Morgunblaðið - 27.01.2005, Síða 34

Morgunblaðið - 27.01.2005, Síða 34
34 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Friðgeir Krist-jánsson húsa- smíðameistari fædd- ist á Grundum í Kollsvík í Vestur Barðastrandarsýslu. 11. desember 1927. Hann lést 19. janúar síðastliðinn. For- eldrar hans voru Dagbjört Guðrún Torfadóttir hús- freyja, f. 27. sept. 1899, d. 28. maí 1985 og Kristján Júlíus Kristjánsson bóndi og kennari, f. 12. júlí 1896, d. 9. okt. 1970. Systkini Friðgeirs eru Kristján, f. 20. ágúst 1925, d. 4. maí 1999, Marinó, f. 29. júní 1930, dó af slysförum 16. des. 1980, Halldór Óli, f. 3. jan. 1933, býr á Patreks- firði, og Ásgerður Emma, f. 10. mars 1936, býr í Efri Tungu í Ör- lygshöfn við Patreksfjörð. Friðgeir kvæntist 24. maí 1953 Jórunni G. Gottskálksdóttur frá Hvoli í Ölfusi, f. 16. apríl 1933, dóttur Gottskálks Gissurarsonar bónda og konu hans Gróu Jóns- dóttur húsfreyju. Friðgeir og Jór- 1982. Áður átti Ásgeir Andreu Þóru, f. 2. jan. 1972, gifta Ísaki Þ. Runólfssyni, börn þeirra eru Run- ólfur Helgi, Sædís Lilja og Val- gerður Helga. 4) Rúnar Jón, f. 18. mars 1961, hann kvæntist Vil- borgu Hafsteinsdóttur 24. jan. 1987. Þau skildu. Dóttir þeirra er Dagbjört Guðrún, f. 18. des. 1981, sambýlismaður Ívan Róbertsson. Rúnar kvæntist Írisi Heru Jóns- dóttur 23. júní 2001. Þau skildu. 5) Össur Emil, f. 14. mars 1965, kvæntist Guðrúnu Guðmunds- dóttur 19. sept. 1992. Börn þeirra eru Dagrún Ösp, f. 24. maí 1985, sambýlismaður Arnar Þór Sig- urðsson, Íris Alma, f. 17. júní 1992 og Katrín Eik, f. 17. okt. 1996. Friðgeir lærði húsasmíðar á Patreksfirði, fylgdi meistara sínum til Hafnarfjarðar og lauk námi þar 5. júní 1949. Hann vann alla tíð við smíðar, mest á Suður- landi en kom að ýmsum verkum víða um landið. Friðgeir átti sæti í sveitarstjórn í nokkur ár og lét hin ýmsu félagsmál til sín taka, var meðal annars formaður Golf- félags Hveragerðis um tíma. Friðgeir og Jórunn hófu sinn bú- skap í Hafnarfirði en fluttu 1961 að Hvoli í Ölfusi. Úr sveitinni fluttu þau til Hveragerðis 1970 og hafa búið þar að mestu síðan. Friðgeir verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. unn eiga fimm börn, þau eru: 1) Kristján Júlíus, f. 11. jan. 1953, kvæntist Guð- rúnu Eggertsdóttur 20. sept. 1974. Þau skildu. Börn þeirra eru Eggert Freyr, f. 13. júní 1975, d. 11. apríl 1993 og Jórunn, f. 19. júlí 1978, maður hennar er Gunnlaug- ur Kristjánsson. Börn hennar eru Snæfríð- ur Sól og Máni Snær. Kristján Júlíus kvæntist Guðbjörgu Thoroddssen 19. júlí 2003. Börn hennar eru Ásdís, f. 19. apríl 1988 og Kristín, f. 14. feb. 1992. 2) Gottskálk, f. 25. okt. 1954, kvænt- ist Eddu Sigurrós Sverrisdóttur 24. júní 1989. Sonur þeirra Jón Eyþór, f. 6. apríl 1989. Áður átti Edda Auði Elísabetu, f. 21. ágúst 1971, d. 6. okt. 2004, sonur henn- ar, Sindri Már, er uppeldissonur Gottskálks og Eddu. 3) Gróa, f. 6. nóv. 1956, giftist Ásgeiri Guð- mundssyni 30. des. 1978. Börn þeirra eru Friðgeir Torfi, f. 16. júní 1979 og Guðný, f. 15. jan. Elsku afi, ég trúi því ekki ennþá að þú sért farinn. Þetta er allt svo skrítið og gerist svo fljótt. Þú komst í heim- sókn á afmælisdaginn minn fyrir rétt rúmri viku og þá varstu svo hress og kátur, kipptir upp peningaseðli og sagðir mér að kaupa mér eitthvað fal- legt. Þú varst alltaf svo gjafmildur, alltaf að hugsa um að öðrum liði örugglega vel og svo góðhjartaður að það er skrítið að hjartað brást þér svo, kannski af því þú notaðir það svo vel. Ég man þegar ég kom heim frá Danmörku, bara 5 ára. Ég átti þá bók sem var með lítilli ljóshærðri stelpu framan á og afa hennar sem var ein- mitt með alveg eins hár og flottan skalla eins og þú. Ég hugsaði mér þá að þetta væri saga um okkur. Þegar ég var í skólanum í Hvera- gerði varst þú húsvörður þar. Mér fannst æðislegt að hafa þig þarna, enda reyndirðu að gera allt svo mér liði sem best í skólanum. Eitt skipti nefndi ég að mig langaði í hillu inn í herbergi, það liðu ekki nema nokkrir dagar þangað til þú komst með nýsmíðaða hillu til mín, takk fyrir mig. Svona varstu, þú mátt- ir ekki heyra að mann vantaði eitthvað sem þú mögulega gætir smíðað þá varstu búinn að smíða það um leið. Einu sinni sem oftar kom ég í heim- sókn til ykkar ömmu í Hveragerði og þú vildir ólmur fara að kaupa pítsu handa okkur, því það var jú það sem unga fólkið borðaði. Við tókum einn rúnt um Hveragerði og það heilsuðu þér gjörsamlega allir. Þú varst greini- lega vinsæll og fólkinu líkaði við þig, enda varstu búinn að smíða fyrir nær alla Hvergerðinga og þótt víðar væri leitað. Þið amma hafið alltaf verið hjá okkur um jólin, þau verða sko skrítin án þín. Þið voruð alltaf mætt tíman- lega til að fylgjast með jólaundirbún- ingnum, fylgjast með okkur hlaupa út um allt hús að klára að skreyta og taka okkur til. Síðustu jól varst það nú þú sem skreyttir jólatréð svona listavel. Það var sama hvað þú tókst þér fyrir hendur, golf, smíðar eða að baka pönnsur, allt gerðirðu vel. Hvíl í friði elsku afi, ég mun minn- ast þín um dagana. Þín dótturdóttir, Guðný Ásgeirsdóttir. Elsku besti afi, þú varst alltaf svo góður og yndislegur við okkur, og varst alltaf til staðar ef eitthvað var að. Við eigum eftir að sakna þín ofboðs- lega mikið, takk fyrir allar ferðirnar í sumarbústaðinn og gönguferðirnar þar í kring. Takk fyrir að vera til. Þó að þetta vers úr Höfðingi smiðjunnar eftir Davíð Stefánsson sé um stálsmið finnst okkur það lýsa þér vel. Hann vinnur myrkranna milli. Hann mórar glóandi stál. Það hlýtur hans vilja og valdi, hans voldugu, þöglu sál. Sú hönd vinnur heilagan starfa, sú hugsun er máttug og sterk, sem meitlar og mótar í stálið sinn manndóm sín kraftaverk. Þínar afastelpur Dagrún Ösp og Íris Alma. Genginn er kær bróðir og vinur, minningar hrannast upp í huganum um mikið ljúfmenni og hjálparhellu. Ein af þeim fyrstu tengist því er þú, 17 ára að aldri, hleyptir heimdraganum og hófst þitt smíðanám. Mér fannst ég hafa misst af þér og var leið yfir en það hefði ég ekki þurft að vera því tryggð þín við sveitina var fölskvalaus og stóð til hinstu stundar. Þú komst vestur eins oft og þú gast og þá alltaf til að hjálpa til, byggja, breyta og bæta. Handtökin þín blasa við hvert sem litið er hér á bæ, gróðurhúsið, íbúðarhúsið og svo mætti lengi telja. Þú áttir ekki þinn líka, eða eins og son- ur þinn komst að orði nýlega, það var enginn betri. Stundum kom það fyrir að þú dast niður í bók, t.d. vísnabók K.N., og þá mátti heyra hláturrokur á milli. Við gerðum það stundum að gamni okkar að velja okkur vísu með því að láta bókina opnast fyrir tilviljun. Ég man hvað þú hlóst innilega þegar þín vísa endaði svona: Ég í vændum ef- laust á, unga bóndadóttur. K.N. Þá hafðir þú fundið hana Lóu þína, sem varð þinn lífsförunautur, en hafðir ekki sagt frá því. Árin liðu og fjölskyldan stækkaði og alltaf var jafn gaman að skreppa í heimsókn austur fyrir fjall. Þú svo fundvís á að gera eitthvað skemmtilegt, skreppa í bíltúr eða ann- að. Í einni heimsókn hingað vestur skruppum við út í Kollsvík sem oft áð- ur, þar sem við vorum öll fædd systk- inin. Golfpoki lá í bílnum og á Grund- artúni slóst þú þína fyrstu golfkúlu. Áhugi þinn á golfi var vakinn og varð þitt áhugamál upp frá því. Ég minnist þess þegar þú, nokkrum árum seinna, sýndir mér golfaðstöðu ykkar Hver- gerðinga, hvað þú varst ánægður með hana og hefur þú eflaust lagt þar hönd á plóg til uppbyggingar. Elsku bróðir og vinur, að leiðarlok- um viljum við af alhug þakka þér alla þína hjálp og velvilja í okkar garð. Sveitin okkar, fyrrum Rauðasands- hreppur, er fátækari eftir og íbúar hennar þakka þér vafalaust órofa tryggð við svæðið. Við biðjum góðan Guð að hugga og styrkja fjölskyldu þína á sorgarstundu. Guð blessi þig kæri bróðir. Emma og fjölskylda. Fréttin um lát Friðgeirs kom óvænt þótt allir sem til þekktu hafi vitað að hann gekk ekki heill til skógar. Hann fór eins og hann sjálfur hefði kosið, að loknum vinnudegi í fullum herklæðum eins og kappar til forna. Það má heita táknrænt fyrir þennan starfsama mann. Ég talaði við hann aðeins tveim- ur dögum áður en hann lést. Þá var hann sem ætíð, léttur í bragði, áhuga- samur og tilbúinn að takast á við ný verkefni. Mörg voru verkefnin sem hann leysti á langri starfsævi og leysti þau jafnan vel af hendi. Það var sama hvort þau voru stór eða smá, allt var gert af sömu alúð. Friðgeir lærði húsasmíðar ungur að árum og starfaði við þær alla tíð. Ég vann hjá honum á skólaárunum og lærði ég mikið af honum. Hann var þægilegur í allri umgengni, afkasta- mikill og skipulagður til vinnu. Að loknum venjubundnum starfstíma var fjarri honum að setjast í helgan stein. Friðgeir var líka félagslyndur mað- ur, hann tók virkan þátt í félagsmálum, sat um tíma í bæjarstjórn Hveragerð- isbæjar, einnig var hann í stjórn Golf- klúbbs Hveragerðis. Hann hafði mikla unun af því að ferðast, hitta nýtt fólk og sjá nýja staði. Hin síðari ár ferðaðist hann talsvert og tók vel eftir því sem fyrir augu bar. Hann var viðræðugóður og víða heima. Þá gat hann einnig séð hinar spaugi- legu hliðar tilverunnar. Þrátt fyrir mikið annríki gaf hann sér tíma til úti- vistar einkum hin seinni ár. Ekki eru mörg ár síðan hann gekk með okkur Elínu Laugaveginn og gaf þar ekkert eftir. Áhugamaður var hann um golf- íþróttina og stundaði hana sér til mik- illar ánægju. Friðgeir var vestfirðingur, af Kolls- víkurætt. Þótt hann færi ungur að heiman, voru böndin við átthagana sterk. Þangað leitaði hugurinn oft og hann ræktaði vel sambandið við ætt- ingja og æskustöðvarnar. Ég hef þekkt Friðgeir alla mína ævi og hefur hann reynst mér ákaflega vel. Hann giftistLóu systur minni þegar ég var aðeins þriggja ára. Saman hafa þau átt góða ævi og eignast fimm börn. Lóa mín, þú hefur misst góðan og traustan förunaut. En þú átt líka góð og samheldin börn og fjölskylda þín er stór. Kæri mágur og vinur, langri sam- ferð er nú lokið. Að leiðarlokum þökk- um við Elín þér fyrir allt sem þú varst okkur. Blessuð sé minning Friðgeirs Krist- jánssonar. Gizur Gottskálksson. Það er gleði og heiðríkja yfir minn- ingunni um haustdagana 1988, þegar barna- og gagnfræðaskólinn í Hvera- gerði voru sameinaðir og fluttir undir eitt þak. Viðbyggingin við „gamla“ skólahúsið var „næstum tilbúin“ og kennsla hófst þótt hamarshöggin heyrðust inn í skólastofurnar. Það truflaði hreint ekki kennsluna. Nem- endur, kennarar og annað starfsfólk gekk með lotningu um nýju, glæsilegu húsakynnin. Mannvalið í starfsliðinu var gott og teljum við á engan hallað, þótt við nefnum húsvörðinn Friðgeir Kristjánsson þar fremstan meðal jafn- ingja. Hann kom til starfa þetta haust og starfaði hjá okkur um átta ára skeið. Verkefnin voru mörg, sem biðu hans, og trúlega miklu fleiri en hann óraði fyrir. En öll leysti hann af alúð og ljúfmennsku. Þegar Friðgeir fluttist austur yfir fjall gerðist hann bóndi í Ölfusinu, en hann var fyrst og síðast smiður, enda völundur í höndunum. Það kom því í hans hlut að ljúka við óteljandi verk í nýju skólabygging- unni; alls konar innréttingar, skipta um plötur á skólaborðunum svo þau entust lengur, þetta hér og annað þar. Aðstoða við bekkjarkvöld og árshátíð- ir, passa upp á leiktækin úti á skóla- vellinum – bara nefndu það. Trúlega hafa fáir starfsmenn bæjarfélagsins sparað því meiri fjármuni en Friðgeir. Friðgeir var hvers manns hugljúfi og vildi allra vanda leysa. Glaður og reifur sinnti hann störfum sínum og margt handtakið liggur eftir hann í skólanum okkar. Það var ómetanleg gæfa fyrir skólastarfið að fá hann í starfsmannahópinn. Nú hefur hann lagt hamarinn frá sér í síðasta sinn. Um leið og við sendum Jórunni, eiginkonu hans, og afkomend- um þeirra öllum innilegar samúðar- kveðjur þökkum við Friðgeiri ógleym- anlegt samstarf. Minningin lifir um góðan dreng. Pálína Snorradóttir, Guðjón Sigurðsson. Friðgeir smiður er allur. Kvaddur er á braut góður vinur. Bæði bón- og úrræðagóður strákur, roskinn ung- lingur sem vann verk sín af ósérhlífni og gleði. Þessi ljúfi dugnaðarforkur og hag- leikssmiður er kominn í stóru verkin hjá drottni. Engin verk voru of stór eða flókin, vandamálin voru til að leysa þau. Fram á síðustu stund voru verkefn- in leyst, gengið frá og farið heim. Takk fyrir, góði vinur. Kæru vinir; Lóa, Kristján, Gróa, Gottskálk, Rúnar og Össur, megi góð- ur guð gefa ykkur og fjölskyldum ykk- ar styrk við skyndilegt fráfall ástvinar. Kveðja, Guðni og Ebba. FRIÐGEIR KRISTJÁNSSON Hann afi var góður við okkur öll en hann var spræk- ur og hress og hann var mjög góður í smíði en hann átti ekki skilið að deyja strax. En við vorum mjög leið að hann afi dó. En við verðum að vera sterk. Þín afastelpa Katrín Eik Össurardóttir. HINSTA KVEÐJA Í dag 27. janúar 2005 hefði Eggert tengdafaðir minn orð- ið 85 ára en hann lést 5. mars 2004. Í þau 27 ár sem ég þekkti Eggert er margs að minnast og allt eru það góðar minningar. Þegar ég kom fyrst í Hjáleiguna 15 ára gömul efa ég ekki að Eggert hafi fundist ég of ung sem tilvon- andi tengdadóttir en aldrei hafði hann orð á því. Man ég einhverju EGGERT SIGURMUNDSSON ✝ Eggert BenediktSigurmundsson fæddist á Breiðu- mýri í Reykjadal í Suður-Þingeyjar- sýslu 27. janúar 1920. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum á Sel- fossi 5. mars 2004 og var jarðsunginn frá Fossvogskirkju 11. mars. sinni er við vorum tvö heima að Eggert var inni í eldhúsi og var hurðin aftur, heyrði ég þá að miklar samræð- ur áttu sér stað og hélt ég að gestir væru komnir en þegar ég fór inn var Eggert þar einn en í gegn um tíð- ina sá Eggert ýmis- legt sem öðrum er hul- ið og sennilega hefur einhver verið hjá hon- um í heimsókn. Oft sagðist hann hafa fé- lagsskap yfir Hellis- heiðina þegar hann var að koma heim af sjónum. Við Eggert kunnum vel hvort við annað, „hún þegir en hugsar því meira“ sagði hann þegar talað var um hve fámál ég væri og þótti mér afskaplega vænt um það. Eftir að þau hjónin fluttu í Hveragerði leið ekki sú helgi að við færum í heim- sókn. Fyrir fjórum árum tóku þau sig upp og fluttu á Selfoss og urðu þá heimsóknirnar tíðari okkar á milli og var Eggert stundum hjá okkur meðan Unnur var að spila en hann treysti sér ekki, minnið farið að bila og mörgu gleymt. Þá fengu börnin okkar Ásgeirs að kynnast afa betur og þótti þeim mjög vænt um hann. Í veikindum hans var Unnur hans styrka stoð og hugsaði um hann af einstakri ástúð og hlýju. Þegar Eggert fór á Ljós- heima fór hún Unnur á hverjum degi þangað. Lofaði hún umönnun starfsfólks þar mjög. Eggert lést á Ljósheimum 5. mars ’04 en fimm árum áður lést Sigurður bróðir hans frá Hvítárholti þar einnig og bar dánardægur hans líka upp á 5. mars. Eggert hélt mikið upp á Einar Benediktsson skáld og kunni hann heilu kvæðabálkana utan að bæði eftir hann og eins eftir önnur skáld. Útskurður í tré ásamt allri smíða- vinnu lék í höndum hans og margir fallegir munir prýða heimili Unnar, sona þeirra og barnabarna. Með Eggert er genginn mætur maður. Blessuð sé minning hans. Brynhildur Valdórsdóttir. Skemmuvegi 48, Kópavogi. Simi 5576677 www.steinsmidjan.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.