Morgunblaðið - 26.02.2005, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 29
FERÐALÖG
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.975 vikan
Bílaleigubílar
Sumarhús í
DANMÖRKU
www.fylkir.is sími 456-3745
Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
(Afgreiðslugjöld á flugvöllum.)
Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna
og minibus, 9 manna og rútur með/
án bílstjóra.
Sumarhús
Útvegum sumarhús í Danmörku af
öllum stærðum, frá 2ja manna og
upp í 30 manna hallir. Valið beint af
heimasíðu minni eða fáið lista.
Sendum sumarhúsaverðlista;
Dancenter sumarhús
Lalandia orlofshverfi
Danskfolkeferie orlofshverfi
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Ferðaskipulagning.
Vegakort og dönsk gsm-símakort.
Fjölbreyttar upplýsingar á
heimasíðu; www.fylkir.is
www.gisting.dk
sími: 0045 3694 6700
Ódýr og góð gisting
í hjarta Kaupmannahafnar
12 daga hágæðaferð undir leiðsögn Ingólfs Guðbrandssonar 9.-20. júní
Dýrmætt tækifæri ungs fólks á öllum aldri
til að kynnast dýrgripum í tónlist, mynd-
list, byggingalist og sviðslistum í háborgum
menningar Evrópu, sem höfða sterkt til Ís-
lands, einangruðust, en eru nú endur-
reistar af dýnamískum krafti og partur af
nýrri heimsmynd okkar tíma. Nýliðnir
heimsviðburðir verða ljóslifandi eftir end-
urreisn og sameiningu Þýskalands
DRESDEN - 3 dagar að skoða djásn heimsins í FLÓRENS
við ELBU, hátindar barrokksins í fegurð vorsins, Zwinger
eitt frægasta listasafn heims, Semperóperan og allar fræg-
ustu gersemar einnar fegurstu borgar heims aðeins
steinsnar og í léttu göngufæri frá gististað okkar, 5 stjörnu
KEMPINSKI, einu besta hóteli heims. Njóttu lífsins á þess-
um stað!
LEIPZIG - 3 dagar í hjarta mestu tónlistarborgar heims í
aldir, borg meistara Jóhanns Seb. Bachs, Wagners, Mend-
elssohn og fjölda tónsnillinga, þar sem frumkvöðlar íslenskr-
ar tónlistar sóttu menntun sína á fyrri hluta 20. aldar, Jón
Leifs, Páll Ísólfsson, Árni Kristjánsson og fjöldi annarra
listamanna, s.s. Jóhann Jónsson, Halldór Laxness o.fl. Nú er
sambandið opnað að nýju við þessa heillandi menningar-
borg með sterk tengsl við íslenska menningarsögu. Thoman-
erkirkjan, Nikolaikirkja og saga Bachfjölskyldunnar. Hið
nýja Gewandhaus, eitt besta konserthús nútímans, Auer-
bachskjallarinn, þar sem Göthe lætur atriði úr Fást gerast.
Gisting: 5 stjörnu MARRIOTT í hjarta borgarinnar.
BERLIN - 5 dagar á nýja Filmstjörnuhótelinu við frægustu
götu Vestur-Berlínar, Kurfurstendamm. Nú eru 15 ár liðin
frá því Múrinn féll. Brandenburgarhliðið var tákn klofnings
og Kalda stríðsins, en varð nú sameiningartákn Evrópu, sem
hefur gjörbreyst. Hvergi í heiminum hefur orðið slík upp-
bygging á okkar tímum. Í augum þeirra, sem þekkja Berlín
er hún framúrstefnu höfuðborg heimsins í dag. Vestur- og
Austur-Berlín skoðaðar undir leiðsögn. Óperur, kabarettar,
tónleikar, listasöfn og lífskúnstin í tilbrigðum regnbogans.
TILHÖGUN: Beint flug Flugleiða til og frá Berlín með
sköttum. Allur akstur með lúxusvagni milli BERLIN-DRES-
DEN-LEIPZIG-BERLIN. 5 stjörnu hótel með fullum morg-
unverði og kynnisferðir.
KYNNING OG SALA:
GRAND HÓTEL REYKJAVÍK, su. 27. feb. kl. 16-17. Ath.
aðeins 20 laus sæti. Verða seld þeim sem fyrst panta með kr.
25 þús. staðfestingargj. á mann. Verð á mann í tvíb. með 20
þús. kr. afsl. kr. 139.990. Tilboðið gildir aðeins til 1. mars.
FERÐAKLÚBBUR INGÓLFS
HEIMSKRINGLA - s. 861 5602
Í samvinnu við PRÍMU-EMBLU
Stangarhyl 1 - s. 511 4080 (Sigríður)
NÝ ÓSKAFERÐ UNNENDA LISTA OG SÖGU
DRESDEN - LEIPZIG - BERLIN
Lilja Hilmarsdóttir kom fyrsttil Búdapest árið 1983 ogtók þegar ástfóstri við borg-
ina. Hún kom þangað næst 1989 og
hefur margsinnis komið þangað síð-
an, bæði ein og sem fararstjóri. Hún
hefur því fylgst
með þeim breyt-
ingum sem átt
hafa sér stað í
borginni eftir fall
kommúnismans.
„Borgin hefur
breyst gífurlega
mikið, en Ung-
verjar voru
kannski best
búnir undir þessa
breytingu því
leyft hafði verið ákveðið einka-
framtak. Í Búdapest upplifði ég allt
annað andrúmsloft en til dæmis í
Prag,“ segir Lilja.
Glæsilegt óperuhús
„Það sem einkennir Búdapest eru
glæsilegar byggingar sem reistar
voru á árunum 1870 fram að fyrri
heimsstyrjöldinni. Ungverjar eiga
sér að mörgu leyti líka sögu og við
Íslendingar. Þeir voru lengi undir
erlendri stjórn en gerðu uppreisn
árið 1848 og fengu þá ákveðna sjálf-
stjórn. Þá rann upp blómatími í
landinu og þeir reistu margar af fal-
legustu byggingunum í borginni.
Þessar fallegu byggingar voru orðn-
ar mjög skítugar og eftir 1989 var
hafist handa við að hreinsa þær,
laga götur og hreinsa alla borgina.
Fallegasta húsið finnst mér vera
Óperan, sem er eitt glæsilegasta
óperuhús í Evrópu. Að fara í Óp-
eruna í Búdapest er hrein upplifun
og mæli ég með að sem flestir geri
það.“
Annað sem heillaði Lilju er fram-
andleikinn í borginni. Landinu var
eitt sinn stjórnað af Tyrkjum og því
gætir austurlenskra áhrifa í menn-
ingunni, ekki síst tónlistinni.
„Ég elska tónlistina í Ungverja-
landi,“ segir hún, „og það er frá-
bært að hlusta á seiðmagnaða tón-
list sígaunahljómsveitanna sem
maður heyrir í víðsvegar um borg-
ina. Og það er ekki síst tónlistin sem
dregur mig til sín. Tónlistin er svo
rík í Ungverjum. Þar byrjar tónlist-
arkennsla strax í leikskólum.“
Lilja bendir líka á frábær söfn í
borginni sem gaman er að skoða.
Ríkislistasafnið er til dæmis talið
meðal bestu listasafna í Evrópu,
segir hún. Þrátt fyrir að borgin sjálf
sé í miklu uppáhaldi hjá Lilju segir
hún nauðsynlegt að komast út fyrir
hana og út á sléttuna. „Frumbyggj-
arnir, magyarar, námu land í Ung-
verjalandi um svipað leyti og Ing-
ólfur Arnarson kom til Íslands. Þeir
komu úr Úralfjöllum og á sléttunni
er hægt að kynnast menningu
þeirra, reiðlist og matargerð.“
Lilja segir að alveg óhætt sé að
smakka matinn, enda maturinn í
Ungverjalandi með eindæmum góð-
ur. „Ég hef borðað allan mat. Gæsa-
lifur með tokaj-sósu er í algjöru
uppáhaldi hjá mér. Tokaj er kon-
ungur vínanna, en ungversku vínin
eru á heimsmælikvarða og víngerð
sú iðngrein sem sífellt vex fiskur um
hrygg.“
Söngnemar á veitingahúsinu
Lilja segir marga góða veitingastaði
í borginni. Uppáhaldsstaðurinn er
Bel Canto í Pest, við hliðina á Óp-
erunni. „Þarna eru margir þjónanna
söngnemar og maður fær að hlusta
á yndislegan söng þeirra á veitinga-
staðnum,“ segir hún. Annar veit-
ingastaður er einnig í miklu uppá-
haldi hjá henni, en það er Kiraly í
Búda. Þar er sungið og dansaðir
ungverskir dansar.
„Í Ungverjalandi er sérstaklega
yndislegt, elskulegt og gott fólk sem
ég hef verið svo heppin að kynnast á
ferðum mínum. Mér líður einstak-
lega vel í Búdapest. Maður verður
að sjá Búdapest með hjartanu eins
og litli prinsinn. Maður verður að
skynja.“
UPPÁHALDSBORGIN | Búdapest
Morgunblaðið/Ómar
Konungshöllin við Dóná í Búdapest.
Seiðmögnuð
tónlist og
yndislegt fólk
asdish@mbl.is
Uppáhaldsstaður Lilju
Hilmarsdóttur er Búda-
pest. Hún komst að
þessari niðurstöðu eftir
nokkra umhugsun enda
hefur hún ferðast um
allan heiminn og heldur
upp á marga staði.
Lilja
Hilmarsdóttir
Heimsmeistaramót
íslenska hestsins 2005
Heimsmeistaramót íslenska hestsins
2005 verður haldið í Norrköping í Sví-
þjóð dagana 1.–8. ágúst nk. Úrval Út-
sýn stendur fyrir hópferð á viðburðinn.
Norrköping er 130 þúsund manna
borg 140 km suður af Stokkhólmi. Í
ferðinni verður einnig boðið upp á
dagsferð með Þorleifi Friðrikssyni
sagnfræðingi. Þar verður blandað
saman sögu og menningu og siglt um
Götakanal-skipaskurðinn.
Gönguferð í Pýreneafjöllum
Dagana 7. ágúst–3. september nk.
standa ÍT ferðir í fjórða sinn fyrir
göngu í Pýreneafjöllunum. Lagt verður
upp frá Torla í Aragon og m.a. verður
gengið um Ordesa-þjóðgarðinn og um
Rolando-skarðið til Frakklands þar
sem gist verður í
tvær nætur. Farið verður upp í yfir
3.000 metra hæð. Leiðsögumenn
verða innfæddir en fararstjóri er Hjör-
dís Hilmarsdóttir. Ferðin er með fullu
fæði.
Árgerði stefnir að vottun
Árgerði í Svarfaðardal, sem býður
bæði gistingu og afþreyingu innan vé-
banda Ferðaþjónustu bænda, hefur
nýverið náð viðmiðum Green Globe
21-umhverfismerkisins. Unnið hefur
verið að þessu markmiði í rúmt ár, en
næsta skref er að vinna að því að fá
vottun Green Globe 21, alþjóðlegra
umhverfismálasamtaka sem stuðla að
þróun sjálfbærrar ferðaþjónustu.
Heimamenn í Árgerði hafa lagt mikla
vinnu í að mæla viðmið vegna orku- og
vatnsnotkunar, sorpmyndunar og
förgunar og að samþættri umhverfis-
og samfélagsstefnu.
Á Íslandi er einn áfangastaður og 33
fyrirtæki aðilar að Green Globe 21, þar
af eru 28 fyrirtæki innan Ferðaþjón-
ustu bænda. Háskólinn á Hólum í
Hjaltadal er úttektaraðili fyrir Green
Globe 21 hér á landi.
www.urvalutsyn.is
ÍT ferðir
Sími 588 9900
www.itferdir.is