Morgunblaðið - 26.02.2005, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 51
KIRKJUSTARF
Bænatónleikar
– sorgin og lífið
FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ 3. mars
kl. 20 verða bænatónleikar í
Laugarneskirkju.
Þar koma fram söngkonan
Kirstín Erna Blöndal, Gunnar
Gunnarsson, píanó- og orgelleik-
ari, Jón Rafnsson, bassaleikari og
Örn Arnarson, gítarleikari. Einnig
koma þar fram sr. Bjarni Karls-
son, prestur Laugarneskirkju og
sr. Bragi Skúlason, sjúkra-
húsprestur.
Tilgangur bænatónleikanna er
að gefa fólki kost á að koma í
kirkjuna og hlusta á fallega tón-
list þar sem bænir og sálmar tjá
það sem við getum oft ekki sagt
með eigin orðum.
Þetta verður falleg stund þar
sem við fáum frið til að syrgja,
minnast og hugsa á uppbyggileg-
an hátt um okkar eigin lífsgöngu
með því einu að koma í kirkjuna,
setjast niður og njóta.
Eftir tónleikana verður boðið
upp á kaffi og kleinur í safn-
aðarsal Laugarneskirkju en þar
mun sr. Bragi Skúlason segja
nokkur orð og svara spurningum.
Kaupmaðurinn
á horninu kvaddur
SÍÐASTLIÐIN 15 ár eða svo hafa
þau hjónin Logi Björgvinsson og
Margrét Gústafsdóttir haldið úti
einskonar félagsheimili fyrir
Laugarneshverfið í verslun sinni
Teigakjöri við Gullteig. Nú hafa
þau selt búðina í hendur góðu
fólki og snúið sér að öðru.
Marga hverfisbúa langar til að
fá tækifæri á að þakka fyrir sig,
því þjónusta þeirra Loga, Mar-
grétar og annarra fjölskyldu-
meðlima í Teigakjöri hefur verið
sérlega gefandi og átt ríkan þátt í
að skapa þá góðu hverfisvitund
sem er sameign okkar Laug-
arnesbúa.
Við guðsþjónustu sunnudaginn
27. febrúar kl. 11 verða þeim
formlega þökkuð störfin og gefst
fólki þá kostur á að sýna þakklæti
sitt.
Æðruleysismessa í
Fríkirkjunni
í Hafnarfirði
ÆÐRULEYSISMESSUR í Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði hafa verið
mánaðarlega síðan í haust og ver-
ið fjölsóttar.
Á morgun sunnudaginn 27.
febrúar verður næsta æðruleys-
ismessa haldin í Fríkirkjunni kl.
20 og er það sem fyrr hópur
áhugafólks um æðruleysismessur
sem stendur á bak við þetta helgi-
hald ásamt prestum Fríkirkj-
unnar. Þetta áhugafólk hefur
kynnst reynslusporunum 12 sem
liggja til grundvallar í öllu starfi
AA-samtakanna svo og samtaka
aðstandenda alkóhólista í Al-Anon
og öðrum samtökum sem vinna á
sama grunni. Æðruleysismess-
urnar eru sniðnar að þörfum
þeirra sem kynnast vilja 12-spora
starfi og eru allir velkomnir.
Í messunni á sunnudaginn kem-
ur mun einstaklingur úr 12-spora
starfi greina frá reynslu sinni og
reynslusporin 12 verða lesin og
kynnt. Tónlistin verður af léttara
taginu í samræmi við þá gleði sem
auðkennir góðan bata og að þessu
sinni annast hana Guðlaugur Vikt-
orsson tónlistarmaður og Erna
Blöndal söngkona. Að lokinni
messu munu þau sem standa á bak
við þetta framtak bjóða upp á
kaffisopa í safnaðarheimili Frí-
kirkjunnar.
Kamilla og þjófurinn
í Grensáskirkju
KAMILLA og þjófurinn verða í
Grensáskirkju á morgun, sunnud.
27. febr. kl. 11.
Um er að ræða barnaleikrit
með söngvum, byggt á sögu Kari
Vinje, um stúlkuna Kamillu og
kynni hennar af Sebastían. Hann
hafði verið innbrotsþjófur en vill
snúa við blaðinu.
Stopp-leikhópurinn stendur að
sýningunni sem er öllum opin og
ókeypis.
Kolaportsmessa
GUÐSÞJÓNUSTA verður í Kola-
portinu sunnudaginn 27. febrúar
kl. 14. Bjarni Karlsson sókn-
arprestur í Laugarneskirkju flyt-
ur hugleiðingu og þjónar ásamt
Jónu Hrönn Bolladóttur miðborg-
arpresti.
Tónlistarmaðurinn Þorvaldur
Halldórsson mun leiða lofgjörðina.
Þá er hægt að leggja inn fyr-
irbænarefni til þeirra sem þjóna í
guðsþjónustunni áður en stundin
hefst. Í lok stundarinnar verður
blessun með olíu.
Guðsþjónustan fer fram í kaffi-
stofunni hennar Jónu í Kolaport-
inu sem ber heitið Kaffi port, þar
er hægt að kaupa sér kaffi og
dýrindis meðlæti og eiga gott
samfélag við Guð og menn.
Það eru allir velkomnir.
Miðborgarstarf þjóðkirkjunnar.
Bænanámskeið
HVAÐ er bæn? Hvernig biðjum
við og hvers vegna? Hvað segir
Biblían um bænaiðkun? Er til ein-
hver ein „rétt“ aðferð við bænina,
eða biður bara hver á sinn hátt?
Þessar spurningar og margar
fleiri verða teknar fyrir á nám-
skeiði um bænina nú á föstunni.
Kennt verður í litlum hópum þar
sem allir fá tækifæri til virkrar
þátttöku. Upplýsingar og skrán-
ing í síma 557 3280.
Kennt verður á þriðjudögum kl.
20–22, 1. til 22. mars undir um-
sjón Guðrúnar Eggertsdóttur,
djákna.
Alþjóðlegur
bænadagur kvenna
í Selfosskirkju
ALÞJÓÐLEGUR bænadagur
kvenna verður haldinn föstudag-
inn 4. mars í Selfosskirkju kl 10.
Eins og allir dagar hefst Alþjóð-
legur bænadagur kvenna við
dagsmörk í Kyrrahafi og um leið
og dagsljósið berst frá austri til
vesturs umhverfis hnöttinn, taka
stöðugt nýir hópar í borgum,
sveitum og þorpum undir lofgjörð
og bæn, uns dagur er að kvöldi
kominn eftir u.þ.b. 40 klukku-
stundir, þegar sólin hnígur til við-
ar við strendur Alaska.
Það voru baptistakonur af ýms-
um þjóðernum sem fyrst héldu Al-
þjóðabænadag kvenna hinn 4.
mars 1927 í Póllandi. Að þessu
sinni kemur bænarefnið einnig frá
konum í Póllandi.
Konur, takið mennina með og
sameinumst í lofgjörð og bæn sem
allar kirkjudeildir taka þátt í. Eft-
ir bænasamveruna sameinumst við
yfir kaffisopa í safnaðarheimilinu.
Að þekkja
sjálfa(n) sig
ÞRIÐJUDAGINN 1. mars kl. 20
hefst í Leikmannaskóla þjóðkirkj-
unnar námskeið sem fjallar um
lífsviðhorf og hvernig Kristur
ræddi um slík viðhorf.
Á námskeiðinu verða fimm
grundvallarviðhorf í lífi okkar
tekin til meðhöndlunar þ.e: við-
horf okkar til sjálfra okkar, ann-
ars fólks, Guðs, lífsins, heimsins.
Námskeiðið byggist á viðhorfs-
meðferð þeirra Johns Powells og
Lorettu Brady en leiðbeinandi er
Gunnbjörg Óladóttir guðfræð-
ingur og doktorsnemi í guðfræði
við Edinborgarháskóla.
Námskeiðið verður haldið í
safnaðarheimili Grensáskirkju og
hefst kl 20. Kennt er í þrjú skipti,
2 tíma í senn. Skráning fer fram í
síma 535 1500 eða á vef Leik-
mannaskólans, kirkjan.is/
leikmannaskoli.
Tómasarmessa í
Breiðholtskirkju
ÁHUGAHÓPUR um svokallaðar
Tómasarmessur efnir til fimmtu
messunnar á þessum vetri í Breið-
holtskirkju í Mjódd sunnudags-
kvöldið 27. febrúar kl. 20.
Tómasarmessan hefur unnið sér
fastan sess í kirkjulífi borg-
arinnar, en slík messa hefur verið
haldin í Breiðholtskirkju í Mjódd
síðasta sunnudag í mánuði, frá
hausti til vors, síðustu sjö árin.
Framkvæmdaaðilar að þessu
messuhaldi eru Breiðholtskirkja,
Kristilega skólahreyfingin, Félag
guðfræðinema og hópur presta og
djákna.
Tómasarmessan einkennist af
fjölbreytilegum söng og tónlist,
mikil áhersla er lögð á fyr-
irbænaþjónustu og sömuleiðis á
virka þátttöku leikmanna.
Gospelmessa
í Hallgrímskirkju
í Saurbæ
SUNNUDAGINN 27. feb. kl. 14
verður gospelmessa í Hallgríms-
kirkju i Saurbæ. Í messunni syng-
ur kór Saurbæjarprestakalls létt
gospellög undir stjórn Zsuzsönnu
Budai, sem einnig leikur á hinn
nýja flygil kirkjunnar sem nýbúið
er að festa kaup á fyrir gjafafé.
Dóra Líndal syngur einsöng,
Gunnar Ringsted leikur á tromm-
ur og Haukur Gíslason á kontra-
bassa.
Í messunni verður öllum 5 ára
börnum afhent bókin „Kata og Óli
fara í kirkju“.
Tökum börnin með og eigum
uppbyggilega stund saman í kirkj-
unni. Allir velkomnir.
Sóknarprestur.
Átökin um textann
í Hallgrímskirkju
REGLULEGA skjóta upp kollinum
margvíslegar kenningar um að
tortryggilega hafi verið staðið að
vali rita í Nýja testamentið.
Skemmst er að minnast þekktra
samsæriskenninga sem útgáfa Da
Vinci-lykilsins kom á flot eina
ferðina enn.
Á fræðslumorgni í Hallgríms-
kirkju næstkomandi sunnudag, kl.
10, mun dr. Clarence Glad ræða
þetta efni undir fyrirsögninni
Átökin um textann. Fá forn rit-
söfn ef nokkurt hafa verið rýnd
jafn kyrfilega af vísindamönnum
og ritsafn Nýja testamentisins,
bæði tilurð þess og inntak. Dr.
Clarence mun m.a. kynna nokkrar
þessara rannsókna og niðurstöður
þeirra.
Að erindinu loknu hefst síðan
kl. 11 guðsþjónusta í kirkjunni
þar sem séra Sigurður Pálsson
mun prédika og þjóna fyrir altari
ásamt séra Jóni Dalbú Hróbjarts-
syni. Barnastarf á sama tíma er í
umsjá Magneu Sverrisdóttur
djákna.
Ensk messa
í Hallgrímskirkju
SUNNUDAGINN 27. febrúar nk.
kl. 14 verður haldin ensk messa í
Hallgrímskirkju. Prestur verður
sr. Bjarni Þór Bjarnason. Org-
anisti verður Björn Steinar Sól-
bergsson. Guðrún Finnbjarn-
ardóttir mun leiða almennan
safnaðarsöng. Messukaffi að at-
höfn lokinni. Fjórða árið í röð er
boðið upp á enska messu í Hall-
grímskirkju síðasta sunnudag
hvers mánaðar.
Service in English
Service in English at the Church
of Hallgrímur (Hallgrímskirkja).
Sunday 27th of February at 2 pm.
The Third Sunday of Lent. Holy
Communion. Celebrant and Preac-
her: The Revd Bjarni Thor
Bjarnason. Organist: Björn Stein-
ar Sólbergsson. Leading singer:
Guðrún Finnbjarnardóttir.
Refreshments after the Service.
Íslensk tónlist
í Hjallakirkju
TÓNLISTARGUÐSÞJÓNUSTA
verður í Hjallakirkju í Kópavogi
sunnudaginn 27. febúar kl. 11.
Kór Hjallakirkju mætir allur og
flytur íslenska sálma og kórtónlist
sem tengjast Kópavogi á einhvern
hátt. Svörin eru við tónlag eftir
Þorkel Sigurbjörnsson sem einnig
á eitt sálmalag. Einnig verður
flutt kórtónlist eftir Árna Björns-
son við texta eftir Jón Arason,
Fjölni Stefánsson, Sigurð Braga-
son og Sigfús Halldórsson við
texta Guðjóns Halldórssonar.
Einnig verður fluttur nýlega ortur
sálmur eftir Laufeyju Júl-
íusdóttur. Páll Ísólfsson á síðan
lokatóninn í orgelinu. Séra Íris
Kristjánsdóttir þjónar.
Organisti og söngstjóri er Jón
Ólafur Sigurðsson. Sjá nánar á
www.hjallakirkja.is
Kvennakirkjan
í Seltjarnarneskirkju
KVENNAKIRKJAN heldur guðs-
þjónustu í Seltjarnarneskirkju
sunnudaginn 27. febrúar kl. 20.30.
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir
prédikar og minnist 12 ára afmæl-
is Kvennakirkjunnar. Erla Stef-
ánsdóttir djasssöngkona syngur
einsöng. Altarisganga. Kór
Kvennakirkjunnar leiðir sönginn
undir stjórn Aðalheiðar Þorsteins-
dóttur. Á eftir verður kaffi í safn-
aðarheimilinu.
Morgunblaðið/Brynjar GautiLaugarneskirkja
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Föstudaginn 18. febrúar var spil-
að á 8 borðum og var meðalskor 168.
Úrslit í N/S:
Bjarnar Ingimars. - Friðrik Hermannss. 189
Sveinn Jensson - Jóna Kristinsdóttir 173
Sigurður Herlufs. - Steinmóður Einars.173
A/V
Sófus Berthelsen - Haukur Guðmunds 207
Jón Gunnarsson - Sigurður Jóhannsson 185
Helgi Sigurðsson - Gísli Kristinsson 176
Bridsdeild FEB
í Reykjavík
Tvímenningskeppni var spiluð í
Ásgarði, Glæsibæ, mánud.14.02.
2005. Spilað var á 9 borðum. Með-
alskor 216 stig.
Árangur N - S
Oliver Kristóferss. - Magnús Halldórss. 256
Gísli Hafliðas. - Þorvaldur Matthíass. 253
Ingibj. Stefánsd. - Margrét Margeirsd. 243
Árangur A - V
Júlíus Guðmundsson - Magnús Oddsson 270
Albert Þorsteinsson - Bragi Björnsson 252
Ragnar Björnsson - Pétur Antonsson 234
Tvímenningur spilaður í Ásgarði,
Glæsibæ, fimmtud. 17.02 og var spil-
að á 12 borðum.
Árangur N - S
Friðrik Jónsson - Tómas Sigurjónsson 249
Alda Hansen - Jón Lárusson 241
Albert Þorsteinsson - Bragi Björnsson 240
Árangur A - V
Sigurður Kristjáns. - Halldór Kristins. 268
Magnús Oddsson - Magnús Halldórsson
265
Magnús Jóhannsson - Erla Sigurðard. 242
Einmenningur
hinn fyrri á Akureyri
Eftir frækilega suðurför akur-
eyrskra spilara um síðustu helgi var
spilaður einmenningur á þriðjudag.
Þar var að venju létt yfir fólki, enda
engin ástæða til þess að skamma
makker sem maður spilar bara við
tvö spil allt kvöldið. Úrslitin urðu
þannig:
Gissur Jónasson með 159 stig.
Björn Þorláksson með 138 stig.
Reynir Helgason með 137 stig.
Gissur Gissurarson með 135 stig.
Frímann Stefánsson með 133 stig.
Næsta þriðjudag er svo áfram-
hald á heilsuhornstvímenningnum
og að sjálfsögðu er spilaður sunnu-
dagsbrids á sunnudaginn kemur.
Keppnin
um Súgfirðingaskálina
Einar Ólafsson og Sigurður Krist-
jánsson voru stigahæstir í annarri
umferð keppninnar um Súgfirðinga-
skálina, tvímenningsmóti Súgfirð-
ingafélagsins í brids, sem fram fór
sunnudaginn 13. febrúar í sal
Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Ef
litið er til samanlagðs stigafjölda
beggja umferða eru þeir einnig
hæstir og hafa því forystu í keppn-
inni. Þetta er fjórða árið sem mótið
fer fram. Keppnin er í fjórum lotum
og gilda þrjár bestu til verðlauna. Að
loknum tveim lotum er meðalskor
216 stig. Úrslit í annarri lotu urðu
þessi:
Einar Ólafsson - Sigurður Kristjánsson 126
Guðni Ólafsson - Ásgeir Sölvason 119
Valdimar Ólafsson - Karl Bjarnason 118
Óskar Kristjánss. - Þorleifur Hallbertss. 112
Björn Guðbjörnss.- Gunnar Ármannss. 104
Guðbj. Björnss. - Steinþór Benediktss. 104
Staðan að loknum tveim lotum:
Einar Ólafsson - Sigurður Kristjánsson 249
Guðni Ólafsson - Ásgeir Sölvason 239
Björn Guðbjörnss.- Gunnar Ármannss. 237
Valdimar Ólafsson - Karl Bjarnason 231
Gróa Guðnad. - Guðrún Jóhannesd. 214
Þriðja lota verður spiluð 13. mars.
Bridsfélag
Borgarfjarðar
Mánudaginn 21. febrúar var tekið
hlé á sveitakeppninni vegna útilegu
einstakra félagsmanna á Bridshátíð.
Þess í stað var spilaður einskvölds
tvímenningur með þátttöku 14 para.
Borgarnesdeild félagsins er að verða
alveg óþolandi og í leiðinni ósigrandi
og fór létt með að tryggja sér tvö
efstu sætin. Úrslit urðu annars sem
hér segir:
Jón H. Einarsson – Anna Einarsdóttir 203
Elín Þórisdóttir – Guðmundur Jónsson 192
Hörður Gunnarss. – Stefán Kalmannss. 178
Jón Eyjólfsson – Baldur Björnsson 172
Guðm. Pétursson – Þorsteinn Pétursson 170
Meðalskor var 156.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson