Morgunblaðið - 27.01.2005, Síða 48
48 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Ein vinsælasta myndin í
USA í 4 vikur samfleytt
l
l
Sýnd kl. 10.15.
S.V. Mbl.
Kvikmyndir.com
„Hressir ræningjar“
Fréttablaðið
OCEAN´S TWELVE
S.V. Mbl.
Sýnd kl. 10.30.
Epísk stórmynd sem fólk verður að sjá.
Frá leikstjóranum Oliver Stone.
Kvikmyndir.is
Ian Nathan/EMPIRE
Kvikmyndir.is
Ian Nathan/EMPIRE
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 6, 8.30 og 10.10. B.i. 14 ára.
SÝND Í LÚXUS VIP KL. 8.30.
ÁLFABAKKI
kl. 3.45, 6, 8.15 og 10.30.
AKUREYRI
kl. 6 og 10.
KEFLAVÍK
kl. 8 og 10.10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.45 og 10.
Sýnd kl. 5.45 og 9.
FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTIÐ
H.L. Mbl.
Frá degi til dags
A la petite semaine
sýnd kl. 6. Enskur texti
Einkadætur
Filles Uniques
sýnd kl. 8. Enskur texti
Peningabíllinn
Le Convoyer
sýnd kl. 10. Enskur texti
Sýnd kl. 5.30 og 8. Ísl. texti.
DV
Mbl.
Sýnd kl. 6 og 9.10.
tilnefningar til óskarsverðlauna
þ.á.m. Besta mynd, besti leikstjóri, besti
leikari-Leonardo Dicaprio, bestu aukaleikarar-
Cate Blanchett og Alan Alda.
11
EITT liðanna sem taka munu þátt
í næstu þáttaröð The Amazing
Race – Kapphlaupsins mikla –
mun koma mörgum æði kunn-
uglega fyrir sjónir. Þannig er að
gengið hefur verið frá því að
Amber og Rob úr Survivor-þáttun-
um verði eitt liðanna í sjöundu
þáttaröð Keppninnar miklu sem
hefst í bandarísku sjónvarpi 1.
mars þegar fyrsti þátturinn verður
sýndur.
Amber Brkich sigraði í sérstakri
úrvalsþáttaröð af Survivor þar sem
att var saman nokkrum fyrrver-
andi sigurvegurum og öðrum sem
þótt höfðu sterkir keppendur í
fyrri keppnum. „Boston“ Rob Mar-
iano hafnaði í öðrum sæti á eftir
Amber en svo skemmtilega vildi til
að þau felldu hugi saman á meðan
leikar stóðu sem hæst og opin-
beruðu trúlofun sína að keppni
lokinni. Eins og kunnugt er fékk
Amber að launum eina milljón dala
fyrir að vinna
Survivor en Rob
fékk 100 þúsund dali
fyrir annað sætið.
Nú hyggjast þau
reyna fyrir sér í
Kapphlaupinu mikla,
sem að sögn fram-
leiðanda þáttarins,
er eftirlætis veru-
leikaþátturinn þeirra
á eftir Survivor – að
sjálfsögðu. Beri þau
sigur úr býtum
vinna þau sér inn
aðra milljón dala.
Þá vinnur fram-
leiðandi Survivor,
Mark Burnett, hörðum höndum að
því að fá samþykki þeirra Amber
og Robs fyrir því að sjónvarpað
verði beint frá fyrirhuguðu brúð-
kaupi þeirra. Af greinilegri athygl-
isþörf sjónvarpsparsins góða að
dæma hlýtur það að verða auðsótt
mál fyrir Burnett.
Sjónvarp | Survivor-stjörnur í Amazing Race
Amber og
Rob sólgin í
aðra milljón
Sjónvarpsparið Rob og Amber eru ekki af baki
dottin; ætla nú í Kapphlaupið mikla.
ÍTALSKI tískuhönnuðurinn Val-
entino hélt sýningu í París á
mánudagskvöld. Þema sýning-
arinnar var 37 fegurstu staðir á
jörðinni og
var sýndur
fatnaður
sem hæfði
þessum stöð-
um. Einn
þessara
staða var Ís-
land og túlk-
aði Valentino
landið með
fílabeins-
hvítum fatn-
aði úr silki
með bróder-
uðum blóm-
um.
Umræddir
37 staðir
voru bæði
raunverulegir og ímyndaðir.
Bandaríska borgin Los Angeles
var táknuð með ermalausum silki-
kjól og löngum hönskum og þótti
sá fatnaður minna á leikkonuna
Jean Harlow sem var upp á sitt
besta á fjórða áratug síðustu ald-
ar.
Moskva var túlkuð með gylltri
og ljósri slá yfir hvítum kjól úr
silki.
Tíska | Valentino túlkaði
Ísland með tísku
Fílabeinshvítt
silki með
bróderuðum
blómum
Af lýsingunni að
dæma kann vel að
vera að þessi klæði
séu túlkun Valent-
inos á fegurð Ís-
lands.
BARÐI Jóhannsson tónlistarmaður á
verk á nýrri sýningu sem var opnuð í
síðustu viku á Triennale di Milano-
listasafninu í Mílanóborg í Ítalíu og
nefnist „Dressing Ourselves“ eða „Að
klæða okkur“.
Þar var útvöldum tónlistar-
mönnum, arkitektum, hönnuðum og
listmálurum fengið það hlutverk að
hanna föt á sjálfa sig. Var svo óskað
eftir myndum og málum af lista-
mönnunum svo hægt yrði að útbúa
eftirmynd þeirra í fullri stærð. Síðan
var eftirmyndin, styttan, klædd í föt-
in sem listamennirnir höfðu hannað.
Með öðrum orðum hönnuðu lista-
mennirnir föt á eftirmyndir sínar en
aðrir kunnir tónlistarmenn sem taka
þátt í sýningunni eru Devandra Ban-
hart og Finninn Jimi Tenor. Það er
hönnuðurinn Alessandro Guerriero
sem stendur að sýningunni en hann
er stofnandi Alchimia-hópsins og yf-
irmaður í listaskóla Mílanóborgar
Lærði fatahönnun
„Ég veit ekki hvernig þetta kom til.
Blaðamaður nokkur hafði samband
við mig og spurði mig einfaldlega
hvort ég vildi taka þátt í sýningu sem
vinur hans, yfirmaður listaskólans í
Mílanó, væri að vinna að,“ útskýrir
Barði af sínum einstaka hressleika er
blaðamaður náði tali af honum í gær.
„Síðan viðraði gengi hans hug-
myndina við mig og mér leist vel á.
Ég sendi teikningar og þeir vildu öll
mál í bak og fyrir. Mér fannst þetta
eitthvað svo undarlegt, svo absúrd,
að ég hélt jafnvel að þetta myndi
detta uppfyrir. En svo kom á daginn
að þetta reyndist heljarinnar verk-
efni eins og sýningin og bókin sem
fylgir með gefa til kynna.“
Barði lærði sjálfur fatahönnun í
eitt ár og þótti þetta því kærkomið
tækifæri til að láta ljós sitt skína á því
sviðinu, sem hann segist alltaf hafa
haft nokkurn áhuga á. Aðspurður
hvað hann hefði haft í huga þegar
hann hannaði á eftirmynd sína fötin
sagði Barði:
„Ég hafði einfaldlega að leiðarljósi
eitthvað sem gæti litið vel út, eitthvað
sem myndi hugsanlega gleðja aug-
að.“
Er sýningin hluti af tískuvikunni í
Mílanó og var haldinn sérstakur
blaðamannafundur með þátttak-
endum og skipuleggjendum hinn 17.
janúar og svo var sýningin opnuð síð-
ar þann dag. Mættu um eitt þúsund
manns á opnunina. Einnig var útbú-
inn rúmlega 100 síðna bæklingur um
framkvæmd verkefnisins með mynd-
um og kynningu á hverjum lista-
manni fyrir sig.
Lady & Bird á Listahátíð
Það er annars af Barða að frétta að
hann er að leggja lokahönd á tónverk
fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands sem
flutt verður á Vetrarhátíð í lok febr-
úar.
Þá er Barði um þessar mundir að
leggja lokahönd á plötu sem hann
hefur verið að vinna með Bubba
Morthens og segir hann að nóg sé
framundan, m.a. tónleikahald hjá
Bang Gang.
Einnig stefna þau Keren Ann Mill-
er á að gera nýja Lady & Bird-plötu á
næstunni en þess má geta að Lady &
Bird munu koma fram á Listahátíð í
maí.
Myndlist | Barði Jóhannsson á listasafni í Mílanó
Hannaði
föt á eigin
eftirmynd
www.dressingourselves.com
Barði – eða réttara
sagt eftirmyndin af
Barða – í bún-
ingnum sínum.