Morgunblaðið - 27.01.2005, Síða 18

Morgunblaðið - 27.01.2005, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ AUSTURLAND Miðborgin | Laugavegurinn mun taka miklum breytingum á næstu árum, en vinna við að deili- skipuleggja alla reiti við þessa gamalgrónu verslunargötu hefur verið í gangi undanfarin ár, og er nú að ljúka. Í deiliskipulaginu eru heimildir fyrir því að rífa nokkurn fjölda húsa og byggja upp á nýtt á reitunum, og hafa margir aðilar áhuga á að koma að uppbyggingu á þessu svæði, segir Jó- hannes Kjarval, arkitekt hjá skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar, sem hefur lengi unnið að skipulagi miðborgarinnar. Borgarbúar munu sjá þessa uppbyggingu á næstu árum, fyrst á svokölluðum Stjörnubíó- reit, en um næstu áramót hefjast svo fram- kvæmdir á Frakkastíg milli Laugavegar og Hverfisgötu, þar sem hús verða rifin og byggð lítil verslunarmiðstöð með íbúðum á efri hæð- um. „Það er alveg sama hvað menn segja, það er vaxandi líf og starf við Laugaveginn. Það er mjög misjafnt eftir verslunum, og vissulega mikið af verslunum sem eru ekki sérlega stönd- ugar,“ segir Jóhannes. Hann segir það þó sér- stöðu Laugavegarins að þar sé hægt að stunda tilraunastarfsemi í verslunarrekstri, sem jafn- framt þýði að sumar verslanir stoppi stutt við á meðan aðrar blómstri. Pláss fyrir tilraunastarfsemi Þetta segir Jóhannes að verði að haldast þrátt fyrir uppbygginguna, ekki sé rúm fyrir til- raunastarfsemi í stórum verslunarmiðstöðvum og það sé meðal þess sem gerir Laugaveginn að því sem hann er í dag. Hann segir að fyrirhuguð uppbygging eigi ekki að spilla þessari sérstöðu, og nefnir sem dæmi að tvær verslanir sem ljóst er að þurfi að flytja vegna uppbyggingar við Frakkastíg hafi þegar tryggt sér húsnæði við Laugaveginn sem nú stendur autt. Vinna við deiliskipulag miðborgarinnar er vandasamt verk, enda skiptar skoðanir um flestar breytingar í svo gömlu hverfi, og ríkir hagsmunir eigenda, nágranna og annarra sem taka þarf tillit til við þá vinnu, segir Jóhannes. Hann segir það hlutverk skipulagsyfirvalda að leggja grunn fyrir þá sem áhuga hafa á því að framkvæma, þeir komi svo með nánari út- færslur og jafnvel breytingar á skipulaginu eftir því sem hentar þeirra hugmyndum. Það hefur varla farið fram hjá neinum sem leið á um Laugaveginn að þar standa nokkur hús auð, sum hver stórar eignir sem hafa staðið auðar lengi. Jóhannes segir það vissulega leitt að ekki takist að nýta þessar byggingar ennþá, en þær séu í sumum tilvikum ekki hentugar til nútíma verslunarreksturs, eða aðrar ástæður fyrir því að þær standa auðar. Þó sé útlit fyrir að þær verði flestar komnar í full not fyrir sum- arið. Mikið af fyrirspurnum Hann segir að það magn fyrirspurna sem hef- ur borist vegna deiliskipulagsins sýni best hví- líkur áhugi sé á uppbyggingu á Laugaveginum. Verktakar séu áhugasamir og telji sig geta selt bæði verslunarrými og íbúðir á svæðinu. „Nú er orðið verulega gaman að standa í þessu, eftir langan tíma er loksins eitthvað að fara að gerast,“ segir Jóhannes þar sem hann sýnir blaðamanni skipulagsuppdrætti af reitum við Laugaveginn þar sem sjá má hversu mikið umfang breytinga við Laugaveginn og þvergöt- ur honum tengdar gæti orðið. „Framundan er nokkuð vandasamur áfangi að ná fram metn- aðarfullum lausnum í hönnun og allri aðlögun nýrra bygginga að því umhverfi sem fyrir er.“ Mikil uppbygging og breytingar fyrirhugaðar á Laugavegi og þvergötum hans á næstu árum „Vaxandi líf og starf við Laugaveginn“ Morgunblaðið/ÞÖK Verslunarmiðstöð Öll húsin á vinstri hönd þegar horft er niður Frakkastíg frá Laugavegi hverfa og í staðinn rís lítil verslunarmiðstöð. FYRIRHUGAÐ er að reisa litla verslunar- miðstöð með um 40 verslunum, bílakjallara og íbúðum á efri hæðum á Frakkastíg milli Laugavegar og Hverfisgötu, og segjast for- svarsmenn verktakafyrirtækisins Stafna á milli hafa tröllatrú á uppbyggingu á þessu svæði, enda hafi þegar borist pantanir á íbúð- um í húsinu, þótt það verði ekki tilbúið fyrr en árið 2008. Verktakafyrirtækið Stafna á milli hefur keypt upp húseignir á Frakkastíg, Laugaveg og Hverfisgötu, alls um 3.000 fermetra lóð, og hyggst hefja framkvæmdir við niðurrif húsana á árinu, og hefja framkvæmdir við byggingu 15.000 fermetra húss á reitnum um næstu áramót. Einnig verður byggt á annarri 3.000 fermetra lóð norðanmegin við Hverfis- götuna, en þar verður að mestu um íbúðar- húsnæði að ræða, segir Engilbert Runólfsson, forstjóri Stafna á milli. „Við teljum að það sé markaður fyrir þetta, og þetta muni hleypa nýju lífi í Laugaveginn, það er ekki spurning,“ segir Engilbert. „Þetta er alveg gífurlegt tækifæri fyrir Reykjavík- urborg. Það er búið að vera á stefnuskrá R-listans í mörg ár að auka lífið í miðbænum, þeim hefur ekki tekist það, en það er engin spurning að þetta verður til þess.“ Húsið verður fimm hæðir, og undir því bíla- kjallari á tveimur hæðum, alls um 6.000 fer- metrar. Verslunarrýmið verður 5–6.000 fer- metrar og áætlað að þar megi koma fyrir um 40 smærri verslunum auk 2–3 stærri verslana. Hugmyndir eru einnig uppi um að tengja mið- stöðina Regnboganum. Yfir verslunarmiðstöð- inni er reiknað með 50–60 íbúðum, 100–200 fermetrum að stærð. Engilbert segir að ekki verði um lúxusíbúðir að ræða, heldur sé stefnt að því að fara hinn gullna meðalveg. Hann segir að þegar hafi komið í ljós mikill áhugi hjá fólki á því að eignast íbúðir í nýju húsnæði í miðbænum. „Ég held að markaðurinn sé alveg botnlaus nánast, það er ótrúleg eftirspurn og þegar farnar að berast pantanir í íbúðir þarna.“ Framkvæmdir á reitnum munu hefjast af fullum krafti um næstu áramót, en eitthvað verður byrjað að rífa niður þau hús sem nú standa þar á árinu. Reikna má með að fram- kvæmdum verði lokið á árinu 2008 ef allt gengur að óskum. Markaðurinn nánast botnlaus Eskifjörður | „Ég er búinn að klippa hér á Eskifirði síðan 1970,“ segir Trausti Reykdal og rakar hnakka heiðursmannsins í stólnum kunn- áttusamlega, en sá heitir Þórólfur Vigfússon og hefur komið í klippingu til Trausta í rúm þrjátíu ár. „Ég er upphaflega Siglfirðingur en fluttist tólf ára á Akureyri,“ segir Trausti. „Ég ætlaði nú bara að vera hér á Eskifirði í svona tvö ár, konan er héðan, en við ílengdumst. Við höfum rekið hér mynd- bandaleigu samhliða rakarastofunni. Það er ekki nóg að gera, en það sleppur til. Maður hangir í þessu og hefur sinn fasta kúnnahóp. Ég er í myndbandaleigunni hérna hinum megin við vegginn á kvöldin, en kon- an er þar á daginn þegar ég er að klippa.“ Lítið rakað upp á gamla móðinn Trausti segir herrarakstur vera orðinn sjaldgæfan. „Það er kannski einn á ári sem langar til að prófa að láta raka sig upp á gamla móðinn. Þetta var algengt hér áður. Þar sem ég lærði fyrir sunnan, það var á stofu við Hlemm, komu mjög margir af Hreyfli alltaf á morgnana og létu raka sig, þvo um hausinn og svona. Ég þvæ mönnum stundum um haus- inn hér líka.“ Trausti segir Eskfirðinga hljóta að vera snyrtilega til höfuðsins því ekki mikið hér, aðallætin eru á Reyðarfirði núna. Við verðum eitt- hvað varir við þensluna, en maður vill sjá raunverulegan uppgang hérna líka. Það kemur einhvern tíma og bara verður að gerast, því það þrífst lítil þjónusta ef ekki fjölgar hérna.“ Annars lætur Trausti vel af sér og segir að þrátt fyrir að langa alltaf aftur heim til Akureyrar muni hann sjálfsagt verða áfram á Eski- firði. ekki séu færri en átta manns að klippa í bænum. „Það eru hér tvær stofur fyrir utan mína.“ Hann fær einkum herra á stofuna en segir þó nokkrar konur koma til sín í hverri viku. Ekki gera bæjarbúar mikið af því að segja Trausta krassandi sögur í stólnum, en vissulega er þó rætt um landsins gagn og nauðsynjar eins og gengur. „Menn eru að spjalla um aflabrögð og veðrið. Annars gerist Trausti Reykdal rekur rakarastofu og myndbandaleigu Klippir á daginn og stúss- ast í myndum á kvöldin Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Staðfastur í stólnum Þórólfur Vignisson hefur komið í klippingu til Trausta Reykdal á Eskifirði í 30 ár. Egilsstaðir | Sameigin- legt útibú Íslandsbanka og Sjóvár verður opnað í Miðvangi 1 á Egils- stöðum í dag. Íslandsbanki verður samkvæmt venju opn- aður kl. 8.30 í morguns- árið og verður opið fram til kl. 16. Í tilefni af opnuninni er boðið upp á kaffi og meðlæti, Goggi heim- sækir útibúið kl. 10 og nemendur frá Tónlist- arskóla Fljótsdalshér- aðs leika tónlist á milli kl. 14 og 15. Helgi Kjærnested er útibússtjóri Sjóvár og Elísabet Benediktsdótt- ir útibússtjóri Íslands- banka, en alls verða fimm fastir starfsmenn í útibúinu á Egilsstöðum. „Það er löngu tímabært að Íslandsbanki opni útibú á Egilsstöðum“ segir Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, í fréttatilkynningu frá bank- anum. „Með því að reka sameiginlega útibú fyrir Íslandsbanka og Sjóvá erum við að samþætta banka- og tryggingaþjónustu til hagsbóta fyrir viðskiptavini, sem fá að njóta þess í hagræði, þjónustu og kjörum að sækja alla sína fjár- málaþjónustu á einn stað,“ segir Bjarni jafnframt. Bankinn og Sjóvá ætla að færa leikskólum á Fljótsdalshéraði endurskins- vesti til nota í skammdeginu og myndbandsupptökuvélar í leikskólastarfið. Löngu tímabært að bankinn opni útibú á Egilsstöðum, segir Bjarni Ármannsson Sameiginlegt útibú Íslands- banka og Sjóvár Sameiginlegt útibú Elísabet Benediktsdóttir, Edda Egilsdóttir, Ingunn K. Indriðadóttir, Eydís Bjarnadóttir, Helgi Kjærnested og Jón Hávarður Jónsson. Ljósmynd/isb

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.