Morgunblaðið - 26.02.2005, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 57
DAGBÓK
80 ÁRA afmæli. Á morgun, sunnu-daginn 27. febrúar, er áttræð
Kristbjörg Ingimundardóttir, Grens-
ásvegi 58, Reykjavík. Hún tekur á
móti ættingjum og vinum á afmælis-
daginn í Iðuhúsinu, Lækjargötu, 4.
hæð milli kl. 15 og 18.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Brúðkaup | Gefin voru saman 14.
ágúst 2004 í Dómkirkjunni í Reykjavík
af sr. Eðvarð Ingólfssyni þau Auður
Guðjohnsen og Elís Þorgeir Friðriks-
son.
Tvímenningur Bridshátíðar.
Norður
♠ÁKD4
♥DG2
♦DG8764
♣--
Vestur Austur
♠1076 ♠G8532
♥6 ♥10854
♦K95 ♦2
♣987652 ♣KD4
Suður
♠9
♥ÁK973
♦Á103
♣ÁG103
Spilið að ofan kom upp í næstsíðustu
umferðinni í tvímenningi Bridshátíðar.
Hálfslemma í hjarta er skynsamlegur
samningur, en ótrúlega mörg pör
freistuðu gæfunnar í sjö hjörtum. Í
þeim hópi voru sigurvegararnir Lars
Blakset og Peter Fredin. Andstæð-
ingar þeirra voru Karl Sigurhjartarson
og Sævar Þorbjörnsson, sem urðu í
þriðja sæti mótsins. Blakset var við
stýrið og fór tvo niður í misheppnaðri
viðleitni til að vinna slemmuna.
Nokkrir sagnhafar í alslemmunni
fengu út lauf. Eftir það útspil er til
langsótt vinningsleið og hún er þessi:
Sagnhafi tekur fyrsta slaginn á laufás
og leggur niður tígulás (kóngurinn
gæti komið stakur). Síðan er lauf
trompað með tvisti, ÁKD í spaða spilað
og tveimur tíglum hent heima. Tígull
er stunginn með þristi (austur græðir
ekkert á því að trompa á milli), lauf aft-
ur trompað í borði og tígull heima með
sjöu. Lauf er enn trompað og síðan á
blindur út í þriggja spila endastöðu þar
sem austur er með 1085 í hjarta, en
suður ÁK9.
Þetta er vissulega langsótt, en al-
slemman vannst þó á tveimur borðum.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Góð þjónusta hjá Brimborg
ÉG vil koma á framfæri þakklæti til
starfsmanna Max 1, bílavaktin, hjá
Brimborg í Reykjavík fyrir fagmann-
lega og góða þjónustu. Þannig var að
sonur minn lenti í því að keyra yfir
steypustyrktarján og sprakk á tveim-
ur dekkjum. Þá voru góð ráð dýr
vegna þess að eitt varadekk er vana-
lega í bílum. Haft var samband við
Max bílavaktina hjá Brimborg og
ekki var að sökum að spyrja, þeir áttu
til auka felgu og sögðu að það væri
ekkert mál að setja dekk á hana fyrir
okkur og mættum við koma og ná í
dekkið. Klukkan var að verða sex að
kvöldi og þeir að loka verkstæðinu en
þeir sögðu að það væri ekkert mál,
þeir myndu setja dekkið fyrir utan
dyrnar og ég gæti svo komið daginn
eftir með það. Þetta kalla ég góða
þjónustu enda hef ég verslað við þá í
nokkur ár og alltaf fengið afbragðs-
þjónustu.
Stjórnendur Brimborgar geta
veirð stoltir að hafa svona starfsmenn
innan sinna vébanda.
Kærar þakkir.
010349-2149.
Frekju-bréf
ÉG var að fletta í gegnum Morg-
unblaðið í dag, 24. febrúar, og mér
var brugðið. Fyrst las ég í Velvak-
anda bréf fá manneskju sem var að
kvarta undan of ofbeldisfullum mynd-
um. Mig langar að benda henni á það
að það er nóg af sjónvarpsstöðvum til
að horfa á og það er aldrei ofbeldisfull
mynd á þeim öllum í einu. Og þar að
auki er alveg nóg af video-leigum til
að ná í myndir fyrir lítinn pening ef
henni líkar ekki úrvalið í sjónvarpinu.
Svo var annar sem var að ætlast til að
Björgúlfur og aðrir milljónamær-
ingar borguðu fyrir sjúkrahús eða óp-
eruhús.
Hvers lags yfirgangur og frekja er
þetta? Þessir menn hafa unnið fyrir
sínum peningum og það kemur bara
engum við nema þeim í hvað þeirra
peningar fara.
Vonast ég eindregið til að sjá ekki
fleiri svona frekju-bréf.
Einn þreyttur.
Sammála Gógó
–Ljótar myndir
GÓGÓ skrifaði í Velvakanda sl.
fimmtudag um ljótar myndir í sjón-
varpinu á föstudags og laugardags-
kvöldum. Ég vil taka undir þetta, ég
er henni svo sannarlega sammála.
Það eru yfirleitt alltaf sýndar bann-
aðar myndir seinni hluta kvöldsins,
og ef börn eru heima og langar að
horfa lengur á sjónvarpið er þeim
bannað það.
Móðir.
Ljótar myndir í sjónvarpi
Í VelvAKANDA sl. fimmtudag er
verið að fjalla um ljótar myndir í sjón-
varpinu um helgar. Er ég bréfritara
sammála og spyr hvort ekki sé hægt
að sýna jákvæðari myndir en ekki
ógeðslegar og harðsvíraðar myndir.
Reykvíkingur.
Páfagaukur í óskilum
LÍTILL blár páfagaukur fannst á
bílastæðinu við leikskólann Græna-
tún í Kópavogi. Eigandi hafi samband
í síma 894 4027.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Fyrstu niðurstöður úttektar á rannsóknumá sviði menntunar og fræðslu verðakynntar á málþingi um þekkingarþjóð-félagið sem haldið verður í Kennarahá-
skóla Íslands, mánudaginn 28. febrúar nk. Mál-
þingið ber yfirskriftina Undirstaða þekkingarþjóð-
félagsins: Staða og stefnumótun í menntarann-
sóknum. Hluta málþingsins verður varpað beint á
Netinu á slóðinni sjonvarp.khi.is Málþingið er á
vegum menntamálaráðuneytis og Rannís, í sam-
vinnu við Kennaraháskóla Íslands.
Allyson Macdonald, prófessor við KHÍ, mun á
ráðstefnunni flytja erindi sem ber yfirskriftina
„Hvað er í gangi í öðrum OECD-löndum?“ Þá
fjallar Jón Torfi Jónasson, prófessor við Háskóla
Íslands, um stöðu menntarannsókna á Íslandi. Að
loknum málstofum verða pallborðsumræður um
samstarfsmöguleika og næstu skref. Í málstof-
unum verður fjallað sérstaklega um háskólarann-
sóknir, stofnanarannsóknir, þróunarstarf og skóla,
og rannsóknir og þróunarstarf á sviði fræðslumála í
atvinnulífinu. Að því loknu verða pallborðsumræð-
ur þar sem verður horft fram á veginn. Erindum og
pallborðsumræðunum á málþinginu verður varpað
beint á Netinu á slóðinni sjonvarp.khi.is.
„Úttektinni lýkur í vor með fjórum skýrslum auk
yfirlitsskýrslu. Viðfangsefnið endurspeglar aukna
áherslu í öllum löndum á þekkingu sem verðmæti á
öllum skólastigum,“ segir Allyson. „Rannsóknar-
stofnun í menntamálum á vegum OECD í París
hefur lagt áherslu á mikilvægi þekkingarstjórnun-
ar í aukinni nýsköpun og velgengni þjóða. Nýlega
hafa matsteymi á vegum OECD tekið út mennta-
rannsóknir á Nýja-Sjálandi, Englandi, Mexíkó og
Danmörku. Eftirtektarvert er að innan við 0,5% af
heildarútgjöldum til menntamála fara til rannsókna
og þróunarstarfa um málefnið sjálft.“
Allyson segir töluverðan tíma og fjármögnun
fara til rannsókna og þróunarstarfa í grunnskólum
hér á landi, miðað við það sem fer t.d. til leikskóla-
eða háskólanáms. „Starfsmenntun og símenntun er
hlutfallslega sjaldan viðfangsefni rannsókna hér-
lendis líkt og í öðrum OECD-löndum. Skoðanir eru
skiptar um hvort fræðimenn í háskólum eigi að
hafa frjálst val um rannsóknarefni og hvort þeim
beri skylda til að kynna niðurstöður á vettvangi.
Alls staðar virðist vera þörf á að brúa bil milli dreif-
ingar niðurstaðna og nýtingar þeirra, ekki síst í at-
vinnulífinu. Áhugavert þróunarstarf er unnið í
mörgum skólum, ekki síst vegna hugsjóna og drif-
krafts kennara, en stundum er starfið ekki kynnt
nógu mikið né fundin leið til að festa það í starfs-
háttum annarra skóla. Lögð er áhersla á, bæði hér
og í öðrum löndum, að brýnt sé að byggja upp
þekkingu og færni í rannsóknum á menntamálum,
auk þess að auka gæði rannsókna og þróunar-
starfs.“
Menntamál | Málþing um þekkingarþjóðfélagið í Kennaraháskóla Íslands
Þekking sem verðmæti
Allyson Macdonald
fæddist í S-Afríku árið
1952. Hún stundaði há-
skólanám í eðlisfræði í
S-Afríku á 8. áratugn-
um, lauk doktorsnámi í
kennslufræði raun-
greina í BNA 1981 og
fjarnámi í rekstrarfræði
við háskóla í Bretlandi
1997. Allyson hefur
unnið að kennslu, rann-
sóknum, þróunarmálum og stjórnunarstörfum
í S-Afríku, Malaví og á Íslandi.
Allyson er gift Tuma Tómassyni, forstöðu-
manni Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu
þjóðanna, og eiga þau þrjú börn.
ATVINNA mbl.is
Sérgrein:
Tannlýtalækningar, tannfyllingar
og tannsjúkdómafræði.
■ Tímapantanir í síma 588 1920
■ Netfang: tennur@simnet.is
Jónas Geirsson tannlæknir, MS
Hef hafið störf á Tannlæknastofunni Vegmúla 2, Reykjavík.
■ Tannlæknapróf frá Tannlæknadeild HÍ 1988.
■ Mastersnám frá University of North Carolina 2004.
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Eignamiðlun óskar eftir
sölumanni og manni í skjalagerð
Sölumaður þarf að vera löggiltur fasteignasali og gjarnan með góða
reynslu af fasteignasölu. Sölumaður með góða reynslu af fasteigna-
sölu kemur einnig til greina.
Í skjalagerð óskast löggiltur fasteignasali. Lögfræðingur kemur einnig
til greina. Æskilegt er að umsækjandi sé með einhverja reynslu.
Fasteignasalan, sem hér auglýsir, leggur áherslu á menntun, þekkingu
og reynslu starfsmanna. Góð laun í boði fyrir rétta aðila.
Tilboð merkt:
„F - 16694“ sendist til auglýsingadeildar Mbl.
eða í box@mbl.is sem fyrst.
Þórarinn B. Þorláksson
óskast
Óska eftir mynd eftir
Þórarin B. Þorláksson
Upplýsingar veittar í síma 893 0785
Nú er lag í Glæsibæ!
Harmonikudansleikur af bestu gerð í Glæsibæ
kl. 21.30 í kvöld
Hljómsveitir undir stjórn Ingvars Hólmgeirssonar,
Svenna Sigurjóns og Þorsteins Þorsteinssonar, ásamt
Villa Guðmunds., leika gömlu og nýju dansana.
Félag harmonikuunnenda í Reykjavík. F.H.U.R
EKKI KVÍÐA ÖLLU
SEM ÞÚ KVÍÐIR
Námskeið byrjar mánudaginn 28. febrúar kl. hálfsex.
Kvennakirkjan, Laugavegi 59, sími 551 3934
LÍFIÐ EFTIR SKILNAÐ –
NÝ BYRJUN
Námskeið byrjar þriðjudaginn 1. mars kl. hálfsex.
Kvennakirkjan, Laugavegi 59, sími 551 3934