Morgunblaðið - 26.02.2005, Side 11

Morgunblaðið - 26.02.2005, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 11 FRÉTTIR ÞAÐ var glatt á hjalla þegar hópur fólks frá Fjölmennt, fullorð- insfræðslu fatlaðra, mætti til Hróksmanna og tók skák og gæddi sér á pönnukökum. „Pönnukökur eru einskonar vörumerki Hróks- ins,“ sagði Hrafn Jökulsson, for- maður Hróksins. „Við leggjum mik- ið uppúr því að pönnukökuilmurinn umlyki gesti okkar.“ Margt annað hafa Hróksmenn á sinni könnu því um helgina efna þeir ásamt Íslands- banka til Tívolísyrpu Íslandsbanka 2005 sem haldin verður í höf- uðstöðvum bankans og hefst á sunnudaginn klukkan eitt. Bryndís Ósk Gísladóttir með bókina Skák og mát sem allir fengu. Pönnsur og skák Morgunblaðið/Ómar Í ALMENNUM umræðum á flokksþingi Framsóknarflokksins fjölluðu margir ræðumenn um þær deilur sem hafa verið í kringum flokkinn að undanförnu. Vildu menn leggja áherslu á nauðsyn þess að fólk ynni saman í sátt og samlyndi. Ekki ætti að ýta undir sundrungu meðal samherja. Hjálmar Árnason þingflokksfor- maður reið á vaðið og líkti átökum framsóknarmanna við baráttu múkka um bitana sem féllu frá fiskiskipum þegar gert væri að afl- anum um borð. Sagði hann kjörna fulltrúa flokksins þarna ekki und- anskilda. Fjölmiðlar birtu fréttir af trúnaðarmönnum í stríði hverj- um við aðra. „Flokkur sem hagar sér svoleiðis þarf ekki á óvinum að halda,“ sagði hann og spurði af hverju þetta væri svona: „Getur verið að af því við erum lítill flokk- ur með mikil völd að þá verði margir svo óskaplega hungraðir?“ Deilumál í fjölmiðla Hjálmar taldi upp þau mál sem Framsóknarflokkurinn hefði barist fyrir og spurði hvort það væru þau mál sem framsóknarmenn töluðu um í fjölmiðlum. Svaraði hann því neitandi og sagði persónuleg deilu- mál rata frekar í fjölmiðla. Þetta ætti líka við um þingflokkinn og síðustu tvö ár hefðu verið sérstak- lega erfið. Engum liði vel í ófriði og markvisst hefði verið unnið að því að bæta vinnulagið. Kristinn H. Gunnarsson hefði t.d. verið tek- inn inn í nefndir. Þingflokkurinn væri orðinn lið aftur og sóknar- hugurinn gilti. „Þingflokkurinn er staðráðinn í að halda því að vinna sem samherjar að málefnum en láta þessi persónulegu atriði for- tíðar liggja á milli hluta þó að þau auðvitað gleymist ekki.“ Hvatti til samstöðu Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, hafði áður í yfirlitsræðu sinni rætt um nauðsyn þess að efla samstöðu innan flokksins. Stjórnarandstaðan væri sífellt að reyna að veikja hann. Vissulega hefðu framsóknarmenn sjálfir skapað þeim tækifæri til þess með lítt hugsuðum ummælum sem síðan væru hártoguð og slitin úr samhengi. „Ég tel að deilur innan flokksins séu okkur ekki til framdráttar. Mér er það ljóst að það er ekki létt að ganga fram í umdeildum málum iðulega gegn straumnum. Það getur þó verið hlutverk okkar og skylda að gera einmitt það,“ sagði Halldór og hvatti þingfull- trúa til að sýna samstöðu þó að skoðanaskipti væru eðlileg. „En þegar niðurstaðan er fengin verða allir að ganga fram sem einn mað- ur.“ Hafliði Jósteinsson sagði að ekki ætti að persónugera stjórnmála- baráttuna en framsóknarmenn ættu að svara fyrir sig. „Við skul- um bara gera okkur grein fyrir því að það eina sem hjálpar okkur í framtíðinni og íslensku samfélagi er að við förum einhuga út úr þessum sal með það að markmiði að við höldum áfram að byggja upp þetta land eins og við höfum gert til þessa.“ Sigrún Jónsdóttir sagði að það þyrfti líka að ræða leiðindamálin. „Mér finnst það leiðindamál þegar kjörnir fulltrúar okkar verða fyrir aðkasti og árásum frá eigin flokks- mönnum,“ sagði hún og fylgja þyrfti leikreglum lýðræðisins. Kjörnir fulltrúar flokksins ættu ekki að niðurlægja aðra kjörna fulltrúa sem kjósendur flokksins hefðu valið. „Jafnrétti, samstaða og umburðarlyndi hefur þurft að víkja fyrir sundrunginni, klíku- myndunum og valdabrölti. Þessu verðum við að breyta.“ Hvatti hún Halldór Ásgrímsson til að láta þingflokkinn gera út um sín deilu- mál. Framsóknarfélagi rænt Einar Sveinbjörnsson, formaður sveitastjórnarráðs flokksins, sagði sem dæmi að borgarfulltrúi Fram- sóknarflokksins hefði verið rægður opinberlega af trúnaðarmanni flokksins. Framsóknarfélagi í Kópavogi hefði verið rænt, nýtt fé- lag stofnað fyrir luktum dyrum auk annars félags. „Til að bíta höf- uðið af skömminni tók landsstjórn flokksins undir í þessum skrípaleik með því að samþykkja nýju félögin inn í flokkinn í gær.“ Samstaða hefði verið í eina tíð aðalsmerki Framsóknarflokksins en nú læki allt í fjölmiðla jafnóðum og fundi lyki. „Þessir starfshættir eru lýsandi fyrir það versta í inn- rætingu mannskepnunnar – taki það til sín sem eiga,“ sagði Einar. Snarpar umræður urðu um innan- flokksátök á flokksþinginu í gær Erfið tvö ár hjá þingflokknum Morgunblaðið/Golli Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, heilsar Steingrími Hermannssyni, fyrrverandi forsætisráðherra, við upphaf flokksþings. „MARGAR þeirra kvenna sem nú skipa áhrifastöður í viðskiptalífi og opinberu stjórnkerfi hafa látið þau orð falla að kyn skipti ekki máli og […] að þær séu ekki þar sem þær eru vegna þess að þær séu konur heldur á eigin verðleikum,“ sagði Þorgerður Einarsdóttir í erindi sínu á morgunverðarfundi Lands- sambands framsóknarkvenna í gær. Þorgerður velti því fyrir sér í er- indinu hvað þarna héngi á spýtunni. Hvers vegna því væri þráfaldlega lýst yfir að kyn skipti ekki máli. Hún benti m.a. á að ekki þyrfti annað en að líta í nýlegt rit Hagstof- unnar um konur og karla á árinu 2004 til að finna rök fyrir því að kyn skipti máli. Í ritinu vitnaði hver kafl- inn á fætur öðrum um valdamisræmi kynjanna í samfélaginu. Hún benti einnig á að atvinnuþátttaka ís- lenskra kvenna væri með því mesta sem gerðist í heiminum og að menntunarbili kynjanna hefði verið lokað. „Kannanir sýna hins vegar að konur búa við víðtækar hindranir á vinnumarkaði. Þær búa við glerþak á vinnumarkaði sem lýsir sér m.a. í því að menntun skilar körlum lengra en konum.“ Hún sagði einnig að launamunur kynjanna væri viðvar- andi; rannsóknir sýndu að ekki drægi lengur saman með kynjunum. Þorgerður sagði að menn greindi á um ástæður þessa og fjallaði um nokkrar þeirra. Hugtakið „slæðukona“ Þorgerður sagði að menning- arbundnar hugmyndir um kynin, um karlmennsku og kvenleika, gegnsýrðu öll svið mannlegra sam- skipta; þær bæru uppi hina ýmsu þætti kynjakerfisins. „Stjórnmálin og hið opinbera valdakerfi eru að sjálfsögðu ekki undanþegin menn- ingarbundnum kynjamyndum og orðræðum og þau eiga alveg tví- mælalaust sinn þátt í hægagang- inum og bakslaginu,“ sagði hún. „Við síðustu alþingiskosningar varð til hugtakið „slæðukona“ hjá ungu frjálshyggjudrengjunum í Sjálfstæð- isflokknum. Hugtakið er kannski til- viljun en hliðstæðan við slæðuklædd- ar múslímskar konur lét engan ósnortinn og þetta reyndist líka mjög áhrifarík leið til þöggunar. Enda tókst þeim ætlunarverkið,“ sagði hún, þ.e. að fjölga körlum í efstu sætum á kostnað kvenna. Hún sagði að nú hefðu framsókn- armenn sömuleiðis fengið nýtt hug- tak í sama anda „og það er „hatta- kona“,“ sagði hún. „Og hvað er hattakona? Það er ólýðræðisleg kona með hatt sem drekkur kaffi með hattaklíkunni Freyju í Kópa- vogi, skv. varaþingmanni Fram- sóknarflokksins Guðjóni Ólafi Jóns- syni. Hún hefur af þessu að dæma ekki mikla pólitíska verðleika.“ Þorgerður hélt áfram að tala um verðleika. „Hvað sem fólki kann að finnast um stefnu Framsókn- arflokksins þá hefur hann haft nú- tímalega ásjónu í jafnréttismálum. Í upphafi síðasta kjörtímabils bjarg- aði Framsóknarflokkurinn rík- isstjórninni algjörlega frá kynja- pólitísku gjaldþroti þegar Sjálfstæðisflokkurinn skipaði enga konu í ráðherraembætti. En svo var eins og eitthvað gerðist í Framsókn- arflokknum þegar líða tók á kjör- tímabilið. Það eru líka margir sem furða sig á núverandi ráðherraskipan Fram- sóknarflokksins. Það er athyglisvert hve illa ráðherrarnir dreifast á kjör- dæmin. Það er greinilegt að það er ekki nóg að leiða lista – ekki einu sinni í stóru kjördæmi – og hafa mörg atkvæði á bak við sig til að njóta trausts í ráðherraembætti. Og það vekur auðvitað líka athygli að körlum í öðru sæti er treyst betur en konum sem eru oddvitar í kjör- dæmum. Hvað veldur þessu? Er það ekki besta fólkið sem leiðir listana? Nú veit ég auðvitað að það er til eitt- hvað sem heitir „pólitískt mat“ eins og það var kallað í kringum ráð- herraskiptin 15. september. En það var aldrei útskýrt í hverju það fólst. Og meðan það er ekki útskýrt þá vakna grunsemdir.“ Þorgerður fjallaði því næst um átök framsóknarkvenna í Kópavogi, en tók fram að hún ætlaði ekki að halda því fram að hún skildi þau átök. „Ég held að framsóknarkonur, einkum og sér í lagi Brynjukonur, verði að útskýra málin svolítið betur fyrir almenningi. Ef konur í Brynju ætla sér eitthvað í pólitík, af hverju buðu þær sig ekki fram í stjórn Framsóknarfélags Kópavogs hinn 3. febrúar þegar 250 manna fundur kaus fimm manna hreinræktaða karlastjórn? Felst pólitískur metn- aður kvennanna í Brynju bara í því að skáka öðrum konum í kven- félögum? Og mynda svo nýtt félag ef þær komast ekki í stjórn? Hefði ekki verið táknræn og metnaðarfull jafn- réttisaðgerð að hnekkja karlastjórn- inni í Kópavogsfélaginu? Og þessari spurningu má auðvitað á sama hátt varpa til Freyjukvenna.“ Snýst um völd og valdatengsl Þorgerður sagði að síðustu að málið snerist um völd og valdatengsl ráðandi hópa og jaðarhópa. „Það snýst um yfirráð, forréttindi og við- mið.“ Þorgerður sagði að forsenda þess að hægt væri að ná frekari árangri í jafnréttisbaráttunni væri ekki bara að konur litu í eigin barm og skoð- uðu hvað þær skorti eða gerðu vit- laust, heldur ekki síður að karlar skoðuðu sína stöðu og litu á konur sem jafningja. Einn liður í því væri að skoða, með gagnrýnum augum, hugtakið verðleika og hvernig það væri skilgreint. Hún sagði að ef kyn skipti ekki máli og ef hugmyndir um verðleika væru kynhlutlausar þyrftu konur ekki að afsaka sig með því að þær hefðu náð langt „ekki sem kon- ur heldur á eigin verðleikum“. Morgunverðarfundur Landssambands framsóknarkvenna Hattakonan nýtt hugtak í Framsóknarflokknum? Um sextíu konur og tveir karlar sóttu morgunverðarfund Landssam- bands framsóknarkvenna á Hótel Nordica í gær. Arna Schram hlýddi á erindi dr. Þorgerðar Einarsdóttur, dósents í kynjafræði við HÍ, um kyn, verðleika og samfélagslega þátttöku karla og kvenna. Morgunblaðið/Golli Framsóknarkonur fjölmenntu á morgunverðarfund fyrir setningu flokks- þingsins í gær. Siv Friðleifsdóttir þingmaður er fremst á myndinni. arna@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.