Morgunblaðið - 26.02.2005, Side 10

Morgunblaðið - 26.02.2005, Side 10
10 LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Formaður kosinn beint KRISTINN H. Gunnarsson alþing- ismaður leggur til ásamt fleirum á flokksþinginu að formaður Framsóknarflokksins verði kosinn í almennri atkvæðagreiðslu sem fari fram meðal allra fé- lagsmanna. Með því yrði vikið frá hefðbundnu fulltrúafyrirkomulagi og viðhaft beint lýðræði í orðsins fyllstu merkingu. Kristinn sagði þetta veita for- manni skýrt og víðtækt umboð, kæmi í veg fyrir baráttu innan einstakra félaga um fulltrúa á flokksþing og allir framsókn- armenn sem vildu gætu haft áhrif á svo stóra ákvörðun sem val á formanni væri. Geta valið um félag SIV Friðleifsdóttir, alþingismaður og ritari Framsóknarflokksins, upplýsti á flokksþinginu að í kjör- dæmunum þremur á Suðvest- urlandi hefðu í kringum 15–18% framsóknarmanna, sem væru skráðir í félög á starfsvæðinu, lög- heimili utan kjördæmanna. Sagði hún lagagreinar um skráningu í félög túlkaðar mjög opið. Fólk gæti farið í það félag sem það vildi. Kostir og gallar væru við þetta. Siv spurði líka hvort það væri eðlilegt að hægt væri að stofna mörg framsóknarfélög á sama starfssvæði. Það þyrfti að skoða líka í þessu samhengi á flokksþinginu með hugsanlegar lagabreytingar í huga. Vill fækka ráðuneytum ÁRNI Magnússon félagsmálaráð- herra lagði til á flokksþinginu að ráðuneytum yrði fækkað í 6–8. For- sætis-, utanríkis- og mennta- málaráðuneytin fengju að halda sér en nýju ráðuneytin yrðu innan- ríkis-, atvinnu- og velferðarráðu- neyti. Þessi stefna yrði mótuð fyrir næstu kosningar og við tæki ný rík- isstjórn sem skipti með sér verkum eftir nýju skipulagi. Árni sagði koma til álita að ráð- herrar sætu ekki samhliða á Al- þingi en hefðu með sér tvo til þrjá aðstoðarráðherra sem gætu komið úr hópi kjörinna fulltrúa. Skoða matarskatt „VIÐ eigum eftir að taka ákvörðun um að fella niður matarskattinn. Það er vinna sem nú fer fram í rík- isstjórninni og verður skoðuð ásamt fleiri málum í kringum skatt- ana,“ sagði Guðni Ágústsson, land- búnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, á flokks- þinginu í gær. Þetta væri mögulegt í kjölfar einkavæðingar ríkisstjórn- arinnar. EKKI er tímabært að fara í aðildar- viðræður við Evrópusambandið, selja á Símann í heilu lagi með grunnnet- inu, stórlækka á leikskólagjöld, auka á framlög til nýsköpunar og skipa á nefnd um framtíðarskipan raforku- mála. Þetta kom fram í yfirlitsræðu Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráð- herra og formanns Framsóknar- flokksins, á flokksþingi í gær. „Ég tel hvorki tímabært né skyn- samlegt að fara út í aðildarviðræður á þessu kjörtímabili og slíkt væri ekki í samræmi við sáttmála ríkisstjórnar- innar. En við eigum heldur ekki að vera feimin við að ræða málið for- dómalaust í grasrótinni eða hér á flokksþinginu því að ákvörðun um að- ild kann að koma fyrr en seinna,“ sagði Halldór um ESB-umræðuna. Tryggt verði betra dreifikerfi Hann sagðist vita af því að fjöl- margir flokksmen hefðu áhyggjur af því að grunnnetið yrði selt með Sím- anum. Hins vegar hefði það alltaf ver- ið gert þegar ríkissímafyrirtæki hefðu verið seld í Evrópu. Hvergi hefði verið talið heppilegt eða skyn- samlegt að aðskilja grunnnetið frá, hvorki fyrir fjarskiptamarkaðinn né neytendur. Það myndi einnig skapa aukna óvissu um söluna á Símanum og draga úr áhuga fjárfesta. Halldór sagði að með sölu Símans myndi skapast tækifæri til frekari uppbyggingar á fjarskiptaþjónustu og hluti andvirðisins yrði notaður til að tryggja landsmönnum betra dreifi- kerfi. „Ég vil að GSM-kerfið á helstu þjóðvegum verði klárað og skilgreind verði lágmarksþjónusta að því er varðar tölvutengingar, enda skipta slík samskipti gífurlegu máli í þeirri viðleitni að treysta byggð í landinu.“ Einnig ætti að nota söluhagnað Símans til byggingar nýs hátækni- sjúkrahúss Landspítalans og stóran hluta andvirðisins ætti að nota til að fjárfesta í samgöngumannvirkjum. Meira fé fari til rannsókna „Ég er þeirrar skoðunar að við eig- um að stefna að því að ríkið og sveit- arfélögin geri átak í leikskólamálum í því augnamiði að stórlækka gjald- töku,“ sagði Halldór. „Ég tel að stór- lækkun leikskólagjalda væri mikið kjaramál fyrir fjölskyldurnar í land- inu og vil beita mér fyrir því að það verði sem fyrst að veru- leika.“ Formaður Fram- sóknarflokksins sagði nýsköpun í atvinnulífinu mikla og bæri merki um kraft og áræðni. Veita yrði enn hærri fjárhæð- um til rannsókna og ný- sköpunar í framtíðinni. Fjársterkir aðilar á borð við lífeyrissjóðina ættu að sjá sér hag í að leggja áhættufé í sprotastarfsemi og hvetja mætti til þess með breytingum á skattkerfinu. Hyggst Halldór beita sér fyrir því á vettvangi formennsku í vísinda- og tækniráði að framlög til þessa málaflokks verði aukin á næstu árum. „Háskólastarf hefur eflst um allt land og eru nú til dæmis uppi metn- aðarfullar hugmyndir um stofnun há- skóla á Vestfjörðum, sem ég styð og tel að eigi að starfa í góðri samvinnu við aðrar háskólastofnanir í landinu,“ sagði Halldór. Okkar nánustu bandamenn Framsóknarflokkurinn ákvað að skipa sér í sveit þjóða Atlantshafs- bandalagsins sagði Halldór og nán- ustu bandamenn Ís- lendinga á sviði öryggis- og varnarmála væru Bretland og Bandaríkin. „Sem her- laus þjóð þurfum við að rækta þau samskipti vel í baráttunni gegn að- steðjandi hættum. Ef við gerum lítið úr því er- um við að vanrækja þá afstöðu sem flokkurinn tók á viðkvæmum tím- um,“ sagði hann en lagt er til í ályktunardrög- um sem liggja fyrir flokksþinginu að endur- skoða varnarsamnings Íslands og Bandaríkjamanna. „Ég skal vera alveg einlægur og játa að vart líður sá dagur að ég velti ekki fyrir mér þeirri ákvörðun ís- lenskra stjórnvalda að veita pólitísk- an stuðning við innrás Bandaríkja- manna, Breta og fleiri í Írak. Ég er líka einlægur í þeirri afstöðu minni að ég tel að um rétta ákvörðun hafi verið að ræða, bæði í ljósi utanríkisstefnu Íslendinga á undanförnum áratugum og eins í ljósi upplýsinga sem lágu fyr- ir og ég hafði enga ástæðu til að efast um eða rengja,“ sagði Halldór. Stefnt verði á að stór- lækka leikskólagjöld Forsætisráðherra ítrekar að selja eigi Símann í heilu lagi með grunnnetinu Halldór Ásgrímsson bjorgvin@mbl.is Tæplega 850 þingfull- trúar eiga seturétt á flokksþingi Framsókn- arflokksins. Halldór Ás- grímsson, forsætisráð- herra og formaður flokksins, flutti yfirlits- ræðu. Björgvin Guð- mundsson segir að hann hafi m.a. brýnt fyrir flokksmönnum mik- ilvægi þess að standa saman. Sundrung og innanflokksátök voru líka umfjöllunarefni í almennum umræðum á eftir. Morgunblaðið/Golli Viku ekki sæti SIV Friðleifsdóttir, alþingismaður og ritari Framsóknarflokksins, segir ekki rétt sem kom fram í Morgunblaðinu í gær að hún og Una María Óskarsdóttir, formað- ur Landssambands framsókn- arkvenna, hefðu vikið sæti á Landstjórnarfundi í fyrradag þeg- ar tvö ný aðildarfélög í Kópavogi voru samþykkt inn í Framsókn- arflokkinn. „Við vorum báðar á fundinum við umfjöllun málsins. Ég þurfti hinsvegar að fara snemma af fundi til að ná á stjórnarfund á Bifröst í Viðskiptaháskólanum á Bifröst. Una María sat eftir, en var far- in áður en afgreiðslu málsins og fundi lauk þar sem hún var að fara að stýra fundi íþrótta- og tómstundaráðs í Kópavogi. Búið var að hálfu formanns laganefndar flokksins að athuga hvort við hefðum þurft að víkja við umfjöllun um málið. Svo var ekki,“ segir Siv á heimasíðu sinni siv.is. JÓNÍNA Bjartmarz, alþingismaður, sagði í gær það hafa skotið svolítið skökku við í ljósi jafnrétt- isumræðunnar undanfarna mánuði að vera með léttklædda stúlku að sýna magadans á opnunar- athöfninni þótt þetta hefði verið yndislegt innslag sem sýndi inn í ólíka menningarheima. Þetta væri pólitískur vettvangur en ekki yndisþokka sýning. Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi heilbrigð- isráðherra Framsóknarflokksins, stýrði setning- arhátíðinni. Í upphafi söng Karlakór Reykjavíkur nokkur lög en þar á eftir voru dansatriði frá nokkrum löndum. Sagði Ingibjörg að alþjóðlegur blær einkenndi athöfnina að þessu sinni og voru þátttakendur klæddir í þjóðbúninga síns lands. Sýndur var magadans frá Palestínu, þrjár stúlkur sýndu taílenskan dans og búlgarskur dans var einnig í boði. Að lokum sungu stúlkur úr Kársnes- kór Kópavogs, sem voru klappaðar upp. Morgunblaðið/Golli Magadansmær á alþjóðlegri setningarathöfn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.