Morgunblaðið - 26.02.2005, Page 25

Morgunblaðið - 26.02.2005, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 25 MINNSTAÐUR Vestmannaeyjar | Léttir, lítill snattbátur í eigu Vestmanna- eyjahafnar, er líklega elsti vél- bátur á Íslandi sem enn er í notk- un. Léttir var smíðaður í Svíþjóð en hingað til lands kom hann með Dronning Alexandrine frá Dan- mörku og var settur á land í Vest- mannaeyjum hinn fjórða febrúar 1936. Ekki var hann stór, aðeins fimm brúttó rúmlestir, og vélin 25 hestafla af Skandia-gerð. Hann hefur tekið ýmsum breytingum í gegnum árin til að gera hann hæf- ari til að þjónusta höfnina. Skipt var um vél í honum 1948 og var hún af gerðinni Caterpillar. Aftur var skipt um vél 1975 og er hún af sömu gerð en stærri og betri. Ágúst Bergsson, skipstjóri á Lóðsinum, sem er stóri bróðir Léttis, segir hann enn í fullu fjöri og er hann mikið notaður í alls konar snatt innan hafnar og utan. „Léttir er frábært sjóskip og al- veg ótrúlegt hvað búið er að gösl- ast á honum á þessum 70 árum. Auðvitað er hann farinn að láta á sjá en hann stendur fyrir sínu. Einu sinni fór ég á honum inn fyr- ir Eiði að ná í áhöfn á togara sem var að fara í siglingafrí. Það var austan bræla og á leiðinni í land ákvað ég að láta karlana finna að- eins fyrir því. Ég hef aldrei séð aðra eins skelfingu á nokkrum mönnum. Það virðist vera hægt að bjóða honum allt þó ekki sé hann traustvekjandi að sjá fyrir ókunnuga.“ Þegar stóri bróðir hefur verið í slipp eða skveringu hefur stund- um reynt á litla bróður og þá hafa skottúrarnir stundum verið nokk- uð langir í annan endann. „En þarna hefur gæfan verið okkur hliðholl eins og í öllu okkar slarki,“ sagði Ágúst að lokum. Sjötugur og enn í fullu fjöri Morgunblaðið/Sigurgeir Afmæli fagnað Það var boðið upp á veislu á hafnarskrifstofunni og þar voru þeir mættir Óli Sveinn Bernharðsson vélstjóri, Gísli Einarsson hafn- arvörður, Ólafur Kristinsson hafnarstjóri og Ágúst Bergsson skipstjóri. LANDIÐ Lágheiðin mokuð í byrjun góu Fljót | Vegurinn um Lágheiði milli Fljóta og Ólafsfjarðar var mokaður í byrjun vikunnar og telst nú fær öll- um bílum en þungatakmörk miðuð við 5 tonna öxulþunga voru þó strax sett á veginn. Lítill snjór var á heið- inni þegar hún var mokuð og tók að- eins fáar klukkustundir að opna hana með öflugum snjóblásara. Undanfarnar vikur hafa menn far- ið yfir heiðina á þokkalega öflugum bílum og var þá ekið sumstaðar á hjarni. Það gerist nú sífellt algeng- ara að Lágheiðin sé opnuð yfir há- veturinn enda hafa tveir síðustu vet- ur verið snjóléttir þrátt fyrir að komið hafi illviðriskafli í byrjun jan- úar. Meðan heiðin er fær þurfa Sigl- firðingar „aðeins“ að aka 120 kíló- metra til að komast til Akureyrar en þegar fara þarf um Öxnadalsheiðina er leiðin um 200 kílómetrar.    Hafna sölu Símans | Stjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Sveitarfélaginu Skagafirði hafnar alfarið fyrirætlunum rík- isstjórnarinnar um sölu Símans og krefst þess að það ferli verði stöðvað þegar í stað. Jafnframt verði kann- aðir möguleikar á að sameina fjar- skiptagrunnnet Símans, Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjunar í eitt landsnet sem verði í eigu ríkis og sveitarfélaga. Landsnetið verði opið öllum aðilum í fjarskiptaþjónustu og nái til allra landsmanna. Í yfirlýsingu sem félagið hefur sent frá sér segir að Síminn ásamt grunn- neti sínu sé eitt mikilvægasta þjón- ustufyrirtæki landsins. Hann standi á traustum grunni og hafi unnið að því að byggja upp góða þjónustu um allt land. Síminn hafi yfir miklu afli að ráða sem nýst geti til að bæta þjón- ustuna enn frekar með eflingu far- símakerfisins og gagnaflutninganets- ins jafnt í dreifbýli sem þéttbýli. Það liggi því beint við að styrkur Símans og ágóðinn af starfseminni verði not- aður til þess að efla þessa þjónustu. Verði Landsíminn seldur ásamt grunnnetinu telur félagið að sam- keppnin muni fyrst og fremst snúast um þéttbýlustu svæði landsins en fólk í öðrum byggðarlögum muni standa frammi fyrir háum notendagjöldum og einangrun á sviði nútíma fjar- skipta. Sala Símans yrði þá enn ein atlaga stjórnvalda gegn búsetu og at- vinnuskilyrðum á landsbyggðinni.    Samspil í Danmörku | Þrír ungir nemendur tónlistarskólans á Hólma- vík hafa verið valdir til að taka þátt í norrænu samspili í Årslev í Dan- mörku í apríl næstkomandi. Þeir hafa allir stundað námið vel. Nem- endurnir eru Indriði Einar Reyn- isson, Jón Örn Haraldsson og Börk- ur Vilhjálmsson. Með þeim í för verður Bjarni Ómar Haraldsson tón- listarkennari. Þetta verður í fyrsta sinn sem tónlistarskólinn tekur þátt í þessum norrænu tónlistardögunum ásamt nemendum frá tónlist- arskólum í vinabæjunum Årslev í Danmörku og Tanum í Svíþjóð. ERTU Á LEIÐ Í LEIFSSTÖÐ? Alltaf 25% ódýrari gleraugu og linsur í stað 19,68% vsk. áður w w w . o p t i c a l s t u d i o . i s

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.