Morgunblaðið - 26.02.2005, Síða 48

Morgunblaðið - 26.02.2005, Síða 48
48 LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Það var árið 1987 sem Magnús hóf störf hjá Hitaveitu Akureyr- ar. Starf tæknifulltrúa fyrirtækisins hafði losnað sumarið 1987. Starfið var auglýst og sóttu nokkrir vel hæfir einstaklingar um það. Magnús varð fyrir valinu og aldrei hef ég séð eftir því vali og hefði ekki getað fengið betri samstarfsmann. Magnús var ungur þegar þetta var og það var hann enn þegar óvættur sá sem herjar á alltof marga og fellir langt um aldur fram greindist hjá honum. Það kom í hlut okkar Magnúsar að koma ró á hlutina eftir nokkurn óróa umhverfis hitaveituna. Þar reyndist Magnús betri en enginn. Hann var fastur fyrir en sanngjarn. Tæknileg þekking hans var mikil og leysti hann með ágætum þau vanda- mál sem upp komu á því sviði hjá hitaveitunni og arftökum hennar. Magnús hafði gott lag á að stjórna sínum mönnum og fann oftast lausn á ágreiningi manna í milli. Sam- starfsmenn Magnúsar hjá Norður- orku munu sakna hans sárt. Kynni okkar hjóna af Magnúsi og fjölskyldu hans utan vinnu voru mjög ánægjuleg. Eins og allir vita sem þekktu Magnús var hans stærsta áhugamál, að fjölskyldunni frátalinni, skautaíþróttin. Að þessu kvað svo rammt að jafnvel ég var farinn að fylgjast grannt með á því sviði. Ég held að ekki sé of djúpt í árinni tekið þó því sé haldið fram að endurreisn skautaíþróttarinnar á Akureyri sé honum öðrum fremur að þakka, að minnsta kosti hvað Ís- hokkíið og byggingu Skautahallar- innar varðar. Við Katrín ferðuðumst oft með þeim hjónum á bæði innanlands og utan. Skemmst er að minnast mjög skemmtilegrar ferðar sem við fórum til Noregs í júní sl. Við voru þá sam- an í frí nokkra daga og ferðuðumst um í Sogni og Fjarðarfylki. Hittum við þar Paolu sambýliskonu Arnald- ar sonar þeirra. Hún fór með okkur sem leiðsögumaður að jökulröndinni við Josterdalsjökul. Þegar við kom- um í sumarhúsið sem við deildum með Magnúsi og Jóhönnu töluðum við um að þetta hefði verið góður dagur í norsku fjöllunum. Okkur Magnúsi þótti þó leitað langt yfir skammt að fara til Noregs að skoða jökla. Minningarnar eru margar og munum við hjónin varðveita minn- inguna um Magnús í huga okkar. Kæra Jóhanna, Arnaldur, Andri og Sigrún, missir ykkar er mikill og enginn huggunarorð fá unnið á sorginni. Ykkur og allri fjölskyldu Magnúsar sendum við innilegar samúðarkveðjur. Katrín og Franz. Hann Maggi Finns gekk hjá heimili mínu á leið í skólann á ung- lingsárum okkar og stöku samfylgd varð að vináttu. Einkenni Magga voru létt og skemmtilegt fas ásamt sterkri rökhugsun. Við leiddumst oft út í rökræður sem urðu stundum að löngum þrætum þar sem upphaf- ið gleymdist. Efnið var oftast tengt vélum eða bílum en sjaldan heim- speki. Þó man ég nótt eina í vina- hópi, rökræðu um hver væru endi- mörk alheimsins. Sú umræða dagaði uppi þegar sól tók að skína yfir Vaðlaheiði. Þegar ég kynntist Magga bjó hann ásamt einstæðri móður sinni og bróður sínum Árna í Þórunnarstrætinu. Þeir bræður voru miklir smekkmenn á tónlist; MAGNÚS EINAR FINNSSON ✝ Magnús EinarFinnsson fæddist á Akureyri 21. júlí 1959. Hann lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri sunnudaginn 13. febrúar síðastliðinn og var jarðsunginn frá Akureyrarkirkju 23. febrúar. aðeins gæðarokk á boðstólum eins og Pink Floyd, Genesis, Steely Dan og Bítlanir, oft spilað á fullum styrk. Snemma varð Maggi iðinn við skautaíþrótt- ina og hafði á tíðum umsjón með skauta- svellinu á gamla mal- arvellinum, ásamt Jóni Hjaltasyni, síðar sagn- fræðingi. Maggi útveg- aði þar tónlistina og 10cc sungu Ím not in love yfir svellið á með- an strákar með hvolpa- vit eltu stelpur um ísinn og hrifsuðu af þeim húfur og mönuðu í eltinga- leik. Við höfðum ástríðu fyrir bílum, gengum samdægurs í Bílaklúbb Ak- ureyrar og vorum fljótt kosnir í stjórn. Eitt sinn vildum við halda sandspyrnukeppni og völdum fjöru út með firði til þess. Að lokinni fjöruskoðun heimsóttum við land- eigendur á bæ í nágrenninu. Þeir gáfu góðfúslega leyfi sitt fyrir keppni með því skilyrði þó að við snertum ekki rekaviðinn í fjörunni. Það var lán að bæjardyrnar þar sem þessir samningar fóru fram sneru frá fjörunni. Í fjarlægð að húsabaki steig myndarlegur reykmökkur til himins. Hvatvísir höfðum við safnað rekanum í hrúgu og lagt eld að áður en við heimsóttum landeigendur. Eftirfarandi textabrot af plötu Pink Floyd var oft á fóninum hjá Magga í Þórunnarstrætinu: For long you live and high you fly/But only if you ride the tide/And bal- anced on the biggest wave/ You race toward an early grave. Ég kveð góðan dreng og votta Jó- hönnu, börnum hans, móður og bróður innilega samúð mína. Ragnar S. Ragnarsson. Það var mér mikið áfall að frétta að Maggi væri látinn. Maðurinn sem hafði veitt mér og öllum hinum strákunum í hokkíinu svo mikinn stuðning og gleði í gegnum árin. Mér fannst alltaf eins og það væri sérstakt samband á milli okkar Magga. Hann hugsaði um mig nán- ast eins og sinn eigin son t.d. í hvert sinn er ég fór með barna- og ung- lingaflokkum SA í keppnisferðir, þá mætti Maggi með auka svefnpoka því hann vissi að ég myndi gleyma mínum, eins og alltaf. Við hokkíst- rákarnir grínuðumst oft og töluðum um hann sem guðföðurinn. Öllu gríni fylgir einhver alvara og það átti svo sannarlega við í hans tilviki. Já, hann Maggi hugsaði sko vel um SA-strákana sína. Þetta og mörg önnur dæmi sem ég gæti nefnt lýsa Magnúsi svo vel. Alltaf að hugsa um aðra og gefa af sjálfum sér. Svona gekk þetta fyrir sig í heil 16 ár eða frá því ég var 10 ára og allt fram til dagsins í dag. Ekki fyrir svo löngu ákvað ég að fara til Danmerkur í nám. Eitt það fyrsta sem ég gerði var að fara til Magga og fá ráðleggingar. Það var ekki að spyrja að því, mér var tekið opnum örmum, kaffi og með því. Ég var alltaf velkominn á heimili þeirra hjóna og leið ávallt vel í návist þeirra og ég veit að það var gagn- kvæmt. Án Magnúsar væri Skautafélag Akureyrar ekki helmingurinn af því sem það er í dag. Allt það starf sem hann innti af hendi fyrir félagið og félagsmenn, er ómetanlegt. Ég var svo heppinn að geta kíkt í heimsókn til þeirra hjóna um jólin þar sem ég var staddur á landinu, og þannig séð náð að kveðja hann. Sérstaklega þótti mér vænt um að geta kynnt son minn fyrir honum. Ég á klárlega eftir að segja syni mínum margar góðar sögur og minningar af Magga. Elsku Jóhanna, Arnaldur, Andri og Sigrún. Ég og fjölskylda mín sendum ykkur okkar dýpstu sam- úðarkveðjur. Þér að eilífu þakklátur, Rúnar Freyr. Maggi minn, mig langar að kasta á þig kveðju í hinsta sinn og þakka þér fyrir allt sem þú hefur fyrir mig gert. Ég, líkt og svo margir aðrir ís- hokkíspilarar, byrjaði snemma að reiða mig á þig og þína leiðsögn. Maður vandist því í upphafi keppn- isferilsins að þú varst maðurinn með svörin og lausnirnar, þú varst sá sem dróst vagninn. Ég hélt áfram að leita til þín með leiðsögn á full- orðinsárum, þú hjálpaðir mér með vinnu og þú hjálpaðir mér með að sinna vinnunni og leysa það sem ég gat ekki leyst. Ætli ég hafi nokkurn tíma þakka þér fyrir allt sem þú hef- ur gert fyrir mig fyrr en nú, og þá of seint. Þú tókst að þér ákveðið föðurhlut- verk margra ungra hokkívillinga á upphafsárunum og þrátt fyrir að ár- in liðu þá má segja að hlutverkið hafi viðhaldist og við vorum ansi margir sem aldrei hættum að leita til þín með ýmsar vangaveltur. Við eyddum miklum stundum í að tala um hokkí og ég átti það til að hringja í þig á ótrúlegustu tímum til þess eins að röfla um eitthvað hokkí- tengt sem mér lá á hjarta, ég sakna þess að geta það ekki lengur. Við vorum ekki alltaf sammála um allt og oft var þrætt og þrefað en á þeim vígstöðvum varstu ekki auðveldur viðureignar, en ég sakna þess samt. Starf þitt fyrir Skautafélagið og íþróttina í heild var ómetanlegt og ég er ekki viss um að allir átti sig á því hversu gríðarlega vinnu og tíma þú lagðir í félagsstarfið. Hafðu þökk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig, hafðu þökk fyrir samstarfið. Að lokum votta ég fjölskyldu Magnúsar mína dýpstu samúð. Sigurður Sveinn Sigurðsson. Mig langar að minnast með nokkrum orðum á hann Magnús eða Magga eins og við köllum hann, það eru ekki nema 3 ár síðan ég kynntist Magga og fjölskyldu hans þegar dóttir mín fór að gera komur sína tíðar til þeirra. Það var síðastliðið sumar sem ég fékk að kynnast Magga eitthvað að ráði, í maí á síð- asta ári þegar ég flutti til Akureyrar og þurfti að koma ýmsu dóti fyrir og ekki stóð á að fá það geymt í bíl- skúrnum hjá Magga og Jóhönnu, var hann fylltur rækilega þannig að lítið var hægt að ganga um hann. Svo var það kisan mín sem ég hafði ekki samastað fyrir, Jóhanna vildi ólm taka hana í fóstur um tíma eða þar til ég kæmist í húsið sem ég keypti, en Maggi var svo sem ekkert spenntur og sagði að hún mætti vera í nokkra daga því að hann væri ekkert hrifinn að köttum. Ég hringdi oft í Jóhönnu og spurði hvernig gengi með kisu, þá var svar- ið iðulega: „Æ, hún og Maggi kúra saman uppi í sófa og hann er að strjúka henni, mér heyrist að þau séu bæði farin að mala og Maggi sé farinn að verða háður kisu. Ég veit ekki hvort hann vill nokkuð að þú takir hana aftur því hann spyr alltaf þegar hann kemur úr vinnuni hvar kisa sé til að vera viss um að hún sé enn hjá þeim.“ Þessir fáu dagar urðu að mánuði. Í júní hugðist Maggi mála húsið hjá sér, þá hugs- aði ég að nú gæti ég gert eitthvað fyrir þau í staðinn fyrir geymsluna og fóstrustarfið. Ég tók til hendinni og byrjað að mála og gekk sú vinna ljómandi vel en ekki gátum við klár- að alla gluggana og sagði Maggi að við hefðum nógan tíma og gætum gert þetta næsta sumar. Ekki óraði mig fyrir því að Maggi yrði ekki hjá okkur næsta sumar til að klára gluggana. Maggi minn, gluggarnir verða kláraðir í sumar og þú fylgist vel með okkur og getur hlegið að okkur þegar við förum að missa föt- urnar og penslana. Mér þykir sárt að missa svona ungan, góðan félaga og vin eins og þig, Maggi minn. Elsku Jóhanna Erla, Arnaldur Birgir, Poula, Andri Freyr, Inga Kristín, Sigrún María og aðrir ást- vinir, megi Guð vera með ykkur á þessum erfiða tíma og styrkja ykk- ur. Minning um Magga lifir áfram í hjörtum okkar allra sem fengu tæki- færi til að kynnast þessum yndis- lega manni Helga Sigríður. Enn er höggvið skarð í raðir skautamanna á Akureyri. Maðurinn með ljáinn sýnir enga miskunn. Fyrir fimm árum tók hann Marjo, konuna mína, og núna Magnús Finnsson, kæran vin. Marjo og Magnús höfðu um árabil fram til ársins 2000 starfað náið saman að málefnum skautaíþrótta á Akureyri. Þegar Marjo hóf að end- urvekja starf listhlaupsdeildar leit- aði hún iðulega til Magga með sín málefni. Símtölin voru ófá sem þau áttu á þessum árum, oft liðu heilu kvöldin í símanum. Stundum voru átök sem ávallt enduðu á einn veg. Með sameiginlegri niðurstöðu. Svona var Maggi, hann var afar klókur samningamaður sem átti allt- af nóg til af sanngirni svo hægt væri að ná lendingu. Maggi var afar framsýnn maður og hafði alltaf hugfasta heildarmynd um framtíð Skautafélags Akureyr- ar. Gott dæmi um þetta var afstaða hans til krulluíþróttarinnar. Þegar við Marjo hófum æfingar á krullu á skautasvellinu hvatti Maggi okkur áfram og studdi með ráðum og dáð. Hann hefur séð fyrir að þessi nýja íþrótt ætti eftir að skjóta styrkari stoðum undir starfsemi Skauta- félagsins. Maggi hvatti okkur snemma til að halda Íslandsmót í krullu og var það ekki síst að hans áeggjan að sú skip- an komst á. Í byrjun var hópurinn lítill sem stundaði krullu á Akureyri en Maggi var alltaf mættur í áramóta- mótið með okkur til þess að við hefðum „örugglega nægan mann- skap í fjögur lið“. Það leyndi sér þó ekki að þessi mikli keppnismaður hafði hina mestu skemmtan af þess- um leik. Eftir að Skautahöllin reis og íþróttinni óx fiskur um hrygg varð Maggi einn af okkur. Hann gekk til liðs við Garpana og spilaði með þeim svo lengi sem kraftar leyfðu. Hæst náði skemmtunin við krulluleik síð- astliðið vor á Ice Cup-mótinu í Skautahöllinni á Akureyri. Kæru Jóhanna og börn, myrkrið er mikið þessa stundina en ljósið er þarna í fjarska. Það á vonandi eftir að skína bjartar hjá ykkur í framtíð- inni. Guð veri með ykkur. Gísli Kristinsson, formaður Krulludeildar SA. Veistu það hann afi minn, var yndislegur maður. Hann var besta skinn. Svo hress, svo kátur, svo léttur á fæti. Svo klár, svo góður, svo mikið gull af manni. Betri mann er erfitt að finna, en hann afa minn sem allt mun á minna. Hrjúfar kinnar, skörðóttur skalli, grásprengdur kragi og glott á vör. Eitthvað að pússa, eitthvað að laga, skera út myndir öllum að gefa. Ég sakna hans strax, því mun ei linna. Ég elska þig afi og dag einn mun ég þig aftur finna. FRIÐGEIR KRISTJÁNSSON ✝ Friðgeir Krist-jánsson húsa- smíðameistari fædd- ist á Grundum í Kollsvík í Vestur- Barðastrandarsýslu 11. desember 1927. Hann lést 19. janúar síðastliðinn og var jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju 27. janúar. Hvíldu í friði, elsku afi. Sól og Máni munu alast upp í minning- unni um þig. Þú munt aldrei gleymast. Þín sonardóttir, Jórunn Kristjánsdóttir. Þögn ríkir, þjóni þér góðar vættir, þökkum fyrir þín gengnu spor. Þú komst og alla aðra bættir, efldir oss vilja, kjark og þor. Það var á vordögum 1992 að hópur manna kom saman til að undirbúa gerð golfvallar í Gufudal. Þar fór samhentur hópur af stað í stórt og mikið verkefni. Einn af styrku stoðunum í þessum hópi hefur nú verið kallaður burt til æðri staða. Friðgeir Kristjánsson, einn af þessum einstaklingum í mannheimum sem alla heillaði með ljúfmannlegri framgöngu og ein- lægu viðmóti. Aldrei æðrast eða fjasað, gengið til verka með glettið bros og blik í auga. Að gera upp eitt íbúðarhús, það var bara verk- efni. Að gera upp hrunið fjós og hlöðu og breyta því í golfskála, það var bara verkefni. Ónýtir gluggar, ónýt gólf, ónýtar hurðir, þetta var bara verkefni. Þau voru ófá sporin hans Friðgeirs upp í dal til að bæta og laga. Einhverju sinni á fyrstu árum klúbbsins var fátt um sjálfboðaliða á skálavakt um verslunarmanna- helgi. Kom þá Friðgeir og bauðst til að taka helgarvaktina í skál- anum. Hann hellti á könnuna og seldi inn á völlinn, en jafnframt var hann búinn að mála alla glugga skálans þegar félagar komu heim úr ferðum sínum og mættu í skálann sinn. ,,Ja, ég tók þetta svona inn á milli“ og svo kom bara bros. Stundum var nefnt eitt- hvað svo Friðgeir heyrði og oftar en ekki var verkinu lokið áður en aðrir höfðu ráðrúm til að huga að því. Friðgeir, okkar góði félagi var jafnan kallaður ,,Strákurinn“ með- al okkar félaganna, því hann var svo ungur í anda og fljótur til. Það var alltaf gaman að fara hring með Friðgeiri. Skotið markvisst, yfir- vegað og fumlaust. Þegar vel gekk var brosið aðeins breiðara, en síð- an rölt á næsta skotstað af ein- lægni og ró. Friðgeir tók að sér formennsku í klúbbnum okkar á fyrstu árum hans en fannst betra að ílengjast ekki í því starfi, hann vildi heldur smíða eitthvað nyt- samlegt fyrir klúbbinn en að vas- ast í stjórnunarmálum sem tóku tíma frá verklegum störfum. Einstakur félagi er nú burt kall- aður og hópurinn í golfinu í Gufu- dal hefur misst einn af sínum styrku stólpum. Það er von okkar að Friðgeir hafi verið sér þess meðvitandi hvað við félagarnir mátum hann mikils þó það væri ekki hans stíll að upphefja sjálfan sig á neinn hátt, alveg sama hversu miklu hann kom í verk með sinni einstöku framgöngu til orðs og æðis. Hans verður sárt saknað um ókomin ár af félögum í Golf- klúbbi Hveragerðis. Vottum fjölskyldu hans, vinum og venslafólki okkar einlægustu samúð og þökkum um leið þann tíma sem okkur hlotnaðist að hafa hann á meðal okkar. Minningin lif- ir um einstakan dreng. Fyrir hönd Golfklúbbs Hvera- gerðis. Kristinn G. Kristjánsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.