Morgunblaðið - 27.01.2005, Page 20
V
ið erum með sex Boeing
747-200 fraktþotur í
fraktflugi fyrir dóttur-
félag Malaysia Airlin-
es, MASKargo, út frá
Kuala Lumpur í Malasíu og heima-
menn eru sjálfir með tvær þotur til
viðbótar í fraktfluginu,“ segir Bald-
vin M. Hermannsson, aðstoðarstöðv-
arstjóri Atlanta í Kuala Lumpur, í
samtali við Morgunblaðið. Baldvin
segir að samningurinn við Malaysia
Airlines sé fyrsti langtímasamningur
Air Atlanta eftir 11. september.
Stöðvarstjóri er Ólafur Smith og
auk þeirra tveggja starfa þar um 20
flugvirkjar og um 40 aðrir starfs-
menn, mest heimamenn, og um 20
áhafnir eða 60 manns hafa heima-
höfn í Kuala Lumpur og fljúga þaðan
til hinna ýmsu áfangastaða. Alls eru
því um 100 manns starfandi á vegum
Atlanta í Kuala Lumpur. Baldvin
sem er rekstrarfræðingur að mennt,
byrjaði hjá Atlanta í pílagrímaflugi í
Sádi-Arabíu fyrir nokkrum árum en
hefur síðustu tvö árin verið í Kuala
Lumpur.
Úr tveimur þotum í sex
„Í fyrstu samdi Atlanta um flug á
tveimur fraktvélum fyrir félagið hér
en fjórar þotur bættust smám saman
við næstu misserin. Framundan er
síðan að bæta við tveimur farþega-
vélum til að sinna pílagrímaflugi fyr-
ir félagið og ég tel að þetta sýni
nokkuð vel að þeir eru ánægðir með
okkur,“ segir Baldvin. Hann segir að
oft taki langan tíma fyrir t.d. evrópsk
fyrirtæki að vinna traust og trúnað
annarra fyrirtækja í flugheiminum,
ekki síst meðal Asíumanna, en þegar
þeir sjái að menn standi sig og óhætt
sé að treysta þeim sé komið á gott
samband og samstarf. „Viðskiptavin-
ir okkar vilja góða þjónustu í frakt-
fluginu og það er einmitt mjög ár-
íðandi að allar tímasetningar og
áætlanir standist ekki síður en í far-
þegaflugi. Vörur úr einu flugi þurfa
oft að ná tengiflugi til lokaáfanga-
staðar og það er augljóst að það
gengur ekki að láta framhaldsflugið
bíða eða að vörurnar verði eftir,“
segir Baldvin og nefnir að Air Atl-
anta hafi verið með um 95% stundvísi
í fraktfluginu að undanförnu sem
telst mjög gott. Að jafnaði eru 5
brottfarir á dag frá Kuala Lumpur.
Fulltrúar Air Atlanta koma viku-
lega á fund hjá Malaysia Airlines til
að fara yfir starfsemina vikuna á
undan og segir Baldvin þar kannað
mjög nákvæmlega hvernig gengið
hafi og hverjar séu ástæður fyrir töf-
um eða truflunum hafi slíkt komið
upp. „Þarna er nauðsynlegt fyrir
okkur að geta sýnt fram á þessa
stundvísi en allt flug sem er orðið
fjórum mínútum á eftir áætlun er
skilgreint sem seinkun og með 95%
stundvísi teljum við okkur með nokk-
uð góða útkomu,“ segir Baldvin.
Ánægðir með sveigjanleikann
Þá segir Baldvin að það sem Mal-
asíumenn séu ekki síst ánægðir með
hjá Air Atlanta sé sveigjanleikinn.
Oft komi upp aðstæður sem krefjist
þess að ferðum sé breytt, bætt
skyndilega við ferð á einhvern
áfangastaðinn og svo framvegis. „Við
reynum alltaf að verða við slíkum
óskum og auðvitað getur það þýtt að
við þurfum að biðja flugáhafnir okk-
ar að hliðra til frídögum eða breyta
upphaflegu vinnuplani með litlum
fyrirvara en það gengur yfirleitt
mjög vel. Hjá Air Atlanta hefur
löngum ríkt það viðhorf starfsmanna
í öllum greinum að vera sveigjanleg-
ur og veita viðskiptavininum góða
þjónustu og það hefur gefið okkur
gott orðspor,“ segir Baldvin og telur
að þetta atriði eigi stóran þátt í
hversu gott samstarfið er við Malas-
íumenn sem komi best fram í því að
verkefnið hefur stöðugt undið uppá
sig. Þá bendir hann á að Atlanta
skilji talsverðan virðisauka eftir sig í
landinu með þeirri þjónustu sem fé-
lagið kaupir t.d. vegna viðhalds á
flugvélunum og þjónustunnar sem
flugáhafnir þurfi á að halda.
Aðalskrifstofa Air Atlanta í Kuala
Lumpur er í Hyatt-hótelinu sem er
nokkuð utan við borgina og auk þess
að sjá um allt sem viðkemur sjálfu
fluginu þar sér skrifstofan um að
bóka og leigja hótelherbergi og íbúð-
ir, flutning áhafna til og frá flugvelli
og svo framvegis. Einnig eru haldin á
skrifstofunni upprifjunarnámskeið
fyrir flugáhafnir, þ.e. námskeið fyrir
nýja flugliða sem eru í þjálfun, nám-
skeið um flutning hættulegra efna,
um áhafnasamstarf og fleira, nám-
skeið sem flugmenn verða að sækja
með reglulegu millibili.
Mikill kippur í fraktflugi
Malaysia Airlines rekur um 60
þotur í farþegaflugi sínu og segir
Baldvin að fraktflug félagsins hafi
lengi vel aðeins verið aukageta en
síðan hafi það tekið mikinn kipp og
þar sé vaxtarbroddurinn. „Þeir eru
mjög duglegir við að finna nýja
áfangastaði í fraktfluginu og hafa
einnig tekið upp flug milli staða utan
Malasíu, segir Baldvin en frá Kuala
Lumpur fara þotur Atlanta m.a. til
Shanghai, Hangzhou, borga í Ástr-
alíu, Bangkok, Hong Kong, Taipei og
Dubai svo nokkuð sé nefnt.
Í lokin nefnir Baldvin að fulltrúar
Air Atlanta eigi margvíslegt sam-
starf við flugmálayfirvöld í landinu.
„Þótt vélarnar séu skráðar á Íslandi
og falli undir okkar reglur verða
flugmálayfirvöld hér einnig að koma
við sögu og þar sem við höfum líka
ráðið nokkra flugliða frá Malasíu
þurfa yfirvöldin hér að taka út þjálf-
unarkerfi Atlanta og annað til að full-
vissa sig um að við uppfyllum öll skil-
yrði.“
Air Atlanta með starfsstöðvar í öllum heimshlutum fyrir farþegaflug og fraktflug
Miðstöð um 100 starfs-
manna í Kuala Lumpur
Í Kuala Lumpur í Malasíu er ein stærsta
miðstöð fraktflugs Air Atlanta en aðrar
stöðvar eru m.a. í Dubai, Alaska og síðan
í nokkrum borgum Evrópu. Jóhannes
Tómasson bregður hér ljósi á umfang
starfseminnar í austurvegi.
Þotur frá Air Atlanta merktar MASKargo á flugvellinum í Shanghai.
Morgunblaðið/jt
Baldvin M. Hermannsson, aðstoðarstöðvarstjóri Air Atlanta í Kuala Lumpur, ræðir við einn samstarfsmanna sinna.
joto@mbl.is
20 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HÖRÐUR Már Guðmundsson er einn þeirra sem sinna flugumsjón í
Dubai. Hlutverk hans er að sjá um áhafnir, þ.e. að hver ferð sé mönn-
uð samkvæmt upphaflegri áætlun áhafnaskrár eða aðlaga hana sem
hann segir oft nauðsynlegt vegna óvæntra breytinga. Einnig sér skrif-
stofan um að bóka áhafnir á hótel eða hótelíbúðir fyrir þá sem dvelja
þar langdvölum, staðfesta brottfarartímann við áhafnirnar með því að
senda fax á hótelin sem borið er á herbergin og tilgreina hvenær
vekja skal áhafnir og sjá um akstur þeirra á flugvöll. Hann segir að
oftast takist að breyta áhafnaskrám án vandræða ef á þarf að halda
enda það margir flugmenn með stöð í Dubai að sveigjanleikinn sé all-
mikill.
Starfið er líflegt segir Hörður og er skrifstofan að vissu leyti eins
og félagsmiðstöð þar sem flugmenn geta komið í heimsókn og fengið
ýmsa þjónustu, farið á netið og bara hitt samstarfsmenn til að spjalla
og segir Hörður mikið um það. Hann kveðst kunna vel við starfið,
hefur verið hjá Atlanta frá 1998 og starfað bæði í Asíu og Suður-
Ameríku. „Ætli þetta sé ekki einhvers konar fíkn, að vera í starfi sem
þessu, fara á milli stöðva og kynnast nýjum heimi. En ég kann vel við
það.“
Morgunblaðið/jt
Hörður Már Guðmundsson kveðst kunna vel við sig í starfinu hjá Air Atlanta í Dubai.
Eins konar félagsmiðstöð