Morgunblaðið - 26.02.2005, Side 41

Morgunblaðið - 26.02.2005, Side 41
Á vordögum 1940 kom lítil þriggja ára stúlka til fósturs til móðursystur sinnar Áslaugar Stephensen og manns hennar Jóns Pálssonar dýra- læknis á Selfossi í Hlöðum. Þennan sama dag kom næst elsti sonurinn í því húsi, 18 ára, heim í Hlaðir með Esjunni frá Petsamo. Hann tók litlu stúlkunni sem himnasendri systur sinni og bar hana á höndum sér, hann hélt því áfram allt sitt líf. Þessi ljóshærði snaggaralegi pilt- ur var Ólafur Jónsson, sem nú hefur lokið lífsgöngu sinni, líklega saddur lífdaga skömmu fyrir 83 ára afmæli sitt 29. marz, sem var einmitt trúlof- unardagur litlu stúlkunnar árið 1961, og þess sem hér heldur á penna. Mínar fyrstu minningar um Ólaf eru fyrir þá dagsetningu. Hann bjó á Selfossi eins og aðrir úr stórfjöl- skyldu Jóns dýra eins og þjóðin þekkti hann. En þeir voru fjórir bræðurnir, Garðar skógarvörður, Ólafur iðjuhöldur, Páll tannlæknir og Helgi bankastjóri. Þetta var mjög lífleg fjölskylda þar sem hvergi var talað á lágu nótunum. Allir hnakkrif- ust í pólitíkinni, nema hvað, þeir voru allir á sama máli. Og raunar var Hlaðaíhaldið landsfrægt fyrir atorku sína við að breiða út guðspjallið og boða villutrúarmönnum sannleik- ann. Heimilið stóð um þjóðbraut þvera, bændur knúðu dyra seint og snemma að sækja meðul og mixtúrur handa beljunum sem Áslaug hús- freyja afgreiddi oftar en ekki. Jón var á sífelldum ferðalögum um sveit- irnar að skera upp eða baksa við bú- smalann eða bændurna, sem voru ekki aldeilis á því sumir hverjir að láta baða hjá sér. Þeir sem nutu þeirra forréttinda að fá að vera bíl- stjórar hjá Jóni Pálssyni gleyma því aldrei. Hann hræddi krakkana, kleip kellingarnar og skammaði kallana. Og allir elskuðu dýralækninn en gleymdu samt margir að borga hon- um eða þeir bara gátu það ekki. Margir þeirra voru sárafátækir og áttu ekki aura. Svo þeir komu seinna með ýmislegt matarkyns að færa húsfreyjunni í Hlöðum. Í þessu umhverfi ólst Ólafur upp og varð snemma lagtækur aðstoðar- dýralæknir, hann skar, gelti og sprautaði ef sá gamli var upptekinn. Hann hafði verið í Danmörku að læra til mjólkurfræði þegar stríðið braust út og Danmörk var hernumin. Þá dreif Óli sig heim með Esjunni frá Petsamo. Hann starfaði í Mjólkur- búinu í einhver ár en fór svo að versla með Þorvarði Sölvasyni á Sel- fossi. En Vassi kom að austan þar sem þau voru áður Jón og Áslaug og fæddu upp syni sína. Hann var svo lengst af til heimilis hjá þeim í Hlöð- um á Selfossi meðan verzlun þeirra stóð. Óli byggði verzlunarhús mikil, sem enn standa við Austurveginn og var verzlunin niðri en Óli bjó á loft- inu með Hugborgu konu sinni og 3 sonum. Ólafi fylgdi ávallt mikill léttleiki. Hann var ákaflega frændrækinn og hans frændur voru bestir af öllum og gætti hann heiðurs þeirra í hvívetna. Hann var trölltryggur vinum sínum og frændfólki. Hann var óheyrilega duglegur í allri sinni starfsemi, hvort það var verzlunin, lakkrísgerðin Surtsey sem hann stofnaði og rak um árabil og svo Steypustöð Suður- lands sem hann rak í nær 30 ár. Því- líkur eldlegur áhugi á rekstri alls þess sem honum var trúað fyrir gleymist samstarfsmönnum seint. Eins og áður sagði þá bar Ólafur hagsmuni Sjálfstæðisflokksins mjög fyrir brjósti. Sá flokkur hafði ávallt rétt fyrir sér og foringjar hans voru vinir hans og vopnabræður. Allir aðrir skildu ekkert í pólitík sem hann þurfti augljóslega að skýra fyrir þeim. Svona menn, hreinir og beinir, eru fágætir. Þeir bregðast aldrei vin- um sínum hvað sem á dynur. Traust- ari vin hef ég aldrei átt. Mig tók það þungt að hann skyldi fá þann sjúk- dóm sem felldi föður minn og frænda Ólafs að velli 1981. Það er fátt erf- iðara en horfa upp á vini sína og ætt- menni í hrömmum þessa hræðilega sjúkdóms. Pólitíkin var svo sem ekki það eina sem Óli lét sig varða. Hann var eld- legur áhugamaður um skógrækt og sér til handaverka hans víða um land en þó mest í Árnessýslu. Engan mann hef ég hitt hans jafn- ingja að dugnaði og brennandi áhuga á að láta gott af sér leiða. Hann var ekkert að spekúlera um daglaun að kveldi. Hann var að því leyti líkur Al- exander mikla, sem reyndi að skýra út fyrir hermönnum sínum, að her- förin sjálf væri dýrðleg í sínum eigin ljóma, en ekki aðeins tilgangur henn- ar. Að framkvæma hlutina og leita sífellt hærra og meira er fyrir öllu. Á yngri árum fórum við Ólafur mikið í veiðiskap, bæði með byssur og stengur. Hann hafði sama brenn- andi áhuga á því sem öðru sem hann tók sér fyrir hendur. Það eru óborg- anlegar minningar frá þessum ferð- um. Nú lauga þessar minningar um svaðilfarir á hálendi Íslands í gulli gærdagsins, sem aldrei kemur aftur. Ólafur reisti sér veglegt sveitaset- ur á Lækjartúni í Ölfusi, þar sem heimili hans og Hugborgar stóð um 30 ára skeið. Gróðrarparadís sem blasir við þeim sem vilja sjá. Að leiðarlokum getum við öll að- eins sagt: Hafðu þökk fyrir allt þitt líf, Ólafur Jónsson, betri manni höf- um við ekki kynnst. Halldór Jónsson verkfr. Það er ávallt erfitt að sjá á eftir ástvinnum sínum í svefninn langa. Þetta skiptið er það sýnu erfiðara þar sem nú er horfinn móðurbróðir minn, „Óli-pabbi“ eins og ég kallaði hann. Ég naut þeirra forréttinda frá unga aldri, að dvelja um lengri eða skemmri tíma á hefðarheimili þeirra Ólafs og Hugborgar. Heimilið ráku þau af miklum myndar- og rausnar- skap. Þar var haldið í gömlu góðu gildin. Á strákapörum tóku þau með strangri mildi, þannig að maður lærði af reynslunni. Hjá þeim var ávallt gott að dvelja og njóta um- hyggju þeirra og alúðar. Ólafur var útsjónarsamur og hélst vel á því sem hann aflaði og naut þar einnig hag- sýni Hugborgar. Hann var glaðlynd- ur maður en fastur fyrir og ákveð- inn. Þar var hann líkur feðrum sínum og bræðrum. Sérstaklega átti þetta við um sterkar skoðanir hans á stjórnmálum og lét Ólafur þær í ljós umbúðalaust. En íhaldsmaður var hann af gamla skólanum. Illa þoldi hann væru menn beittir órétti og var hann þá ómyrkur í máli. Það er helsta ástæða mikils ímugusts hans á Hriflu-Jónasi og öðrum slíkum ójafnaðarmönnum, eða Hildiríðar- sonum samtímans. Það er skarð fyrir skildi hjá fjöl- skyldunni að Óla-pabba gengnum. Hans er sárt saknað. Von okkar hinna er að treysta á fyrirheit Frels- arans þess efnis, að við munum hitta fyrir Ólaf á ný, í upprisu dauðra á efsta degi. Ég bið nánustu fjölskyldu Ólafs Guðs blessunar á stund minninga og saknaðar. Þorsteinn Halldórsson. Óli á Selfossi var einn af okkar uppáhaldsfrændum og sá allra skemmtilegasti. Hann var alltaf svo hress og kátur og í góðu skapi. Það var alveg einstaklega gaman að spjalla og diskútera við Óla frænda, hvort sem það var um pólitík eða bara um daginn og veginn. Mörg samtölin eru ógleymanleg og skemmtilegu tilsvörin hans Óla verða lengi í minnum höfð. Það er mikill missir af Óla frænda og verður hans sárt saknað. Við sendum ættingjum hans okkar innilegustu samúðarkveðjur og al- veg sérstaklega fylgja góðar kveðjur frá Gyðu systur og fjölskyldu í Til- burg, Hollandi. Eiríkur Stephensen og Borghildur Stephensen. Við andlátsfregn Óla í Hlöðum flugu ótal minningar um huga minn um liðna tíð aftur til bernsku minnar er ég var polli sem bjó í jaðri Hlaða- hverfisins á Selfossi. Foreldrar Óla, Jón Pálsson dýralæknir og Áslaug kona hans, höfðu byggt upp hálf- gerðan herragarð í miðju þorpinu; íbúðarhús, fjárhús, hesthús, hlöðu og stórt gerði fyrir hrossin. Synir þeirra höfðu síðan byggt þar allt í kring í jaðri Hlaða. Á neðri hæðinni í húsi Óla og fjölskyldu hans var versl- un sem hann rak í félagi við Vassa. Ég er svo lánsamur að einn af mín- um bestu vinum er Jón, sonur Óla, og fylgdumst við að heim úr skól- anum. Þá var komið við í búðinni og oft var stungið upp í okkur vínberi, brjóstsykri eða Blöndals karmellu. Þetta voru miklar hátíðisstundir í þá daga enda lítið til. Ég man enn hvað mér fannst verslunin flott og allt sem hugurinn girntist fékkst þar. Hlaðir voru eitt aðalleiksvæði okkar strák- anna og lítið verið að amast við leik okkar þar. Þar var mikið umleikis við að temja hross enda átti Jón Pálsson úrval góðra hrossa og var þekktur ræktunarmaður. Það var falleg sjón að sjá Jón og hans glæsilegu afkom- endur á þessum fallegu hestum. Á vorin gekk mikið á við geldingar á folum og aðstoðaði Óli föður sinn í því. Eins var mikil heimaslátrun þarna á haustin og komu karlar með úr kofum sínum lömb til slátrunar og var Óli aðalmaðurinn við að hjálpa þeim. Það var lítið um boð og bönn í þá daga og engum varð meint af. Það voru oft mikil ærsl í okkur strákunum og ég man eftir einu at- viki frá þessum tíma er við vopnuð- umst dönskum blöðum, Hjemmet og Famile Journalen, til að brenna karl nokkurn inni að fornum sið en hann hafði náð okkur við að hnupla rófum og flengt okkur. Ekki heppnaðist þessi brenna heldur brunnu nokkrar spýtur úr girðingunni. Foreldrar okkar héldu fund og Óli tók þetta mál að sér. Hann fékk Jón eftirlits- mann sem var í miklum einkennis- búningi til að fara með okkur til Páls Hallgrímssonar sýslumanns og voru réttarhöld haldin og sekt ákveðin tú- kall á hvern, en þá kostaði eina krónu í bíó. Þetta var mikil fjárhæð fyrir fimm og sex ára polla en Óli var snjall og þetta svínvirkaði. Pólitíkin á Selfossi var snörp á þessum tíma, sjálfstæðis- og fram- sóknarmenn voru langfjölmennastir, einnig voru þarna nokkrir kommar en hægt að telja kratana á fingrum sér. Hlaðamenn eru miklir sjálfstæð- ismenn og þar fór Óli fremstur í flokki. Hann var sístarfandi fyrir flokkinn og í kosningum var hann al- ger hamhleypa. Hann var ótrúlega athugull á að finna unga og efnilega menn til starfa. Ég tel að þáttur Óla sé alltof lítið metinn í flokknum enda sóttist hann ekki eftir vegtyllum. Ég veit að margir hrifust af eldmóði hans og það getur varla verið tilvilj- un að núverandi og fyrrverandi for- maður Sjálfstæðisflokksins eru úr þessu umhverfi enda báðir úr polla- hópnum. Þegar ég flutti frá Selfossi sá ég Óla sjaldnar en alltaf var jafn hressi- legt að hitta hann. Eftir að hann hóf rekstur Steypustöðvar Suðurlands var Óli alltaf tilbúinn að hjálpa þeim sem voru illa staddir og margir hefðu ekki byggt hefðu þeir ekki notið Óla við. Við félagarnir fórum mörg ár sam- an til rjúpnaveiða inn undir Hvera- velli á vetrartíma. Þetta voru hálf- gerðar svaðilfarir og Óli kom oft með okkur og var allra manna skemmti- legastur. Heilsu hans hrakaði hratt eftir að hann missti konu sína Hug- borgu, sem var hans stoð og stytta. Eitt af síðustu skiptunum sem ég hitti Óla var þegar ég heimsótti tengdaföður minn Ingvar Þórðarson frá Reykjum sem þá var líkt og Óli fluttur á hjúkrunarheimilið Ljós- heima. Óli sat þá hjá honum og stytti honum stundirnar í veikindum hans. Hann varð glaður þegar hann sá mig og fórum við að tala um liðna tíð og mikið hlegið. Þarna þekkti ég aftur minn gamla vin frá mínum góðu bernskuárum á Selfossi. Ég og fjölskyldan viljum votta ykkur bræðrum Jóni, Benedikt, Kjartani, frændum og öðrum ástvin- um samúð. Minningin um Ólaf Jóns- son frá Hlöðum verður bjartari eftir því sem ég hugsa meira um hann. Ólafur Hjaltason. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Í dag verður borinn til moldar elskulegur frændi minn, Óli á Sel- fossi. Faðir minn og Óli voru systkina- synir og á milli þeirra var sterkt og kærleiksríkt samband, eins konar bræðraband, sem hófst þegar borg- arstrákurinn var sendur austur fyrir fjall á sumrin til Jóns dýralæknis og Áslaugar föðursystur sinnar. Fyrsta minning mín um Ólaf er þegar hann kom á hvítum Volvo fullum af lakkrís heim í Skeiðarvog þar sem hann hafði um tíma lager í kjallaranum. Skildi hann þá ávallt eftir afganga í pokum fyrir okkur systkinin og upp frá því varð hann uppáhalds frænd- inn minn. Reglulega fórum við fjöl- skyldan í sunnudagsbíltúr til Selfoss að heilsa upp á frændfólkið og hef ég ætíð haldið þessari góðu reglu. Eftir að ég flutti til Hollands var gott að eiga þennan trausta klett að sem samgladdist náðum áföngum í námi, starfi og einkalífi og stappaði í mig stálinu þegar ég var sorgmædd. Þau hjónin, Óli og Hugborg, bjuggu yfir mjög náttúrulegri og einlægri gestrisni og voru heimsókn- irnar í Lækjartún ávallt í mjög föstu formi. Skarpar umræður um menn, málefni og pólitík, ilmandi bakkelsi og flatkökur með besta hangikjöti í heimi (frá Bassa, ekki úr Kaupfélag- inu!), skálað fyrir lífinu og forfeðr- unum og loks skrifað í gestabókina sem stóð opin á fallega skrifborðinu í stofunni. Kveðjan var svo „komið þið fljótt aftur og farið varlega á heið- inni“. Óli hafði mjög fastar og stund- um mjög gamaldags skoðanir á hlut- unum og hann sagði mér tvisvar til syndanna. Fyrra skiptið var þegar ég fékk kosningarétt og kaus Kvennalistann sem honum fannst gjörsamlega fyrir neðan allar hellur og seinna skiptið var þegar ég pirr- aði mig eitthvað á ættarsnobbi og íhugaði að sleppa Stephensen-nafn- inu og kalla mig Finnsdóttur. Þá var frænda mínum nóg boðið og tók hann mig á eintal. „Þú verður að at- huga það Gyða mín að þú ert Steph- ensen og þú átt að vera stolt af því.“ En þrátt fyrir þetta kallaði hann mig alltaf Gyðu Finns. Mikið hafði hann gaman af því þegar Carl eiginmaður minn hitti hann fyrir utan gler- augnabúð Benda í Hamraborginni og ávarpaði hann sem Óli van Sel- foss. Hann var svo hissa og hrærður að Hollendingurinn skyldi hafa þekkt sig og sl. 15 ár sagði hann mér þessa sögu í hvert skipti sem ég hitti hann. Eftir að Hugborg dó var hann eins og vængbrotinn fugl. Þá kom í ljós að hún hafði verið minnið hans lengi vel og mér finnst einhvern veg- inn eins og að ég hafi misst þau bæði í einu. Símtölum okkar fækkaði smám saman, honum gekk brösug- lega einum að hitta á rétt númer og gleymdi oftast einhverju núlli. Hann hringdi síðast í apríl 2003 til að óska okkur til hamingju með fæðingu Kaspers litla. Þá sagði hann mér að hann væri á leiðinni til Þýskalands til Mundu og Steina og að við Kalli ætt- um þá að koma með Finn og Kasper. En því miður, Óli van Selfoss kom ekki. Elsku frændi, hafðu þökk fyrir allt og allt, ég er viss um að borgarstrák- urinn tekur vel á móti þér. Gyða Stephensen. Í dag kveð ég vin minn, velgjörð- armann og atvinnuveitanda, Ólaf Jónsson, fyrrum framkvæmdastjóra Steypustöðvar Suðurlands, Selfossi, með söknuði. Ég hóf störf hjá Steypustöðinni undir hans yfirstjórn árið 1979. Nú þegar ég horfi til baka tel ég hann einhvern stærsta gæfuvald lífs míns. Hann tók mér líkt og ég væri sonur hans og hefði ekki getað reynst mér betur þó svo hefði verið. Hjálpsemi á öllum sviðum bæði hvað varðaði fjöl- skyldu mína og mig sjálfan var óþrjótandi og það voru engar redd- ingar. Allt sem frá hans hendi kom, var innblásið af vináttu og kærleika, allt ekta og unnið af innri manngæð- um. Fyrir þetta allt og meira sem ég læt ótalið vil ég nú þakka þessum heiðursmanni, sem fyrir utan það sem á undan er sagt var ákaflega skemmtilegur í umgengni og ljúfur yfirmaður, allar þær samverustund- ir sem við áttum bæði í starfi og utan þess. Þessar línur eiga aðeins að undir- strika þakklæti mitt fyrir samfylgd- ina og alla þá visku sem hann nærði mig á. Góður maður er genginn, ég veit að hann uppsker nú eins og hann sáði. Ég og fjölskylda mín vottum fjölskyldu hans okkar dýpstu samúð. Hörður Óskarsson. Ólafur, sem við í dag kveðjum hinstu kveðju, kom að Selfossi innan við fermingu ásamt fjölskyldu sinni og átti, þegar frá eru talin þrjú ár við nám og störf í Danmörku, þar heima. Þegar seinna stríðið braust út komst hann heim með hinni frægu Pets- amoför Esjunnar. Vann hann ýmis störf þar til hann hóf verslunarrekst- ur á allskonar nauðsynjavörum með Þorvarði Sölvasyni. Þróaðist það í að verða umboðverslun fyrir landbún- aðarvörur og margskonar tæki og var sú fyrirgreiðsla vinsæl því Ólafur kappkostaði að hafa á lager það sem bændur vanhagaði um. Seinna setti hann á stofn lakkrísgerð og starf- rækti hana ásamt fjölskyldu sinni í mörg ár. Líkaði framleiðslan það vel að hún varð einnig útflutningsvara til Færeyja. Seinna kom hann á fót Steypustöðinni og rak hana fram yfir sjötugt. Eins og að framansögðu má ráða, lagði Ólafur gjörva hönd á margt en bæta má því við eð þeir bræður Helgi og hann settu upp fjárbú út á Árbæ og höfðu af því gott gagn og fór Ólafur á fjall með Ölfusingum sem var góð tilbreyting frá daglegu amstri. Ólaf skorti ekki áhugamálin og var skógræktin þar efst á blaði og var í áratugi formaður Skógræktar- félags Árnesinga. Eitt af hans fyrstu verkum sem slíkur var að festa kaup á kostajörðinni Snæfoksstöðum í Grímsnesi sem sýnir framsýni hans og áræði. Þar er nú kominn upp fagur og skjólsamur skógur, sem blasir við þegar maður ekur Gríms- nesið. Einnig heima, sérstaklega eftir að þau Hugborg og Ólafur fluttu að Lækjartúni, stundaði Ólafur tilraun- aræktun. Hafði hann mikla ánægju af því að sýna okkur, sem húsið stóð alltaf opið fyrir, árangurinn. Þegar elsta dóttir okkar, Barbara, byrjaði í Gangfræðaskólanum var hún svo lánsöm að fá inni hjá Hugborgu og Ólafi og var þar eins og hver annar heimilismaður. Þetta eins og svo margt annað kemur upp í hugann þegar við nú þurfum að kveðja einn besta vin okkar og frænda í hinsta sinn. Blessuð sé minning hans. Renata og Gunnlaugur. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 41 MINNINGAR Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum). Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr- ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak- markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn- ur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvadd- ur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.