Morgunblaðið - 26.02.2005, Side 33

Morgunblaðið - 26.02.2005, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 33 UMRÆÐAN Sögnin bera er býsnamargbrotin í notkun aðþví leyti að hún er ýmistnotuð persónulega (ég skal bera pokann) eða ópersónu- lega (mig bar þar að sem …; mér ber að segja satt). Í flestum til- vikum leikur þó enginn vafi á því hvernig hún er notuð. Flestir munu t.d. vera sammála um að rétt er að segja e-m ber (engin) skylda til e-s og brýna nauðsyn ber til e-s. Orðasambönd þessi eiga sér rætur í fornu máli og notkun þeirra hefur verið í föst- um skorðum í nokkur hundruð ár. Í nútímamáli má þó heyra og sjá annars konar notkun, t.d. e-m ber skyldu til e-s, e-n ber skylda til e-s og brýn nauðsyn ber til e-s. Sem dæmi um fyrstu tvö atriðin má nefna: Telur J. sig [þ.e. sér] ekki hafa borið skylda til þess að bera ráðninguna undir B. (Mbl. 30.12.04); J. telur sig [þ.e. sér] ekki hafa borið skyldu [þ.e. skylda] til þess að … (Mbl. 30.12.04) og enda hafi hann ekki talið sig [þ.e. sér] bera skyldu [þ.e. skylda] til þess að … (Mbl. 31.12.04). Eins og sjá má á dæm- unum er hér allt látið reka á reið- anum, og fallstjórn er ekki í sam- ræmi við málvenju. Innan hornklofa eru tilgreindar þær orðmyndir sem eðlilegar má telja. Það er reyndar nokkuð auðséð hvað ruglingnum veldur í áð- urnefndum dæmum. Í fyrsta lagi mun það vera sögnin telja (telja sig) sem hefur þau áhrif að þf.- myndin sig er notuð í stað þgf.- myndarinnar sér. Í öðru lagi mun orðasambandið brýna nauðsyn ber til e-s [< e-m ber brýna nauðsyn til e-s] valda því að þf.- myndin skyldu er (ranglega) not- uð í stað nf.-myndarinnar skylda. – Til gamans má geta þess að orðasambandið (brýna) nauðsyn ber til e-s mun vísa til hlutkestis, þess er hlutir voru bornir í skaut (‘dúk’) en þá gat hlut borið svo og svo til. Það er alkunna að fjölmargar sagnir geta stýrt tveimur ólíkum föllum og er þá jafnan um skýran merkingarmun að ræða. Þannig er eitt að ausa bátinn en annað að ausa vatninu og með sama hætti getum við sópað stéttina eða sóp- að ruslinu. Merkingarmunurinn er skýr. Í fyrra tilvikinu er oft talað um beint andlag (þf.-andlag) sem ‘hreyfist ekki’ en í síðara til- vikinu er um að ræða óbeint and- lag (þgf.-andlag) og það ‘hreyfist’ ef svo má að orði komast. Í sam- ræmi við þessa ‘reglu’ segjum við jafnan blása e-m e-u í brjóst en síður: gera viðskipti þegar andinn blæs mönnum það í brjóst (Mbl. 30.12.04), við getum blótað þorr- ann en segjum ekki: (nema í allt annarri merkingu) þorranum er nú blótað undir berum himni (6.2.2005) og við slítum band/ kaðal og slítum ráðstefnu, trúlof- uninni, fundi en segjum helst ekki: varð það til þess að Kúveitar slitu öll samskipti við Palest- ínumenn (Mbl. 13.12.04). Þótt Ísland liggi á hjara veraldar hafa Íslendingar aldrei verið einangraðir að því er menningu varðar. Við höfum þvert á móti lagt umtalsvert af mörkum, t.d. á sviði bókmennta, og við höfum ávallt borið gæfu til að aðlaga er- lenda menningarstrauma að ís- lensku og íslenskum aðstæðum. Þannig nýttu Íslendingar sér nýja tækni er ritöld hóf innreið sína á Íslandi (á 11. öld) og sama á við um prenttæknina á 16. öld. Menn- ingarsaga okkar sýnir ótvírætt að Íslendingar hafa allt frá 12. öld verið býsna sammála um það sem kalla má málstefnu: Á Íslandi skyldi töluð og rituð íslenska, – eða: Það er sama hvert efnið er um það skal fjallað á íslensku. Til vitnis um það eru m.a. umfangs- miklar þýddar bókmenntir, vita- skuld auk frumsaminna rita og annarra bókmenntagreina á ís- lensku. Jónas Hallgrímsson þýddi danskt rit um stjörnufræði á ís- lensku og þurfti þá að búa til mörg ný íslensk orð og klæða framandi hugsun í íslenskan bún- ing. Dæmi af þessum toga eru fjölmörg. Það var því engin til- viljun að við eignuðumst þegar á 16. öld fyrstu heildarþýðingu Biblíunnar á íslensku (Guð- brandsbiblíu, 1584). Vafalaust hefði verið auðveldara að spara sér ómakið og nota erlenda texta við guðsþjónustu og þá leið kusu reyndar ýmsar þjóðir. En í raun kom það aldrei til greina hér á Ís- landi, Íslendingar voru góðu vanir í þessum efnum. Um þessar mundir er talsvert rætt um beinar útsendingar ensku knattspyrnunnar og sýnist þar sitt hverjum. Sumum finnst óþarft að hafa íslenska þuli eða skýringartexta en öðrum finnst sjálfsagt að farið sé að lögum um þetta efni. Enn aðrir telja að þar sem hér sé um þröngt svið að ræða skipti ekki miklu máli þótt útsendingar séu á ensku. Í Morg- unblaðinu 13. febrúar var fjallað allrækilega um þetta efni og þar segir: ‘Guðrún [Kvaran], sem jafnframt er prófessor í íslensku við Háskóla Íslands og for- stöðumaður Orðabókar Háskól- ans, segir útsendingar á knatt- spyrnuleikjum með lýsingum enskra þula vissulega geta verið ógn við íslenska tungu, sér- staklega þar sem leikir eru sýndir nokkrum sinnum í viku og börn eru meðal áhorfenda.’ Umsjón- armaður tekur undir þessa af- stöðu, einkum hvað börnin varðar. Knattspyrna er vinsæl íþrótta- grein á Íslandi og ætla má að börn og unglingar fylgist talsvert með útsendingum knattspyrnu- leikja. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft og aðeins það besta er nógu gott fyrir þá kynslóð sem mun erfa landið. Úr handraðanum Flestir munu þekkja orða- sambandið fá e-n ofan af e-u í merkingunni ‘fá e-n til að hætta við áform sitt’, t.d.: Hann skal aldrei fá mig ofan af því að kæra málið fyrir lögreglunni eða hann leitaðist með öllu móti við að fá hana ofan af slíkri fásinnu. – Í fornu máli er orðasambandið telja e-ð ofan kunnugt í sömu merk- ingu, t.d.: þessarar fyrirætlanar Gorms konungs verður Þyri drottning vör og taldi ofan þessa fyrirætlan = taldi ófallið þetta ráð konungi (sami texti, annað handrit). Vísunin er augljós, sbr. telja/fá e-n á e-ð andstætt telja/fá e-n ofan af e-u og enn fremur fara ofan af e-u ‘hætta við e-ð (ásetning, fyrirætlun)’. Það er alkunna að fjölmargar sagnir geta stýrt tveimur ólíkum föllum og er þá jafnan um skýran merkingarmun að ræða. jonf@hi.is ÍSLENSKT MÁL Jón G. Friðjónsson 46. þáttur Í UMRÆÐU um bann við tóbaks- reykingum á veitinga- og skemmtistöðum kveður við skrýt- inn tón. Rætt er um almenna verslun og þjón- ustu þannig að hver og einn megi ráða því sem fram fer inni á sínum stað. Sú er alls ekki raunin. Sjálfur rek ég litla jógastöð. Ef sturturnar eru ekki nægilega hreinar getur Heilbrigðiseftirlitið sent mér áminningu. Ef klóakið er opið og rennur yfir mitt gólfið geta þeir lokað stöðinni. Ekki að mig langi til að hafa opið klóak, ég legg mig fram um að hafa hreint fyrir mína viðskiptavini. Málið snýst hins vegar um það að ég ræð ekki öllu sem ég geri í mínu eigin fyrirtæki ef ég ætla að bjóða upp á þjónustu fyrir almenning. Til eru ótal reglugerðir um hrein- læti, t.d. við framleiðslu og fram- reiðslu matvæla. Einnig má nefna reglur um brunavarnir, verðmerk- ingar og margt fleira. Til þess að geta boðið upp á þjónustu þarf að fara eftir ákveðnum reglum. Við sem bjóðum slíka þjónustu ráðum ekki öllu því sem gert er innan okkar fyrirtækja. Því er með ólík- indum að leyft sé að reykja á stöð- um þar sem boðið er upp á þjón- ustu við almenning. Óbeinar reykingar hafa mun skaðlegri áhrif á heilsuna heldur en opið klóak, hár eða hor í matnum og óhreinar sturtur. Alþingismenn ættu því að sýna fullkomna sam- stöðu með frumvarpi heilbrigð- isráðherra ef þeir vilja standa við allar aðrar takmarkandi reglu- gerðir sem þeir hafa samþykkt á þjónustuaðila hér á landi. GUÐJÓN BERGMANN, áhugamaður um tóbaksvarnir. Heilbrigðiseftirlitið lokar Frá Guðjóni Bergmann: Guðjón Bergmann BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is UNDANFARIÐ hefur borið tals- vert á umfjöllun í fjölmiðlum um gildi hreyfingar fyrir almenning. Sú umræða kemur ekki til af góðu einu saman. Nútíma lifnaðarhættir sem m.a. fela í sér meiri fæðu- inntöku en orkubrennslu hafa því miður leitt til þess að þjóðin er að fitna. Börn og fullorðnir hreyfa sig minna en áður og fylgikvillar hreyfingarleysis hafa óhjákvæmi- lega gert vart við sig hjá þjóðinni. Þrátt fyrir þessar staðreyndir held ég að aldrei hafi verið jafn- margar líkamsræktarstöðvar reknar og nú og aðsóknin í þær virðist ágæt. Þversögnin ligg- ur í því að á sama tíma og við ætlum að taka okkur á og hefj- um þjálfun í lík- amsræktarstöð með nauðsyn- legri aðstoð einkaþjálfara, minnkum við það sem áður kallaðist eðlileg hreyfing frá einum stað til annars þá oftast á tveimur jafnfljótum. Við keyrum á okkar einkabílum upp að dyrum í líkamsræktinni, keyrum börnin í skólann, á íþróttaæfinguna/ keppnina o.s.frv. Hvers vegna nýt- um við ekki þau tækifæri sem við höfum til líkamsræktar í nánasta umhverfi okkar? Í stað þess að fara með börnin í gæslu fyrir framan myndbandstækið í rækt- inni væri kannski möguleiki að fara út með börnunum á snjóþotu, út að ganga, í sund eða út að hjóla. Aðstaða til útiveru hefur batnað til muna undanfarin ár með tilkomu fjölmargra göngu- stíga innan og rétt utan við borg- armörk. Auðvitað mætti enn bæta og nægir þar að nefna fjölgun hjólreiðarstíga til að auðvelda al- menningi að komast um hjólandi. Við erum líka stöðugt minnt á nýjungar í heilsurækt og hvernig við getum haldið okkur í formi. Nýjar aðferðir skjóta upp koll- inum samhliða nýjum megrun- arkúrum. Nýjasta bólan varðandi þjálfun er líkamsrækt fyrir ung- börn, frá móðurkviði og upp að 6 ára aldri. Öll viljum við veita börnum okkar það besta, en hvað er það besta? Samkvæmt blaða- grein sem birtist nýlega í Morg- unblaðinu er lausnin líkamsrækt. Þjálfun til að örva heilafrum- urnar, ekki bara til bættrar hreyfigetu heldur líka til betri fé- lagsþroska og aukinna námshæfi- leika. Gengur viðmælandi blaðsins svo langt að segja að sannað hafi verið að hreyfimeðferð í frum- bernsku geti haft góð áhrif á lestrar- og skriftarhæfileika síðar meir. Svipaðar kenningar voru áberandi hér á Vesturlöndum fyr- ir nokkuð löngu en mér vitanlega hefur aldrei verið vísindalega sýnt fram á þetta orsaka- samhengi. Staðhæfingar sem þessar geta hinsvegar auðveld- lega aukið á sektarkennd og þrýsting á foreldra um að standa sig betur í uppeldishlutverkinu. Að sjálfsögðu tel ég mikilvægt að börn fái örvun til hreyfingar en held samt ekki að það sé nauð- synlegt að kaupa þjálfunarkort á líkamsræktarstöð fyrir nýbura. Ungbörn hafa þörf fyrir ró, um- hyggju, hlýju, athygli, næringu, hvíld, stöðubreytingar en umfram allt annað náin tengsl við sína nánustu (oftast foreldra). Í flest- um tilfellum þróast samband for- eldra í takt við þroska og aldur barnsins og ekki er þörf á aðstoð utanaðkomandi í þeim efnum. Sé hinsvegar um frávik að ræða ætti íslenskt heilbrigðiskerfi að vera vel í stakk búið til að veita faglega aðstoð eftir þörfum. Augu fagfólks hafa undanfarið beinst meira að eldri börnum sem komin eru á skólaaldur og eyða miklum tíma fyrir framan mismunandi skjái. Á sama tíma greina skólastjórn- endur frá því að flest forföll séu tilkynnt af foreldrum í íþróttatím- um skólanna. Auðveldara virðist vera að fá börnin til að æfa sig ef keypt er einkaþjálfun á líkams- ræktarstöð. Ég tel mikilvægt að við sem er- um fagfólk í hreyfingu, íþrótta- kennarar og sjúkraþjálfarar, styðjum og örvum almenning, bæði börn og fullorðna, til að nýta sér þá fjölmörgu möguleika sem við höfum til heilbrigðrar útiveru og hreyfingar. Alist börn upp við slíkar aðstæður leiðir það vonandi til þess að þau temji sér slíka lifn- aðarhætti síðar meir. Svo lærir barnið sem fyrir því er haft. GUÐBJÖRG EGGERTSDÓTTIR, Heiðarási 1, 110 Reykjavík. Hvernig örvun þarf ungviðið? Frá Guðbjörgu Eggertsdóttur: Guðbjörg Eggertsdóttir Eldaskálinn Brautarholti 3 105 Reykjavík Sími: 562 1420 www.invita.com Komdu á hönnunarsýninguna á 4. hæð Perlunnar sem opin er alla daga frá 2. febrúar til 2. mars. KIRKJUGARÐAR REYKJAVÍKUR Veistu hvernig þjónustubyggingar í Gufuneskirkjugarði verða í framtíðinni?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.