Morgunblaðið - 26.02.2005, Blaðsíða 62
62 LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
EVA Oliversdóttir gerði sér lítið
fyrir og varð bæði Reykjavíkur- og
Íslandsmeistari í Freestyle í ein-
staklingskeppni í ár. Úrslitin í
Freestylekeppni Tónabæjar 2005
réðust síðustu helgi en keppnin fór
fram fyrir fullu húsi í Austurbæ.
Eva er þrettán ára nemi í 8. bekk
Háteigsskóla og æfir bæði ballett
og djassballett og hefur gert það
lengi. „Ég er búin að vera í dansi
síðan ég var þriggja ára en þá fór
ég í ballett hjá Sigríði Ármann. Svo
þegar ég var átta ára fór ég í List-
dansskólann. Þegar ég var níu ára
fór ég til Þýskalands og bjó þar í
hálft ár. Ég var í ballett þar og
byrjaði í hipp hoppi. Ég hélt síðan
áfram þegar ég kom hérna heim,“
segir Eva, sem æfir tvisvar í viku í
Dansstúdíói World Class hjá Nönnu
Ósk Jónsdóttur. Nanna stendur
einmitt fyrir komu hins þekkta
dansahöfundar Darrins Hensons til
landsins næstu helgi. Eva ætlar á
námskeiðið enda fékk hún það í
verðlaun fyrir sigurinn í Free-
stylekeppninni.
Eva æfir jafnframt ballett fjórum
sinnum í viku í tvo og hálfan tíma í
senn. „Ég er komin í 5. flokk en þá
aukast æfingarnar. Það er djass,
klassískur balletttími, módern og
spuni. Það er mjög gaman þarna og
kennararnir eru skemmtilegir,“
segir hún um námið í Listdansskóla
Íslands.
Samsettur vinningsdans
Vinningsdansinn setti Eva saman
úr ýmsum dönsum sem hún hefur
lært. „Ég setti saman nokkra dansa
frá námskeiðunum í Dansstúdíói
World Class í Laugum. Ég var líka
í fimleikum þangað til ég var átta
ára og notaði það aðeins í dans-
inum,“ segir Eva, sem var í fim-
leikum frá þriggja ára aldri, bæði í
Gerplu og Ármanni. „Ég hef líka
verið á sumarnámskeiðum hjá Jazz-
ballettskóla Báru og hjá Maríu
Gísladóttur ballerínu.“
Hún hefur því nóg að gera og
hefur gaman af því. „Mér finnst það
mjög gaman. Það er alltaf mikið að
gera hjá mér“, segir Eva og bætir
við að hún hafi líka nógan tíma fyr-
ir skólann.
Sigurinn í Freestyle kom Evu á
óvart en þetta er í fyrsta skipti sem
hún tekur þátt. „Þetta er í fyrsta
skipti sem ég keppi og ég átti ekki
von á þessu. Sérstaklega eftir að ég
var búin að vinna Reykjavík-
urmeistarann, ég átti alls ekki von
á því að verða Íslandsmeistari líka,“
segir Eva, sem ætlar að taka þátt
næstu ár. „Alveg örugglega. Þetta
var mjög gaman og maður kynnist
líka mörgum.“
Freestyle | Eva er þrettán ára tvöfaldur meistari
Í dansi frá þriggja ára aldri
Morgunblaðið/Golli
Eva í tíma í Dansstúdíói World Class. Hún æfir þar tvisvar í viku og er fjórum sinnum í viku í ballett.
ingarun@mbl.is
TÓNLEIKAR Stuðmanna í Royal Al-
bert Hall í Lundúnum þann 24. mars
næstkomandi hafa vakið mikinn
áhuga hjá aðdáendum sveitarinnar,
innan lands og utan.
Nú þegar hafa öll flugsæti sem í
boði voru á vegum Icelandair selst
upp, samkvæmt fréttatilkynningu
frá tónleikahöldurum. Alls voru um
800 sæti í boði þegar saman eru lögð
sæti í venjulegu áætlunarflugi og
þeim leiguvélum sem settar voru inn
sérstaklega til að ferja fólk á við-
burðinn í Royal Albert Hall. Þá segir
í tilkynningunni að sala meðal Ís-
lendinga á Bretlandseyjum hafi
einnig gengið vel og séu alls á þriðja
þúsund miðar seldir á tónleikana.
Tónleikar Stuðmanna og fyr-
irhuguð sýning á Stuðmannamynd-
unum svokölluðu hefur vakið at-
hygli í breskum fjölmiðlum og hefur
hljómsveitin verið til umfjöllunar
meðal annars í dálki hjá dagblaðinu
The Guardian sem ber heitið „Who
the Hell are?“ sem myndi útleggjast
„Hverjir í fjandanum eru?“
Þar veltir blaðamaður upp þeirri
spurningu hvernig standi á því að
hljómsveit sem enginn hafi heyrt
minnst á í Bretlandi geti staðið undir
því að halda tónleika í einu virtasta
tónleikahúsi landsins, eins spyr
blaðamaður hvernig standi á því að
Íslandi geti endalaust framleitt tón-
list sem ekki sé nokkur leið að
flokka eftir hefðbundnum aðferðum.
Frídreifiblaðið Metro fjallar um tón-
leikana í dálkinum „hottest ticket in
town“ og segir tónleikana hljóta að
vera einn forvitnilegasta viðburðinn
í London yfir páskahelgina.
Enn er hægt að nálgast miða á
tónleikana á vefsíðu Royal Albert
Hall, www.royalalberthall.co.uk.
Miðaverð er á bilinu 20–35 pund.
Það er Baugurgroup í samstarfi
við Vífilfell og Icelandair sem stend-
ur að tónleikum Stuðmanna í Royal
Albert Hall.
Þrjú þúsund miðar
seldir á tónleikana
Morgunblaðið/Ásgeir Ingvarsson
Stuðmenn vöktu lukku er þeir léku fyrir rússneska félaga sína í Pétursborg.
Tónlist | Flugsæti á tónleika Stuð-
manna í Royal Albert Hall uppseld
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
ÍSLANDSBANKI
Sýnd kl. 2, 4 og 6.
VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ
20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI
VIÐS IPTAVI IR ÍSLA DSBA A FÁ
20 AFSLÁTT AF IÐAVERÐI
LEONARDO DiCAPRIO
Tilnefningar til
Óskarsverðlauna
þ.á.m. Besta mynd, leikstjóri,og aðalleikari.
11
Frá framleiðanda Training day
Miðasala opnar kl. 15.30
H.L. Mbl.
ÓÖH DV.
Baldur Popptíví
Ó.H.T Rás 2
Kvikmyndir.is
Yfir 32.000 mannsfir .
Ó.Ö.H. DV
S.V. Mbl.
CLOSER
JULIA ROBERTS
JUDE LAW CLIVE OWEN
NATALIE PORTMAN
2ÓSKARSVERÐLAUNATILNEFNINGAR
A MIKE NICHOLS FILM
Sýnd kl. 8. B.i. 14 ára.
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i.16 ára.
Ef þú trúir á ást við
fyrstu sýn, hættir þú
aldrei að horfa
J A M I E
F O X X
S.V. MBL.Ó.Ö.H. DV
Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna
jamie kennedyj i Alan cummingl i
Sýnd kl. 2, 4 og 6 Ísl tal / kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Enskt tal
3000km. að heiman. 10
eftirlifendur. Aðeins eitt tækifæri!
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14 ára.
Mögnuð spennumynd um baráttu upp
á líf og dauða
Frábær grínmynd
fyrir alla fjölskylduna
jamie kennedyi Alan cummingl i
jamie kennedyj i Alan cummingl i
Sýnd kl. 2 og 10.10. Sýnd kl. 4.30. Síðasta sýn.
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI
Kvikmyndir.is.
S.V. Mbl.
Sýnd kl. 2, 4 og 6 Ísl tal /
kl. 8 og 10. Enskt tal
Þ.Þ.. FBL
“…það mátti því búast við því að
Closer væri góð mynd en hún er gott
betur en það.”
i ll l l
Frábær grínmynd fyrir
alla fjölskylduna
i
ll l l
Fr r rí y
fyrir l fj lskyl u
ATH! GÆTI HUGSANLEGA VAKIÐ ÓTTA UNGRA BARNA
ATH! GÆTI HUGSANLEGA VAKIÐ ÓTTA UNGRA BARNA
Síðasta sýning
Ó.H.T. Rás 2
JULIA ROBERTS JUDE LAW CLIVE OWEN NATALIE PORTMAN
CLOSER
Sýnd kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20. B.i. 14 ára.
kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20.
Ef þú trúir á ást við fyrstu sýn, hættir þú aldrei að horfa
Ó.Ö.H. DV
Þ.Þ.. FBL
S.V. MBL.
Ó.H.T. Rás 2
“Frábær mynd í alla staði.
“…það mátti því búast við því að Closer væri góð
mynd en hún er gott betur en það.”
M.M.J. Kvikmyndir.com