Morgunblaðið - 26.02.2005, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Vill gegn-
særri verð-
myndun lóða
ÁRNI Magnússon, félagsmálaráð-
herra, segir að lög um grunn lóða-
verðs verði til þess að gera verð-
myndun fasteigna gegnsærri. Hann
sé ekki að mæla fyrir því að sérstakt
ríkislóðaverð verði fundið upp eins
og komið hafi fram í umræðum.
Þetta fyrirkomulag komi fasteigna-
og lóðakaupendum til góða.
Árni segist vera tilbúinn til við-
ræðna við sveitarfélögin um að skoða
hvort hægt sé að festa í lög hvaða
grunngildi skuli miða við þegar lóðir
séu seldar. Hans skoðun sé sú að
bjóða eigi lóðir sem næst raunkostn-
aði við að gera þær tilbúnar undir
byggingaframkvæmdir.
Þessi grunngildi sem Árni nefnir
geta verið gatnagerðargjöld, tengi-
gjöld, kostnaður sveitarfélaga vegna
kaupa á lóðum og annar kostnaður
til að gera lóðir byggingarhæfar.
Með hliðsjón af þessum gjöldum geti
sveitarfélög látið frá sér lóðir á verði
sem er sambærilegur kostnaði við að
gera þær byggingarhæfar. Þannig
verði líka tortryggni eytt um að hátt
lóðaverð og meint brask fasteigna-
heildsala valdi hækkandi fasteigna-
verði. Gagnsæi sé mikilvægt á fast-
eignamarkaðnum.
Árni segir erfitt að koma í veg fyr-
ir að þeir sem fái lóðirnar selji þær
jafnóðum aftur og hagnist á mismun-
inum.
„VIÐ erum hóflega bjartsýnir,“
sagði Sæmundur Pálsson, Sæmi
rokk, í gær en hann ásamt Guð-
mundi Þórarinssyni og Einari S.
Einarssyni stefndu að því að leggja
af stað til Japans í dag í þeim tilgangi
að aðstoða skáksnillinginn Bobby
Fischer við að losna úr prísundinni,
eins og Sæmi orðar það. Útlendinga-
vegabréfið, sem Útlendingastofnun
hefur nú gefið út, er að sögn Sæ-
mundar komið í hendur sendiherra
Íslendinga í Japan, Þórðar Ægis
Óskarssonar.
„Það er hugmyndin að hitta
[Fischer] og sjá hvort við fáum hann
ekki út úr innflytjendabúðunum,
sem eru hálfgerðar fangabúðir finnst
manni,“ segir Sæmundur. Hann tel-
ur að Fischer geti tekið á móti heim-
sóknum og munu þeir fljótlega eftir
að út er komið fara og hitta hann.
„Skrefið finnst okkur ekki vera al-
veg stigið til fulls. [Vegabréfið] er í
höndum sendiherrans en það er ekki
meiningin að hann færi Bobby það í
fangelsið. Japönsk stjórnvöld vilja
að hann sé með vegabréf áður en
þeir leysa hann úr haldi. Þetta er
einhver pattstaða finnst mér. Þeir
ætla ekki að láta hann lausan nema
hann sé með vegabréf og hinir ætla
ekki að láta hann fá vegabréfið nema
að hann komi í sendiráðið að sækja
það. Ég veit ekki alveg hvað er á
ferðinni.“
Sæmundur segist því hóflega
bjartsýnn. „En maður verður að láta
reyna á þetta fyrst ráðherrarnir
okkar segja að þetta eigi að duga til
að koma honum hingað.“
Fischer hissa
Sæmundur á von á að lögfræðing-
ur Fischer muni vinna í málinu og
reyna að koma skilaboðum milli
sendiráðsins og innflytjendabúð-
anna varðandi vegabréfið. Hann seg-
ir að ekki sé fullreynt að Japanir gefi
Fischer frelsi, viti þeir að vegabréf
bíður hans í íslenska sendiráðinu.
Sæmundur heyrði í vini sínum
Fischer á fimmtudagskvöldið. Hann
segir komu sendinefndarinnar til
Japans leggjast vel í hann. „Hann er
svolítið hissa og spyr hvort menn séu
ekki heilir í þessu og svona. Ég varð
að segja honum það að ég ætti ekki
von á því að það yrði komið með
vegabréfið í fangelsið til hans. Við
yrðum einhvern veginn að reyna að
sannfæra þá um að það væri fyrir
hendi og reyna að fá hann lausan. En
þeir eru ekki fúsir til þess nema að
hann hafi í höndunum vegabréf svo
ég veit ekki hvernig þetta endar.“
Sæmundur og félagar ferðast á
opnum miða sem þýðir að þeir geti
framlengt dvölina í Japan ef þörf
krefur. Þeir stefna annars á að koma
heim 3. mars, vonandi með Bobby
Fischer sér við hlið.
Sæmundur Pálsson um mál Fischers
Hóflega bjartsýnir
KRÓNAN mun lækka vöruverð í öll-
um verslunum sínum í dag, og segja
forsvarsmenn fyrirtækisins það lið í
því að koma á virkari samkeppni á
matvörumarkaðinum heldur en verið
hefur undanfarið og mæta um leið
kröfum viðskiptavina um hagstæðara
vöruverð.
Samkvæmt upplýsingum frá
Krónunni munu mjólkurvörur t.d.
lækka um 3–10%, barnavörur lækka
um 8–10%, morgunkorn lækkar um
allt að 20%, algengar brauðtegundir
um allt að 15%, og epli, appelsínur og
bananar lækka um 15–25%, svo
dæmi séu tekin.
„Við ætlum að lækka verðið veru-
lega, og getum tryggt það að í öllum
helstu neysluvörum heimilisins verð-
um við með vöruverð sem verður
samkeppnishæft við það lægsta sem
gerist á markaðinum á hverjum
tíma,“ segir Sigurður Arnar Sigurðs-
son, forstjóri Kaupáss, sem rekur
Krónuverslanirnar. „Við munum
tryggja að það sé samkeppni á þess-
um markaði og neytendur muni hafa
val um það hvar þeir gera bestu
kaupin.“
Rétt rúmt ár er síðan eignarhalds-
félagið Norvik, sem á og rekur Byko,
Elko og fleiri verslanir keypti
Kaupás, sem rekur Nóatún, 11-11 og
Krónuverslanirnar.
Einn aðili með yfirburðastöðu
Sigurður segir að á þeim tíma hafi
verið unnið að því að endurskipu-
leggja reksturinn, semja upp á nýtt
við birgja og jafnvel hefja milliliða-
lausan innflutning til þess að geta
boðið upp á lægra verð. Þetta geri
Krónu-verslununum kleift að lækka
verð verulega.
„Það sem við erum að gera með
þessu er að stíga afgerandi skref til
þess að auka virka samkeppni á mat-
vörumarkaðinum, sem hefur verið
mjög lítil. Það hefur verið einn aðili
með yfirburðastöðu á þessum mark-
aði og við teljum að það sé ekki staða
sem neytendur eða aðrir á markaðin-
um geta búið við. Við ætlum að leggja
okkar af mörkum til þess að efla sam-
keppnina, til hagsbóta fyrir neytend-
ur,“ segir Sigurður.
„Menn hafa ekki verið jafnöflugir í
samkeppni á þessum markaði eins og
á öðrum mörkuðum sem ég hef kom-
ið að,“ segir Sigurður, en hann hefur
m.a. verið framkvæmdastjóri hjá
Elkó og Byko. „Það er eins og menn
hafi ekki treyst sér í þessa sam-
keppni. Þegar við komum inn í þenn-
an matvörugeira sjáum við ákveðin
tækifæri til þess að sækja harðar
fram og stuðla að virkri samkeppni á
matvörumarkaðinum.“
Spurður hvort búast megi við verð-
stríði á matvörumarkaðinum segir
Sigurður að hann stjórni að sjálf-
sögðu ekki verði hjá samkeppnisað-
ilanum. „En við munum lækka verð á
vörum þannig að við bjóðum á hverj-
um tíma upp á samkeppnishæft verð
og breiðara vöruúrval. Það er bara
stefna sem við höfum tekið og ætlum
okkur að standa við. Krónan er með
þessu að svara kalli neytenda. Við
höfum fengið aukinn meðbyr og auk-
in viðskipti og við viljum koma þeim
árangri ennþá betur til skila til við-
skiptavina, og vonumst til þess að við
fáum inn meiri viðskipti fyrir vikið.“
Krónuverslanirnar hyggjast lækka vöruverð í verslunum sínum verulega í dag
Vilja koma á virkari sam-
keppni á matvörumarkaði
Morgunblaðið/Júlíus
„Við ætlum að lækka verðið verulega,“ segir forstjóri Kaupáss.
FULLTRÚAR frá spænska flugvélaframleið-
endanum Casa héldu kynningu fyrir Land-
helgisgæslumenn í vikunni. Benóný Ásgríms-
son yfirflugstjóri sagði að Landhelgisgæslan
hafi sett sig í samband við fyrirtækið til að
kanna möguleika á að kaupa eða leigja af
þeim flugvél, jafnvel fleiri en eina. TF-SYN
flugvél Landhelgisgæslunnar, af gerðinni
Fokker Friendship F-27, er 29 ára og þykir
brýnt að leysa hana af hólmi. Flugvélar af
Casa-gerð eru víða notaðar við landhelg-
isgæslu og leitar- og björgunarstörf.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lanhelgisgæslumenn fylgjast með kynningu á spænsku Casa-flugvélunum.
Brýnt að leysa
gamla Fokker-
inn af hólmi
Borgarstjóri segir
stefnu borgarinnar ekki
hækka fasteignaverð
Segir óráð-
legt að
setja lög
ÞAÐ er af og frá að stefna Reykja-
víkurborgar í lóðamálum hafi leitt til
hækkunar á fasteignaverði að mati
Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur
borgarstjóra, og segir hún sérfræð-
inga benda á að fasteignaverð hækki
óháð lóðaverði. Hún telur óráðlegt
að setja lög um grunn lóðaverðs eins
og félagsmálaráðherra vill skoða.
„Ég tel að sveitarfélögum eigi að
vera í sjálfsvald sett hvaða aðferða-
fræði þau nota hverju sinni [við út-
hlutun á lóðum], það geta verið mis-
munandi ástæður að baki því hvaða
aðferðir sveitarfélögin nota, og ég tel
alls ekki að það eigi að fara að mið-
stýra því með einhverjum tilskipun-
um frá ráðherra,“ segir Steinunn.
Hún segir Reykjavíkurborg hafa
notað ýmsar aðferðir, lóðum hafi t.d.
verið úthlutað beint til einstaklinga
eða fyrirtækja, þær boðnar út, og
dregið út hver fái úthlutað.
„Ég tel að það sé fyrst og fremst
tveir þættir sem hækki verð, það er
annarsvegar aðgengi að lánsfé, og
hins vegar aukinn kaupmáttur
fólks.“
Ekki tekjulind sveitarfélaga
Félagsmálaráðherra sagði á Al-
þingi að það sé óeðlilegt ef lóðaút-
hlutun sé að verða að sérstakri
tekjulind sveitarfélaganna. „Það eru
engin sveitarfélög að taka einhverja
stórkostlega fjármuni út úr lóðaút-
boðum. Menn verða að hafa það í
huga í þessu samhengi hver sé hin
réttláta aðferð við úthlutun gæða.
Land er takmörkuð gæði, og ég held
að það sé af og frá að sveitarfélög séu
að nota þetta sem tekjulind,“ segir
Steinunn Valdís.
„Það er markaðsverð sem er að
fást fyrir ákveðin gæði, og ég er
þeirrar skoðunar að það sé betra að
sá arður sem verður til við sölu lands
lendi í sjóðum almennings en hjá
byggingarfyrirtækjum eða verktök-
um. Það er alveg gefið mál, segir
Steinunn Valdís Óskarsdóttir borg-
arstjóri.