Morgunblaðið - 26.02.2005, Síða 44

Morgunblaðið - 26.02.2005, Síða 44
44 LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Anna AðalbjörgSigfúsdóttir fæddist í Bergholti á Raufarhöfn 27. októ- ber 1945. Hún lést á líknardeild Landspít- ans í Kópavogi 21. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigfús Krist- jánsson, f. á Rifi á Melrakkasléttu 31. júlí 1897, d. 10. júní 1968, og Sigríður Sveinbjörnsdóttir, f. á Þórshöfn á Langa- nesi 30. maí 1914, d. 18. janúar 1997. Systkini Önnu eru Þórdís Vilborg, f. 10.9. 1936, Gerður, f. 6.6. 1939, d. 27.3. 2004, Bára, f. 8.7. 1940, Kristján, f. 13.9. 1944, Hreinn 19.10. 1947, Þór- katla, f. 14.9. 1948, Sigfús, f. 27.1. 1952, Ævar, f. 26.8. 1953 og Berg- þór, f. 9.8. 1954. Bræður Önnu samfeðra eru Gunnar, f. 31.5. 1931, Sveinbjörn, f. 31.5. 1932, d. 13.11. 1999, og Dagbjartur, f. 11.9. 1933. Anna giftist 24.12. 1965 Pétri Valdi- marssyni frá Varma- dal í Vestmannaeyj- um, f. 20.6. 1942, d. 19.12. 2004. Börn Önnu og Péturs eru: 1) Margrét, f. 20.10. 1965, maki Ingiberg- ur Óskarsson, f. 1963. Synir þeirra eru Óskar Pétur, f. 1993, og Stefán Örn, f. 1995. Dóttir Mar- grétar og Ólafs Ás- mundssonar, f. 1961, er Björg, f. 1984. 2) Sigfús Pétur, f. 11.7. 1968, maki Salome Ýr Rún- arsdóttir, f. 1978, dóttir þeirra er Súsanna Sif, f. 2003. 3) Valdimar Helgi, f. 31.8. 1976, maki Anna Valsdóttir, f. 1977. Anna vann ýmis störf en lengst af vann hún í fiskvinnslu. Útför Önnu fer fram frá Landa- kirkju í Vestmannaeyjum í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. Elsku mamma, það er sárt til þess að vita að þú sért farin frá okkur. Þú varst alltaf svo dugleg og bjart- sýn á lífið og svo ákveðin í að láta þér batna og ef þú varst spurð: „Hvernig hefur þú það, Anna mín?“ Þá sagðir þú alltaf: „Ég hef það fínt.“ En ef þú fannst eitthvað til þá sagðir þú: „Það lagast á morgun.“ Þið pabbi voruð svo samrýnd og þegar hann veiktist í ágúst í fyrra, þá kom eitt áfallið enn, þú að berjast í þínum veikindum og hann líka. Þetta tók stuttan tíma hjá elsku pabba, hann var farinn upp til Guðs í desember. Enn og aftur sýnd- ir þú þinn ótrúlega viljastyrk og varst svo dugleg, sterk og ákveðin í að berjast áfram, en vegir Guðs eru órannsakanlegir og einhverja hluta vegna vildi hann fá þig til sín og hafa ykkur pabba saman, þið voruð jú gefin saman að eilífu og það stendur hjá ykkur. Elsku mamma, við vorum miklar vinkonur og er missir minn mikill og kem ég til með að sakna þín, þú varst alltaf boðin og búin til aðstoðar ef okkur langaði að skreppa eitthvað til útlanda saman, þá komst þú og varst með börnin fyrir okkur. Þú hafðir gaman af því að vera með þau og kenndir þeim margt. Þær eru ógleymanlegar allar þær stundir, sem við áttum saman í sumarfríun- um okkar. Elsku mamma, þú varst alltaf svo fín og sæt, nú ertu komin til pabba, Gerðu frænku og allra okkar ástvina sem við erum búin að missa. Við vonum, mamma, að þér líði vel þar sem þú ert og sért verndarengill okkar sem eftir erum. Ég hef þinni leiðsögn lotið, líka þinnar ástar notið, finn, hvað allt er beiskt og brotið, burt er víkur aðstoð þín elsku góða mamma mín. Allt sem gott ég hefi hlotið, hefir eflst við ráðin þín. Þó skal ekki víla og vola, veröld þótt oss brjóti í mola. Starfa, hjálpa, þjóna, þola, það var alltaf hugsun þín, elsku góða mamma mín. Og úr rústum kaldra kola kveiktirðu skærustu blysin þín. Flýg ég heim úr fjarlægðinni, fylgi þér í hinsta sinn, krýp með þökk að kistu þinni, kyssi í anda sporin þín, elsku góða mamma mín. Okkur seinna í eilífðinni eilíft ljós frá guði skín. (Árni Helgason.) Þín dóttir Margrét og Ingibergur. Elsku mamma og tengdamamma. Það sem okkur finnst lífið ósann- gjarnt, rétt tveir mánuðir síðan við vorum að kveðja pabba og afa. Við vorum svo viss um að þú myndir vera með okkur lengur, þú varst svo bjartsýn og dugleg, ætlaðir þér svo margt. Þú varst búin að tala um að koma til Vestmannaeyja fljótlega og það varð, bara ekki eins og við vorum búin að tala um. Elsku mamma mín, ég sakna þín svo sárt. Það hefur stækkað svo skarðið í hjarta mínu því nú vantar svo mikið. En nú ertu komin til hans pabba og ég veit að hann tók vel á móti þér eins og honum einum var lagið. Ég sakna ykkar svo mikið. Allt sem mig langar að þakka þér fyrir, elsku mamma mín, þú varst alltaf svo góð og alltaf hægt að fá góð ráð hjá þér og þurfti ég ekki alltaf að biðja um það, þú þekktir mig svo vel, elsku mamma mín. Þegar ég keypti Nýja Berg þá skipti það þig svo miklu að þar væri fínt og komstu með allt mögulegt svo allt væri nú fínt. Þú skildir samt ekki alveg af hverju blóm sem þú náðir ekki að hafa döfnuðu svo vel hjá mér. Þær eru svo margar minningarnar sem ég á um þig, elsku mamma mín, ég sakna þín svo sárt. Þú varst okkur öllum til fyrirmyndar, hugarfar þitt var okkur svo mikill styrkur. Þú sagðir alltaf að þú og pabbi hefðuð ákveðið að vera sterk og það varstu, elsku mamma mín. Ekki mun líða sá dagur að ég hugsi ekki til þín, elsku mamma, þú varst mér svo mikið. Guð veri með þér og vonandi hafið þið það nú gott saman. Elsku Anna mín, ég sakna þín svo mikið. Þetta er svo óréttlátt, en sagt er að Guð leggi ekki meira á menn en þeir þoli og ég ætla að reyna að taka þig mér til fyrirmyndar og vera sterk en þetta er bara svo erfitt, það vantar svo mikið. Elsku Anna mín, ég vil þakka þér allt saman, þú tókst mér sem þinni eigin dóttur, bara að tíminn hefði verið lengri með þér, elsku Anna mín. Það er okkur hugg- un að nú eruð þið saman á ný og ykk- ur líður vel. Takk, elsku Anna. Þinn sonur Sigfús Pétur og Salome. Elsku mamma og tengdamamma. Það er erfitt að kveðja þig nú, það er svo stutt síðan við vorum í þessum aðstæðum. Við vorum sannfærð um að þú ætlaðir að bíða þangað til stelpan fæddist en þú fékkst greini- lega engu ráðið um það. Það er erfitt að sjá tilganginn með þessu öllu saman, en nú líður þér betur og þið pabbi eruð sameinuð á ný. Við eigum margar góðar minningar um þig sem við geymum í hjörtum okkar. Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með frjóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt lit og blöð niður lagði líf mannlegt endar skjótt. (Hallgrímur Pétursson.) Valdimar og Anna. Elsku amma, við söknum þín svo mikið, þú varst alltaf svo góð við okk- ur. Okkur fannst svo gaman að koma til ykkar afa á lundapysjuveiðar og hjálpa ykkur í garðinum, við fengum alltaf svo góð verðlaun fyrir. Nú ert þú komin til afa og ykkur líður vel. Oft vonir bregðast vilja oss veitir þungt að skilja guðs voldugt vísdómsráð. Þú guð sem gleði vekur þú gefur og þú tekur, en öll þín stjórn er einskær náð. (Guðríður Þóroddsdóttir.) Takk fyrir allt, elsku amma, hvíl í friði. Litlu strákarnir þínir Óskar Pétur og Stefán Örn. Elsku Anna systir og mágkona, það er erfitt að setjast niður og skrifa nokkur orð um þig. Það eru nú ekki nema tveir mánuðir liðnir síðan að þú kvaddir hann elsku Pétur þinn og ekki áttum við von á að þurfa að kveðja þig svona fljótt. Trúlega hef- ur hann Pétur þinn verið búinn með pallinn hinum megin og þú ákveðið að fara til hans svo að hann yrði ekki einn. Þegar við lítum til baka og rifjum upp árin, hversu gott var að koma til þín, alltaf með bros á vör og hlýju í hjarta, okkar yndislegu stundir sam- an, þar sem var hlegið og gantast einsog okkur einum var lagið, svo ekki sé nú minnst á köku- og mat- arhlaðborðin þín, kræsingar sem aldrei gleymast. Það er sárt að hugsa til þess að þú verðir ekki hér á meðal okkar í októ- ber til að fagna 150 ára afmælinu, þú, kæra systir og mágkona, sextug, ég, Hulda, fimmtug og hún Magga þín fertug. En á okkar hátt munum við allar fagna þessum tímamótum. Þú varst alveg ótrúlega sterk og yndisleg kona, hvernig þú tókst á þessum veikindum ykkar Péturs með þvílíku æðruleysi, dugnaði og krafti. Þetta er búið að vera erfitt ár hjá okkur öllum, en einhver er til- gangurinn með þessu öllu saman, sem við skiljum ekki. Viljum við fjölskyldan mín þakka þér fyrir allar þær stundir sem við áttum saman, hvort sem var í Kefla- vík eða í Vestmannaeyjum. Að lokum viljum við biðja góðan Guð að styrkja og halda verndar- hendi yfir börnum þínum, tengda- börnum og ömmubörnum, og þá ekki síst litla ófædda ömmubarninu sem von er á í næsta mánuði. Með hlýhug og þakklæti í hjarta okkar fyrir allt og allt kveðjum við þig, elsku Anna. Við eigum eftir að sakna þín og Pét- urs mikið. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Hinsta kveðja, Bergþór, Hulda og fjölskylda, Njarðvík. Elsku frænka, þá er komið að kveðjustund. Fyrir aðeins tveimur mánuðum kvöddum við hann Pétur þinn. Þvílíkt æðruleysi sem þú sýnd- ir þá, huggaðir okkur öll með orðum sem greypt eru í huga mér: „Bara að vera glöð.“ Það fólst svo mikið í þess- um orðum. Og nú hefur hann Pétur þinn tekið á móti þér og ég sé ykkur leiðast inn í sólarljósið, þar sem allt er bjart og engar þrautir lengur. Minningarnar um þig eru svo marg- ar allt frá því að ég man fyrst eftir mér. Þetta eru mér dýrmætar minn- ingar sem ég ætla ekki að fara að telja upp hér, en verða vel geymdar í hjarta mínu. Ég kveð þig elsku frænka að sinni, takk fyrir allt. ANNA AÐALBJÖRG SIGFÚSDÓTTIR Elsku amma mín, mig langar til að minnast þín í fáum orðum. Fyrstu minn- ingar mínar tengjast sveitinni þeg- ar ég var hjá þér, afa og frænda í Tröðum. Þú varst mér alltaf svo góð. Ég vissi að þú værir orðin mikið veik undir það síðasta og hef- ur örugglega verið hvíldinni fegin. Þegar ég fékk fréttina um andlát þitt brá mér samt sem áður og ótal minningar komu upp í hugann. Oft sat ég hjá þér í eldhúsinu en þar var alltaf hlýtt og notalegt, þú varst eitthvað að sýsla og ég malaði út í eitt. Stundum sagðir þú mér sögur um lífið í gamla daga, já þetta voru góðar stundir. Hvað það var mikill heiður að fá þig til að líta upp frá verkum og fara með mér á hestbak, þá varst þú ýmist á Stjarna eða Berki en það voru þínir hestar, öskuviljugir gæðingar. Einhverju sinni sagðir þú við mig að þegar ég yrði orðin ellefu ára mætti ég fara á bak Berki. Ég beið því með mikilli eft- irvæntingu eftir ellefu ára afmæl- inu mínu. Kýrnar voru í miklu uppáhaldi hjá þér og man ég varla eftir því að þú þyrftir að byrsta þig við þær þegar þú varst að mjólka. Þær báru virðingu fyrir þér eins og aðr- ir. Þú taldir að það hefði litla þýð- ingu að skeyta skapi sínu á dýrum þó þau væru með einhverja óþekkt. Dýrin voru vinir þínir og þú um- gekkst þau í samræmi við það. Þegar ég kom í Traðir á veturna var alltaf svo gaman þegar kind- urnar voru látnar út til að beita sér í fjöruna og vinkonur þínar þær Mjöll, Litla-Kolla og Hnýfla komu við á hlaðinu hjá þér til að fá eitt- hvert góðgæti. Eftir göngur á haustin fengu hestarnir að vera á heimatúninu og þeir vissu vel hvar þeir ættu von á góðgæti. Með Bleik í fararbroddi komu þeir í heimsókn til þín, Bleikur opnaði og rak höf- uðið inn um forstofudyrnar og þú tókst á móti þeim með rúgbrauði og kjassi. Ekki veit ég hvort þú eða hestarnir nutuð þessara heimsókna meira en það var augljóst að þetta voru vinafundir. Börn og dýr löð- uðust að þér alla tíð. Ég er innilega þakklát fyrir þær stundir sem ég átti með þér elsku amma, megir þú hvíla í friði. Halla Eygló. Nú er blessunin hún Kata búin að fá hvíldina, heilsan var orðin svo slæm að hvíldin hefur verið henni kærkomin. En við sem þekktum Kötu og eftir lifum söknum hennar og minnumst hennar með hlýhug. KATRÍN GUÐMUNDSDÓTTIR ✝ Katrín Guð-mundsdóttir fæddist á Ísleifsstöð- um í Hraunhreppi 19. september 1918. Hún lést á Dvalar- heimili aldraðra í Borgarnesi 14. febr- úar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Borgarnes- kirkju 22. febrúar. Við Kata vorum ná- grannar í áratugi og því lengur sem kynni okkar voru, því nánari urðu þau þegar við kynntumst fyrst var Kristín tengdamamma hennar orðin alveg rúmliggjandi og var í skjóli þeirra hjóna og Hallbjarnar sonar síns. Mér er minnis- stætt hve hugulsöm og natin Kata var við gömlu konuna og endalaust þolinmóð. Hún Kata lét ekki fara mikið fyrir sér en hún var samt dugnaðarforkur sem aldrei féll verk úr hendi. Natni hennar og ná- kvæmni í fjósinu meðan kýrnar voru enn til í Tröðum, var til fyr- irmyndar enda voru kýrnar hennar yndi. Ekki fyrir það, öllum sýndi hún natni hvort heldur voru menn eða dýr. Helga manni sínum var hún stoð og stytta, og dætrum sínum góð móðir. Kata var húsmóðir með stóru H-i. Hún lagði metnað í að allt væri hreint og fágað og mynd- arskapurinn í eldhúsinu var meiri- háttar. Alltaf var kaffiborðið hjá henni hreinasta veisla. Kata var alltaf svo róleg og yfirveguð að það var hreinasta hvíld að hitta hana. Við Kata áttum sameiginlegt áhugamál, sem var garðrækt, hafði hún komið upp yndislegum reit hjá íbúðarhúsinu, við erfiðar aðstæður, saltrok frá sjónum o.fl. Margar góðar minningar á ég um Kötu, sem mun ylja mér um ókomin ár. Samhryggist ég Hallbirni og dætrum Kötu. Saknaðarkveðjur, Sonja Ísafold frá Laxárholti. Við systkinin frá Laxárholti minnumst Kötu í Tröðum, með mikilli hlýju. Það var svo notalegt að koma í eldhúsið til Kötu, það var svo bjart og hreint. Fá að setjast á bekkinn í borðkróknum og veitingarnar voru ekki af verri endanum, yfirleitt átti hún smákökur í boxi, lagtertur og svo var smurt brauð og fór það vel í okkur sísvanga krakkana. Ekki vantaði hugulsemina, ef við vorum send einhverra erinda, í slæmu veðri og vorum blaut í fætur eða með blauta vettlinga, þá voru plöggin sett á ofn svo þau voru þurr þegar lagt var af stað heim. Hún Kata var yndisleg kona, hún gaf sér tíma til að tala við okkur krakkana eins og jafningja, um daginn og veginn, um fuglana, ærn- ar, blóminn, garðinn, bátana og sjóinn. Hún hafði þessa mjúku rödd og æsti sig aldrei. Aldrei talaði hún illa um nokkurn mann heldur fann hún öllum ein- hverjar málsbætur. Kynni okkar við Kötu gáfu okkur öllum svo mik- ið og mun seint gleymast. Kveðjum við Kötu með söknuði. Systkinin frá Laxárholti. Nína, Anna,Valur, Unnsteinn, Sólveig og Silja, börn Sonju Ísafoldar og Jóhanns Lárussonar. Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför LEIFS KRISTINS GUÐJÓNSSONAR. Áslaug Garðarsdóttir, Finnur Leifsson, Hildur Kristín Helgadóttir, Birna Bjarnadóttir, Þorbjörg Rós Bjarnadóttir, Anders Fogelberg, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.