Morgunblaðið - 26.02.2005, Blaðsíða 58
58 LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 hvassviðri, 4 vit-
ur, 7 tré, 8 glyrna, 9 duft,
11 þráður, 13 skjótur, 14
kvenmannsnafn, 15 bráðin
tólg, 17 ófríð, 20 óhreinka,
22 er til, 23 kvendýrið, 24
færa úr skorðum, 25 ham-
ingja.
Lóðrétt | 1 dáin, 2 fuglar, 3
laupur, 4 jó, 5 tuskan, 6
ástfólgnar, 10 sjaldgæft,
12 veiðarfæri, 13 her-
bergi, 15 ljósleitur, 16 am-
boðið, 18 viðurkennt, 19
áma, 20 siga, 21 skynfæri.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 hljóðlátt, 8 rósum, 9 týnir, 10 una, 11 fiður, 13
nárum, 15 hadds, 18 salla, 21 tík, 22 svera, 23 úfinn, 24
skyldulið.
Lóðrétt |2 losið, 3 ólmur, 4 lútan, 5 tínir, 6 hróf, 7 hrum, 12
und, 14 ála, 15 hæsi, 16 drekk, 17 stagl, 18 skútu, 19 leifi,
20 agna.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú fórnar þér töluvert fyrir aðra á næstu
vikum, hrútur góður. Þér mun reynast
auðvelt að setja hagsmuni annarra ofar
þínum eigin. Þú lætur velferð annarra
þig skipta.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Komandi mánuður er hagstæður fyrir
vinasambönd og tengsl við samtök og
hópa. Einhverra hluta vegna áttu auð-
veldara með þessi samskipti en áður og
nýtur þeirra jafnframt.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ferð létt með að ganga í augun á mik-
ilvægu fólki þessa dagana. Allir þeir sem
hafa yfir öðrum að segja, svo sem kenn-
arar, foreldrar og yfirmenn sjá ekki sól-
ina fyrir þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Á komandi vikum er allt eins líklegt að
þér gefist kostur á því að fara í afslöpp-
unarferð. Einnig gætir þú komist í þá
aðstöðu að afla þér frekari tekna gegn-
um fjölmiðla eða aðra útgáfu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Maki þinn eykur tekjur sínar og fólk
kemur til þín færandi hendi. Fleiri
möguleikar eru erfðafé, verðlaun eða
aukið lánstraust.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Hin fagra ástargyðja Venus er nú beint
á móti meyjarmerkinu í himninum. Það
þýðir að sambönd þín við aðra batna svo
um munar. Parsambönd fyllast hlýju og
innileika.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Samskipti við vinnufélaga batna umtals-
vert á næstunni. Einhverra hluta vegna
veita samstarfsmenn þér einstaklega
mikinn stuðning. Tekjur þínar aukast
hugsanlega líka.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ást, rómantík og unaður eru á næsta
leiti á komandi vikum. Er þetta ekki
rétti tíminn fyrir frí? Njóttu alls kyns af-
þreyingar og skemmtunar og njóttu
þess að leika þér með smáfólkinu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Núna er rétti tíminn til þess að fegra og
dytta að heimilinu. Það er upplagt að
bjóða gestum heim á næstu vikum.
Gerðu hreiðrið þitt hlýtt og notalegt.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú munt án efa taka eftir því á næstunni
hversu mikil ástúð umlykur þig í daglega
lífinu. Það er svo sannarlega gefandi.
Samband við systkini er einstaklega náið
þessa dagana.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú finnur þig knúinn til þess að eyða
peningum í fallega hluti handa sjálfum
þér og öðrum um þessar mundir, vatns-
beri. Þér gefst tækifæri til þess að auka
tekjurnar. Vertu vakandi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ástargyðjan venus flytur sig í fiska-
merkið í dag. Það bætir samskipti þín og
sambönd við aðra. Einnig verður þú
meira aðlaðandi fyrir vikið. Þetta er frá-
bær tími til þess að hressa upp á fata-
skápinn.
Stjörnuspá
Frances Drake
Fiskar
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert manneskja umhyggju og samúðar,
þú skynjar hvernig öðrum líður og snertir
tilfinningar þeirra. Þú ert líka mann-
eskja sem stendur á eigin fótum. Fólk lað-
ast að þér vegna þessara eiginleika
þinna. Þetta ár verður þér frábært.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Borgarleikhúsið | Íslenski flautukórinn
flytur verk fyrir þverflautur í 15.15-
tónleikaröðinni á Nýja sviði Borgarleik-
hússins. Verkin á efnisskránni eru eftir
Boismortier, Feld, Sigurð Flosason/
Íslenska flautukórinn, John Speight, Atla
Heimi Sveinsson og Steingrím Rohloff.
Hallgrímskirkja | Mótettukór Hallgríms-
kirkju og Raschèr-saxófónkvartettinn
flytja tónlist eftir Bach, Penderecki og
Huga Guðmundsson. Verk Huga, Adoro Te
Devote, er samið fyrir flytjendurna og
verður frumflutt á tónleikunum. Stjórnandi
er Hörður Áskelsson.
Smekkleysa Plötubúð – Humar eða frægð
| Jeff Who? með tónleika. Hljómsveitin er
skipuð meðlimum Ghostigital, Skakka-
manage, Blúsbyltunnar o.fl.
Skemmtanir
Cafe Catalina | Skagfirðingar ath. Hörður
G. Ólafsson skemmtir á Catalinu í Kópavogi
í kvöld.
Celtic Cross | Spilafíklarnir leika í
kjallaranum, Garðar trúbador sér um stuð-
ið á efri hæðinni. Frítt inn.
Café Rosenberg | Hljómsveitin Hraun leik-
ur frumsamið efni kl. 23. Síðan tekur
Hljómsveitin Hraun! við kl. 1 með gleði-
söngva og dansvæna tóna.
Gaukur á Stöng | Á móti sól leikur á
sveitaballi laugardagskvöldið 26. febrúar.
Frítt inn til kl. 00.30
Grand Rokk | Hljómsveitin Drep leikur
ásamt Sólstöfum og Momentum í kvöld
Tónleikarnir hefjast kl. 24. Verð 500 kr.
Klúbburinn við Gullinbrú | Dansleikur með
Brimkló í kvöld.
Kringlukráin | Hljómsveit Rúnars Júlíus-
sonar spilar í kvöld kl. 23.
Pakkhúsið, Selfossi | Hljómsveitin Sólon
spilar um helgina.
Rauða ljónið | Hljómsveitin Sex volt spilar
um helgina.
Roadhouse | Konukvöld þar sem hægt
verður að næla sér í miða á Kiss fm. Ýmsar
kynningar fyrir konurnar. Dj. Le Chef í
búrinu.
De Palace | Techno veisla í kvöld. Plötu-
snúðarnir Dj Exos, Dj Aldis, Knob Fidlen og
Dj Steinar leika fyrir dansi.
Vélsmiðjan, Akureyri | Hljómsveitin Tilþrif
spilar um helgina.
Myndlist
Árbæjarsafn | Í hlutanna eðli – Stefnumót
lista og minja.
Gallerí Gyllinhæð | Þórunn Eymundar-
dóttir og Júlíus Eymundsson – „Snert
hörpu mína himinborna dís“ í Gallerí Gyllin-
hæð, á efri hæð Kling&Bang.
Gallerí I8 | Finnur Arnar sýnir ýmis mynd-
verk.
Gallerí List | Daði Guðbjörnsson kynnir ný
olíumálverk í Hvíta sal Gallerís Listar.
Gallerí Sævars Karls | Ættarmót fyrir
hálfri öld. Sigurður Örlygsson sýnir olíu-
málverk – 100 andlit úr fjölskyldu sinni.
Gallerí Tukt | Erna Þorbjörg Einarsdóttir –
Verk unnin með blandaðri tækni.
Gerðuberg | Rosemarie Trockel sýnir ljós-
myndir, skúlptúra, teikningar og mynd-
bönd.
Gerðuberg | Sigríður Salvarsdóttir í Vigur
sýnir listaverk úr mannshári í Boganum,
Gerðubergi frá 21. janúar – 13. mars. Sjá
nánari upplýsingar á www.gerduberg.is.
Hafnarborg | Helgi Hjaltalín Eyjólfsson er
myndhöggvari febrúarmánaðar í Hafnar-
borg.
Hafnarborg | Bjarni Sigurbjörnsson og
Haraldur Karlsson – Skíramyrkur.
Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný olíu-
málverk í forkirkju.
Hrafnista Hafnarfirði | Steinlaug Sig-
urjónsdóttir sýnir olíu- og vatnslitamyndir í
Menningarsalnum á fyrstu hæð.
Hvalstöðin, Ægisgarði | Dagný Guð-
mundsdóttir – Karlmenn til prýði.
Kaffi Sólon | Óli G. Jóhannsson sýnir
óhlutlæg verk.
Kling og Bang gallerí | Magnús Árnason –
Sjúkleiki Benedikts.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið laugar-
daga og sunnudaga kl. 14–17. Höggmynda-
garðurinn við Freyjugötu er alltaf opinn.
Listasafn Íslands | Íslensk myndlist 1930–
1945 og Rúrí – Archive–endangered wat-
ers.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Blaða-
ljósmyndarafélag Íslands – Mynd Ársins
2004 á efri hæð. Ragnar Axelsson – Fram-
andi heimur á neðri hæð.
Listasafn Reykjanesbæjar | Kristín Gunn-
laugsdóttir – …mátturinn og dýrðin, að ei-
lífu…
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið – yfirlitssýning á verkum
Ásmundar Sveinssonar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Þórð-
ur Ben Sveinsson – Borg náttúrunnar.
Bjargey Ólafsdóttir – Láttu viðkvæmt útlit
mitt ekki blekkja þig. Erró – Víðáttur. Brian
Griffin – Áhrifavaldar.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Hörður Ágústsson – Yfirlitssýning í vestur-
sal. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur Örn
Friðriksson – Markmið XI. Samvinnuverk-
efni í miðrými. Yfirlitssýning á verkum
Kjarvals í austursal.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Aðföng,
gjafir og önnur verk eftir Sigurjón.
Nýlistasafnið | Jean B. Koeman – Socles
de Monde. Samsýningin Tvívíddvídd.
Grams – Sýning á vídeóverkum úr eigu
safnsins.
Safn | Stephan Stephensen – AirCondition.
Jóhann Jóhannsson – Innsetning tengd
tónverkinu Virðulegu forsetar. Á hæðunum
þremur eru að auki ýmis verk úr safneign-
inni, þ.á m. ný verk eftir Roni Horn, Pipilotti
Rist og Karin Sander.
Thorvaldsen Bar | Ásta Ólafsdóttir – Hug-
arheimur Ástu.
Þjóðmenningarhúsið | Bragi Ásgeirsson (f.
1931), grafíklistamaður, listmálari, mynd-
listarkennari og listgagnrýnandi er mynd-
listarmaður mánaðarins í samstarfi Þjóð-
menningarhússins og Skólavefjarins. Í
Þjóðmenningarhúsinu er yfirlitssýning á
verkum Braga, bæði í veitingastofu og í
kjallara.
Listasýning
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós-
myndari – Heitir reitir. Stendur til 22. maí.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Tónlistararfur Ís-
lendinga, Handritin, Þjóðminjasafnið –
Svona var það, Heimastjórnin. Davíð Stef-
ánsson frá Fagraskógi (1895–1964) er
skáld mánaðarins.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning
Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til –menn-
ing og samfélag í 1.200 ár. Ómur –Landið
og þjóðin í íslenskri hönnun. Ljósmynda-
sýningarnar Hér stóð bær og Átján vóru
synir mínir í álfheimum... Opið alla daga
nema mánudaga frá kl. 11–17. Fyrsta
fimmtudag hvers mánaðar er opið til kl. 21.
Þjóðminjasafn Íslands | Síðasta sýningar-
helgi á sýningunum Hér stóð bær og Átján
álagablettir í Myndasal Þjóðminjasafns Ís-
lands.
Fundir
Samfylkingarmiðstöðin | Stefán Jón Haf-
stein er málshefjandi á laugardagsfundi
SffR um grunnskólana í Reykjavík, starfs-
hætti, sjálfstæði og rekstrarform. Aðrir
framsögumenn eru Kjartan Valgarðsson
og Snorri Traustason. Fundurinn stendur
frá kl. 11–13 í dag í Samfylkingarmiðstöð-
inni, Hallveigarstíg 1.
Málþing
Handverk og hönnun | Málþing í Norræna
húsinu í dag. Gestur er dr. Judy L. Larson
forstöðumaður National Museum of
Women in the Arts í Washington. Aðrir
fyrirlesarar eru Erna Björnsdóttir, Hrafn-
kell Birgisson, Hildur Bjarnadóttir og Óðinn
Bolli Björgvinsson.
Börn
Taflfélag Reykjavíkur | Unglingameistara-
mót Reykjavíkur fer fram í dag. (Athugið
ekki er teflt á sunnudegi eins og áður var
auglýst.) Mótið er opið öllum 15 ára og
yngri og taflmennska stendur yfir kl. 14–18.
Upplýsingar: Torfi Leósson leo@islandia.is.
Borgarbókasafnið Tryggvagötu | Sögu-
stund kl. 15. Lesið á íslensku og tælensku.
Útivist
Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd
(SJÁ) | Sjálfboðaliðasamtök um náttúru-
vernd (SJÁ) fagna góu með léttri göngu-
ferð laugardaginn 26. febrúar. Farið verður
frá Strætisvagnaskýlinu í Mjódd kl. 11.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. e3 Bb7 5.
Bd3 d5 6. O-O Bd6 7. b3 O-O 8. Bb2
Rbd7 9. Rc3 a6 10. Hc1 De7 11. Ra4
Re4 12. Dc2 f5 13. cxd5 Bxd5 14. De2 f4
15. Rc3 Rxc3 16. Bxc3 Bb7 17. e4 e5 18.
Hfd1 exd4 19. Rxd4 Re5 20. f3 Bc8 21.
Bc4+ Kh8 22. Bd5 Hb8 23. Rc6 Rxc6
24. Bxc6 a5 25. Kh1 Be6 26. Db2 Hbd8
27. a3 Bxa3 28. Bxg7+ Dxg7 29. Dxa3
Hg8 30. Hg1 Hd2 31. g4 fxg3 32. Hxg3
Staðan kom upp í C-flokki Corus
skákhátíðarinnar sem lauk fyrir
nokkru í Wijk aan Zee í Hollandi. Hinn
tólf ára Parimarjan Negi (2316) hafði
svart gegn Joost Wempe (2265). 32...
Hxh2+! og hvítur gafst upp enda verð-
ur hann mátaður eftir 33. Kxh2
Dxg3+.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
HARLA óvenjulegir tónleikar í 15:15 tónleikaröðinni verða haldnir
á Nýja sviði Borgarleikhússins í dag þegar íslenski flautukórinn,
sem skipaður er mörgum af fremstu flautuleikurum landsins,
stígur á stokk. Þetta er einungis í annað sinn sem íslenski flautu-
kórinn kemur fram en hann lék síðast á Myrkum Músíkdögum ár-
ið 2003. Þá koma fram flestir starfandi flautuleikarar landsins
og flytja verk fyrir þverflautur af ýmsum stærðum og gerðum.
Þar skapast því kjörið tækifæri fyrir flautuleikara til þess að hitt-
ast og spila saman en þema tónleikanna mætti kalla flautufjör.
Á efnisskrá tónleikanna eru sex verk, sem öll eru frumsamin
fyrir flautur. Tvö verkanna eru byggð á íslenskum þjóðlögum og
tvö verkanna verða frumflutt. Áheyrendur munu einnig fá að
njóta afraksturs spunanámskeiðs, sem meðlimir kórsins hafa
undanfarið tekið þátt í undir stjórn Sigurðar Flosasonar.
Tónleikar hefjast kl. 15.15 og miðaverð er 1.500 kr. og 500 kr.
fyrir nemendur.
Morgunblaðið/Þorkell
Flautufjör í Borgarleikhúsinu