Morgunblaðið - 26.02.2005, Page 60
smáauglýsingarmbl.is
60 LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FREYJA Gunnlaugsdóttir klarínettuleikari heldur
tvenna einleikstónleika um helgina á tónlistarhátíð í
Kangnung á austurströnd Kóreu. Ekki lætur hún þar
með staðar numið því svo spilar hún í Seoul og því næst
heldur hún til Japans. Á efniskránni eru meðal annars
verk eftir Atla Heimi Sveinsson. „Auðvitað reyni ég að
spila íslenska tónlist hvar sem ég fer,“ segir Freyja.
„Það er mín reynsla að fólk er yfirleitt mjög opið fyrir ís-
lenskri tónlist og finnst gaman að heyra eitthvað nýtt.“
Freyja hefur nú þegar leikið á tónleikum í Kóreu og
fengið mikil viðbrögð en þó er hún ekki viss hvernig
túlka megi sum viðbrögð tónleikagesta. „Það er áberandi
hvað Kóreubúar eru þakklátir og glaðir. Eftir tónleikana
sem ég spilaði í vikunni voru allir alltaf að koma til mín
og segja mér hvernig þeim leið meðan ég spilaði, með
táknmáli auðvitað sem er sérstaklega skemmtilegt. Einn
tók úr sér hjartað og borðaði það. Ég vissi nú ekki alveg
hvernig ég átti að skilja það.“
En það eru fleiri en Kóreubúar og Japanir sem eiga
von á íslenskri tónlist fyrir tilstuðlan Freyju því hún er
að ljúka námi frá Hanns Eisler-tónlistarháskólanum í
Berlín og hluti af lokaprófi hennar verða samspilstón-
leikar þar í borg. Á meðal flytenda verða félagar hennar
úr tríóinu Gorkí Park, þau Una Sveinbjarnardóttir fiðlu-
leikari og Birna Helgadóttir píanóleikari. Í sumar heldur
svo tríóið vestur yfir haf til tónleikahalds í New York og
Boston. „Þetta er íslenskt prógramm og það verður
gaman að sjá hvernig þetta kemur út,“ segir hún.
Freyja segir að sér þyki alls ekki nóg gert til að kynna
íslenska samtímatónlist erlendis og bætir við: „Oft veltir
lítil þúfa þungu hlassi og ef betur væri hlúð að íslenskri
tónlist fengi hún að hljóma oftar og víðar.“
Tónlist | Freyja Gunnlaugsdóttir í Kóreu og Japan
Fólk yfirleitt mjög opið
fyrir íslenskri tónlist
Freyja Gunnlaugsdóttir klarínettuleikari.
Á STUTTUM tíma hafa Íslend-
ingar náð ævintýralegum árangri á
tónlistarsviðinu. Ekki er lengra síð-
an en árið 1876 að fyrstu opinberu
tónleikarnir, þar sem
eingöngu hljóðfæra-
leikarar komu við
sögu, voru haldnir í
Reykjavík. Það var
sama ár og óperusmíði
í Evrópu reis hæst
með frumflutningi
Niflungahrings Wagn-
ers í heild sinni. Fyrir
aðeins þrjátíu árum
kveinuðu margir yfir
sinfóníugarginu sem
illgjarnir starfsmenn
Ríkisútvarpsins leyfðu
sér að básúna yfir sak-
lausa landsmenn. Bylting hefur
orðið í hugarfari þjóðarinnar síðan
þá; nú flykkist ótrúlegur fjöldi á
tónleika með sígildri tónlist, og ekki
bara þegar Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands kemur fram. Tónlistarlífið
hér verður æ litríkara, auk þess
sem Íslendingar ferðast stöðugt
meira utanlands, sérstaklega eftir
að Iceland Express kom á mark-
aðinn. Fleiri utanlandsferðir gefa
möguleika á að sækja tónleika og
óperusýningar erlend-
is og kynnast því besta
sem boðið upp á í
heimsborgunum.
Þetta þýðir auðvitað
að sífellt veraldarvan-
ari íslenskir tónleika-
gestir gera æ meiri
kröfur til tónlistarlífs-
ins hér á landi. Kröf-
urnar um almennilega
hljómburð svo tónlist-
arflutningur Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands
skili sér almennilega
til áheyrenda hafa orð-
ið háværari með árunum, og nú
eygir loksins í byggingu tónlistar-
hússins langþráða.
Verða kröfurnar til Íslensku óp-
erunnar eitthvað minni? Ég held
ekki. Sýningar á óperum eftir Verdi
og Puccini í þröngum húsakynnum
Gamla bíós voru vissulega
skemmtileg nýbreytni fyrst, en
verða stöðugt ankannalegri eftir því
sem árin líða. Með auknum kröfum
verður staða Íslensku óperunnar
því sífellt verri. Ég held að íslenskir
óperugestir eigi ekki eftir að sætta
sig við þetta ástand mikið lengur.
Fyrirsögn greinar Bjarna Daní-
elssonar í Morgunblaðinu í gær var
„Bráðlifandi ópera“. Ég held að það
sé orðum aukið, ég tel að umræðan
um bætt húsnæði Íslensku óper-
unnar megi ekki drukkna í sjálfs-
ánægju sem einkennist af fullyrð-
ingum um að ekkert sé athugavert
við starfsemi hennar síðustu árin.
Staða óperunnar á Íslandi er slæm
og það gerist ekkert ef við einfald-
lega sættum okkur við ástandið. Ég
segi því enn og aftur: Björgum Ís-
lensku óperunni, höldum áfram að
ræða málefni hennar, berjumst fyr-
ir almennilegu óperuhúsi á Íslandi!
Bráðlifandi, en hversu lengi?
Eftir Jónas Sen
Jónas Sen
Höfundur er tónlistargagnrýnandi
á Morgunblaðinu.
Stóra svið
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 27/2 kl 14, Su 6/3 kl 14
SÍÐUSTU SÝNINGAR
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
SÝNINGAR HALDA ÁFRAM EFTIR PÁSKA
AUSA eftir Lee Hall - Í samstarfi við LA
Í kvöld kl 20,
Su 6/3 kl 20,
Su 13/3 kl 20
Ath: Miðaverð kr 1.500
AUSA -
Einstök leikhúsperla
BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson
Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki
Fi 3/3 kl 20, Fö 4/3 kl 20,
Lau 5/3 kl 20, Fi 10/3 kl 20,
Fö 11/3 kl 20, Lau 12/3 kl 20
Lokasýningar
AMERICAN DIPLOMACY
eftir Þorleif Örn Arnarsson
Í samstarfi við Hið lifandi leikhús
Fi 3/3 kl 20, Fö 11/3 kl 20,
Fö 18/3 kl 20
SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR
eftir Agnar Jón Egilsson, Í samstarfi við TÓBÍAS
Mi 2/3 kl 20, Fi 10/3 kl 20, Fi 17/3 kl 20
SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Su 27/2 kl 20,
Lau 12/3 kl 20,
Lau 19/2 kl 20HOUDINI SNÝR AFTUR
Fjölskyldusýning um páskana
Forsala aðgöngumiða hafin
SEGÐU MÉR ALLT e. Kristínu Ómarsdóttur
Í kvöld kl 20, Su 27/2 kl 20
Su 6/3 kl 20, Su 13/3 kl 20
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA - UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI
NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA
Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin
Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið - kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseðill kvöldsins Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins
BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA
- gildir ekki á barnasýningar!
Nýja svið, Litla svið og Þriðja hæðin
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur
Frumsýning fö 4/3 kl 20 - UPPSELT,
Su 6/3 kl 20, Fö 11/3 kl 20,
Su 12/3 kl 20, Fö 18/3 kl 20,
Lau 19/3 kl 20
HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar
eftir vesturfarasögu
Böðvars Guðmundssonar
Í kvöld kl 20 - UPPSELT,
Fö 4/3 kl 20 - UPPSELT,
Lau 5/3 kl 20, Su 13/3 kl 20,
Fi 17/3 kl 20, Fi 7/4 kl 20,
Fö 8/4 kl 20, Lau 16/4 kl 20, Su 17/4 kl 20
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN SÝNIR:
OPEN SOURCE eftir Helenu Jónsdóttur
Frumsýning su 27/2 kl 20, Fi 3/3 kl 20, Su 6/3 kl 20
Aðeins 3 sýningar
15:15 TÓNLEIKAR
ÍSLENSKI FLAUTUKÓRINN
Í dag kl 15:15
Leikhúsgestir munið glæsilegan matseðil S: 568 0878
Rokksveit
Rúnars Júlíussonar
í kvöld
geggjað grínleikrit eftir DANIEL GUYTON
☎ 552 3000
www.loftkastalinn.is
“HREINLEGA BRILLJANT”
• Föstudag 4/3 kl 23 XFM SÝNING
Takmarkaður sýningafjöldi
Loftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18
EB DV
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala frá kl. 10 virka daga.
6. sýn. 27. feb. kl. 19 – Uppselt – 7. sýn. 4. mars kl. 20 – Uppselt
8. sýn. 6. mars kl. 19 – Uppselt – 9. sýn.12. mars kl. 19 – Uppselt – Síðasta sýning
AUKASÝNING: Mið. 2. mars kl. 20
AUKASÝNING:Fim. 10. mars kl. 20 – Styrkt af Vinafélagi Íslensku óperunnar
Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýningin hefst
DVD sýning Vinafélags Íslensku óperunnar í samvinnu við Wagner félagið
Laugardaginn 26. febrúar kl. 13.00-18.15
Tristan und Isolde eftir Richard Wagner. Sýningin er á hliðarsvölum Íslensku
óperunnar (gengið er inn um aðalinngang). Allir velkomnir
Miðasala á netinu: www. opera.is
Lau 26.2
Sun 27.2
Mið 02.3
Fös 04.3
Upplýsingar og miðapantanir
í síma 555 2222 www.hhh.is
Brotið
sýnir
eftir þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann
Það sem getur komið fyrir ástina
Sýningar hefjast kl. 20.00
Í Borgarleikhúsinu Sími 568 8000, midasala@borgarleikhus.is
Aðeins þrjár
s ý n i n g a r
Frumsýning 27 febrúar
Fim. 3 mars
Sun. 6 mars
OPEN
e f t i r H e l e n u J ó n s d ó t t u r