasta ári hlaut hann sænsk-íslensku menn- ingarverðlaunin fyrir margháttuð störf í þágu samskipta Svíþjóðar og Íslands. Veitti hann verðlaununum viðtöku í sendiherrabústað Íslend- inga í Stokkhólmi. Áður hafði hann verið sæmdur heiðursmerkjum ís- lensku fálkaorðunnar. Eitt hið síðasta sem Gunnar beitti sér fyrir sem mikill Íslandsvinur var að dr. Helgi Björnsson jöklafræðing- ur yrði heiðursdoktor við Stokkhólmsháskóla. Greint er frá andláti Gunnars á vefsíðu ís- lenska sendiráðsins í Svíþjóð. Þar segir að hann hafi verið sannur Íslandsvinur, beitt sér fyrir margvíslegum gjöfum til Íslands og verið öflugur stuðn- ingsmaður Norræna hússins í Reykjavík. Gunnar átti marga góða vini hér á landi. Meðal þeirra var Sig- urður Þórarinsson jarðfræðingur. Gaf hann út bækling um Sigurð og rannsóknir hans fyrir aðeins tveimur árum. Þá fjallaði hann oft um jarðfræði Íslands í rit- um sínum á löngum og farsælum fræðimannsferli. Stýrði hann marg- víslegu rannsóknastarfi á íslenskum eldfjöllum og sat um skeið í stjórn Norrænu eldfjallastöðvarinnar á Ís- landi. Andlát GUNNAR HOPPE HEILDARSKATTGREIÐSLUR einstaklinga til ríkis og sveitarfé- laga voru 63,6 milljörðum kr. hærri á árinu 2003 samanborið við árið 1995 reiknað á verðlagi ársins 2003. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóhanns Ársælssonar þingmanns á Alþingi. Aukning skattgreiðslnanna end- urspeglar hækkun launa á þessu árabili því skv. svari ráðherrans, hefur hlutfall tekjuskatta og út- svars af mánaðarlaunum lækkað á sama tímabili eða úr 29,1% af 200 þúsund króna mánaðarlaunum á árinu 1995 í 23,6% á árinu 2003. Heildarskattgreiðslur einstak- linga til ríkis og sveitarfélaga voru 68.752 milljónir kr. á árinu 1995 (reiknað á verðlagði ársins 2003) en þær voru komnar í 132.269 milljónir kr. á árinu 2003. Hækk- unin er 92,5%. 110% hærri skattgreiðslur til sveitarfélaga Heildarskattgreiðslur einstak- linga til sveitarfélaga voru 110% hærri á árinu 2003 en á árinu 1995 og höfðu hækkað úr 31,3 milljörð- um 1995 í 66,2 milljarða árið 2003. Skattgreiðslur einstaklinga til ríkisins hækkuðu á sama tíma úr tæplega 37,4 milljörðum 1995 í rúmlega 66,1 milljarð á árinu 2003, eða um 76,9%. Tekjuskattgreiðslur einstaklinga voru 34,7 milljarðar 1995 en átta árum síðar eða 2003 námu þær tæplega 58 milljörðum. Greiðslur eignarskatta lækkuðu á tímabilinu en þær voru 2,6 milljarðar á árinu 1995 en voru komnar niður í 1,7 milljarða á árinu 2003. Útsvarsgreiðslur einstaklinga til sveitarfélaga jukust umtalsvert á tímabilinu. Þær voru 27,7 milljarð- ar á árinu 1995, reiknað á verðlagi ársins 2003. Á árinu 2003 námu út- svarsgreiðslur einstaklinga hins vegar tæplega 62 milljörðum kr. Fasteignaskattgreiðslur hækk- uðu einnig á tímabilinu. Alls voru þær 3,6 milljarðar á árinu 1995 en á árinu 2003 námu þær rúmlega 4,3 milljörðum kr. á föstu verðlagi. Hlutfall skatta af mánaðar- launum hefur lækkað Í svari fjármálaráðherra er einn- ig birt yfirlit yfir hlutfall tekju- skatta og útsvars af mánaðarlaun- um. Þar kemur fram að hlutfallið af 100 þúsund kr. mánaðarlaunum var 16,8% á árinu 1995, 9,5% á árinu 2004 og áætlað er að hlut- fallið verði komið niður í 3,5% á árinu 2007, þegar skattalækkanir sem ríkisstjórnin hefur ákveðið verða komnar til framkvæmda. Á árinu 1995 var hlutfall tekju- skatta og útsvars af 300 þúsund kr. mánaðarlaunum 33,1%. Á seinasta ári var hlutfallið 27,9% af launun- um og áætlað er að það verði 23,3% á árinu 2007. Hlutfall tekjuskatta og útsvars einstaklinga með 500 þúsund kr. mánaðarlaun árið 1995 var 36,4%. Á seinasta ári var hlutfallið 31,5% og áætlanir gera ráð fyrir að það verði komið niður í 27,3% á árinu 2007 samkvæmt svari fjármálaráð- herra. Svar á Alþingi um skattbyrði einstaklinga 1995–2003 Skattgreiðslur 63 milljörðum hærri í lok tímabilsins Hlutfall tekju- skatta og útsvars af 200 þús. kr. launum lækkaði úr 29,1% í 23,6%                                                           ! "#    $  ! # %  &  #  $  ##   $"" "%&  $"  $" # & $  %&   && &% "$   && & " "$  #  & $$% " # $   '       " " #   $" &"&   $$  "   & #&  $%  $" "  %"   &  &  &$  & $  #   &$# ##   "#%%  #                   nefndar sem sett var á laggirnar eftir talninguna sl. vor til þess að koma með tillögur um hvernig rjúpnaveiðar ættu að vera þegar þær hæfust að nýju eftir friðun. SIGRÍÐUR Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra kynnti fyrr í vikunni í ríkisstjórn frumvarp til laga um breytingu á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum og er það nú til umfjöllunar í þing- flokkum stjórnarflokkanna. Í frum- varpinu er lagt til að umhverf- isráðherra verði heimilt að takmarka veiðar við ákveðna daga og ákveðinn tíma sólarhringsins og að ráðherra geti við tilteknar að- stæður bannað sölu á veiðibráð. Er frumvarpið liður í þeim áformum að rjúpnaveiðar verði heimilar á ný haustið 2005. Tildrög málsins eru þau að í júlí- mánuði 2003 ákvað þáverandi um- hverfisráðherra að friða rjúpu frá og með árinu 2003 til og með 2006 vegna bágs ástands stofnsins. Að sögn Sigríðar Önnu kom við taln- ingu á rjúpu sl. vor í ljós að stofn- inn hafði tvöfaldast á milli áranna 2003 og 2004, sem sé til merkis um að stofninn sé í mikilli uppsveiflu. Segir hún það hafa bent til þess að mögulegt væri að stunda takmark- aðar veiðar í framtíðinni með því að koma á markvissri stjórnun en slíkri breytingu verður aðeins kom- ið á með lagabreytingu. Aðspurð segir Sigríður Anna frumvarpið í meginatriðum byggj- ast á tillögum svokallaðrar rjúpna- Felist eina frávikið frá tillögum nefndarinnar í því að ekki verður lagt til að settur sé kvóti á fugla- veiðar. Í nefndinni áttu sæti fulltrúar umhverfisráðuneytisins, Náttúrufræðistofnunar Íslands, Umhverfisstofnunar, Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, Fuglavernd- arfélags Íslands, Skotveiðifélags Íslands og Bændasamtaka Íslands. „Þau áform sem ég hef kynnt um það að hefja veiðar að nýju næsta haust byggjast á því að þá verði veiðarnar samkvæmt nýju kerfi og eins að niðurstaða talningar rjúp- unnar nk. vor leiði í ljós enn frekari fjölgun, en margt bendir til þess að rjúpan sé í uppsveiflu um þessar mundir,“ segir Sigríður Anna. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að umhverfisráðherra verði heimilt, þegar friðun einstakra fuglateg- unda er aflétt, að takmarka veiðar við ákveðna daga og ákveðinn tíma sólarhringsins. Enn fremur að um- hverfisráðherra verði heimilt að banna sölu á afurðum þeirra fugla sem undir lögin falla þ.e.a.s. á veiðibráð og afurðum þeirra. Með sölu er átt við hvers konar afhend- ingu gegn endurgjaldi. Þessar heimildir umhverfisráðherra geta samkvæmt frumvarpinu náð til allra fuglastofna sem heimilt er að veiða. Með því er að sögn Sigríðar Önnu lagður grundvöllur að nýju stjórnkerfi rjúpnaveiða sem getur einnig nýst sem fyrirmynd að stjórn veiða á öðrum fuglastofnum í framtíðinni eftir því sem aðstæður krefjast. Rjúpnaveiðar líklega leyfðar í haust Morgunblaðið/Ingó Rjúpnaveiði verður heimiluð í haust verði frumvarp umhverfisráðherra að lögum. Frumvarpið gerir hins vegar ráð fyrir að sala á rjúpu verði bönnuð. NÁTTÚRUVERNDARSAMTÖK Íslands fagna þeirri ákvörðun ríkis- stjórnarinnar að unnið verði að und- irbúningi að því að fella landsvæði norðan Vatnajökuls inn í framtíðar Vatnajökulsþjóðgarð í samráði við heimamenn og aðra hagsmunaaðila. „Með þessu hefur ríkisstjórn Ís- lands tekið stefnumótandi ákvörðun um stofnun þjóðgarðs norðan Vatna- jökuls er taki til alls vatnasviðs Jök- ulsár á Fjöllum,“ segir í ályktun frá samtökunum. „Enn fremur, unnið verður að friðlýsingu svæða frá strönd í norðri til strandar í suðri. Náttúruverndarsamtök Íslands hafa barist fyrir þessu hvoru tveggja um árabil.“ Náttúruverndarsamtök Íslands telja sjálfsagt að Langisjór verði hluti af hinum nýja þjóðgarði þegar fram líða stundir,“ segir í ályktun- inni. „Einnig telja samtökin mikil- vægt að mannvirki sem nauðsynleg eru vegna reksturs og stjórnunar þjóðgarðsins verði ekki byggð á við- kvæmum, lítt röskuðum svæðum þjóðgarðsins heldur í jaðri hans eða utan við hann. Vegalagning raski ekki náttúru fyrirhugaðs þjóð- garðs.“ NÍ um þjóðgarð Mikill sigur fyrir nátt- úruvernd SAMVINNUNEFND um skipulag miðhálendisins ákvað nýlega á fundi sínum að auglýsa tillögu um Norð- lindaölduveitu samkvæmt útfærslu sem byggðist á úrskurði setts um- hverfisráðherra, Jóns Kristjánsson- ar. Á að auglýsa tillöguna sem hluta breytinga á skipulagi miðhálendisins á svæðinu sunnan Hofsjökuls. Úrskurður setts umhverfisráð- herra vegna Norðlingaölduveitu ger- ir ráð fyrir því að lónið verði utan friðlands Þjórsárvera og í bókun samvinnunefndarinnar segir að stefnumótun svæðisskipulagsins nái fram að ganga hvað varðar land inn- an marka núverandi friðlands. Í stað lóns innan friðlands komi til mót- vægisaðgerðir, þ.e. lón og veitu- skurðir utan friðlands. Nefndin segir niðurstöðuna vera umfangsmiklar og óafturkræfar framkvæmdir á hálendi Íslands. Er það mat nefndarinnar að lón- hæð upp á 575 metra yfir sjávarmáli hafi bæði verið umhverfislega og tæknilega betri lausn en sú sem tek- in var til afgreiðslu samkvæmt úr- skurði setts umhverfisráðherra. Landslagsheild Þjórsárvera nái langt út fyrir núverandi mörk frið- lands og því sé framkvæmdin í heild sinni mikið umhverfisrask á stóru svæði sem skilji eftir sig stærri sár í landinu en tillaga í gildandi svæðis- skipulagi geri ráð fyrir. Bendir nefndin á að sveitarfélög og Landsvirkjun hafi orðið sammála um niðurstöðu setts umhverfisráð- herra. Þar sem heimamenn á svæð- inu hafi náð samkomulagi um út- færslu framkvæmdarinnar þá lítur nefndin á það sem skyldu sína að ljúka málinu „og um leið eyða þeirri óvissu sem um langt skeið hefur staðið um þessa framkvæmd.“ Norðlingaöldu- veita verði auglýst Nefnd um skipulag miðhálendisins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.