Morgunblaðið - 26.02.2005, Qupperneq 64
64 LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8.15 og 10.30. B.i. 14.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 1.30, 3.45 og 6.
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14.
Hlaut tvenn Golden Globe verðlaun
LEONARDO DiCAPRIO
Sýnd kl. 2.50, 6 og 9.10.
ÁLFABAKKI
kl.1.30, 3.45, 6, 8.15 og 10.30
Kvikmyndir.is
DV
GOLDEN GLOBE
VERÐLAUN
Besti leikari - Jamie Foxxti l i i i
J A M I E F O X X
Sýnd kl. 5.30, 8.30 og 10.30. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 8. B.i. 16.
Sýnd kl. 3 og 5.30. Enskt tal
Sýnd kl. 3.
A Very Long Engagement
Ó.H.T. Rás 2
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI
Kvikmyndir.is.
S.V. Mbl.
J.H.H. Kvikmyndir .com
6
11
T I L N E F N I N G A R T I L Ó S K A R S V E R Ð L A U N A
• BESTA MYND • BESTI LEIKSTJÓRI • BESTI AÐALLEIKARI
T I L N E F N I N G A R T I L Ó S K A R S V E R Ð L A U N A
• BESTA MYND • BESTI LEIKSTJÓRI • BESTI AÐALLEIKARI
• BESTI AUKALEIKARI
2 tilnefningar til Óskarsverðlauna
KEFLAVÍK
kl. 8 og 10.10.
HELVÍTI VILL HANN,
HIMNARÍKI VILL HANN EKKI,
JÖRÐIN ÞARFNAST HANS
Magnaður spennutryllir með
Keanu Reeves og Rachel
Weisz í aðalhlutverki.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 1.30, 4, 5.30, 8 og 10.30. B.i 16.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8.15. B.i. 14.
SÝND Í LÚXUS VIP KL. 5.30, 8 OG 10.30.
Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna
jamie kennedy Alan cumming
GERARD JUGNOT FRANÇOIS BERLEAND KAD MERAD
4 tilnefningar
til óskarsverðlauna
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
KÓRINN
Frönsk kvikmyndaperla sem enginn má
missa af.Stærsta mynd Frakka í fyrra.
r i rl i
i f. t r t r í f rr .
S.V. MBL.. . .
4 tilnefningar til Óskarsverðlauna
4 tilnefningar til Óskarsverðlauna
H.L. Mbl.
Kvikmyndir.is
i ll l l
KRINGLAN
Sýnd kl. 12 og 2.15.
2 T I L N E F N I N G A R T I L Ó S K A R S V E R Ð L A U N A• BESTA ERLENDA MYNDIN • BESTA LAGIÐ
Þegar Chris Rock, kynnir á næstu Óskars-verðlaunaafhendingu, sagði að Óskarinn værifátt annað en tískusýning hafði hann að mörgu
leyti rétt fyrir sér. Verðlaunin fara fram annað kvöld og
fylgjast margir ekki síður spenntir með því í hverju
stjörnunar eru þegar þær ganga rauða dregilinn en
verðlaunaafhendingunni sjálfri. Áhorfendum þykir gam-
an að fylgjast með stíl Hollywood-
leikkvennanna, hvort sem hann
telst smekklegur eður ei. Björk í
svanakjólnum eftir Marjan Pejoski
á Óskarnum 2001 gleymist seint og
líka vakti athygli þegar Sharon
Stone mætti í Valentino-ballpilsi við bol frá GAP árið
1996. Tækifæri sem þessi til að skyggnast inn í persónu-
leika stjarnanna (Björk er framúrstefnuleg og Stone get-
ur verið alþýðleg) eru að verða úr sögunni. Síðustu tíu ár
hefur stjörnustílistinn verið við völd og passað uppá að
fræga fólkið geri ekki eins afdrifarík „mistök“.
Eins og allir þekkja er fræga fólkið óhrætt við aðflagga „hverjum það klæðist“ eins og það er orðað.
Þetta snýst ekki lengur um að það sé bara að styrkja ein-
hvern ákveðinn hönnuð og fái í staðinn ókeypis föt og
skartgripi til að nota á verðlaunahátíðum. Núna er svo
komið að tískuhúsin og skartgripafyrirtækin eru farin
að borga stærstu stjörnunum fyrir að klæðast ákveðnum
hlutum. Tíðkast að borga stjörnunum annaðhvort ein-
greiðslu eða að þær fái sérsamning við tískuhúsið, þó
þessir samningar fari ekki hátt.
Á Golden Globes-hátíðinni hættu bæði Charlize Ther-
on og Hilary Swank við að nota skartgripi frá Harry
Winston, sem þær höfðu fengið lánaða. Þess í stað báru
þær skartgripi frá keppinautinum, Chopard. Fyrir það
fengu þær sex stafa ávísun (í bandaríkjadölum!), að því
er kemur fram í grein The Los Angeles Times. Hæstu
skartgripasamningarnir eru sagðir vera uppá allt að
fimmtán milljónum íslenskra króna. Fyrirtækjunum
þykja þetta kjarakaup því þarna getur markaðsfólkið
notað nafn stjörnunnar og velvild fyrir brot af því sem
styrktarsamningur kostar. Til dæmis hljóðar samning-
urinn sem Nicole Kidman gerði um að vera andlit ilm-
vatnsins Chanel No. 5 í þrjú ár uppá um 240 milljónir
króna.
Aðdáendur leikkvenna eiga þó erfitt með að komastað því hvort þær séu í ákveðnum fötum af fag-
urfræði- eða peningalegum ástæðum. Renée Zellweger
klæðist gjarnan fötum frá Carolina Herrera á hátíðum
og þær eru sagðar nánar. Hvað þýðir það nákvæmlega?
Theron er opinbert andlit ilmvatnsins J’Adore frá Dior
en er ekki undir samningi við að klæðast Dior-fötum.
Samt var hún í kjól frá Dior á síðustu Golden-Globe-
hátíð. Sama má segja um Kidman en hún er oft í kjólum
frá Chanel. Ekki er alltaf ljóst hvort samningur liggur að
baki þessu eða ekki en víst er að stórar fjárhæðir skipta
um eigendur. Í svona sambandi er allavega víst að tísku-
húsin stjana við stjörnurnar sem styðja þau, fljúga með
þær hvert sem þarf í mátanir og þar fram eftir götunum.
Samband leikkvenna og hönnuða hefur lengi tíðkast,eins og til dæmis gerðu Audrey Hepburn og Hubert
de Givenchy mikið fyrir feril hvors annars og urðu vinir
ævilangt. Það samband var hagkvæmt fyrir báða aðila
þótt það hafi ekki snúist um peninga. Segja má að Giv-
enchy hafi sett á markað fyrsta stjörnuilmvatnið þegar
L’Interdit kom á markað árið 1957 en hann gerði ilm-
vatnið sérstaklega fyrir Hepburn.
Rauði dregillinn borgar vel
AF LISTUM
Inga Rún
Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
AP
Ekki voru allir sáttir þegar Gwyneth Paltrow klæddist
prinsessukjól frá Ralph Lauren á Óskarnum 1999.
’Nú er svo komið að tískuhúsin og skartgripafyrirtækin eru farin að
borga stærstu stjörnunum fyrir að
klæðast ákveðnum hlutum.‘
ÁSTRALSKI leikarinn Julian
McMahon, sem m.a. er þekktur fyr-
ir leik sinn í sjónvarpsþáttunum
Nip/Tuc, segist vera annar tveggja
leikara er komi til greina í hlutverk
James Bond í næstu mynd. Herma
fregnir að hinn leikarinn sé Clive
Owen. Þetta kemur fram í breska
blaðinu Mirror.
McMahon segist
þar hafa farið í
hlutverkaprufu hjá
framleiðendum
Bond-myndanna og
þeir hafi sagt sér
að ákvörðunar væri
að vænta innan
tveggja mánaða.
Valið stæði á milli
hans og annars leikara. „Þetta
verður erfið bið.“
Lýtalæknirinn
næsti Bond?
Bond-legur í
kjól og hvítu.