Morgunblaðið - 26.02.2005, Side 8
8 LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Við vorum nú meiri fíflin að kaupa í gær, við eigum eftir að fá að heyra það frá þessu pakki
að það eigi milljón króna dýrari íbúð.
Flestir vita að öku-menn sem valdatjóni á sjálfum sér,
bíl sínum eða öðrum eign-
um meðan þeir eru undir
áhrifum áfengis þurfa
sjálfir að greiða fyrir tjón-
ið og fá það ekki bætt úr
tryggingunum. Ekki nóg
með það, þeir þurfa líka að
bæta öðrum tjón af þeirra
völdum, hvort sem um er
að ræða líkams- eða eigna-
tjón. Í slíkum tilfellum
bætir tryggingafélag tjón-
þola þeim tjónið en gerir
síðan endurkröfu á hina
drukknu ökumenn. Tjóna-
bætur sem ölvaður öku-
maður getur þurft að greiða geta
numið milljónum króna eða jafn-
vel milljónatugum. Með því að
keyra fullir hætta menn því ekki
bara á að valda sér og öðrum fjör-
tjóni heldur líka á eignamissi og
hugsanlega gjaldþrot.
Það er þó ekki svo að ölvaðir
ökumenn séu gjörsamlega rétt-
lausir í umferðinni. Ábyrgð þeirra
á tjónum er nefnilega undir því
komin að þeir hafi valdið þeim
sjálfir. Ölvaður ökumaður sem er
of fullur til að bremsa á gatnamót-
um og klessir aftan á næsta bíl ber
ábyrgð og kostnað af slysinu. Sé
ölvaður ökumaður hins vegar
kyrrstæður á rauðu ljósi og annar
ökumaður ekur á bíl hans, þá
verður ölvun hans ekki til þess að
hann missi sjálfkrafa rétt á trygg-
ingabótum. Til að hann missi bóta-
rétt verður að vera orsakasam-
hengi milli ölvunarástands og þess
að tjóni er valdið. Þannig er það
líka oftast. Auk þess hvílir sönn-
unarbyrðin um að ölvun hafi ekki
valdið slysinu á ökumanninum
sjálfum og hefur það reynst þeim
erfitt að sannfæra tryggingafélög
eða dómstóla um að það hafi ekki
verið ölvunin sem olli slysinu held-
ur bilaðar bremsur eða bleikur fíll.
Ofangreint á við ölvunarakstur
eða akstur undir áhrifum lyfja al-
mennt. Auðvitað er hugsanlegt að
ölvaður ökumaður eigi sér ein-
hverjar málsbætur sem verði þess
valdandi að tjón hans fáist bætt,
að hluta eða í heild. Örkumlist
ökumaðurinn á hann samt sem áð-
ur rétt á bótum frá ríkinu og hugs-
anlega frá lífeyrissjóði sínum fari
örorka hans yfir 40%.
Betri réttur farþega
Farþegar ölvaðs ökumanns eru
líka í slæmum málum. Allt þar til
tímamótadómur féll í Hæstarétti í
október 2001 voru farþegar sem
vissu, eða máttu vita að ökumað-
urinn var ölvaður algjörlega svipt-
ir bótarétti. Þetta var byggt á
áratugagamalli dómvenju en með
dómnum 2001 var hún lögð á hill-
una.
Málið snerist um tjón sem
stúlka varð fyrir þegar bíll sem
hún var farþegi í skall utan í Vest-
fjarðargöngum með þeim afleið-
ingum að hún slasaðist alvarlega á
handlegg. Miðað við dómvenjuna
hefði hún ekki átt rétt á bótum en í
þessu tilviki komst Hæstiréttur að
þeirri niðurstöðu að bótaréttur
skyldi einungis falla niður að 2⁄3
hlutum.
Í samtali við Morgunblaðið
sagði Viðar Már Matthíasson, pró-
fessor við lagadeild Háskóla Ís-
lands, að með þessum dómi hefði
Hæstiréttur hætt að meðhöndla
slík atvik sem svonefnda áhættu-
töku, en við áhættutöku fellur
bótaréttur niður, en þess í stað
flokkað þau sem meðábyrgð tjón-
þola. Samkvæmt því væri bóta-
réttur skertur hlutfallslega. Í nóv-
ember 2004 dæmdi Hæstiréttur
aftur á sama veg, nema að þar var
bótarétturinn skertur enn frekar
eða um ¾ þar sem það þótti gróf-
ara tilvik.
Í dómnum frá 2001 er breyting-
in útskýrð með skírskotun til rétt-
arþróunar og m.a. vísað til þess að
dómvenju í Danmörku hafi verið
breytt á sömu lund nokkrum árum
fyrr, þ.e. að farþegar missa ekki
lengur allan bótarétt.
Eins og fyrr segir féll það undir
áhættutöku að fá sér far með ölv-
uðum ökumanni. Önnur tilvik sem
falla undir áhættu eru m.a. þátt-
taka í hættulegum íþróttum og
tómstundum s.s. hnefaleikum og
klettaklifri og að sögn Viðars Más
hefur þátttaka í fótboltaleik einnig
verið flokkuð sem áhætta. Þá sé
það ekki endilega ljóst að þó að
Hæstiréttur hafi breytt dóma-
framkvæmd vegna farþega ölv-
aðra ökumanna þýði það að
Hæstiréttur líti aðra áhættutöku
öðrum augum. Um slíkt hafi ekki
enn fallið dómur.
Það er ekki eingöngu við akstur
undir áhrifum áfengis sem réttur
til tryggingabóta getur fallið nið-
ur. Í skilmálum stóru trygginga-
félaganna, VÍS, Sjóvár og Trygg-
ingamiðstöðvarinnar, er alstaðar
að finna ákvæði um að sé tjón rak-
ið til ölvunar eða lyfjaneyslu falli
bótarétturinn niður. Sem fyrr
verður þó að sýna fram á beint or-
sakasamhengi milli ölvunar og af-
leiðinga tjónsins. Á þetta reyndi í
máli sem erfingjar konu sem beið
bana eftir að henni var ýtt með
þeim afleiðingum að hún féll fram
af svölum hótels á Kanaríeyjum.
Hæstiréttur komst að þeirri nið-
urstöðu að ölvun konunnar, ein og
sér, hefði ekki aukið áhættu á að
henni yrði hrint eða félli fram af
svölunum og þurfti TM því að
greiða erfingjum hennar bætur.
Fréttaskýring |Ölvaðir ökumenn ekki
algjörlega réttlausir í umferðinni
Bremsur og
bleikir fílar
Ölvaður ökumaður sem veldur tjóni
þarf að greiða fyrir það úr eigin vasa
Ég held ég gangi heim …
Lögreglan tók 1.764 fyrir
ölvun við akstur árið 2003
Árið 2003 tók lögreglan 1.764
ökumenn fyrir ölvun við akstur á
landinu öllu, heldur færri en árin
á undan. Á hverju ári valda ölv-
aðir ökumenn alvarlegum um-
ferðarslysum. Það er ekki nóg
með að þeir sem aka fullir stefni
sjálfum sér, farþegum sínum og
öðrum vegfarendum í hættu
heldur geta þeir setið uppi með
himinháa reikninga því „stút-
arnir“ verðar sjálfir að bæta þau
tjón sem þeir valda
runarp@mbl.is AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111